Fréttablaðið - 24.01.2009, Page 50
● heimili&hönnun
Húsin við Vegamót standa við inn-
keyrsluna á Dalvík, þegar komið
er frá Akureyri. Þar búa hjónin
Kristín Aðalheiður Símonardóttir,
kölluð Heiða, og Bjarni Gunnars-
son. „Við fluttum á Vegamót fyrir
þremur árum en þar bjó á sínum
tíma langamma mín, Ingigerður
Sigfúsdóttir, og afi minn, Snorri
Arngrímsson,“ segir Heiða. „Íbúð-
arhúsið var tekið í notkun árið
1957 en við hlið þess er lítið og
sætt hús sem byggt var árið 1914.
Þar bjó langamma mín en í húsinu
bjuggu um fimm manns á einungis
30 fermetrum.“ Mörg hús af svip-
aðri gerð voru byggð á Dalvík og í
Svarfaðardal en þetta er það eina
sem enn er uppistandandi.
Ætlunin var að gera gamla
húsið upp og hefur síðan í sept-
ember verið unnið að endurbótum
á gamla bænum. „Við höfum notið
fulltingis þeirra Hólmsteins Snæ-
dal og Vésteins Finnssonar, húsa-
smíðameistara frá Akureyri, við
lagfæringar. Hólmsteinn er einn
af helstu sérfræðingum lands-
ins í endurgerð gamalla húsa og
hefur meðal annars gert upp mörg
af elstu og fallegustu húsum Ak-
ureyrar,“ segir Heiða ánægð en
hún er þekkt fyrir að vera nýtin
og handlagin.
Að sögn Heiðu telja þau hjón-
in það skyldu sína að heiðra minn-
ingu þeirra sem þarna bjuggu og
viðhalda í leiðinni einu af elstu
húsum Dalvíkur. „Margir af eldri
kynslóðinni hafa komið að máli
við okkur og lýst yfir ánægju með
framtakið. Sumir kunna sögur af
heimsóknum sínum í gamla Vega-
mótabæinn og viljum við gjarn-
an heyra frá fleirum sem þekkja
sögu hússins.“
Húsið hefur ekki einungis verið
íbúðarhús í gegnum árin því þar
var fjós um tíma. Enn má sjá
merki þess þar sem kýrnar hafa
nagað og sleikt innanhúspanel-
inn. „Við höfum alltaf haft mik-
inn áhuga á að stuðla að varðveislu
gamalla minja og húsa í sveitarfé-
laginu og höfum áður endurbyggt
gamalt hús á Dalvík,“ segir Heiða,
sem fékk niðurrifi gamalla fjár-
húsa við bæjarmörkin frestað með
undirskriftalista og hefur sínar
hugmyndir um notkun þeirra.
„Ég fékk milljón króna styrk í
gegnum atvinnumál kvenna til að
útbúa viðskiptaáætlun og vinna að
hönnun. Hugmyndin var að koma
á fót sögusetri um Bakkabræður
og hafa ýmsa viðburði í kringum
það. Síðan höfum við áform um
byggingu smáhýsa fyrir ferða-
þjónustu á lóðinni okkar,“ segir
Heiða, sem ætlar líka að flytja
annað 100 ára gamalt hús á lóð-
ina, en auk þess að vinna að varð-
veislu gamalla húsa starfar hún á
bókasafni Dalvíkurskóla og rekur
blómabúð. - hs
Húsin við Vegamót
● Hjónin Kristín Aðalheiður Símonardóttir og Bjarni Gunnarsson á Dalvík hafa áhuga á
varðveislu gamla tímans. Þau hafa gert upp hús frá árinu 1914 og eru með annað í bígerð.
Íbúðarhúsið var tekið í notkun árið 1957 en við hlið þess er lítið hús sem byggt var árið 1914. Þar bjó langamma Heiðu.
Skápinn fékk Heiða gefins frá vinafólki
í Kópavogi sem var að flytja til útlanda.
Servanturinn ofan á skápnum var líka
gjöf. MYND/BJARNI GUNNARSSON
Ljósakrónan var keypt í Danmörku.
Klukkan er frá 1872 og kemur austan af
fjörðum. Hana fékk Bjarni að gjöf þegar
hann var svaramaður vinar síns en eng-
inn hafði viljað hana fram að því.
Mikið verk var fyrir höndum þegar hjón-
in hófust handa við að gera upp gamla
bæinn en nú sér fyrir endann á því.
Húsið hefur verið íbúðarhús og fjós.
Gamli bærinn á Vegamótum
er eini fulltrúi húsa af þeirri
gerð sem byggð voru meira af
nauðsyn en efnum þegar fólk
tók að setjast að við Dalvíkina.
hönnun
● GEORGE NELSON George Nelson (1908-
1986) var einn af frumkvöðlum bandaríska
módernismans ásamt Charles og Ray Eames.
Með frægari verkum hans voru klukkur sem
hann hannaði í ýmsum formum. Fyrirtæki
hans, George Nelson Associates, hannaði
nærri 300 veggklukkur fyrir fyrirtækið How-
ard Miller Clock Company.
Margar af hönnunum sem kenndar eru við
Nelson voru þó hannaðar af starfsmönnum hans.
● ÁHÖLD SÓLEYJAR Í FRAME Íslensk hönnun sækir í sig
veðrið á alþjóðavettvangi. Gaman er frá því að segja að útskrift-
arverkefni Sóleyjar Þórisdóttur frá vöruhönnunardeild LHÍ, Áhöld,
fékk umfjöllun í desemberhefti hollenska hönnunartímaritsins
Frame. Tímaritið er virt fyrir faglega umfjöllun um hönnun, listir og
arkitektúr. Í sama tölublaði er meðal annars fjallað um hollenska
listamanninn Germaine Kruip og breska hönnuðinn Sam Buxton.
24. JANÚAR 2009 LAUGARDAGUR6