Tíminn - 15.12.1982, Blaðsíða 8

Tíminn - 15.12.1982, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. F amkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Atli Magnusson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Eiríkur St. Eiríksson, Friðrik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Sigurður Helgason (íþróttir), Jónas Guðmundsson, Jón Guðni Kristjánsson, Kristin Leifsdóttir, Skafti Jónsson. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Elln Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristín Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Sfðumúla 15, Reykjavik. Sími: 86300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86392. Verð i lausasölu 11.00, en 15.00 um helgar. Áskrift á mánuði: kr. 150.00. Setning: Tæknideild Timans. Prentun: Blaðaprent hf. Sök Hjörleifs ■ Æsiskrif Þjóðviljans um álmálið að undanförnu eru 100% viðurkennine á því, að greindarmaður eins og Kjartan Ólafsson finnur og skilur, að Hjörleifur Guttormsson hefur haldið óhyggilega á málinu og stefnt því í fyllsta óefni. í þau þrju ár, sem hann hefur haft forustu í málinu, hefur ekkert áunnizt til hækkunar á orkuverðinu, sem álhringurinn greiðir. Vitanlega á það sinn þátt í þessu, að álhringurinn er ekkert lamb að leika við og hann hefur góðan stuðning í hinum misheppnaða samningi, sem við- reisnarstjórnin gerði við hann á sínum tíma. Til viðbótar hafa álnringnum svo borizt upp í hendurnar hin klaufalegu vinnubrögð Hjörleifs Guttormssonar. Klaufaskapur og óhyggindi Hjörleifs Guttormsson- ar hafa verið fólgin í þvi, að hann hefur fest sig eins og kræklingur við stein við deiluna um reikninga og skattamál fyrirtækisins. Hann hefur ekki séð neitt annað. Að sjálfsögðu bar að kanna það mál og afla um það sem gleggstra upplýsinga. Það ber vissulega að virða. Þetta mátti hins vegar ekki verða til þess, að sjálft aðalatriðið sama og gleymdist í meoferðinni hjá Hjörleifi, en það var að knýja á um hækkun álverðsins. Það var kjarni málsins. Deilan um reikningana og skattamálin átti fyrir löngu að vera gengin til dómstólanna, en viðræðurnar við álhringinn að snúast einkum um orkuverðið. Það er hin störa sök Hjörleifs að hafa komið í veg fyrir slík vinnubrögð. Þess vegna hefur orkuverðið haldizt óbreytt og málið komizt í sjálfheldu, sem vel getur leitt til þess að grípa verður til einhliða aðgerða með ófyrirsjáan- legpm afleiðingum. Aður en til slíks kemur verður að reyna samninga- leiðina til þrautar. Guðmundur G. Þórarinsson stefndi að því með tillögu sinni. Hún var tilraun til þess að bjarga málinu og bjarga Hjörleifi úr klípunni, sem hann hafði sett sig í. Viðbrögð Kjartans Ólafssonar eru furðuleg. Hann finnur sök Hjörleifs, en í staðinn fyrir að játa hana, veitist hann að Guðmundi G. Pórarinssyni með eindæma ofstæki. Það minnir helzt á, þegar Mogginn er að gefa í skyn, að Alþýðubandalagsmenn séu eiginlega reiðubúnir til að stæla stjórnarhætti Stalíns, þegar hann var að fækka í bændastéttinni. Þjóð viljinn stimplar Guðmund sem landráðamann og leiksopp álhringsins. Forsíðumyndin í Þjóðviljanum í gær er hámark óþverrans í íslenzkri blaðamennsku, en með henni er gefið í skyn, að tillaga Guðmundar hafi fjallað um, að orkuverðið hækkaði ekki nema um 20%, þó aðþar væri aðeins um að ræða byrjunarhækkun, en síoan yrði samið um aðalhækkunina. Svona gersamlega hefur sök Hjörleifs blindað þá Þjóðviljamenn. Línuritið Línuritið, sem Þjóðviljinn birtir á forsíðunni í gær og átti að vera Guðmundi G. Þórarinssyni til svívirðingar, sýnir bezt hversu illa Hjörleifi Guttorms- syni hefur gengið að halda á orkumálunum. Síðan 1980, þegar hann tók við stjórn orkumála, hefur meðalverð Landsvirkjunar til almenningsveitna margfaldazt á sama tíma og verðið til ísal hefur sama og staðið í stað, því að Hjörleifur hefur lagt meira kapp á þref við álhringinn um skattamálin en að knýja fram hækkun á orkuverðinu. Þ.Þ. Ida Ingólfsdóttir sjötug í dagersjötugsafmæli Idu Ingólfsdótt- ur, Idu í Steinahlíð eins og hún er oft nefnd af þeim sem þekkja hana. For- eldrar Idu voru hjónin Hlín jónsdóttir og Ingólfur Jónsson. Hann var frá Jarlsstöðum í Bárðardal, en Hlín var alin upp hjá frændfólki á Sandhaugum í Bárðardal. Jarlsstaðabræður voru annál- aðir hestamenn, og báru svo mikinn heimsmannsbrag, að miklu var líkara að þeir hefðu ferðast víða og samið sig að háttum útlendra þjóða, heldur en verið bændur á íslandi. Hlín var afkomandi Sturlu á Rauðá, eins og mikill fjöldi fólks í Þingeyjarsýslu og víða um land. Á því ættartré erum við Ida blöð á sama kvisti, og langar mig að senda frænku minni afmæliskveðju í Timanum í dag. í vöggugjöf hlaut Ida margt það, sem vel hentar í þessu veraldarvolki. Hún er hreinlynd, og enginn þarf að vera í vafa um skoðanir hennar á mönnum og málefnum. Frjó í hugsun, glaðleg í viðmóti og jafnan æðrulaus. Hún er engin kröfugerðarmanneskja, en hefur gott lag á að bjargast við það sem fyrir hendi er, og framúrskarandi dugleg. Ida er örlát og hjálpsöm, eins og margir geta borið vitni um - góð og falleg kona, sem ævinlega er jafngott að hitta. Ida stundaði nám í fósturskóla í Noregi, og úr þeirri för kom hún vel undir það búin að stunda það starf, sem hún hafði menntað sig til. í nær 40 ár hefur hún verið í föstu starfi hjá Reykjavíkurborg, lengst af forstöðu- kona dagheimilisins í Steinhlíð. Þar má segja að hún hafi unnið sitt ævistarf. Þar var heimili hennar, og öll börn, sem þar dvöldu, voru börnin hennar. „Þessi elskulegu börn“, segir Ida með rödduðu erri sem er svo mjúkt og fallegt. f Steinahlíð var reynt að uppfylla allar þarfir barnanna, bæði líkamlegar og andlegar. Ida hafði held ég alltaf nóga húshjálp, eins og sagt var áður fyrr, og lærðar fóstrur þegar hægt var að fá þær, en sjálf vakti hún yfir öllu eins og besta móðir. Börnin fundu hjá henni öryggi og vernd, sem sum þeirra skorti máski heima fyrir, og svo getur nú alltaf einhver vandi verið á ferðum. Þegar Steinahlíðarbömin voru kvefuð var oft sótt fast að vera sem næst Idu, láta hana sinna sér, taka sig upp, og þó ekki væri nema ná í svuntuna hennar til að þurrka sér um augu og nef, þá var það skárra en ekkert. Það er eitthvað sérstakt við Idu sem gerir börnum svo létt að hænast að henni. Hún finnur auðveldlega réttu leiðina í samskiptum sínum við þau, og gerir fyrir þau það sem þeim kemur best í bráð og lengd. f Steinahlíð var alltaf allt í röð og reglu, og framúrskarandi hreinlæti. Heimili Idu var á efstu hæðinni undir súð, og brattur stigi upp. Margir gengu þann stiga, bæði stórir og smáir. Vinahópur Idu er stór, og oft var fjölmennt Mitlu íbúðinni. Þó var aldrei þröngt. Þar voru margar góðar veislur haldnar, því að Ida er mjög rausnarleg og allt svo gott sem hún ber á borð sitt. Fróðlegar og skemmtilegar umræður fylgdu með og margar góðar sögur voru sagðar. Nú býður Ida ekki oftar í sunnudags- mat í Steinahlíð. En þó að hún sé ekki lengur fósturmóðir margra barna þar, þá mun hana hvorki skorta áhugamál né verkefni. Það eru margir sem þarfnast hjálpar í veikindum eða öðrum erfið- leikum, og einhvers staðar kemur Ida þar við sögu á sinn hógværa hátt. Hún heldur áfram að fara í Keflavíkurgöngu - bara að hún gæti nú komið hernum burt - heimsækja vini sína og bjóða þeim heim. Hella nokkrum daggardropum í glas sér og öðrum til hressingar og upplyftingar. Ida mín. Ég vona að þú eigir eftir að fara margar ferðir um landið og njóta unaðssemda þess. Ganga út á svalir í fögru veðri og sjá dásamlegt útsýnið frá níundu hæð í Austurbrún. Og þar óska ég og vona að þú staldrir við sem lengst áður en hærra er haldið. Innilegar afmælisóskir frá okkur Jó- hanni. Helga Kristjánsdóttir menningarmál Stúdentaleikhúsið og þjáningin STÚDENTALEIKHÚSIÐ BENT, eftir MARTIN SHERMAN Leikstjóri: Inga Bjamason. Þýðandi og aðst. leikstj.: Rúnar Guðbrandsson. Leikmynd og búningar: Karl Aspelund Lýsing: Einar Bergmundur. Leikhljóð: Svcinn Ólafsson. Lúðrasveit leikur (Ritað um sýningu á þriðjudag) Stúdentaleikhúsið ■ Þótt peningaleg óvissa hrelli háskól- ana og námsgögn og bílastæði séu af skornum skammti, hefur það ekki hindrað alla starfsemi stúdenta, því nú hafa þeir stofnað sitt eigið leikhús. Stúdentaleikhúsið heitir það. Þeir sýna í gamla Tjarnarbíói, sem var fyrsta háskólabíóið, og þar vældi útsynningur í forstofunni, en þjáningin grét í salnum. Þetta er myndarlegt framtak, þótt vafalaust megi um það deila, hvenær nóg er leikið í landi, sem er á hausnum. Þó hygg ég að það sé vel til fundið, að gefa stúdentum kost á leiklist, alveg eins og á körfubolta, blaki, og öðrum listgreinum nútímans. Margir telja leik- listina fyrst komna úr latínuskólum hingað, þótt líklegt sé að skyldar uppákomur séu enn eldri, án þess að hafa rétt nafn. Allavega þá rekja menn upphaf leiklistar í Reykjavík til Hólavallaskóla, er stóð á brekkunni nokkur hundruð metra í suðvestur frá Stúdentaleikhús- ■ inu, en síðan eru liðin rúmlega 180 ár. Til sýningar hafa stúdentar valið óvenjulegt leikrit, er lýsir hörmungum minnihlutahópa í Þýskalandi á dögum nasismans. Það einkennilega við Stúdentaleikhús- ið þetta kvöld, var ef til viil það, að áhorfendur voru færri en leikendur, ef allt er talið, og svo hitt, að leikhúsið velur sér verkefni úr nálægri sögu, sem það á ekki í endurminningunni, af því að það var einfaldlega ekki fætt, þegar sú skelfing gekk yfir Evrópu, sem raunar má segja að enn standi yfir. Þótt byssur séu að vísu þagnaðar, er enn framleiddur gaddavír og rafmagnsgirðingar handa stjórnmálamönnum, sem ramma inn velferðarríki sín með þeirri vöru. Áhorf- endur fá því ritaðan texta, sem segir að fjallað sé um raunverulegar, sögulegar aðstæður. I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.