Fréttablaðið - 24.01.2009, Side 78
50 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Marokkó er greinilega í tísku, að minnsta
kosti að mati margra tískuhönnuða en
þeir sýndu ýmsar útgáfur af norðuraf-
rískum klæðnaði á tískupöllunum. Víðar
Ali Baba-buxur sáust hjá Ralph Lauren
og Chloé, Gucci og Diane Von Fursten-
berg sóttu innblástur til „djellaba“ sem
eru marokkóskar mussur, Dries Von
Noten og Paul Smith voru með túrbana
og eins var að sjá fjöldann allan af marg-
litum silkisamfestingum. Sumarið lítur
út fyrir að verða eins og klippt út úr
ævintýri úr Þúsund og einni nótt.
- amb
INNBLÁSIÐ AF MARRAKESH
Túrbanar og víðar
buxur fyrir næsta vor VÍÐAR BUXUR
Dimmbláar
Ali Baba
buxur við
svartan topp
frá Chloé
FJÓLUBLÁTT Falleg
mussa í marókkóskum
stíl við silkibuxur frá
Diane Von Furstenberg.
KVENLEGT Fallegur
rauður kjóll með araba-
munstri frá Diane Von
Furstenberg.
JARÐARLITIR
Smart dress í fal-
legri litasamsetn-
ingu frá Diane Von
Furstenberg.
BLÁTT Fallegt og
praktískt pils með
vösum frá Etro.
... listamannsklút frá
Nonnabúð og ekki
spillir fyrir mantran
um að njóta
lífsins.
... hreins-
andi tóm-
atamaska
frá make
up store.
Stórkost-
legur til að
lífga upp
þreytta
vetrarhúð!
... heitasti
liturinn á allra
vörum núna
er appelsínu-
gulur. Fæst
hjá Make up
Store.
OKKUR
LANGAR Í
…
9. HV
ER
VINN
UR!
S E N D U S M S ESL DND
Á N Ú M E R I Ð 1900
O G Þ Ú G Æ T I R U N N I Ð !
V I N N I N G A R E R U B Í Ó M I Ð A R
Á M Y N D I N A , T Ö LV U L E I K I R , D V D ,
P E P S I O G M A R G T F L E I R A
W W W . S E N A . I S / U N D E R W O R L D
HEIMSFRUMSÝND 12 · 12 · 08
Ó M I S S A N D I F Y R I R A L L A A Ð D Á E N D U R
S P E N N U - O G H R Y L L I N G S M Y N D A .
H E I M S F R U M S Ý N D 2 3 . J A N Ú A R
Vinningar verða afhendir hjá ELKO Lindum
– Skógarlind 2. M
eð því að taka þátt ertu kom
inn í SM
S klúbb. 149 kr/skeytið.
Appelsínugulur er víst „couleur du jour“ þessa dagana. Friðsamleg-
ir mótmælendur hafa tileinkað sér hann og standa vaktina keikir í
lit búddatrúarinnar, en ég ímynda mér að þeir hafi væntanlega valið
litinn vegna tengsla hans við andlega ró. Þeir gætu reyndar vel haft
hina appelsínugulu byltingu Úkraníumanna í huga en þar gáfu mikil
og stöðug mótmæli góðan árangur við að stuðla að pólitísku rétt-
læti og kosningalýðræði í landinu. Appelsínugult minnti mig þó fyrst
og fremst á búddamunka í sínum appelsínugulu kuflum en á slóðum
Himalajafjallana er þessi litur mitt á milli rauðs og guls mjög kraft-
mikill og heilagur. Hann er litur sólarinnar og táknar styrk hugans.
Appelsínugulur á líka að hafa áhrif á sköpunarkraft og líkamsorku. Ég
heyrði líka um ágætis hvítagaldur til að koma af stað umbreytingum
í lífi sínu en þá þarf einfaldlega að láta loga á appelsínugulu kerti í sjö
nætur. Kannski að sjö nætur mótmælenda í appelsínugulum klæðnaði
hafi sömu áhrif? En litirnir sem við klæðumst sýna oft hver við erum,
hver við viljum vera og hafa örugglega meiri áhrif á skapgerð okkar
og líðan en við gerum okkur grein fyrir. Fólk sem klæðist rauðu er til
dæmis áreiðanlega ástríðufullt, jafnvel uppstökkt og hver veit nema
það sé líka stórhættulegt því rautt er litur háskans? Sjálf er ég alltaf
í svörtu þannig að ég þarf lítið að spekúlera í slíku. Svart fyrir mér er
náttúrulega ekki einu sinni litur, bara svona beisik, og auðvitað dáldið
rokk og „goth“ og jafnvel sófistíkerað ef út í það er farið. Ég á vinnufé-
laga sem hrópar oft á tíðum að hann bara skilji ekki af hverju ég geti
ekki farið að mæta í litum, að þetta bara gangi ekki lengur nema þá að
ég taki þetta á næsta skref og verði „full-time goth-ari“. Samkvæmt
jógaheimspeki eins og í litafræðinni er svart nefnilega ekki litur held-
ur bara andstæðan við hvítt og hefur eiginleika sem eru bæði jákvæð-
ir og neikvæðir. Svart getur táknað kraft hins óþekkta og óhugnan-
lega, en líka eins og alheimurinn getur svart táknað óendanleikann,
tómið þar sem hugurinn fær hvíld. Svart er stílhreint. Og svo þarf
maður eiginlega ekkert að kaupa sér ný föt heldur, því að mér sýnist
að fólk taki ekki einu sinni eftir því í hverju maður er ef það er allt-
af í sama litnum. Afskaplega gott kreppuráð myndi ég halda. En hins
vegar mæli ég sterklega með því að kafa í fataskápinn og finna sér
eitthvað appelsínugult til að töfra fram breytingar í landinu.
Svart er ekki litur
> STRÍÐ Í MÍLANÓ
Mikil rimma stendur nú yfir milli
tískuhönnuðarins Giorgio Armani og
félaganna Dolce & Gabbana. Armani
sakar samlanda sína um að hafa
stolið hönnun á buxum fyrir veturinn
2008 og notað þær fyrir sína eigin
hönnun næsta vetur. Rimman, sem
nú kallast „Trousergate“ náði hápunkti
sínum í síðustu viku þegar Armani
sagði: „Í dag stela þeir hugmyndum,
en á morgun munu þeir fá að kenna
á því.“ Tvíeykið svaraði með því að
segja að Armani hefði aldrei verið
þeim nokkur innblástur hvorki fyrr
né síðar enda væri hönnun hans
leiðinleg.