Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.01.2009, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 24.01.2009, Qupperneq 34
28 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR Ó ljóst er hvaða dilk árásir Ísraela á Gasasvæðið munu draga á eftir sér fyrir Ísra- ela sjálfa. Palestínumenn búa við gríðarlega eyðileggingu og mannfall, en Ísraelar eru farnir að búa sig undir kosningar, sem verða 10. febrúar næstkomandi. Ísraelsstjórn getur þó ekki látið sem þeir heyri ekki ásakanir um stríðsglæpi og hefur falið Daniel Friedman dómsmálaráðherra að skipuleggja og samhæfa varnir stjórnar- innar í þeim dómsmálum, sem líklega verða höfðuð. Afleiðingar árása Árásirnar á Gasa, sem stóðu yfir nánast stanslaust í þrjár vikur, kostuðu nærri 1.300 Palestínumenn lífið. Langflestir þeirra voru almennir borgarar, þar af hundruð á barns- aldri. Ísraelar misstu á sama tíma þrettán manns, þar af fjóra hermenn. Ísraelar gjöreyðilögðu meirra en 4.000 byggingar á Gasasvæðinu, en að auki eru meira en 20.000 byggingar illa farnar. Fimm- tíu þúsund íbúar á Gasa misstu heimili sín. Ísraelar sjálfir segja fráleitt að herinn hafi framið stríðsglæpi með árásunum á Gasa. Þeir standa fast á því að árásir hafi ekki verið gerðar á staði, þar sem búast mætti við almennum borgurum, nema fyrst hafi verið skotið á Ísraela þaðan. Ásakanir um stríðsglæpi Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, hefur krafist þess að þeir sem bera ábyrgð á árásinni á höfuðstöðvar Sam- einuðu þjóðanna í Gasaborg verði dregnir til ábyrgðar. Mannréttindasamtökin Amnesty Int- ernational segja engan vafa leika á því að sprengjur með hvítum fosfór hafi verið not- aðar óspart á íbúðasvæði, sem samtökin segja ótvírætt brot á alþjóðalögum og þar með stríðsglæp. Átta ísraelsk mannréttindasamtök hafa auk þess skorað á ríkisstjórnina að rann- saka sjálf atburðina í ljósi þess hve gífur- lega margar konur og börn létu lífið. Stríðsglæpadómstóll Vandinn við að ákæra Ísrael til stríðsglæpa- dómstóls Sameinuðu þjóðanna er sá, að Ísra- el er ekki aðildarríki að honum. Til þess að hægt verði að höfða mál þyrfti því öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna að fela dómstóln- um rannsókn á framferði Ísraela, en til þessa hafa Bandaríkjamenn jafnan staðið í vegi fyrir aðgerðum á vettvangi ráðsins gegn Ísrael. Umfang eyðileggingarinnar Smám saman er að koma betur í ljós hvert umfang eyðileggingarinnar á Gasaströnd er. Ísraelar neita að hafa framið stríðsglæpi, en sæta þó vaxandi gagnrýni fyrir framferði sitt. Guðsteinn Bjarnason kynnti sér nýafstaðnar árásir og blóði drifna sögu landsins. TJÓNIÐ KANNAÐ Palestínumaður frá mannréttindasamtökum tekur niður upplýsingar frá Rami Najar fyrir utan gjör- eyðilagt heimili hans í Khan Younis. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SKÓLABÆKURNAR FUNDNAR Systurnar Dunia og Dana skoða skólabækurnar sínar eftir að hafa fundið þær í rústum heimili síns sunnantil í Gasaborg. NORDICPHOTOS/AFP 1967 Ályktun öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna númer 242, samþykkt í kjölfar sex daga stríðsins: krafa um brotthvarf Ísraels frá herteknu svæðunum, og krafa um gagnkvæma við- urkenningu ríkja í þessum heimshluta. 1973 Ályktun öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna númer 338, samþykkt í Yom Kippur-stríðinu: krafa um vopnahlé og ályktun 242 ítrekuð. 1978 Camp David-samkomu- lagið: Egyptar og Ísraelar semja um frið fyrir milli- göngu Bandaríkjamanna. 1993 PLO-samtökin viðurkenna tilvist Ísraelsríkis og hafna beitingu ofbeldis, en í staðinn viðurkennir Ísrael að PLO sé fulltrúi Palest- ínumanna. 1994 Óslóarsamkomulagið um að Palestínumenn taki smám saman við stjórn innanríkismála á Vestur- bakkanum og Gasaströnd. 1995 Bráðabirgðasamkomulag (Ósló II) um Vesturbakk- ann og Gasasvæðið, þar sem Ísraelar fallast á að Palestínumenn geti ferðast á milli þessara tveggja svæða. 2000 Camp David-samningavið- ræður Ísraela, Palestínu- manna og Bandaríkjanna, sem skiluðu ekki árangri þótt mjóu hafi munað. 2003 Vegvísir að friði: Tímaáætl- un kvartettsins svonefnda (Bandaríkjamanna, Rússa, Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna) um áfanga á leið til friðar, sem hvorki Palestínumenn né Ísraelar hafa formlega fallist á. 2003 Genfarsamkomulag: óopinber viðmið um viðræður milli Ísraela og Palestínumanna. LANGVARANDI FRIÐARUMLEITANIR PLO, Frelsissamtök Palestínu, voru helstu sam- tök Palestínumanna allt til kosninganna 2006. Samtökin voru stofnuð 1964 að frumkvæði Arababandalagsins til þess að gæta sameig- inlegra hagsmuna Palestínumanna og tala máli þeirra út á við. Jasser Arafat var leiðtogi þeirra frá 1969 til dauðadags 2004, en þá tók Mahmoud Abbas við forystunni. FATAH Stjórnmálaflokkur, stofnaður af þjóð- ernissinnuðum Palestínuaröbum árið 1954 og berst fyrir sjálfstæði Palestínu. Flokkurinn var jafnan stærsta hreyfingin innan PLO. Meðal stofnenda FATAH var Jasser Arafat, sem tók við formennsku í flokknum árið 1969. Mahmoud Abbas tók síðan við formennskunni við lát Arafats 2004. Hraktist frá völdum á Gasa 2007 eftir harðvítug átök við Hamas, en Abbas situr enn sem forseti Palestínustjórnar. HAMAS Stjórnmálaflokkur, stofnaður árið 1987 af íslamistum, sem hafa frá upphafi bæði stundað vopnaða baráttu gegn Ísrael og unnið að margvíslegri uppbyggingu í samfélagi Palestínumanna. Vann sigur í kosningum Palestínumanna 2006, myndaði ríkisstjórn en hraktist frá völdum á Vesturbakkanum 2007 eftir harðvítug átök við FATAH. HELSTU SAMTÖK PALESTÍNUMANNA Átök gyðinga og araba í Pal- estínu hafa í reynd staðið yfir í heila öld, með hléum þó. Fyrst sló í brýnu þegar síonistar komu sér upp vopnasveit til að verja landnámsþorp sín fyrir aröbum. Síðan hafa átökin og styrjaldirn- ar haldið linnulaust áfram. Þau helstu eru: 1948 braust út styrjöld í beinu framhaldi af stofnun Ísraelsríkis þar sem Ísraelar áttust við arabaríkin í kring. 1956 tóku Ísraelar þátt í stríði Breta og Frakka við Egypta út af Súes-skurðinum með því að ráðast inn á Sínaískaga, sem var undir yfirráðum Egypta. 1967 hófu Ísraelar sex daga stríðið svokallaða með árás á Egypta vegna gruns um að Egyptar og Sýrlendingar hygðust ráðast á Ísrael. 1973 réðust Egyptar og Sýrlend- ingar á Ísrael á Yom Kippur, einum helgasta degi ársins hjá gyðingum. 1982 Stríð í Líbanon, Ísraelar ráðast gegn PLO. 1987 hefst fyrri uppreisn Pal- estínumanna á herteknu svæðunum, stendur til 1993. 2001 hefst seinni uppreisn Pal- estínumanna á herteknu svæðunum. 2006 ráðast Ísraelar gegn Hezbolla-hreyfingunni í Líbanon. 2009 Árásir Ísraela gegn Hamas á Gasa. HUNDRAÐ ÁRA STRÍÐIÐ © GRAPHIC NEWS Spenna og stundum harðvítug átök hafa verið á milli gyðinga og araba í Palestínu allar götur síðan gyðingar tóku að hreiðra þar um sig á ný fyrir meira en öld. ➜ SAGA LANDNÁMS OG ÁTAKA 1947 Aðskilnaðaráætlun Sameinuðu þjóðanna Uppreisn síonista 1939-48 LÍBANON SÝRLAND Haífa ÍSRAEL Miðjarðarhaf Tel Avív - Jaffa Gasa- svæðið undir stjórn Egypta Gasaborg Vestur- bakkinn, innlimaður í Jórdaníu 1949 Jerúsalem Beersheva JÓRDANÍA Amman Galíleuvatn Áin Jórdan Dauðahafið Sjálfstæði 1948-49 Brotthvarf Breta: Ísrael lýsir yfir sjálfstæði. Innrás Egypta, Jórdana, Sýrlendinga, Íraka og Líbana er brotin á bak aftur. Palestínskir flóttamenn: 700.000 flýja þegar Ísraelsher leggur undir sig svæði araba. 50 km 1917 BALFOUR-YFIRLÝSINGIN Bretar viðurkenna hugmyndir síonista um að gyðingar fái heimkynni í Palestínu - án þess þó að fallast á stofnun sjálfstæðs ríkis þeirra. 1922 Breska umboðsstjórnin FRANSKA UMBOÐSSVÆÐIÐ TRANSJÓRDANÍA ÍRAK Þjóðabandalagið veitir Bretum umboð til að stjórna Palestínu og Transjórdaníu til und- irbúnings að stofnun ríkis gyðinga.EGYPTALAND HEJAZ (SÍÐAR SÁDI-ARABÍA) PALESTÍNA Bretar láta umboð af hendi. Allsherj- arþing Samein- uðu þjóðanna samþykkir tvískipt ríki. Borgarastríð brýst út. Arabar Gyðingar Bretar/útlendingar 1967 Herteknu svæðin Vesturbakkinn og Gaza- strönd hafa verið hernáms- svæði Ísraela rúma fjóra áratugi Yfirráðasvæði Palestínumanna nú ÍSRAEL Jenín Tel Avív Ramalla Jerúsalem Betlehem Hebron Gazaborg 40 km Dauðahafið Vesturbakkinn Íbúafjöldi: 2 milljónir þar af flóttamenn: 700.000 Stærð: 5.860 ferkílómetrar Gazaströnd Íbúafjöldi: 1,4 milljónir þar af flóttamenn: 990.000 Stærð: 360 ferkílómetrar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.