Fréttablaðið - 24.01.2009, Page 36
ÞAÐ HEITASTA Í ...
HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR
ferðalög kemur út mánaðarlega
með sunnudagsblaði Fréttablaðsins.
Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is
Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir
Forsíðumynd Sólveig Pétursdóttir
Pennar Sigríður B.Tómasdóttir
Ljósmyndir Fréttablaðið, Getty Images
Auglýsingar Benedikt F.Jónsson benediktj@365.is
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
JANÚAR 2009
Á slóðum veiðimanna og gullgrafara í Mikisfirði
+ SEIÐANDI STRENDUR NORÐUR-AFRÍKU, HELGARFERÐ TIL AKUREYRAR, HEIMSBORGIN ÓSLÓ
Svaðilför til
GRÆNLANDS
2 FERÐALÖG
M
arokkó og Túnis eru spenn-
andi og exótískir áfanga-
staðir án þess þó að vera
hinum megin á hnettinum.
Þar er að finna fallegar strendur og
iðandi borgarlíf og allt á verði sem ætti
ekki alveg að sprengja budduna. Ferða-
mannastaðurinn Essaouria í Marokkó
sem liggur á Afríkuströndinni andspæn-
is Kanaríeyjum er til dæmis góður kost-
ur fyrir þá sem vilja bregða sér í strand-
frí. Þar er meðal annars hægt að stunda
seglbretti og sjóskíði og gamli miðbær-
inn er sérlega sjarmerandi og hægt að
gera góð kaup á marokkóskum vörum
eins og teppum og leirkerum. Önnur
strandparadís er Djerba í Túnis þar
sem hvítir sandar mæta hvítkölkuðum
húsum í arabískum stíl. Bærinn Houmt
Souk þar sem hægt er að kaupa antík-
muni, krydd og teppi minnir á ævintýri
úr Þúsund og einni nótt. Einnig er vert
að minnast á hina dásamlegu matseld.
Sniðugast er að bóka ferðir til Marokkó
og Túnis í gegnum London og má þá til
dæmis skoða www.easyjet.com. Prófið
einnig www.industunisia.com
SEIÐANDI SANDAR
Norður-Afríka er ódýr kostur í kreppunni en hægt er að kaupa ódýra vikupakka á ströndum
Marokkó eða Túnis. Exótískur valmöguleiki í stað Kanaríeyja.
Hvítir sandar
Strendur Norður-
Afríku eru sérlega
fallegar og þar er
einnig hægt að
stunda sjóskíði
og seglbretti.
Þ
ar sem ég gekk í gegnum miðbæinn í vikunni
með kuldastrenginn í fangið hvarflaði hug-
urinn til heitari landa. Nú eru tvö ár síðan
ég fór í góðærisferðalagið mitt með fjöl-
skyldunni, alla leið til Gvæjana. Ekki beinlínis staður
í alfaraleið, smáríki á norðurströnd Suður-Ameríku
sem fáir hafa heyrt um. Landið telst þróunarríki, þar
er ein borg, Georgetown, stærstur hluti íbúanna býr
þar eða í nágrenni hennar. Afgangurinn af landinu er
svo meira og minna strjálbýll regnskógur.
Það er ekki beinlínis straumur túrista um landið,
ég hef að minnsta kosti aldrei lent í því áður á ferða-
lagi að vera stöðvuð úti á götu og spurð hvort ég sé
ferðamaður og mér fagnað gríðarlega þegar ég svara
spurningunni játandi. Ég, maðurinn og þá tveggja ára
sonur, tókum ekki ákvörðun um ferðalagið bara upp á
flippið, við vorum að heimsækja vinafjölskyldu sem
þar bjó og starfaði. Og langferðalagið var sannarlega
þess virði að fara það.
Mjög áhugavert var til dæmis að fara inn í regn-
skóginn og gista þar, svipast um eftir dýrum og fugl-
um, sem var reyndar aðeins erfitt með litla krakka
sem náðu því ekki að það mætti ekki tala á meðan
slíkum ferðum stæði. Einnig var gaman að skoða
Georgetown, borg sem er í mikilli niðurníðslu þótt
inn á milli megi sjá byggingar í nýlendustíl Breta sem
voru þarna herrar og skildu eftir tungumálið þegar
þeir fóru. Sérlega heimilislegt var líka að geta pant-
að sér hamborgara með frönskum og kokkteilsósu á
fína hótelinu í bænum, menningararfleifð íslenskrar
flugáhafna í leiguflugi til Georgetown.
Allan tímann var heitt og gott veður, ekki of heitt
eins og verður á þessum slóðum. Strákurinn minn
talar enn um ferðina, sérstaklega þegar er napurt
úti, þá segist hann vilja fara til Gvæjana því þar sé
alltaf heitt.
Ferðalög á framandi slóðir eru reyndar ekki á dag-
skránni hjá fjölskyldunni í bili, en að sjálfsögðu ekki
afskrifuð um ókomna tíð. Þar til þvælist fjölskyld-
an um Ísland og þar er af nógu að taka. Á veðrið er
hins vegar ekkert að treysta, hvort sem ferðast er um
sumar eða vetur er best að taka ullarnærfötin með.
Sigríður Björg Tómasdóttir skrifar
HUGSAÐ TIL
HEITARI LANDA
flugfelag.is
Netið
Þú færð alltaf
hagstæðasta verðið
á www.flugfelag.is
Afdrep frá hitanum Klassískur arkitektúr í Essaouria,
Marokkó.
UPPÁHALDSVERSLUNARGATAN:
Bogstadveien í Majorstua-hverf-
inu. Merkjabúðir í bland við „high
street“-búðir eins og H&M, BikBok
og Gina Tricot.
FALLEGASTA KAFFIHÚSIÐ TIL
AÐ SÆKJA: „KaffeKaffe“ er kósí
kaffihús. Það er á Parkveien fyrir
aftan konungshöllina, í skjóli frá
skarkala miðborgarinnar.
SMARTASTI BARINN: Panorama-
barinn á efstu hæðinni á Radisson
Sas-hótelinu í hjarta borgarinnar.
Góð blanda af frábæru útsýni yfir
borgina og framandi kokkteilum.
NEFNDU TVO BESTU VEITINGA-
STAÐINA Í BORGINNI: Á tapas-
barinn „SanLenardo“ í hliðargötu
við Bogstadveien er gaman að
fara á í góðra vina hópi.
NÝJASTA UPPGÖTVUNIN ÞÍN?
Mér til mikillar ánægju rambaði
ég fram á flóamarkað fyrir stuttu
í Grunelokka-hverfinu. Þar eru
margir faldir fjársjóðir og ég hef
aldrei farið tómhent heim.
BESTI STAÐURINN TIL AÐ FARA
MEÐ BÖRN: Vigelandsparken
í Frogner er æðislegur garður.
Þar er risastór leikvöllur og bæði
gaman að sitja á teppi með nesti
á sumrin jafnt og að fara á sleða
á veturna. Stór plús eru einnig
fallegu stytturnar sem prýða garð-
inn eftir norska myndhöggvarann
Gustav Vigeland.
SKEMMTILEGASTA LISTASAFNIÐ:
Edvard Munch-safnið er klassískt
að heimsækja og svo er Astrup
Fearnley-nýlistasafnið alltaf með
skemmtilegar sýningar.
HIPP OG KÚL-HVERFIÐ ER:
Grunelokka. Gamalt iðnaðarhverfi
þar sem stúdentar og unga fólkið
er búið hreiðra um sig á síðustu
árum. Flott kaffihús, sniðugar
búðir og iðandi mannlíf alla daga
vikunnar.
HEIMAMAÐURINN
Ósló
ÁLFRÚN PÁLSDÓTTIR, HÁSKÓLANEMI Í FJÖLMIÐLAFRÆÐI