Tíminn - 15.12.1982, Qupperneq 6
Álvlðræðu-
nefnd
lögð
nlður
■ „Þar eð fulltrúi Framsóknarflokks-
ins, Guðmundur G. Þórarinsson al-
þingismaður, hefur sagt sig út álvið-
ræðunefnd og annar maður ekki verið
tilnefndur í hans stað tciur ráðuneytið
augljóst, að nefndin geti ekki lengur
þjónað þvt hlutverki sem henni var
ætlað,“ segir í tilkynningu frá iðnaðar-
ráðuneytinu,
Þar segir jafnframt: „Hefur því
verið ákveðið að leggja nefndina
niður.“
Eldur
í Hval 8
■ Eldur kom upp í hvalveiðibátnum
Hval 8 rétt fyrir kl. 12.30 í gær þar sem
hann lá í Reykjavtkurhöfn. Verið var
að vinna að viðgerðum í vélarrúmi og
kom þá þar upp eldur. Greiðlega gekk
að slökkva eldinn og lauk slökkvistarf-
inu á u.þ.b. hálftíma. Skemmdir urðu
óverulegar.
Framsóknar-
menn á
Austurlandl:
Prófkjör
Mok
janúar
■ Stefnt er að þvt að prófkjör fari
fram á Austurlandi dagana 29. og 30.
janúar n.k. um röðun á framboðslista
Framsóknarflokksins í næstu alþing-
iskosningum. Prófkjörið verður opið
öllum stuðningsmönnum Framsóknar-
flokksins og miðastbindandikosning í
sæti við 50% atkvæða.
Tólf manns hafa gefið kost á sér t
prófkjörið: Einar Baldursson Reyðar-
firði, Halldór Ásgrímsson á Höfn,
Hermann Guðmundsson á Vopnafirði,
Guðmundur Þorsteinsson á Fáskrúðs-
firði, Guðrún Tryggvadóttir á Egils-
stöðum, Aðalsteinn Valdintarsson á
Eskifirði, Sveinn Sighvatsson á Höfn,
Þördís Bergsdóttir á Seyðisfirði, Haf-
liði Pálsson ( Hjarðarhaga, Sveinn
Guðmundsson á Sellandi, Jón Kris-
tjánsson á Egilsstöðum, og Tómas
Arnason í Kópavogi.
- HEI
■ Nýlega var haldinn í Garðaholti 23.
Sambandsráðsfundur UMFÍ. Sam-
bandsráðsfundir UMFÍ eru haldnir árin
á milli þinga, sem eru annað hvert ár og
þar mæta formenn aðildasambanda
UMFÍ.
Fundurinn var óvenju fjölmennur að
þessu sinni og sátu hann rúmlega 40
manns, fulltrúar, gestir, stjórn UMFÍ og
fulltrúar frá Ungmennasambandi
norðurlanda og ungmennasambandi
Færeyja.
í framhaldi af fundinum var efnt til
samsætis í tilefni af 75 ára afmæli
Ungmennafélags íslands.
Ungmennafélag Islands var stofnað á
Þingvöllum 2.-4. ágúst 1907 og hefur
UMFÍ minnst þessara tímamóta á
margvíslegan -hátt á þessu ári. Sem
sérstakt afmælisverkefni var farin her-
ferð til eflingar íslenskri framleiðslu og
til að draga athygli fólks að þessu
baráttumáli var efnt til hjólreiðarferðar
hringinn í kringum landið, svo sem
flestum er eflaust enn í fersku minni. Þá
hefur verði lögð mikil áhersla á að kynna
ungmennafélagshreyfinguna um land
allt m.a. með útgáfu á litprentuðum
kynningarbæklingi um UMFÍ sem gefin
var út í 10. þúsund eintökum, einnigvar
gefið út blað í 52 þúsund eintökum í
tengslum við verkefnið „Eflum íslenskt"
og margt fleira mætti nefna.
■ Frá afmælisfagnaði UMFÍ. Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi formaður flytur ðvarp.
Útflutningsfyrirtæki:
HÆTTW AD HRINGIA
HÉDAN TIL ÚTLANDA
sendið mann út og látið hann hríngja þar
■ Ef þú rekur sæmilega stórt útflutn-
ingsfyrirtæki og finnst símreikningurinn
vera orðinn ískyggilega hár, þá ættir þú
að athuga í alvöru að senda mann til
viðkomandi viskiptalands og láta hann
hringja til viöskiptaaðilanna þar. Þetta
gæti sparað þér stórfé.
í nýjasta fréttabréfi Verzlunarráðs
fslands er vakin athygli á þessum málum
og bent á að símtöl til útlanda séu orðin
verulegur kostnaður hjá íslenskum fyrir-
tækjum sem mikil viðskipti eiga við
útlönd. Sé svo langt gengið í þessum
málum að í einu stóru útflutningsfyrir-
tæki borgi sig jafnvel á ákveðnum
álagstímum að senda sölumann til
Bandaríkjanna í tvo til fjóra daga og láta
hann hrigja þaðan í viðskiptaaðilana, í
stað þess að sitja hér heima við tólið.
Sem dæmi megi nefna að ferðakostnaður
til New York með uppihaldi í tvo til fjóra
daga sé um 16 þúsund krónur, en fyrir
þá fjárhæð sé aðeins hægt að nota
símann hér heima til að hringja til
Bandaríkjanna í átta klukkutíma miðað
við umframskref. í fréttabréfinu er
ennfremur bent á að íslensk fyrirtæki
hafi oft brugðið á það ráð að fá
viðskiptavini til að hringja „collect“
hingað til lands og sparað þannig stórar
fjárupphæðir, þvt að í sumum löndum
kosti ekki nema þriðjung þess að hringja
til íslands, sem það kostar að hringja frá
íslandi og til þeirra. Er að lokum bent
á að þessi óheyrilega hái símkostanður
sé síst til þess fallinn að stuðla að
hagkvæmum viðskiptum við útlönd.
- ESE
Herferð til eflingar
fslenskri framleiðslu
„Flytjum ekki van-
traust á Hjörleif”
— segir Stelngrímur
Hermannsson, formaður
Framsóknarflokksinsp vegna
ummæla iðnaðarráðherra
S „Eg td að það komi ekki til greina
af okknr hálfu að flytja vantrauststil-
lögu á iðnaðarráðhcrra,“ sagði Stein-
grítnur Herinannsson, fortnaður Frain-
sóknarflókksins, þegttr Tíuiinn spurði
liann álits á orðum Hjörleifs Gutt-
ormssonar, iðuaðarráðhena í Tíma-
nuin í gær, þar sem liaun sagðist tclja
það rökrétt frainhald á málabúnuði
Guðmundar G. Þórarinssonar og
„hans nánustu samherja sem hann
virðist hafe haft í vitorði.“
„Ég vil mótmæla þvt. að við höfum
verið með eitthvað samsæri gegn
Hjörleifi - það er algjörlcga rangt hjá
honum. Þvert á móti, þá höfum við
reynt okkar ýtrasta til að tryggja gott
samstarf um þetta má).“sagði Steingrím-
ur, „en þvt er ekki að neita að við erum
orðnir ansi langþreyttir eftir því, að
aívoruvioræður um hækkun á rafork-
uverðinu hefjist."
Ég er sammála ýntsum þeim kröfum
sem Hjörleifur hefur verið mcð íþessu
sambandi, og tel að það hefði verið
æskilcgt að ná þeim fram, cn hins
vcgar verð ég að scgja það cins og er,
að ég erósammáia öðrum þáttum, sem
hann hefur verið mjög harður á. En
við teljum málið vera í hans höndum
og á hans ábyrgð.“
- AB
Landbúnadarráðyneytið um blaðamannafund
Búvörudeildar SÍS:
„Villandi og
um sumt rangar
upplýsingar”
■ „Verð á þciin mörkuðum sem Bú-
vörudeild Santbandsins selur dilkakjöt á
er mjög breytilegt og má nefna að við
sölu til Svíþjóðar fæst aðeins um 3%
hærra verð en Hollendingurinn (sem
kaupa vill kjöt héðan) býður“, segir í
tilkynningu frá landbúnaðarráðuneytinu
þar sem gerðar eru athugasemdir
„Vegna villandi og um sumt rangra
upplýsinga“ sem gefnar voru á Blaða-
mannafundi sem Búvörudeildin boðaði
til vegna hinnar áformuðu sölu á
dilkakjöti til Hollands.
Upplýsingar um að vcrðið sem Hol-
lendingurinn býður sé 28,9% lægra en
meðalverð sem Búvörudeild selur fyrir
á erlendum mörkuðum segir ráðuneytið
byggðar á röngum samanburðargrund-
velli, þar sem meðalverð Búvörudeildar-
innar sé reiknaö með því að taka inn í
verð á niðurhlutuðu kjöti, hryggjum og
lærum sem selt sé á mun hærra verði en
kjöt í heilum skrokkum.
Þótt Búvörudeildin hafi selt á betra
verði en fengist í Hollandi sé segir
ráðuneytið þann mun óverulegan t.d.
miðað við sölur til Svíþjóðar og Þýska-
lands, eða sem svari 0,7 til 2,1 millj.
króna fyrir 1.000 tonn. Sá mismunur
yrði fljótur að hverfa í kostnað við
geymslu kjötsins, sem t.d. yrði um 20
millj. þar til í ágúst á næsta hausti.
Vaxta- og geymslukostnaður sé nú 2,48
kr. á kílóið á mánuði.
Af þessa árs framleiðslu gerir ráðu-
neytið ráð fyrir að selja þurfi um 3.000
tonn á erlenda markaði. Búvörudeild
segi að 2.107 tonn hafi verið seld, sem
sé of há tala. „Nær sanni mun að
1.050-1100 tonn hafi verið seld um
síðustu mánaðamót“, segir í tilkynningu
ráðuneytisins. _ HEI