Tíminn - 15.12.1982, Blaðsíða 17

Tíminn - 15.12.1982, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982 17 íþróttir; ■ Kristján Arason og félagar hans í landsliðinu í handknattleik eiga erfiða leiki fyrir höndum í vikunni. Hér skorar hann gegn Frökkum í Laugardalshöll. ERFITT MÓT ER FRAMUND- AN HJÁ LANDSLIÐINU Liðið leikur við Austur-Þjóðverja í kvöld. Fimm leikir í vikunni ■ Landsliðið í handknattleik leikur fyrsta landsleik sinn í keppnisferðinni til Austur-Þýskalands í kvöld. Leikið verð- ur í Rostock og eru andstæðingar þeirra landsliðs Austur-Þjóðverja. Þjóðverj- arnir eru mjög sterkir og hefur íslending- um gengið illa gegn þeim er liðin hafa mæst ytra. Tveir sterkir leikmenn duttu út úr landsliðshópnum fyrir þessa ferð, annars vegar Þorbergur Aðalsteinsson og hins vegar Guðmundur Guðmunds- son. Gat hann ekki farið vegna annríkis í sambandi við nám sitt í tölvufræðum. Gunnar Gíslason hafði verið valinn fyrir helgi og Haukur Geirmundsson var Falcao skoraði og Roma fór á toppinn ■ Brasilíumaðurinn Falcao var af mörgum talinn einn besti leikmaður- inn á HM á Spáni. Falcao leikur með Roma á Ítalíu og hefur félaginu vegnað mjög vel. Fyrir skömmu siógu þeir FC Köln út úr Evrópu- keppni félagsliða og nú er félagið á toppnum í ítölsku 1. deildinni. Um helgina lagði liðið Inter Milan að velli með tveimur mörkum gegn einu og eru því í efsta sæti á Italíu. Næst á eftir þeim er Verona með 17 stig, cn Roma hefur hlotið 18. Þar næst korna Juventus með 16 stig og Inter Milan með 15. Það var enginn annar en Falcao sem skoraði annað markið gegn Inter Milan, en hitt skoraði Iorio. síðan valinn til að fara í stað Guðmund- ar. Landsliðshópurinn sem leikur í Þýskalandi er skipaður eftirtöldum leik- mönnum. Markverðir: Kristján Sig- mundsson, Brynjar Kvaran og Einar Þorvarðarson. Línumenn: Jóhannes Ste- fánsson, Steindór Gunnarsson, Magnús Teitsson og Þorgils Óttar Mathiesen. Hornamenn: Bjarni Guðmundsson, ■ Sigurður Þorsteinsson þjálfaði ís- landsmeistara Breiðabliks í 2. aldurs- flokki í knattspyrnu á síðastliðnu sumri. Hann stjórnaði einnig meistaraflokki félagsins eftir aö Frits Kissing hætti störfum hjá félaginu. Sigurður er nýlega kominn frá Þýska- landi þar sem hann kynnti sér þjálfun, m.a. hjá liði Köln, en hann fylgdist þar með Rene Michels þjálfara liðsins, m.a. er hann undirbjó liðið undir leikinn gegn roma í Evrópukeppninni á dögunum. Michels þjálfaði landslið Hollands á HM 1974. „Ég fylgist grannt með því sem verið var að gera þarna og þó það komi ekki óbreytt beint að notum hérna hjá okkur, þá er hægt að nýta sér ýmislegt af því Haukur Geirmundsson og Ólafur Jónsson. Útileikmenn: Sigurður Sveins- son, Sigurður Gunnarsson, Alfreð Gíslason, Gunnar Gíslason, Páll Óltfs- son, Kristján Arason og Hans Guð- mundsson. Liðið tekur þátt í móti ytra og eru þátttökuþjóðir 6. ísland', A og B-lið Austur-Þjóðverja, Ungverjaland, Rúm- B Sigurður Þorsteinsson enía og Svíþjóð. Af þessari upptalningu er Ijóst að við erfiða andstæðinga er að etja. Þrátt fyrir að á brattann séaðsækja, þá næst vonandi sem allra bestur árangur í leikjunum. Allir eru þeir liður í undirbúningi landsliðsins undir B- Heimsmeistarakeppnina í Hollandi í febrúar og mars. sh óbeint," sagði Sigurður í samtali við blaðamann Tímans. Það er mjög jákvætt framtak hjá þjálfurum að fara utan og kynna sér það besta sem er að gerast í íþróttaheimin- um. Oft á tíðum skilar það sér mun betur en að flytja sífcllt inn erlenda þjálfara. Það er mun viturlegra að fjárfesta í íslenskum þjálfurum. Sigurður hefur ekki enn ráðið sig sem þjálfara á næsta keppnistímabili, en vitað er að ýmis félög hafa áhuga á að ráða hann til starfa. En það líður áreiðanlega ekki á löngu áður en einhverjum tekst að ná honum til starfa. því senn líður að því að undirbúningur fyrir keppnistímabil knattspyrnumanna fari í fullan gang. sh SIGURDUR FYLGDIST MEÐ RENE MICHELS Fylgdist með undirbúningi Kölnarliðsins fyrir Evrópuleikinn gegn Roma Þróttur og HK sigursæl lið B Blaksamband Islands efndi til afmælismóts fyrir yngri flokka í íþróttahúsi Hagaskóla 1. dcsember s.l. Léku þar 17 lið frá 4 félögum og var keppt í 5 flokkum. Lokastaðan I flokkunum varð sem hér segir: 2. flokkur kvenna. 1. Þróttur . 2 2 0 42:16 4 2. UBK ,2 1 1 30:35 2 3. HK 2 0 2 21:42 0 2. flokkur karla. 1. HK 3 3 0 60:26 6 2. Þróttur 3 2 1 56:43 4 , 3. UBK 3 1 2 42:56 2 4. Stjaman 3 0 3 26:59 0 3. flokkur karla. 1. Þróttur 2. HK 3. Stjaman 3. flokkur kvcnna. 1. HK 1 2 2 0 42:15 4 2. HK 2 2 1 1 34:30 2 3. UBK 2 0 2 11:42 0 4. flokkur karta. 1. Stjaman 1 3 3 0 55:23 6 2. Þróttur 3 2 1 52:32 4 3. Stjarnan 2 3 1 2 30:59 2 4. HK 3 0 3 40:63 0 Eins og sjá má sigraðu Þróttarar i tvcimur flokkum á mótinu og HK einnig í tveimur. Stjaman úr Garða- bæ sigraði í 4. flokki karla örogglega. íslandsmót yngri flokka f blaki B íslandsmót yngri flokka í blaki fer fram í janúar til apríl á næsta ári. Keppt verður í 2., 3. og 4. flokki karla og ■ 2. og 3. flokki kvenna. Nú fer hver að verða síðastur að skila inn þátttökutilkynningum, en þær skulu hafa borist skrifstofu BLÍ, pósthólf 864,121 Reykjavík fyrir 25. desember n.k. Skólamót íblaki B í skólamóti blakmanna er keppt í flokkum grunnskóla, framhalds- skóla og háskóla. Keppnin fer fram í febrúar og mars og skulu þátttökutil- kynningar hafa verið póstlagðar fyrir 15. des. næstkomandi. Flokkakeppni í borðtennis unglinga B í blaðinu í gær var greint frá úrslitum í flokkakeppni í borðtennis, mcistaraflokki, Hér á eftir fer staðan i flokkakeppninni í unglingaflokki: Unglingaflokkur: a-riðill: KR-C 110 3-22 Örninn-A 2 1 1 3-3 2 UMFK-A 10 10-3 0 UMSB-B 0 0 0 0-0 0 b-riðill: Víkingur-A 2 2 0 6-0 4 KR-B 110 3-02 UMFK-B 10 10-30 Örninn-C 2 0 2 0-6 0 c-riðill: KR-A 2 2 0 6-3 4 HSÞ 3 2 18-44 Örninn-B 3 12 4-72 Víkingur-B 2 0 2 2-6 0 Lítið hefur vcrið leikíð í unglinga- flokki ennþá en sigurvegarar í ung- lingaflokki í fyrra urðu Víkingar. Að lokum má geta þess, að í kvöld fer frain punktamót í borðtennis á vcgum Amarias. Keppt verður í Laugardalshöll og hefst keppnin klukkan 20.00. 2 2 0 42:9 4 2 1 1 28:35 2 2 0 2 16:42 0

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.