Fréttablaðið - 24.01.2009, Page 40

Fréttablaðið - 24.01.2009, Page 40
Tónleikar tónsmíðanemenda Lista- háskóla Íslands verða haldnir nú um helgina á laugardag og sunnu- dag og hefjast klukkan fimm báða dagana. Þar stíga á stokk ýmsir tónlistarmenn og flytja verk eftir ung og upprennandi tónskáld sem nema við Listaháskólann. „Þetta eru mestmegnis nemend- ur við skólann sem eru þá ýmist að læra á hljóðfæri eða söng. Í sumum tilfellum eru verk tónskáldanna þó með hljóðfæri sem enginn er að læra á og þá koma utanaðkomandi til að flytja verkið. Til dæmis er Kristinn Evertsson búinn að semja verk fyrir blásarasveit og hefur fengið til liðs við sig Wonderbrass- hópinn og Kammerkór Suðurlands flytur verk Haralds R. Sverrisson- ar og mitt verk með mér en ég mun syngja einsöngshluta í því,“ segir Hafsteinn Þórólfsson, söngvari og tónskáld, en hann stundar nú nám við tónlistardeild Listahá- skóla Íslands. Verk Haraldar og Hafsteins verða síðan flutt aftur á Myrkum músíkdögum. Tuttugu og fjórir nemendur semja verk sem flutt verða á tón- leikunum og eru þá tólf verk flutt á hvorum tónleikum. „Sum verk- in eru klassísk en síðan er töluvert um hljóðverk eða rafverk. Nokkrir eru með verk sem samin voru við stuttmyndir, annaðhvort sem þeir hafa gert sjálfir eða við verk ann- arra. Til dæmis samdi einn bekkj- arfélagi minn tónverk við gamla þögla mynd. Þannig að dagskráin er mjög fjölbreytt og spennandi,“ segir Hafsteinn og nefnir að mesta tilhlökkunin sé að heyra hvað sam- nemendurnir eru að gera og sjá verkin lifna við. Tónleikarnir eru opnir öllum og verður þeim einnig útvarpað á net- inu á vef Listaháskólans, www.lhi. is. „Tveir nemendur í skólanum sjá um dagskrána á netinu, Haraldur og Arnþrúður, og verða þau með kynningar um tónskáldin, upplýs- ingar um flutning og svo framveg- is,“ útskýrir hann áhugasamur. Verk Hafsteins á tónleikunum er fyrir kór og einsöngvara. „Pæling- in var að nota allt mjög íslenskt og er þetta að sumu leyti endursögn á verkinu Á Sprengisandi, þar sem ég nota íslenska taktinn og fimm- undir. Textinn er saminn af mér og vini mínum Hannesi Páli Páls- syni og flyt ég verkið með kamm- erkórnum. Síðan flyt ég verk eftir bekkjarsystur mína Þórunni Grétu Sigurðardóttur. Eru það þrjú lög fyrir einsöngvara og píanó sem samin eru við ljóð Andra Snæs Magnasonar. Ég flyt síðan annað verk eftir Kristínu Bergsdóttur í kvartett,“ segir Hafsteinn sem hefur í nógu að snúast á tónleik- unum en hann stundaði söngnám í Bretlandi. „Gaman er að vera kominn hinum megin við borðið, ef svo má segja. Í skólanum er mjög góður andi og hvetjandi umhverfi til sköpunar. Nemendur eru hvattir áfram til að finna sinn stíl og gera sitt,“ segir Hafsteinn ánægður og bætir við að í stað þess að reynt sé að móta nemendur þá séu þeir hvattir til að blómstra. hrefna@frettabladid.is Hlökkum til að hlusta Um helgina verða haldnir tónleikar tónsmíðanemenda Listaháskóla Íslands, bæði laugardag og sunnu- dag. Gefst þar tækifæri til að hlýða á ný verk eftir upprennandi tónskáld sem stunda nám við skólann. Auk þess að eiga verk á tónleikunum, sem hann tekur þátt í að flytja, þá syngur Hafsteinn í verkum tveggja annarra tónskálda. Hér er hann við æfingar með Jane píanóleikara og Þórunni Grétu Sigurðardóttur tónskáldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SKÁKLIST nefnist sýning sem opnuð verður á Kjarvalsstöð- um á morgun klukkan 16.00. Í norðursal verður einnig opnuð sýningin Leikur á borði sem er sérstaklega fyrir fjölskyldufólk og þar er hægt að útbúa sitt eigið skákborð. Ósk Axelsdóttir mósaíklista- kona með meiru er fyrsti gestur nýs þáttar sem hefst nú um helgina á ÍNN og Guðrún Guðlaugsdóttir blaða- maður stýrir. Fyrsti viðmælandi Guðrúnar í nýja þættinum Gestir er Ósk Axelsdóttir sjúkraþjálfari sem greinst hefur með Parkinson- sjúkdóm og heldur skjálftaein- kennum hans niðri með því að vinna mósaík. Hún segir sögu sína í þættinum og sýnir hvern- ig hún vinnur. Gestur Guðrúnar í næsta þætti verður Margrét Lóa Jóns- dóttir skáldkona en mishermt var í dagkrárkynningu að hún yrði fyrst í röðinni. - gun Góðir gestir ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir • Jakkar • Úlpur • Ullarkápur • Dúnkápur • Vattkápur • Hattar • Húfur ÚTSALA 10-50% afsláttur Yfi rhafnir kvenna í frábæru úrvali Mörkinni 6 • Sími 588 5518 Opnunartímar: mán.-föstud. 10-18 laugardaga 10-16 Ath. einnig opið sunnudaga 12-16 Opið virka daga 10-18 laugardaga 11-15

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.