Tíminn - 15.12.1982, Blaðsíða 2

Tíminn - 15.12.1982, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982 2 í spegli tímans Umsjón: B.St. oe K.L. Brenn- andi áhuga mál Ætlar Billy Graham ad fara ’ / , að leika í kvik- mynd? ■ Á hverju ári tók Luthcr Hentpel þátt í samkeppni um bestu módelsmíðina úr eld- spýtum, sem fram fór í Köln í Þýskalandi, en aldrei hreppti hann nein verðlaun. Hann tók því þá ákvörðun að eyða tveim árum í að gera nákvæma eftirlíkingu af hinni stórbrotnu og víðfrægu dómkirkju í Köln. Kvöldið áður en samkeppn- in skyldi fara fram, ákvað Luther að láta módelið sitt ekki úr augsýn, ef svo kynni að fara að þjófar fengju augastað á því. Settist hann því mak- indalega í stól við hliðina á því og kveikti sér í pípu. Síðan fór hvorki betur né verr en svo, að Luther féll í djúpan svefn og missti pípuna úr hendi sér. Hann rankaði ekki við sér fyrr en módelið var brunnið til kaldra kola og hluti af húsbún- aði hans að auki. Luther hefur nú svarið þess dýran eið, að héðan í frá sé hann bæði hættur að reykja og búa til módel úr eldspýtum. ■ Hinn heimsþekkti predikari Billy Graham hefur nú í huga að snúa sér að leiklistinni, að því að sagt er. Auövitaö er það ekki neitt ómerkilegt hlut- verk sem hann tekur að sér að leika, - hann ætlar nefnilega að leika sjálfan sig í kvikmynd sem á að heita „Hinn mikli guð- spjallamaður“. Gert er ráð fyrir að myndin komi til með að kosta um 60 millj. ísl. króna. Það er guðræki- legt fyrirtæki „World Wide Piotures“, sera ætlar að sjá um að Ijármagua fram- kvæmdina. Fyrir utan það að kynna ræðumcnnsku og feril Billy Grahams á myndin að (jalla ■ Billy Graham hefur í mörg ár predikað víðs vegar uin heiminn og haft geysi- mikii áhrif á Ijölda fólks. Nú vill hann með kvikmynd reyna að hamla gegn eitur- lyfjanotkun ungs fólks. um eiturlyfjuvandann með- al ungs fólks í Ameríku og hvemig helst skuli bregðast við þeim vanda. ■ Ekki er annað að sjá en það eigi ágætlega við herra Lotito að nærast á reiðhjólum! Hann er þegar hálfnaður með eitt, þegar myndin er tekin. Reidhjól í óvenjulegu hlutverki ■ Þeir voru í óvenjulegra lagi reiðhjólaáhugamennimir sem söfnuðust saman í Kámten í Austumki ekki alls fyrír löngu. Keppikefli þeirra var að kom- ast í Heimsmetabók Guinness fyrir að hafa tekist að sporð- renna einu rciðhjóli á sem skemmstum tíma! Sigurvegarinn reyndist vera M. Lotito, en það tók hann aðeins 15 daga að gleypa sitt hjól, eftir að hafa brotið það niður í smábita. Á meðfylgj- andi mynd er hann hálfnaður með ætlunarverk sitt. Ekki fylgir sögunni, hvort honum varð hið minnsta meint af, eða keppinautunum. Liz leikur að tjaldabaki ■ Allir vita að hin heims- fræga Elizabeth Taylor töfr- ar áhorfenduma þegar hún sýnir sig á sviði. Hún leggur alúð í hvert hlutverk, og hefur hún t.d. hlotið ein- róma lof fyrir leik sinn í „Little Foxes“ báðum meg- in Atlantshafsins. ■ Það var tekið á móti Elizabeth Taylor með blómum, þegar hún kom í heimsókn að tjaldabaki í Old Vic. Á meðfylgjandi mynd er Elizabeth reyndar að leika fyrír leikara að tjaldabaki og virðist leggja sig alla fram við að skemmta þeim, enda fær hún góðar viðtökur hjá dansmeyjunum, sem hún var að grínast við. Þetta gerðist «' London nýlega þegar Elizabeth kom í heimsókn bjá „Young Shakespearc Company", þar sem ungir leikarar sýndu Jónsmessunæturdraum í Old Vic-leikhúsinu í London. Lang- sóttur arfur ■ Brasilískur milljónamær - ingur, sem lést fyrir 100 árum, er enn að valda þarlendum lögfræðingum höfuðverk. Þegar Don Domingo Faust- ingo Correa dó 1883, skildi hann eftir sig erfðaskrá, þar sem hann mælti svo fyrir, að eftirlátnar eigur hans skyldu renna til afkomenda þeirra barna, sem hann hafði getið með konum, sem unnu í gull- og demantanámum hans. Þótti upplýst, að hann hefði alls skilið eftir sig 14 börn. Enn, fjórum kynslóðum eftir lát Domingos, eru lögfræðing- ar að reyna að greiða úr flækjunni. Þeim hafa borist 3000 kröfur í dánarbúið. En jafnvel þó að allir kröfu- hafarnir reynist réttbornir til arfsins, ætti að vera nóg til skiptanna. Don Domingo skildi eftir sig eigur að verð- mæti 1560 milljónir ísl. króna. BB og minri- ingarnar ■ Brigittc Bardot, sem eitt sinn var helsta kyn- bomba Frakka og er enn í minnum höfð fyrir djörf ástaratriði í kvikmyndum, minnLst þcss mcð hryllingi enn í dag, mörgum árum eftir að hún kom síðast fram á hvíta tjaldinu, hversu erfitt henni þótti að leika þessi alriði. - Ymist var ég þegar orðin ástfangin upp fyrir haus af mótleikara mínum, og þá fannst mér óþægilegt að láta allan heiminn sja það, eða þá ég hafði ímu - gustá honum og það var jafnvel enn verra, segir hún. T.d. varð að taka atriði, sem hún lék í á móti Jean Louis Trintignant í Guð skapaði konuna, hvað eftir annað, vegna „skorts á ástríðuþunga"! Margaret Trudeau óvenjuleg guðmóðir henni nafnið Laura Susan. þegar þau þurfa að láta skíra þegar litli prinsinn þeirra var Kannski ættu Diana og Karl næst, en sem kunnugt er af skírður, hversu raddsterkur að hafa þetta á bak við eyrað, fréttum, vakti það athygli, hann var; ■ Rokkdrottningin Suzy Quatro er nýbökuð móðir, og hefur þegar látið skíra dóttur- ina. Sem guðmóður valdi hún Margaret Trudeau, hina ævin- týrufíknu eiginkonu kana- díska forsætisráðherrans, sem hingað tii hefur ekki farið troðnar slóðir í hegðun. Margaret notaði tækifærið og var mannorði sínu trú. Þegar enginn sá til, heUti hún vatninu úr skímarfontinum og setti vín þar í staðinn! Stúlku- barnið lét sér þetta vel lynda. Hún steinsvaf á meðan prestur- inn jós hana „vatni“ og gaf ■ Þær em góðar vinkonur Suzy Quatro (t.v.) og Margan Trudeau. Svo góðar reyndar, að Suzy fékk Margaret til að halc dóttur sinni undir skím.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.