Fréttablaðið - 24.01.2009, Page 74
46 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
ath kl. 16
Opnun á alþjóðlegri sýningu
á Kjarvalsstöðum þar sem
tutt-ugu sérsmíðuð skákborð
með taflmönnum verða til
sýnis. Leiðsögn verður um sýn-
inguna á sunnudag kl. 15 og
klukkustund síðar verða þar
pallborðsumræður um tengsl
tafls og listar.
Þjóðleikhúsið frumsýnir
í kvöld leikritið Heiður
eftir Joanna Murrey Smith,
ástralskan höfund sem er
víðkunn í heimalandi sínu.
Sviðsetning Bjarna Hauks
Þórssonar átti upphaflega
að koma upp í Iðnó á vegum
hans en fluttist um set und-
ir væng Þjóðleikhússins þar
sem þrír leikenda í verkinu
eru þar við störf.
Aðalpersónur verksins voru heið-
urshjón í þrjátíu ár, samhent, náin.
En skyndilega, dag einn, stendur
bóndinn frammi fyrir konu sinni
eins og ókunnugur maður. Getur
öryggi ástarinnar orðið óvinur
okkar? Er hægt að lifa lífi sínu í
gegnum aðra manneskju? Er ein-
hvern tímann of seint að byrja nýtt
líf? Í Heiðri fylgjumst við annars
vegar með hjónum sem eru komin
yfir miðjan aldur, og hins vegar
tveimur gerólíkum ungum konum,
sem eiga lífið fram undan. Hvern-
ig getum við látið drauma okkar
rætast? Hvenær erum við það sem
við ætluðum okkur að verða? Leika
manneskjurnar sér með lífið, eða
leikur það sér að okkur? Hér er á
ferðinni einstaklega vel skrifað
dramatískt verk um hjónaband-
ið, ástina og ábyrgð okkar á eigin
hamingju.
Leikarar í sýningunni eru Anna
Kristín Arngrímsdóttir, Arnar
Jónsson, María Ellingsen og Sól-
veig Arnarsdóttir. Leikmynd og
búninga hannar Axel Hallkell en
um lýsingu sér Hörður Ágústsson.
Þýðandi verksins er Gísli Rúnar
Jónsson.
Joanna Murray-Smith er eitt
af þekktustu leikskáldum Ástral-
íu. Hún hefur skrifað á annan tug
leikrita, skáldsögur, kvikmynda-
handrit og sjónvarpsleikrit, og
unnið til fjölda verðlauna fyrir
ritstörf sín. Heiður eða Honour
var frumflutt árið 1995, og verkið
hefur verið sýnt í fjölda uppsetn-
inga í yfir þrjátíu löndum, meðal
annars á Broadway og hjá Breska
þjóðleikhúsinu. pbb@frettabladid.is
Heiðurinn í hættu
LEIKLIST Sólveig Arnarsdóttir og Anna
Kristín Arngrímsdóttir í fjölskyldudram-
anu Heiðri. MYND ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ/EDDI
> Ekki missa af
Steinar í Djúpinu í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu í síðasta
sinn á sunnudagskvöld kl.
20. Hörkusýning Rúnars
Guðbrandssonar.
Tvíeyki þeirra Báru Grímsdóttur
og Chris Foster, Funi, var stofn-
að árið 2001. Þau hafa flutt blöndu
af enskum og íslenskum þjóðlög-
um, og syngja og leika undir á
strengjahljóðfæri: gítar, kantele,
íslenska fiðlu og langspil.
Undanfarin sjö ár hafa þau spil-
að saman á tónleikum og hátíðum
á Írlandi, í Hollandi, Belgíu, Ung-
verjalandi, Bandaríkjunum og
Kína sem og víða á Bretlands-
eyjum og Íslandi.
Á morgun koma þau fram í tón-
leikaröðinni 15:15 á þeim tíma í
Norræna húsinu og flytja blöndu
af gömlu og nýju efni: lög af disk
Báru, Funa, og nýjasta sólódisk
Chris, Outsiders, sem var nýlega
valinn í hóp bestu diska árið 2008
í kosningu tímaritsins ROOTS,
sem er virt þjóðlaga- og heim-
stónlistartímarit á Bretlands. Á
tónleikunum verða líka sýndar
ljósmyndir og textar á skjávarpa
sem veita innsýn og útskýringar
um lögin sem verða flutt.
Bára hefur sungið íslensk þjóð-
lög um árabil á opinberum tón-
leikum. Hún er einnig tónskáld og
er vel þekkt hér á landi fyrir kór-
tónlist sína. Hún ólst upp í Vatns-
dal við söng og kveðskap foreldra
sinna og afa og ömmu. Hún hefur
komið fram víða hér heima, í Evr-
ópu og Norður-Ameríku með Sig-
urði Rúnari Jónssyni og Njáli Sig-
urðssyni og einnig sem meðlimur
hópsins Emblu sem hún tók þátt í
að stofna. Árið 2001 hóf hún sam-
starf með enska söngvaranum og
gítarleikaranum, Chris Foster,
sem hún vinnur með enn og eru
þau að gera frábæra hluti. Hún
gaf út diskinn Funa, ásamt Chris
Foster og John Kirkpatrick árið
2004.
Chris Foster er ættaður frá
suðvesturhluta Englands. Honum
hefur verið lýst sem „einum af
bestu söngvurum og gítarleik-
urum sem spruttu upp úr enska
þjóðlagatónlistargeiranum á sjö-
unda áratugnum“ og er þá jafn-
að við menn eins og Bert Jancs
og Richard Thompson. Hann
hefur spilað víða um Bretlands-
eyjar, Evrópu og Norður-Amer-
íku. Chris hefur gefið út sex sóló-
plötur og einnig fleiri plötur sem
hann hefur gert með öðrum lista-
mönnum.
Bára og Chris fluttu til Reykja-
víkur árið 2004 og hafa þau síðan
spilað á fleiri tónleikum erlend-
is en hér heima. Þessir tónleik-
ar í Norræna húsinu munu vera
fyrstu tónleikar þeirra í fullri
lengd í Reykjavík í meira en ár
sem dúett. Þetta er því tækifæri
til að heyra topp-þjóðlagatónlist
frá Íslandi og Englandi í flutningi
listamanna sem hafa sinnt þeim
geira samtímatónlistar af íhygli,
þekkingu og alvöru. - pbb
Gott ár oss gefi
TÓNLIST Bára og Cris með nokkur þeirra
hljóðfæra sem þau nýta við flutning sinn
á morgun. MYND FRÉTTABLAÐIÐ
Á sunnudag hefst vikulöng
hátíð kvennakórsins Vox
Feminae í Norræna húsinu.
Hátíðina kalla þær radd-
fögru konur „da capo“ en
hátíðahaldið er lokahnykk-
urinn á fimmtánda afmæl-
isári kórsins sem hófst á
liðnu vori og lýkur nú á
þorranum.
Lokaverkefni afmælisársins er
væntanleg bók um kórinn, „da
capo“ sem þýðir frá upphafi.
Bókin, sem kemur út á alþjóð-
legum degi bókarinnar 23. apríl
næstkomandi, inniheldur ávörp,
erindi og ágrip af sögu kórsins.
Ljósmyndir Sigríðar Soffíu Gunn-
arsdóttur eru þó meginefni bók-
arinnar og er hverri og einni
söngkonu kórsins tileinkuð opna
í bókinni, þar sem staldrað er við
portrett-mynd af söngkonunni og
minningarbrot, eins konar and-
artak í ljósi. Margrét Jóhanna
Pálmadóttir, stofnandi og stjórn-
andi kórsins frá upphafi, átti
þessa hugmynd, en bókin kemur
út hjá Bjarti bókaforlagi. Menn-
ingarhátíðin tengir saman afmæli
og útgáfu: dagana 25. janúar til 1.
febrúar verða portrett-myndirnar
til sýnis auk þess sem fjöldi lista-
og fræðimanna mun glæða hátíð-
ina lífi hvern dag.
Á morgun hefst hátíðahaldið
með opnun ljósmyndasýningar-
innar og þá kemur kórinn fram
ásamt Ingu Backman og Hjörleifi
Valssyni og Arnhildi Valgarðs-
dóttur. Mánudag og þriðjudag
verður dagskráin með blönduðu
efni kl. 17.17, en á miðvikudag,
fimmtudag og föstudag hefst dag-
skráin kl. 20 og mæta gestir til
leiks. Um næstu helgi hefst dag-
skráin kl. 16. Ókeypis er á alla
viðburðina. - pbb
Vikuhátíð
Vox Feminae
TÓNLIST Vox Feminae að störfum við æfingar. MYND FRÉTTABLAÐIÐ/