Fréttablaðið - 24.01.2009, Síða 59
FERÐALÖG 5
Á seglbretti Stuð á sjónum í Mikisfirði. Tignarlegt landslag Það er skemmtilegt að fara í kajakferð um fjörðinn.
Gullgrafararnir eru af hinu
ýmsa þjóðerni. Í búðunum eru
Ástralar, Danir, Norðmenn og
Svíar. Þeir drekka allir íslenska
mjólk út í kaffið en skilja ekkert
í þeirri íslensku áráttu að blanda
saman súkkulaði og lakkrís í sæl-
gæti. Twin Otter-flugvélar frá Ísa-
firði eru tenging þeirra við fersk
matvæli, læknisaðstoð og hinn sið-
menntaða heim.
Eftir að hafa átt gott samneyti
við þessa gullgrafara og haft afnot
af hátæknilegum kamri þeirra,
sem brennir það sem í hann er
látið, gerðust gullgrafararnir svo
rausnarlegir að skutla hópnum á
þyrlu til baka í Auroru. Að laun-
um þáðu þeir boð í veislu um borð
í skútunni um kvöldið.
Á firðinum
Á fimmtudeginum færum við
Auroru í annað skipalægi í firð-
inum. Veður er gott, það er heið-
skírt, logn og það er fögur sjón að
sjá jakana líða hjá í öllum sínum
formum á meðan við siglum á milli
þeirra.
Eftir að akkerum hefur verið
varpað finna leiðangursmenn og
konur sér ýmislegt að sýsla við.
Sumir róa kajökum milli jaka á
lygnum firðinum, aðrir fara í land
í leit að inúítarústum og ísbjörnum
á meðan enn aðrir láta gúmmíbát
draga sig á brimbretti eftir firðin-
um og stökkva svo af mastri Aur-
oru ofan í hrollkaldan sjóinn.
Vel þeginn aukadagur
Samkvæmt lauslegri ferðaáætlun
er markmiðið að ná til Ísafjarðar
seinni part laugardags. Eftir að
hafa ráðfært sig við veðurstof-
una tilkynnir Búbbi, öllum til
mikillar gleði, að það sé ekki
ráðlegt að leggja af stað yfir
Grænlandssundið fyrr en á laug-
ardaginn. Þetta þýðir að við fáum
einn dag til viðbótar á þessum
magnaða stað.
Þann dag nýtum við til þess að
ganga yfir jökul yfir í næsta fjörð,
Kangerdlugssuaq. Þangað er rétt
um tíu kílómetra löng ganga frá
Mikisfirði. Það tekur okkur lang-
an tíma að ganga þessa vegalengd
því margt ber fyrir augu á leiðinni
og ærin tilefni til að veiða mynda-
vélina upp úr bakpokanum til að
mynda stórbrotin fjöll og ísfyllta
firði. Á jöklinum hittum við á bor-
menn, starfsmenn gullgrafaranna,
sem eru að pakka saman eftir
sumarið á jöklinum. Þyrla birtist
út úr kófinu, virðist stefna á fjall,
tekur krappa beygju og sækir bor-
mennina skömmu eftir að við höfð-
um kvatt þá.
Við tökum stefnu beint niður
jökulinn og göngum í línu og með
ísaxir því á jöklinum eru djúp-
ir vatnssvelgir faldir undir snjó-
brúm. Við stefnum á Kangerdlugs-
suaq og Skærgården-innskotið í
leit að grænlenskri veiðistöð
sem þar er að finna.
Yfirgefin grænlensk veiðistöð
Landslagið í Skærgården-
innskotinu er jökulsorfin hvalbök
úr gabbrói og dregur það nafn sitt
af því að norrænum landkönnuð-
um þótti náttúrunni þar svipa til
skerjagarða í Skandinavíu. Yfir-
borð bergsins er mjög hrjúft og
þar sem nánast enginn gróður
vex á þessum slóðum er viðnám
við sóla gönguskónna svo mikið
að hægt er að ganga auðveldlega
í miklum bratta.
Kangerdlugssuaq-svæðið hefur
löngum verið þekkt á meðal græn-
lenskra veiðimanna og hafa verið
gerðar nokkrar tilraunir til að
koma þar upp varanlegri byggð.
Síðasta tilraunin var gerð árið
1966 þegar veiðimenn settust að
í yfirgefinni bandarískri veður-
stöð. Þeir veiddu mikið af sel,
náhval og ísbjörnum og áratugina
á eftir höfðu menn oft vetursetu í
húsunum. Í dag er veiðistöðin lítið
nýtt, flest öll húsin í niðurníðslu
og magnið af rusli á svæðinu yfir-
gengilegt.
Tíminn er að hlaupa frá okkur
þegar við komum skyndilega auga
á nokkur hús ofan á hvalbökunum í
Skærgården-innskotinu. Við höfð-
um verið vöruð við því að þar væri
rusl út um allt kringum húsin en
magnið kom okkur samt sem áður
á óvart. Þarna eru barnaskór, leik-
föng, dýrabein, jafnvel hljóðfæri
og ýmsar umbúðir, þar á meðal
nokkrar frá íslenskum framleið-
endum.
Þegar við forvitnuðumst um
ástæðuna fyrir öllu þessu rusli
hjá Grænlandsfróðum var okkur
sagt að á Grænlandi tíðkist að
henda öllu rusli út um gluggann
því snjórinn sem þar er tíu mán-
uði á ári hylur það jafnóðum.
Við lítum í kringum okkur í
veiðistöðinni, kvittum í gestabók-
ina sem er heillegur flísalagður
veggur í einu húsinu áður en við
þurfum að snúa við í Auroru. Við
göngum sömu leið til baka í kapp-
hlaupi við myrkrið því við vilj-
um helst ná um borð í skútuna í
björtu.
Töflufundur í skútunni
Á laugardagsmorguninn er hald-
inn sjóveikistöflufundur um borð í
skútunni. Minnugur siglingarinn-
ar til Grænlands ætlar hópurinn
ekki að láta sjóveikina ná tökum
á sér. Fólk skiptist á töflum og
plástrum og sér til þess að allt sé
tekið í tæka tíð áður en veltingur-
inn hefst. Þessi fyrirhyggja skilar
árangri og flestir komast að mestu
leyti þrautalaust í gegnum þá 36
tíma sem tekur að sigla til baka í
mótvindi til Ísafjarðar.
Það er þreyttur, ánægður og
hálfringlaður hópur sem stígur á
land í Ísafjarðarhöfn um miðnætti.
Fæstir höfðu komið til Grænlands,
enn færri farið á sjó en allir komu
til baka með fyrirheit um að sækja
Grænland heim aftur við fyrsta
tækifæri og kanna frekar þá miklu
möguleika sem þar er að finna
fyrir útivistarfólk. Grænlandsvír-
usinn tók sér bólfestu í hugskoti
þeirra sem ekki voru þegar sýktir
af honum. Hann lýsir sér þannig
að menn sjá Grænland í hillingum
jafnt á nóttu sem degi.
EKKI
MISSA AF
ÞESSU
on eða Køben!
Nánar á www.expressferdir.is
og í síma 5 900 100
Páskaferð til
London
8.–12. apríl
Fararstjóri: Þóra Karítas Árnadóttir
Verð á mann í tvíbýli
86.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting
á 4* hóteli með morgunverði og gönguferð um London
undir íslenskri fararstjórn.
Kaupmannahöfn
um páskana
8.–12. apríl
Fararstjóri: Selma Grétarsdóttir
Verð á mann í tvíbýli
95.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
gisting á 4* hóteli með morgunverði og gönguferð
um Kaupmannahöfn undir íslenskri fararstjórn.