Tíminn - 12.12.1982, Blaðsíða 13
■ ■'
Bermúda þríhyrningurinn
eftir Charles Berlitz
Flestir kannast við að hafa heyrt talað um
Bermúdaþríhyrninginn. Þar hafa í gegnum
árin gerst vægast sagt undarlegir atburðir.
Síðan 1945 hafa horfið á annað hundrað
skip og flugvélar með um eitt þúsund
manns innanborðs.
Charles Berlitz er víðfrægur fyrir rannsóknir
sínar á óskýranlegum fyrirbærum.
Metsölubók um allan heim!
ÆGISÚTGÁFAN
Elsku mamma
Höfundur: Christina Crawford
Þessi bók hefur valdið mikilli umræðu,
vegna þess hve hreinskilnislega er hér sagt
frá.
Sagan er sögð frá óvenjulegu sjónarhorni.
Hún er skrifuð af Christinu, dóttur hinnar
þekktu leikkonu Joan Crawford.
Heimilislíf þekktra kvikmyndastjarna er
ekki neinn dans á rósum, og oft er þar
stormasamt. Margt kemur hér á óvart, sér-
staklega fyrir þá sem ekki þekkja stjörnur
eins og Joan Crawford nema í kvikmynd-
um. Margir neita því að trúa að uppáhalds-
stjarnan þeirra hafi átt eins brogað líf og hér
er lýst.
Hér segir dóttir sögu móður sinnar og
dregur ekkert undan. Hver og einn verður
að meta fyrir sig, eftir lestur þessarar merki-
legu bókar.
Innflytjendurnir
Howard Fast
„Ótrúlega mannleg og trúverðug saga,
sem þú munt njóta við lestur og aldrei
gleyma."
Daily Mirror.
Innflytjendurnir eru stórkostleg bók, um ít-
alska innflytjendur í Bandaríkjunum. Bókin
er saga Dan Lavette, sem er fæddur í sárri
fátækt, en af harðfylgi stofnar skipafélag
sem verður stórveldi. Hann verður leiðtogi
ríkrar og valdamikillar fjölskyldu. Baksviðið
er San Francisco jarðskjálftarnir, fyrri
heimstyrjöldin og kreppan.
Innflytjendurnir eru merkileg saga, um
stórkostleg ævintýri, ástir, hamingju og
. hörmungar á uppbyggingartímabili Kali-
forníuríkis.
THOMSONOl
Kærkomin nýjung á Islandi:
THOMSON
myndbandatæki - litsjónvörp
THOIVISOIM —TAKMARK HINNA VANDLÁTU
thqmson er eitt virtasta fyrirtæki heims á sviöi
öreinda- ratsjár- og tölvustjórnunartækni.
thoivisdm er fyrirtæki sem treyst er fyrir flóknum
og hávísindalegum verkefnum þar sem engu
má skeika í tæknilegri nákvæmni.
thomson er fyrirtæki sem ávallt nýtir til fulls
þá tækni sem best reynist hverju sinni
og notar því VHS myndbandakerfi.
Það er því ekki aö ástæðulausu aÖTHOivisoiM sjónvörp
og myndbandatæki hafa vakið heimsathygli fyrir
tæknilega yfirburði, fjölbreytni og fallega hönnun.