Fréttablaðið - 24.01.2009, Side 39
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég verð eitthvað að skrifa,“ er
það fyrsta sem Snæfríður segir
þegar hún er spurð hvað hún ætli
að gera um helgina. Svo kemur í
ljós að hún situr við skriftirnar
utan skarkala borgarinnar. „Ég er
í 100 ára gömlu húsi sem við hjón-
in keyptum fyrir tveimur árum á
Hellissandi, alveg niðri í fjöru.“
segir hún og bætir við að aðeins
séu nokkrir metrar niður í flæð-
armálið. „Við getum horft á selina
út um eldhúsgluggann og jökulinn
út um stofugluggann. Það er ekki
hægt að biðja um meira. Annars er
ég með hálfgert samviskubit yfir
því að stinga af frá mótmælunum,
auðvitað ætti ég frekar að vera í
miðbænum með potta og pönnur.“
Snæfríður kveðst vera að skrifa
ferðamannahandbók. Ein kom út
eftir hana síðastliðið vor, 50 crazy
things to do in Iceland með mynd-
um eftir Þorvald Örn Kristmunds-
son og það var sú fyrsta í þriggja
bóka seríu. Sú næsta kemur út
í febrúar og heitir 50 romantic
things to do in Iceland og nú er hún
byrjuð á þeirri þriðju, 50 things to
taste in Iceland sem kemur út á
þessu ári.
Snæfríður hefur fleiri járn í eld-
inum og er greinilega að veðja á
ferðaþjónustuna því hún stund-
ar lærdóm við Leiðsöguskólann í
Kópavogi. Byrjaði í fyrra en gat
ekki klárað skólann þá vegna fæð-
ingar dóttur sem er tíu mánaða
núna. Snæfríður segir námsefn-
ið stórskemmtilegt og fræðandi
og hvergi betra að grúska í því en
vestur á Snæfellsnesi. Eiginmað-
urinn er að ljúka sveinsprófinu í
smíði og Snæfríður segir hann líka
með verkefni úr skólanum til að
dunda í fyrir vestan. „Það er svo
gott að vinna hérna,“ segir hún
og tekur undir að kynngikraftur
jökulsins hafi þar ugglaust áhrif.
„Svo er bara svo kósí að vera hér
og gaman að fara í göngutúra um
fjöruna með dótturina á bakinu,“
lýsir hún og hlær þegar hún er innt
eftir hvað hún hafi á borðum um
helgina. „Ég tek eitthvað úr fryst-
inum. Ætli ég eldi ekki bara fisk úr
Breiðafirðinum?“ gun@frettabladid.is
Horfir á selina út um
eldhúsgluggann sinn
Snæfellsnesið heillar Snæfríði Ingadóttur rithöfund til sín þessa helgi. Þar dvelur hún ásamt eiginmanni
og dóttur í hundrað ára gömlu húsi, horfir á selina út um eldhúsgluggann og jökulinn um stofugluggann.
„Auðvitað ætti ég frekar að vera í miðbænum með potta og pönnur,“ segir Snæfríður sem hér er í útivist ásamt dótturinni Ragn-
heiði Ingu Matthíasdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NAFNFRÆÐIFÉLAGIÐ heldur opinn fræðslufund í
Öskju, húsi Háskóla Íslands, á morgun klukkan 13.15. Fluttur
verður fyrirlestur um nafngiftir á nýjum dýrategundum en á
hverju ári finnst fjöldi áður óþekktra dýrategunda.
VÍNLANDSLEIÐ 6 - S: 533 3109
Rugldagar
um helgina!
Allt að 60% afsláttur af kvenstígvélum
40% af öllum Ara og Gabor skóm
OPIÐ MÁN.-FÖS. 11 - 18 · LAU. 11 - 16 · SUN. 12 - 16
3.995 kr.-
Verð áður:
Tilboð:
2.495kr.-
Loðfóðruð stígvél
Sat 9912310
Stærðir 23 - 35
Dömu skór
Ara 53113
40% afsláttur
af öllum Ara skóm
3.000 kr.-
Verð áður:
Tilboð:
1.995kr.-
Spiderman kuldaskór
Etsrossano
Stærðir 23 - 30
5.995 kr.-
Verð áður:
30% afsláttur:
4.196kr.-
Ungbarnaskór
70921-53753
5.995 kr.-
Verð áður:
30% afsláttur:
4.196kr.-
Ungbarnaskór
70921-54252
19.995 kr.-
Verð áður:
30% afsláttur:
13.996kr.-
Golfskór (hvítt/svart)
E-38414 53539
Stærðir 40 - 46
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti húsgögn
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
80%afslætti
valdar vörur með allt að
borð
FRÁ
16.78
0
leðu
r sóf
aset
t 3+1
+1
220
.000
stóla
r FRÁ
6.359
Kolaportið
er opið
laugardaga
og
sunnudaga
frá kl. 11-17
Tr y g g v a g ö t u 19 • 101 R e y k j a v í k
S í m i 5 62 5 0 3 0 • w w w . k o l a p o r t i d . i s