Tíminn - 15.12.1982, Blaðsíða 11

Tíminn - 15.12.1982, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982 bækur UPPLÝSING OG SAGA Sýnishók sagnaritunat fsicndinga á upplýsingaröKJ INGI SIGUROSSON HANNWIKNAStmNUN I ttOKMl NM A» H + l>l OO MlNNlNOAHMtNHíK mi Upplýsing og saga ■Þetta er sjöunda bókin í flokknum Islensk rit sem Rannsóknastofnun í bókmenntafræði við Háskóla íslands og Menningarsjóður gefa út. Upplýsing og saga er sýnisbók sagnaritunar (slendinga á upplýsingaröld (síðasta hluta 18. aldar og fyrsta þriðjudegi 19. aldar) og hefur Ingi Sigurðsson sagnfræð- ingur og lektor búið hana til prentunar og ritað að henni fróðlegan inngang. Flytur Upplýsing og saga kafla úr sagnritum fimmtán höfunda sem margir eru frægir í íslandssögunni. Höfundar kaflanna eru: Finnur Jónsson biskup (1704-89), Skúli Magnússon land- fógeti (1711-94), Jón Eiríksson konferensráð (1728-87), Ólafur Stefánsson stiftamatmaður (1731-1812), Halldór Jakobsson sýslumaður (1735-1810), Magnús Stephensen yfirdómari (1738-1808), Hannes Finnsson biskup (1739- 1806), MagnúsStephensenyfirdómari (1762- 1833), Jón Espólín sagnaritariogsýslumaður (1739-1836), Jón Jónsson aðjunkt (1779- 1817), Finnur Magnússon prófessor (1781- 1847), Sveinbjörn Egilsson skáld og rektor (1791-1852), Þórður Jónassen dómstjóri (1800-80), Baldvin Einarsson lögfræðingur (1801-33) og séra Tómas Sæmundsson (1807- 41). Inngangur Inga Sigurðssonar nemur 48 blaðsíðum, og er þar gerð ítarleg grein fyrir upplýsingastefnunni og höfundum bókarinn- ar. I bókarlok eru skýringar og athugasemdir, heimildaskrá og skrá um mannanöfn. Upp- lýsing og saga er 212 blaðsíður og bókin sett, prentuð og bundin í Prentsmiðju Hafnar- fjarðar. Ritstjórn bókaflokks þessa hafa á hendi háskólakennararnir Njörður P. Njarðvík og Vésteinn Ólason. Jón Óskar Næturferð ■Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur gefið út nýja kvæðabók eftir Jón Óskar. Heitir hún Nælurferð og er sjötta Ijóðabók skáldsins. JónÓskor NÆIURFB3Ð Ljóðumfreisi en hinar fyrri eru: Skrifað í vindinn (1953), Nóltin á herðum okkar (1958), Ljóðaþýðing- ar úr frönsku (1963), Söngur í næsta húsi (1966) og Þú sem hlustar (1973). Á kápu bókarinnar segir svo um efni hennar: „Jón Óskar nefnir þessa nýju kvæðabók sína Næturferð en undirfyrirsögn hennar er Ljóð um frelsi. Fyrsti kaflinn heitir Náttfarabálkur og fjallar um þræl og ambátt Garðars Svavarssonar er verða fyrstu land- nemarnir en ekki þykir hlýða að skipi öndvegi í þjóðsögunni þegar til kemur. Annar kafli heitir Frelsi og haf og hefur að geyma Ijóðmyndir skáldsins frá uppvaxtarár- um þess á Akranesi. Þriðji kafli heitir Horft í skuggsjá og gerist í höfuðstaðnum fyrr og nú. Fjórði kaflinn heitir Eins og tíminn í dag og greinir frá hinni raunverulegu næturferð sem fellir bókina í ramma, bílferð á næturþeli norður í land þar sem minningar og nútími fléttast. Undiralda allra Ijóðanna er svo frelsisþráin, eðlislæg og ásækin leit að óbrotnu og óháðu lífi“. Næturferð er 120 blaðsíður að stærð. Bókin er sett, prentuð og bundin í Prent- smiðju Hafnarfjarðar. ROKK GEGN VIMU I HASKOLABÍÓ 17. DES Þeir sem taka þátt í hljómleikunum eru: Bubbi Morthens og EGO Kimiwasa-bardagalist: Haukur og Hörður. Kynnir: Þorgeir Ástvaldsson. Trommur: Sigurður Karlsson Gunnlaugur Briem - Mezzoforte. Bassi: Jakob Garðarsson - Tíbrá. Gítar: Tr.yggvi Hiibner Friðryk, Björn Thoroddsen H.B.G. Eðvarð Lárusson - Start. Hljómborð: Hjörtur Hauser - H.B.G. Eyþór Gunnarsson - Mezzoforte Eðvarð Lárusson - Start. kl. 18 og 23 Blásarar: Sigurður Long, Einar Bragi, Rúnar Gunnarsson, Ari Haraldsson, Ágúst Elíasson, Þorleikur Jóhannesson, Konráð Konráðsson. Söngvarar: Pálmi Gunnarsson, Ellen Kristjánsdótt- ir, Sigurður K. Sigurðsson, Sverrir Guðjónsson, Björk Guðmundsd. Kór: Magnús Þór Sigmundsson, Jóhann Helgason, Birgir Hrafnsson, Sverrir Guðjónsson, Björk Guðmundsdóttir. Allur ágóði rennur til byggingar sjúkrastöðvar SÁÁ RAiðar fást í öllum hljómplötuverslunum Kamabæjar. MiAaverö 150.- STYRKTARFELAG SOGNS Eftír þessum bókum hefur verið beðið þær koma í bókaverslanir í dag Nútíð og framtíð íslenskrar knattspyrnu YOURI SEDOV, höfundur þessarar bókar, er íslenskum knattspyrnumönnum og knattspyrnuunnendum að góðu kunnur. Hann hefur um árabil þjálfað knatt spyrnumenn Víkings með þeim árangri, að þeir urðu íslandsmeistarar 1981, Reykjavíkur- og íslandsmeistarar 1982 eru nú efstir í 1. deild, þegar þessi bók kemur út. Bók þessi fjallar um þjálfun knattspyrnumanna, bæði einstaklinga og liðsheildar. Knattspyrnumenn hafa oft kvartað yfir því að slík leiðbeiningabók væri ekki til á íslensku, en nú hef- ur ræst úr því. Youri Sedov er hámenntaður knattspyrnuþjálfari, hefur gengið í gegnum bestu þjálfun og fræðslu sem slíkir menn geta fengið. Hann setur hér fram leiðbeiningar sem ættu að koma öllum knatt- spyrnumönnum að haldi. * Islensk knattspyrna ’82 Jafntefli íslenska landsliðsins gegn HM-liði Englendinga, jafnteflið við Holland og tapið óvænta fyrir Möltu á Sikiley. Frásagnir af öllum öðrum landsleikjum íslands í sumar; drengja, unglinga og kvenna. Baráttan um Heims- bikarinn Spánn ’82 „Starf mitt á knattspyrnuvellinum er að standa mig vel og skora mörk“, segir marka- kóngur HM-keppninnar, Paolo Rossi. í formála segir hann ítarlega frá sjálfum sér og ítalska landsliðinu í lokakeppninni. í bókinni BARÁTTAN UM HEIMSBIKARINN er skýrt frá gangi mála í öllum leikjum loka- keppninnar, 52 að tölu. Auk þess eru greinar um þau lið, sem komu á óvart, auk um 200 frétta- og fróðleikspunkta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.