Fréttablaðið - 24.01.2009, Side 88
60 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Chris Coleman, knatt-
spyrnustjóri Coventry, sagði við
staðarblað í Coventry í gær að
félagið væri búið að ná samning-
um við knattspyrnumanninn efni-
lega Jóhann Berg Guðmundsson.
Ástæðuna fyrir því að Jóhann
væri ekki kominn til félagsins
sagði Coleman vera þá að málið
strandaði á Blikum sem vildu
meiri pening fyrir Jóhann en Cov-
entry hefði upprunalega boðið í
leikmanninn.
„Nei, við erum ekki í stríði við
Coventry. Við sáum okkur samt
ekki annað fært en að senda út
þessa yfirlýsingu þegar við sáum
fréttina sem er kolröng,“ sagði
Einar Kristján Jónsson, formaður
knattspyrnudeildar Breiðabliks.
Hann vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um málið og vísaði í yfirlýs-
inguna.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa samskipti Blika og
Coventry ekki verið meiri en eitt
símtal. Þá bauð félagið ákveðna
upphæð í Jóhann sem er sam-
bærileg við það ef hann væri seld-
ur milli félaga á Íslandi.
Blikar tjáðu Coventry að það
þýddi ekki einu sinni að ræða það
mál frekar. Formlegt tilboð hefur
aldrei komið frá Coventry og félag-
ið hefur ekki haft frekara samband
við Kópavogsliðið.
Blikar segja það einnig vera
ósatt að Jóhann Berg hafi verið
búinn að semja við enska félag-
ið og þess utan hafi félagið ekki
gefið leyfi til slíkra samningavið-
ræðna.
„Það er því undarleg tilraun hjá
Coleman að reyna að gera knatt-
spyrnudeild Breiðabliks að vonda
aðilanum í þessu máli, en það mun
ekki bera árangur. Knattspyrnu-
deild Breiðabliks lýsir furðu sinni
á öllum vinnubrögðum Coventry
City FC í þessu máli og mun upp-
lýsa um þau vinnubrögð síðar,“
segir í niðurlagi yfirlýsingar Blik-
anna.
Jóhann Berg er sjálfur staddur
í Hollandi þessa dagana þar sem
hann æfir með AZ Alkmaar en
hollenska félagið hefur lengi haft
augastað á Blikanum unga. Fram-
haldssagan um hvar Jóhann Berg
endar er því engan veginn á enda.
henry@frettabladid.is
Ekki í stríði við Coventry
Knattspyrnudeild Breiðabliks sá í gær ástæðu til þess að senda frá sér yfirlýs-
ingu vegna málefna Jóhanns Bergs Guðmundssonar. Ástæðan var viðtal við
knattspyrnustjóra Coventry sem Blikar segja fara með rangt mál í fjölmiðlum.
GENGUR ILLA AÐ FINNA SÉR FÉLAG Framhaldssögunni um hvert Jóhann Berg Guð-
mundsson fer er hvergi nærri lokið. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FÓTBOLTI Miðjumaðurinn Jimmy
Bullard gekk í gær í raðir nýliða
Hull á fimm milljónir punda frá
Fulham en hann varð um leið
dýrasti leikmaður í sögu Hull. Þá
gekk Hull einnig frá kaupum á
varnarmanninum Kamil Zayatte
í gær frá Young Boys á 2,5 millj-
ónir punda en hann hefur verið
í láni hjá félaginu undanfarið og
þótt standa sig vel.
„Þetta undirstrikar bara metn-
aðinn sem við höfum hjá Hull.
Bullard kvaðst hrifinn af því
hvernig við höfum komið inn í
ensku úrvalsdeildina og hann
fékk að heyra hjá okkur allt sem
hann vildi heyra og því ákvað
hann að koma til félagsins,“ sagði
Phil Brown, knattspyrnustjóri
Hull, í viðtali við BBC Sport í
gær. - óþ
Jimmy Bullard:
Sá dýrasti í
sögu Hull
BULLARD Hafði verið orðaður við fjöl-
mörg félög upp á síðkastið en valdi Hull.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Framherjinn Emile
Heskey verður brátt kynnt-
ur sem nýjasti leikmaður Aston
Villa eftir að Wigan samþykkti
3,5 milljóna punda kauptilboð
félagsins í gær. Hinn 31 árs gamli
Heskey mun skrifa undir tveggja
og hálfs árs samning við Aston
Villa.
Martin O‘Neill, knattspyrnu-
stjóri Aston Villa, þekkir vel til
Heskey en hann var við stjórnvöl-
in hjá Leicester þegar framherj-
inn kraftmikli spilaði þar.
„Emile mun gefa okkur nýja
vídd. Hann getur leikið annað-
hvort með Gabriel Agbonlahor
eða John Carew og á eftir að vera
frábær fyrir okkur. Við erum
búnir að vera á miklu skriði og ég
er sannfærður um að Emile mun
hjálpa okkur að halda því gang-
andi,“ sagði O‘Neill í viðtali við
Sky Sports í gær. - óþ
Emile Heskey:
Á leiðinni til
Aston Villa
HESKEY Mun spila fyrir Martin O‘Neill á
nýjan leik.
NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI KR og Grindavík mæt-
ast í dag í DHL-höll þeirra KR-
inga í undanúrslitum Subway-bik-
ars karla. Þetta verður sjöunda
bikarviðureign a-liða félaganna
og annað árið í röð sem þessi lið
mætast í bikarnum.
KR-ingar hafa haft betur í
bikarviðureignum félaganna og
unnið fimm af þessum sex leikj-
um en Grindvíkingar hafa aftur á
móti unnið þann stærsta. Eini bik-
arsigur Grindavíkur á KR kom í
bikarúrslitaleiknum 2000 þegar
Grindavík vann 59-55 sigur í Höll-
inni. Alexander Ermolinskíj var
þá hetja Grindavíkur á lokamín-
útum leiksins en hann átti mikinn
þátt í því að loka vörninni og sjá
til þess að KR-liðið skoraði ekki
síðustu fjórar mínútur leiksins.
Tveir leikmenn Grindavíkur í
dag tóku þátt í þessum eina bikar-
sigri félagsins á KR fyrir tæpum
níu árum en það eru þeir Brenton
Birmingham og Guðlaugur Eyj-
ólfsson. Brenton skoraði 23 stig í
leiknum og Guðlaugur bætti við
tíu stigum.
Brenton hefur leikið fjóra bik-
arleiki á móti KR, unnið þrjá
þeirra og skoraði í þeim 24,5 stig
að meðaltali í leik.
Liðin mættust í mögnuð-
um leik í DHL-höllinni í
sextán liða úrslitum bik-
arsins á síðasta tímabili
þar sem KR vann eins
stigs sigur, 104-103.
Fannar Ólafsson, fyr-
irliði KR, skoraði þá
sigurkörfuna átta sekúndum fyrir
leikslok og Grindvíkingum
mistókst síðan að skora úr
síðustu sókninni sinni.
Þessi félög mættust fyrst
í bikarnum í Hagaskóla 2.
mars 1980 en sá leikur
var í átta liða úrslit-
um. Grindavík var
þá í b-deild. KR vann
leikinn 100-82.
Þetta er í þriðja
sinn sem félögin
mætast í undan-
úrslitum en tólf
ár eru liðin síðan
KR vann undan-
úrslitaleik lið-
anna 5. janúar
1997. KR hefur
ekki unnið bik-
arinn í átján ár en
þegar hann vannst síðast árið
1991 þá sló KR einmitt Grindavík
út úr undanúrslitunum með 73-69
sigri í Laugardalshöllinni.
Í þessari upptalningu er aðeins
verið að skora bikarleiki milli a-
liða félaganna en Grindavík sló að
auki b-lið KR-inga út úr bikarn-
um tvö tímabil í röð, fyrst út úr 16
liða úrslitum 2005-06 og svo út úr
8 liða úrslitum 2006-07. - óój
BIKARLEIKIR KR OG
GRINDAVÍKUR
16 liða úrslit 2008 KR+1 (104-103)
Úrslitaleik. 2000 Grindav. +4 (59-55)
Undanúrslit 1997 KR +4 (73-69)
8 liða úrslit 1992 KR +5 (78-73)
Undanúrslit 1991 KR + 26 (120-94)
8 liða úrslit 1980 KR +18 (100-82)
Aðallið KR og Grindavíkur mætast í dag í sjöunda sinn í bikarkeppni KKÍ:
KR hefur unnið alla bikarleiki
við Grindavík nema einn
MIKILVÆGIR Fannar Ólafsson fær hér ráð frá Jóni Arnóri Stefánssyni en Fannar
tryggði KR sigur á Grindavík í síðasta bikarleik liðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÞRÍR SIGRAR Brenton
Birmingham hefur
komið að þremur
bikarsigrum á KR og
unnið bikarinn í öll
skiptin.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Miðjumaðurinn Steven
Gerrard hjá Liverpool lýsti sig sak-
lausan fyrir rétti í Norður-Sefton í
Liverpool í gær en honum var gefið
að sök að hafa tekið þátt í slags-
málum sem brutust út á nætur-
klúbbnum Lounge Inn í Liverpool
29. desember síðastliðinn. Tveir
aðrir menn þurftu að ganga fyrir
réttinn í gær vegna sömu ákæru.
Málið verður tekið til umfjöllunar
fyrir 20. mars.
Umrætt atvik sem hinn 28 ára
gamli Gerrard er ákærður fyrir
átti sér stað að kvöldi til eftir 1-
5 sigur Liverpool gegn Newcastle
á St James Park-leikvanginum 29.
desember þar sem Gerrard skor-
aði tvö mörk og var valinn maður
leiksins. Samkvæmt breskum fjöl-
miðlum var Gerrard að skemmta
sér á næturklúbbnum Lounge Inn
á Merseyside í Liverpool ásamt
vinum sínum, þegar til ryskinga
kom á milli Gerrards og vina hans
annars vegar og Marcusar McGee
plötusnúðs næturklúbbsins hins
vegar. Einhver slúðurblöð vildu
meina að upp úr hefði soðið vegna
tónlistarlegs ágreinings þar sem
Gerrard, yfirlýstur aðdáandi Phils
Collins og Coldplay, hefði viljað fá
að ráða hvaða tónlist yrði spiluð og
plötusnúðurinn hefði ekki orðið við
þeirri bón.
Sú saga virðist vera almennt
samþykkt, til að byrja með í það
minnsta, þar sem enskir veðbank-
ar tóku lengi vel við veðmálum
um hvaða lag það hefði verið með
áðurnefndum tónlistarmönnum
sem varð til þess að upp úr sauð.
Liverpool hefur frá upphafi
málsins staðið þétt við bakið á
fyrirliða sínum og Rafa Bení-
tez, knattspyrnustjóri Liverpool,
kvaðst ekki hafa áhyggjur af því
að Gerrard væri í ójafnvægi yfir
dómsmálinu.
„Ég var að horfa á hann spila á
æfingu áðan og hann virtist vera
alveg eins og hann á að sér að vera.
Hann er sannur atvinnumaður og
hann mun halda áfram á sömu
braut og hann veit að við munum
standa þétt við bakið á honum,“
sagði Benítez á blaðamannafundi
í gær. - óþ
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, fór fyrir rétti í gær:
Kveðst vera saklaus
GERRARD Lýsti sig saklausan fyrir rétti í gær en honum var gefið að sök að hafa tekið
þátt í slagsmálum á bar í Liverpool í lok desember. NORDIC PHOTOS/GETTY