Tíminn - 15.12.1982, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982
3
fréttir
Bráðkvaddur
á rjúpna-
veidum
■ Tæplega fimmtugur Akureyringur
Karl Ólafur Hinriksson varð bráðkvadd-
ur á rjúpnaveiðum skammt frá bænum
Engimýri í Öxnadal í fyrradag. Félagi
hans kom að honum látnum um það bil
200 metra frá þeim stað þar sem þeir
höfðu lagt bíl sínum.
Karl Ólafur var til heimilis að Borgar-
hlíð 4A á Akureyri. Hann lætur eftir sig
konu og tvö uppkomin börn.
Nemenda-
tónleikar
og aðventu-
kvöld
í Skagafirði
Skagafjörður: Nemendatónleikar Tón-
listarskóla Skagafjarðar verða í Árgarði
n.k. laugardag kl. 14.00 í sambandi við
aðventuhátíð Mælifellsprestakalls. Par
verða einnig sungnir aðventusálmar,
lúsíur koma fram svo sem venja hefur
verið mörg undanfarin ár, síra Ólafur
Hallgrímsson á Bólstað flytur hugvekju,
en félagar íTónlistarfélagi Skagafjarðar-
sýslu sjá um kaffiveitingar.
Sunnudaginn 12. desember verða
nemendatónleikar Tónlistarskólans á
Hofsósi og að kvöldi sunnudagsins kl.
21.00 í Miðgarði í umsjá skólastjórans
Einars Schwaigers og kennaranna.
t>á verður sameiginlegt aðventukvöld
Glaumbæjar- og Miklabæjarprestakalla
í Miðgarði n.k. föstudag kl. 21.00. Þar
verður lúsíusöngur, ræða Páls Dag-
bjartssonar skólastjóra, hugvekja síra
Gísla Gunnarssonar og ávarpsorð Þor-
steins Ragnarssonar og bæði kórsöngur
og nemendasöngur undir stjórn Gróu
Hreinsdóttur tónlistarkennara í Varm-
ahlíð. Veitingar verða fram bornar.
S.l. laugardagskvöld efndi Tónlistar-
félag Skagafjarðarsýslu til söngskemmt-
unar í Miðgarði í Varmahlíð. Ragnheið-
ur Guðmundsdóttir söngvari í Njarðvík
flutti hátíðlega dagskrá trúarlegra ljóða
og laga eftir innlenda og erlend skáld
orða og tóna af mikilli snilld við
undirleik Gróu Hreinsdóttur, tónlistar-
kennara. Einnig sungu 7 af nemendum
Gróu bæði tvísöngs- og kórlög og milli
atriða lék hún á píanó.
Á.S./Mælifelli
Peir sem reykja hass eða önnur kannabisefni reglulega:
GETA An V0N A GEDVEIKI,
GETULEYSI OG ÚFRIÓSEMI
— samkvæmt skýrslu landlæknis um ávana- og fíkniefni
■ Ófrjósemi, getuleysi og jafnvel al-
varleg geðveiki er meðal þess sem þeir
hætta á sem reykja hass eða önnur
kannabisefni reglulcga, að því er fram
kom á fundi hjá landlækni þar sem kynnt
var skýrsla um ávana og fikniefni.
„Magn karlkynshormóna lækkaði um
44% í blóði pilta sem reykt höfðu
kannabis þrisvar til fjórum sinnum í viku
í allt að sex mánuði. Fjöldi sáðfruma
minnkaði verulega, allt niður í 0, meðal
framangreindra unglinga“, segir m.a. í
skýrslunni.
Kannabisefnin eru sögð þeim mun
hættulegri en t.d. áfengi að þau setjast
í fituvefi líkamans m.a. taugakerfi,
heilavefi og kynfæri og eru því viku eða
meir að hverfa úr líkamanum.
Eftir tveggja ára starf á Geðdeild
Landsspítalans kvaðst Sigmundur Sig-
fússon læknir hafa orðið var við 10 tilfelli
þar sem augljóst orsakasamhengi virtist
■ Hátt á fjórða kfló af kannabisefnum sem laganna verðir lögðu hald á á einum
mánuði í fyrra.
Tímamynd Róbert
vera milli alvarlegrar geðveiki og reglu-
bundinnar notkunar á hassi.
Einnig er álitið að breytingar á
persónuleika svo sem versnandi nær-
minni, minnkaður skilningur og sljóleiki
geti komið fram eftir tiltölulega litla
notkun, vegna skemmda á heilafrumum,
þótt merki um heilarýrnun mælist ekki
fyrr en síðar. Hafi vísindamenn t.d.
fundið einkenni um svipaða heilarýrnun
meðal 20-30 ára hassneytenda og 70-90
ára gamalmenna.
í könnun sem gerð var árið 1980
meðal 15 og 17 ára unglinga kom í ljós
að 2-3% þeirra nota kannabisefni (hass)
vikulega eða meir. Við samanburð á
könnunum frá árunum 1972-1976 og
1980 kemur í Ijós að þeim sem ^inhvern-
tíma hafa notað kannabisefni hefur
fjölgað mjög. Árið 1980 kvaðst um
fjórðungur 15 ára stúlkna og 5. hver 17
ára piltur einhverntíman hafa notað
þessi efni. Um 56% þessara unglinga
kvaðst þekkja einhvern með nafni sem
nota þessi efni, sem er nær tvöföldun frá
því 8 árum áður.
Þá leiddi könnun þessi í Ijós að meiri
líkur eru á því að þeir sem nota áfengi
hafi einnig prófað hass heldur en þeir
sem sjaidan drekka.
- HEl
Tillaga
frá
Albert
féll í
borgar-
ráði
■ Að fengnu áliti umferðarnefndai
Reykjavíkurborgar felldi borgarráð
tillögu Alberts Guðmundssonar, for-
seta borgarstjórnar, um lausn á bif-
reiðastæðavanda Verslunarskóla
íslands.
Tillagan fól í sér að fella niður sektir
á nemendur V.í. fyrir að leggja
bifreiðum sínum þeim megin sem
bifreiðastöður eru óheimilar við
Grundarstíg. Einnig lagði Albert til að
kannað yrði, hvort leyfa bæri bifreiða-
stöður beggja vegna Grundarstígs frá
Hellusundi að Skálholtsstíg.
Umferðarnefnd Reykjavíkurborgar
lagðist algerlega gegn því að tillaga
Alberts yrði samþykkt. Þá höfðu
íbúasamtök Þingholtanna sent borgar-
ráði ályktun þar sem lagst var gegn
samþykkt tillögunnar vegna slysahættu
sem framkvæmd hennar hefði í för
með sér. - Sjó
.. ELECTROLUX
ORBYLGJUOFNINN
Það þarf ekki að hita upp örbylgjuofninn. Fullur styrkur næst á
broti úr sekúndu. Hinn eiginlegi hiti myndast í matnum sjálfum og
ekkert brennur í örbylgjuofni.
Örbylgjuofninn eyðir rafmagni á við eina meðal ljósaperu. Öll
venjuleg matreiðsla tekur skemmri tíma og þú uppgötvar nýjar víddir
i matreiðslu möguleikum.
Et þú villt vita enn meira pantarðu þér upplýsingablað í
síma 32107 milli 10—12.
Já, þessi örbylgjuofn er alveg ótrúlegur hvað verður það næst...!
Sælkermatur á
nýjubragð- ffil'iililliiWMiHHIillll
og nraoameti i raftækjadeild - sími 86H7
m
rnicrowave oven
■ I O
ooo