Fréttablaðið - 24.01.2009, Side 76

Fréttablaðið - 24.01.2009, Side 76
48 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR ➜ Tónleikar 13.00 Í Salnum verða barna- og fjöl- skyldutónleikar þar sem flutt verður verkið Pétur og úlfurinn eftir Prokofiev. Salurinn, Hamraborg 6, Kópavogi, 15.15 Í Norrænahúsinu við Sturlugötu mun tvíeykið Funi flytja bland af ensk- um og íslenskum þjóðlögum, syngja og leika undir á gítar, kantele, íslenska fiðlu og langspil. 16.00 Sinfóníuhljómveit Norðurlands verður með tónleika í Akureyrarkirkju þar sem á efnisskránni verða verk eftir Marco Enrico Bossi og L. van Beet- hoven. Stjórnandi á tónleikunum er er Guðmundur Óli Gunnarsson. 20.00 Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson flytja Vetrarferð- ina eftir Franz Schubert í Salnum, Hamra- borg 6, Kópavogi. Framleiðslulínan sem Sagafilm hefur sett saman til að gera leik- ið íslenskt sjónvarpsefni er um margt merkileg. Í fyrsta lagi hafa þeir náð að þjóna báðum stóru stöðvunum þrátt fyrir að eignar- hald á fyrirtækinu sé tengt 365 - veldinu. Þeir starfa enda á opnum markaði rétt eins og önnur fyr- irtæki á þessum markaði, Pega- sus, True North. Þessi fyrirtæki er mikilvæg í íslenskum iðnaði og vinna á nokkrum sviðum. Nýjasta pródukt Saga rann af stað á sunnu- dag, Réttur. Sagan er samsett af vinnuhóp en samtölin unnin af Sigurjóni Kjartanssyni, en hann er kominn með mikla reynslu af vinnu handrita fyrir sjónvarp. Sævar Guðmundsson leikstýrði en hann hefur til þessa einkum unnið í auglýsingum. Ýmislegt má segja um fyrsta þáttinn sem ég horfði reyndar á beint í kjölfarið af nýrri þáttaröð danska sjónvarpsins Lífvörðun- um. Athyglisverður samanburð- ur milli þessara pródukta leiðir í ljós að í báðum tilvikum er ríkj- andi sterkur vilji framleiðenda að laga sig að bandarískri þáttgerð. Persónugerð er í báðum tilvik- um falin í umbúðum, útliti, sam- töl og aðstæður duga ekki til per- sónugerðar, heldur eru dregnar snöggar skyndimyndir í samtölum og aðstæðum, hraðinn í frásögn, atburðarás og myndmáli heimt- ar það. Þá reynir á að persónu- gerð sé skýr af hálfu leikstjórans og unnin. Það tókst ekki, þó hér væri fjöldi leikara sem fullyrða má að gætu gert meira, með ítar- legri persónuleikstjórn, jafnvel þótt samtölin séu rýr - sum reynd- ar svo þunn að maður fékk aum- ingjahrollinn. En útlitið var flott, tempóið þétt og fléttan merkilega vel unnin og sannfærandi eftir á að hyggja. Sigurjón Kjartans- son verður sem sagt að vanda sig betur. Næst. Nema Saga film fari að finna sér fleiri höfunda, jafnvel einhverja sem hafa unnið staka smásögu, skáldsögu eða útvarps- leikrit? Hjá ýmsum áhorfendum gætir þeirrar skoðunar að þessi yfir- borðsstíll sé viljandi, grunnfærni í persónusköpun sé ásetningur. Froðan sé þaulhugsað stíl- bragð. Mér sýnist reyndar að í Rétti api menn eftir lagaþætti sem byggja á mun lengri hefð: LA Law, Boston Legal, Ally McBeal eru skopfærslur um þrautpínt laga- þáttaform amerísks sjónvarps. Við skoðun á Rétti virðast menn ætla sér tvo heima, búa til krimma og lögfræðidrama. Og jafnframt hafa þá sápukennda. Máski taka þau sig ekki nægilega alvarlega? En það verður fróðlegt að sjá framhald- ið. Eitt að lokum: við hljóðmix á seinni þáttum er rétt að henda mixara og leikstjóra fram á gang. Á mörgum stöðum yfirgnæfði bak- grunnsmúsík samtöl. Það er líka til marks um að menn vantreysta fléttu, samtölum og mynd ef þeir treysta á magnaða tónlist til að segja söguna. Páll Baldvin Baldvinsson Fyrsti Rétturinn á dagskránni LEIKLIST Réttur eftir Sigurjón Kjartans- son og fleiri. Leikstjóri: Sævar Guðmundsson. Kvikmyndataka: Bergsteinn Björg- úlfsson Tónlist: Barði Jóhannsson Klipping: Guðni Halldórsson. ★★ Sápukennt stöff HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Laugardagur 24. janúar ➜ Tónleikar 21.00 Hljómsveitin Menn Ársins verða með útgáfutónleika í Iðnó við Vonar- stræti. 22.00 Hljómsveitin Sixtees spilar á Players, Bæjarlind 4. Miðasala hefst kl. 22.00 22.00 Leikhúsbandið verður með tón- leika á Græna Hattinum, Hafnarstræti 96, Akureyri. Á efnisskránni eru ýmis lög sem orðið hafa til í leikhúsi. Húsið opnar kl. 21. 23.00 Hljómsveitin Stóns spilar Rolling Stones lög á Dillon bar við Laugaveg 30. 23.30 EGÓ verða á Nasa við Austur- völl. Húsið opnar kl. 23.30. 00.00 Deep Jimi & the Zep Creams verða á Grand Rokk við Smiðjustíg. Á dagskránni verða lög eftir Jimi Hendrix, Led Zeppelin, Deep Purple ásamt eigin lögum sveitarinnar. ➜ Fyrirlestrar 13.15 Nafnfræðifélagið stendur fyrir opnum fræðslufundi í Öskju við Sturlu- götu. Jörundur Svavarsson flytur erindi. ➜ Opnanir 16.00 Skáklist Á Kjar- valsstöðum við Flókagötu opnar sýning þar sem sýnd eru verk tengd skák. 16.00 Teikningar & skissur Steingrímur Eyfjörð opnar sýn- ingu í Gallerí Ágúst við Baldursgötu 12. 18.00 Söknuður/Wistfulness Eyjólfur Einarsson opnar sýningu í Listasafni Reykjanesbæjar í Duushúsum við Duus- götu 2-8. ➜ Tónlistarhátíð Undercover Music Lovers á Íslandi standa fyrir tónlistarhátíð 23-25. jan. þar sem fjöldi tónlistarmanna kemur fram. Ókeypis verður á alla viðburði. Nánari upplýsingar á www.myspace.com/mel- odicaiceland ➜ Fræðsla Sendiráð Japans og japönsk fræði við Hugvísindasvið Háskóla Íslands standa að Japans- hátíð milli klukkan 13 og 17 í Hátíðarsal HÍ í aðalbyggingu skólans við Sæmund- argötu. Aðgangur ókeypis og allir vel- komnir. Nánari upplýsingar á www.hi.is. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Sunnudagur 25. janúar ➜ Verk Mánaðarins 16.00 Jón Gnarr fjallar um smásög- una og leikritið Dúfnaveislan eftir Halldór Laxness í Gljúfrasteini. Verk mánaðarins er hald- ið síðasta sunnudag hvers mánaðar og aðgangur er ókeypis. ➜ Listamannsspjall 15.00 Jónatan Grétarsson verður með leiðsögn um ljósmyndasýningu sína Íslenskir listamenn sem nú stendur yfir í Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði. Sýning- in er opin alla daga 11- 17 nema fimmtudaga en þá er opið til 21. ➜ Kvikmyndir Frönsk kvikmyndahátíð stendur yfir í Háskólabíói 16.-29. jan. Nánari upplýs- ingar á www.graenaljosid.is og www. midi.is. ➜ Leikrit 17.00 Einleikurinn Brák eftir Brynhildi Guðjónsdóttur verður sýndur á söguloftinu í Landnámssetrinu við Brákarbraut í Borgarnesi. ➜ Ljósmyndasýning Atli Már Hafsteinsson er með sýningu í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu 15, 6. hæð. Opið virka daga kl. 10-16 og um helgar kl. 13-17. ➜ Myndlist Myndlistarmaðurinn Kristín Geirsdótt- ir hefur opnað sýningu í Artóteki, 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur við Tryggvagötu. Sýningin er opin mán. 10- 21, þri.– fim. kl. 10-19, föst. 11-19. og um helgar 13-17. ➜ Sýningar Á Kjarvalsstöðum við Flókagötu verða uppákomur tengdar sýningunni Ská- klist. 14.00 Listamennirnir Gavin Turk, Oliver Clegg og Paul Fryer ásamt sýn- ingarstjóranum Juliu Royse skoða verk með sýningargestum. 15.00 Sýningarstjórarnir Mark Sanders og Larry List taka þátt í pallboðrsum- ræðum um skák og list ásamt Hafþóri Yngvasyni. Finnur Arnar hefur opnað sýninguna Húsgögn í Laxdalshúsi, Hafnarstræti 11 á Akureyri. Þar stendur einnig yfir sýning á vegum leikminjasafnsins um leiklist á Norðurlandi og sýning á leik- brúðum Jóns E. Guðmundssonar. Opið alla sunnudaga 13-17. ➜ Leiklist 20.00 Aukasýning verður á leikverkinu Steinar í djúpinu hjá Hafnarfjarðarleik- húsinu, Strandgötu 50. Nánari upplýs- ingar www.hhh.is.+ Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Sýningar um helgina Þjóðleikhúsið Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is Hart í bak Jökull Jakobsson Hrífandi verk sem snertir okkur öll EB, FBL lau. 24/1 uppselt sun. 25/1 uppselt Sumarljós Jón Kalman Stefánsson leikgerð og leikstjórn Hilmar Jónsson Hrífandi, einlæg og æsandi sýning Heiður Joanna Murray-Smith Magnað meistaraverk í Kassanum frumsýn. 24/1 uppselt sun. 25/1 uppselt Kardemommu- bærinn Thorbjörn Egner Frumsýning 21. febrúar Miðasala í fullum gangi! ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Námskeið á vorönn 2009 Skráning stendur yfi r • TUNGUMÁL • ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA Islandzki dla audzoziemców Icelandic as a second language • HANDVERK OG LISTIR Textílskólinn • HEILSA OG ÚTLIT • TÖLVUR OG REKSTUR • TÓNLIST • SÖNGNÁM OG LEIKLIST • NÁMSAÐSTOÐ • MATUR OG NÆRING • DAGFORELDRANÁMSKEIÐ Nánari upplýsingar og innritun í síma 585-5860 og nhms@hafnarfj ordur.is Nýja námskrá má nálgast á www.nhms.is Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.