Fréttablaðið - 24.01.2009, Síða 11
LAUGARDAGUR 24. janúar 2009 11
DÓMSMÁL Systkini voru dæmd í
fjögurra mánaða skilorðsbundið
fangelsi í Hæstarétti í gær fyrir
að hafa ráðist á varðstjóra lög-
reglu á lögreglustöð. Fólkið skall-
aði og beit lögregluþjóninn.
Lögregla hafði lagt hald á
áfengi mannsins, sem þá var 17
ára, á gamlársdag 2006. Hann
kom með systur sinni, þá 23 ára,
á lögreglustöðina skömmu síðar,
og kröfðust þau þess að fá áfeng-
ið afhent. Þau lentu í átökum við
lögregluvarðstjóra, sem hlaut
minniháttar áverka vegna árás-
arinnar. Sökuðu þau varðstjórann
um harðræði, en Hæstarétti þótti
ekkert komið fram sem renndi
stoðum undir þá fullyrðingu. - bj
Systkini dæmd fyrir árás:
Skölluðu og
bitu varðstjóra
IÐNAÐUR Útboð á fimm sérleyf-
um til rannsóknar og vinnslu
kolvetnis á Drekasvæðinu á Jan
Mayen-hryggnum er byrjað.
Össur Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra opnaði það nýlega þegar
vefsíða útboðsins fór í loftið og
varð öllum aðgengileg.
Kristinn Einarsson, yfirverk-
efnisstjóri hjá Orkustofnun, segir
að útboðið sé eins og hvert annað
opinbert útboð. Útboðstímabilið
sé nú hafið og því ljúki 15. maí.
Fyrir þann tíma þurfa áhugasöm
fyrirtæki að hafa skilað inn til-
boðum. - ghs
Drekasvæðið:
Útboð á sérleyf-
um er hafið
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest sýknudóm yfir karlmanni,
sem var ákærður fyrir kynferðis-
brot og líkamsárás. Maðurinn
sótti í að slá tvo drengi, sex og
fjögurra ára á beran rassinn með
þeim afleiðingum að þeir hlutu
roða. Að því loknu bar hann olíu
á rassinn á þeim. Þá var hann
ákærður fyrir að hafa ráðist á
vinkonu sína, móður drengjanna,
og slegið hana á beran rassinn og
ber læri með beltisól svo á sá.
Þegar faðir drengjanna, sem
býr ekki með móðurinni, uppgötv-
aði athæfið tilkynnti hann það.
Ekki var talið sannað að háttsemi
mannsins væri brot á lögum. - jss
Dómur staðfestur:
Rassskellirinn
var sýknaður
HEILBRIGÐISMÁL Þriðjungur þeirra
kvenna á Íslandi sem fór í fóstur-
eyðingu á árinu 2007 hafði áður
látið eyða fóstri. Þetta kemur
fram í tölum frá Landlæknisemb-
ættinu.
Alls létu 877 konur eyða fóstri
á árinu 2007. Var það eilítil
fækkun frá árinu á undan þegar
fóstureyðingar voru 904 tals-
ins. Frá árinu 1982 voru flest-
ar fóstureyðingar á árinu 2000
þegar þær voru 987.
Af áðurnefndum 877 konum
á árinu 2007 höfðu samtals 297
áður gengist undir fóstureyðingu,
þar af 58 tvisvar sinnum og 25
konur þrisvar sinnum. - gar
Fóstureyðingar á Íslandi:
Þriðjungur að
eyða fóstri á ný
VIÐ STEKKJARBAKKA Tillaga um bygg-
ingu slökkvistöðvar í Elliðaárdal mætir
andstöðu.
SKIPULAGSMÁL Hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins er nú til
skoðunar ný lóð fyrir slökkvistöð
í stað umdeildrar staðsetningar
við Stekkjarbakka í Elliðaárdal.
Stekkjarbakki er talinn ákjós-
anlegur fyrir byggingu nýrrar
slökkvistöðvar en þessari hug-
mynd mótmæla þó bæði íbúar í
næsta nágrenni og aðrir unnend-
ur útvistarsvæðisins í Elliðaár-
dal. Nú er komin fram tillaga um
að nýja stöðin verði við Jafna-
sel í Breiðholti og hefur stjórn
slökkviliðsins falið slökkviliðs-
stjóra að athuga þann möguleika.
Jafnframt á að ræða við lögreglu-
stjórann á höfuðborgarsvæðinu
sem vill að skoðuð verði möguleg
aðkoma lögreglunnar að fyrirhug-
uðu húsnæði slökkviliðsins við
Skarhólabraut í Mosfellsbæ. - gar
Horft í nýjar áttir í lóðamáli:
Ný slökkvistöð
sé í Seljahverfi
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Selfossi handtók sjö ung-
menni í fyrradag vegna innbrots og þjófnaðar í
Laugarási í Biskupstungum.
Lögreglu barst tilkynning um grunsamlegar
ferðir manna á jeppabifreið í gróðurhúsahverfi í
Laugarási rétt fyrir miðnætti síðastliðins þriðju-
dags. Lögreglumenn fundu jeppann á ferð skammt
frá Laugarási. Í honum voru fimm ungmenni sem
sögðust vera þar í útsýnisferð. Ekkert þýfi var í
bifreiðinni en þar sem grunur lék á að nokkru áður
hefði kerra verið aftan í bifreiðinni var gerð leit að
henni. Kerran fannst við Reykholt í Biskupstung-
um og í skurði rétt við fannst ýmiss öryggisbúnaður
sem notaður er við akstur torfæruhjóla. Í ljós kom
síðar að torfæruhjóli hafði verið stolið frá Laugar-
ási. Tveir til viðbótar voru síðar handteknir vegna
meintrar aðildar að málinu. Ungmennin sjö viður-
kenndu við yfirheyrslur að hafa brotist inn í Laug-
arási og stolið torfæruhjólinu og ætlað að stela öðru
til viðbótar en tókst ekki að gangsetja það. Kerrunni
stálu þau þar sem hún var við Búrfellsveg í Gríms-
nesi.
Ungmennin höfðu ætlað sér að brjótast inn í sum-
arbústaði í ferðinni en ekkert varð úr því þar sem
þau voru stöðvuð áður en til þess kom. - jss
Lögreglan á Selfossi handtók sjö ungmenni með stolið góss:
Rændu torfæruhjóli og kerru
SELFOSS Lögreglan á Selfossi handtók ungmennin.
Fjármálaráðgjöf fyrir þig
Starfsfólk Kaupþings aðstoðar þig við allt sem tengist fjármálum heimilisins og breyttum
aðstæðum og leitar hentugra úrræða fyrir þig ef þarf.
Kynntu þér málin á www.kaupthing.is, hafðu samband í síma 444-7000
eða komdu við í næsta í útibúi Kaupþings.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
45
39
0
1/
09
• Heimilisbókhald • Stöðumat • Netdreifing/útgjaldadreifing
• Úrræði í greiðsluerfiðleikum • Sparnaðarleiðir • Lífeyris- og tryggingamál
Kynntu þér úrræðin