Tíminn - 20.02.1983, Page 5

Tíminn - 20.02.1983, Page 5
SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 Mmrnm 5 P C.tti. C f> nú gátu verkamenn rætt saman í mál- gagni sínu, fræðst um ástandið annars staðar í landinu og samræmt aðgerðir sínar ef út í það færi. Það var önnur kaldhæðni að ritstjóri þessa málgagns. verkalýðsfélaganna var KGB-foringi og sá hinn sami og rúmu ári áður hafði myrt Stephan X, Alexei Letsúkov, en við þann atburð fyllst viðbjóði á vinnuveit- endum sínum. Haustið 1987 voru horfur ekki bjartar. Matarskorturinn varð æ meiri og sam- göngukerfið sá um að sá matur sem til var komst seint eða ekki á leiðarenda. Kúba fylgdist mð ólgunni vaxa og breið- ast út, hann beitti KGB sveitum sínum óspart en yngri mennirnir í hernum neituðu að etja mönnum sínum gegn mótmælendum. Sumar hersveitir lögð- ust beinlínis í rán og rupl þegar ekki var annað að hafa. Kúba ákvað því að nú yrði hann að styrkja stöðu sína svo um munaði og snemma í september ’87 hélt hann mikilvægan fund með leiðtogum kommúnistaflokkanna í hinum ýmsu lýðveldum. Fundurinn var haldinn í Ódessa og Kúba og Búkin lögðu áherslu á að hið eina sem gæti bjargað Sovétríkjunum væri sterk stjórn í anda Jósefs Stalín. Kúba þurfti hins vegar stuðning til að geta stigið skrefið til fulls, leitt Rógínóvu fyrir rétt og slegið þar með vopnin úr höndum fylgismanna hennar og síðan sest í stólana tvo sem enginn hafði vermt frá falli Rómanovskíjs. Fundarmenn féllust á beiðni Kúba en með einu skilyrði: að hermennirnir í fangabúðun- um yrðu látnir lausir og þeim leyft að snúa aftur heim til sín. Kúba var þetta þvert um geð en neyddist til að sam- þykkja því tíminn var naumur. Ákveðið var að almenn sakargjöf til handa her- mönnunum yrði veitt þann 7. nóvember á byltingarafmælinu. Þann dag myndu 434 þúsundir hermanna halda heim á leið. En áður en af því gæti orðið gerðist undarlegur og alveg óvæntur atburður: Ungverjar gerðu innrás í Rúmeníu. Það hefði reyndar ekki þurft að koma svo mjög á óvart ef menn hefðu verið tilbúnir til að lesa skriftina á veggnum. Þjóðemiskennd hafði vaxið í fylgiríkjum Sovétríkjanna í Austur-Evrópu, ekki síður en innan þeirra sjálfra, og leiðtogar Ungverjalands eftir afsögn Kadars höfðu ýtt undir slíkar tilfinningar í sínu landi. Ekki leið því að löngu uns Ungverjar fóru að endurvekja kröfur sínar til Transsylvaníu héraðs í Rúmeníu og sömuleiðis gera athugasemdir við fram- ferði rúmenskra yfirvalda gagnvart ung- verska þjóðarbrotinu í landinu. Rúmen- ar höfðu ekkert á móti rifrildi af þessu tagi, ólga hafði farið vaxandi í landinu, verkföll, mótmælaaðgerðir og þar fram eftir götunum, og Þeir-þ.e.a.s. leiðtog- amir - töldu að þjóðemisdeila við Ung- verja gerði ekkert nema gott. Þeir skvettu því olíu á eldinn, og ungversku leiðtogarnir höfðu þá æst fólk sitt svo upp að ekki varð aftur snúið. Sovétríkin höfðu verið svo önnum kafin við innan- landsvandamál sín að þau höfðu ekki sinnt þessu deilumáli að ráði og þar kom sem fyrr sagði að Ungverjar sáu það ráð eitt til lausnar úr klemmunni að gera innrás í Rúmeníu. Og það gerðu þeir. Sovésku hersveitirnar í löndunum tveimur vissu ekki hvernig þær áttu að bregðast við svo þær biðu átekta. Aftur á móti lýsti fyrirbærið Úkraínski frelsis- herinn yfir stuðningi við Ungverjaland og sveitir úr honum réðust inn í Rúmen- íu. Tíu herdeildir úr sovéska hernum tóku sér stöðu við landamæri Rúmeníu en leiðtogunum í Kreml gekk illa að ákveða sig. Hver hélt með hverjum? Afleiðingin var sú að ekkert var aðhafst í bili. Ungverjar sóttu dálítið inn í Rúmeníu, bardagar voru um tíma nokk- uð harðir en. síðan hljóðnaði allt vegna annarra og meiri tíðinda. Ekki má heldur gleyma því að í sömu mund og Ungverjar og Rúmenar voru komnir í hár saman höfust miklir liðs- flutningar Kínverja við landamærin í Síberíu. Sovétmenn sem alltaf höfðu verið á nálum gágnvart „gulu hættunni sendu þegar í stað fjölda hersveita austur til að vera við öllu búnar og hersveitunum í Austur-Evrópu var skip- að að halda kyrru fyrir þar svo Vestur- lönd freistuðust ekki til ævintýra- mennsku meðan þessi óróleiki ríkti í Sovétríkjunum. Því var stærstur hluti sovéska hersins bundinn annars staðar þegar fyrstu hermennirnir tóku að streyma úr fangabúðunum. Hermennirnir, sem langflestir til- heyrðu þjóðarbrotunum, höfðu liðið sáran skort um sumarið og haustið en eftir því sem sakaruppgjöfin færðist nær hafði aðbúnaður batnað og þeir voru því í sæmilegu formi en ennþá brennandi af reiði og ofsa út í þau stjórnvöld sem höfðu fangelsað þá fyrir lítið annað en þjóðernið. Nú kom það einnig til skjal- anna að fangabúðirnar voru í raun og veru ekki færar um að láta allan fanga- skarann lausan í einu lagi, samgöngu- kerfið myndi einfaldlega ekki þola allan þennan fjölda. í sumum hinum stærri fangabúðum var áætlað að það myndi taka allt að fjórum mánuðum að tæma þær og fangarnir voru bara ekki tilbúnir til að bíða svo lengi. Þeim hafði verið sagt að þeir væru frjálsir og svo þurftu þeir að bíða þetta lengi. Einnig kom það til að eftir 7. nóvember voru þeir ekki fangar lengur í formlegum skilningi og því var matarsendingum til fangabúð- anna snimmendis hætt. Hatrið á fanga- vörðunum bættist svo ofan á allt saman og því ekki að furða að svo fór sem fór. í mörgum fangabúðanna brutust út uppreisnir. Fangarnir voru að sönnu illa vopnaðir, illa klæddir og ekki alltof vel á sig komnir en fjöldi þeirra var slíkur að þar sem kom til uppreisna fengu fangaverðimir ekki við neitt ráðið. Fanga- verðirnir fengu heldur enga miskunn þar sem svo bar undir. Ástandið í Sovétríkjunum nálgaðist nú algera upplausn. Járnbrautarkerfi landsins miðaðist nær eingöngu við Moskvu og í margar vikur voru allar lestir til og frá borginni fullar af þessum fyrrver-. andi föngum. Sums staðar fór að vísu allt fram með ró og spekt en oftar kom til uppþota og sumir hópar fanga fóru rænandi og ruplandi um landið á leið sinni heim. Þegar hinir fyrstu þeirra komu til Moskvu átti lögreglulið borg- arinnar í mestu erfiðleikum með að hemja þá og margir hópar fóru stjórn- lausir um borgina. Út um landið gerðist það líka að hermennirnir réðust á búðir pólitískra fanga og glæpamanna og leystu þá úr haldi. Er kom fram í desember 1987 var engin leið að vita hvernig þetta myndi enda. Uppþot brut- ust út í ýmsum héruðum og borgum þar sem fólk var að mótmæla matarskorti og lögreglu- og KGB sveitir þurftu því að halda sig þar og gátu ekki farið til hjálpar félögum sínum sem voru að kljást við fangana fyrrverandi. Kúba hafði því ákveðið að herinn yrði að koma til hjálpar og almenn herkvaðning hafði verið fyrirskipuð um landið allt. Þá brá svo við að fjölmennar mótmælagöngur voru farnar í lýðveldunum gegn her- kvaðningunni, ekki síst í Armeníu, þar sem leiðtogi kommúnistaflokksins, Mikojan, hafði gert sér ljóst að þjóðern- ishreyfingin væri orðin svo sterk að ekki yrði aftur snúið. Mikojan þessi var reyndar sonur þess Mikojans sem áður hafði lengi farið með völd ráðstjórnar- innar í Armeníu. Svipað var uppi á teningnum í Azerbajdan, Georgíu, Kirghiziu og víðar. Fólkið hafði gert sér grein fyrir því að stjórnvöld höfðu ekki lengur stjórn á ástandinu og áratuga löng megn óánægja braust nú óhikað upp á yfirborðið. Snemma í desember tókst Kúba loks að brjóta herinn undir vilja sinn - að hluta að minnsta kosti. Kólotkin gamli marskálkur studdi aðgerðir sem áttu að setja hinar reglulegu hersveitir undir beina stjórn KGB manna en þeim fregn- um var ákaflega illa tekið í hernum, þar ■ Á byltingarafmælinu ’87 hugðist Kúba styrkja stöðu sína með því að veita 434 þúsundum hermanna sakaruppgjöf. En þá gerðist óvæntur atburður: ' Ungverjar gerðu innrás í Rúmeníu. ■ í mörgum fangabúð- anna brutust út uppreisn- ir. Fangarnir voru illa vopnaðir, illa klæddir en. fjöldi þeirra var mikiU... Fangaverðirnir fengu enga miskunn. ■ Hersveit var stefnt gegn járnbrautarlest sem fangarnir höfðu náð á sitt valdr En fangar og her- menn sneru bökum sam- an og börðust gegn sam- eiginlegum óvini. ■ 20, desember 1987 voru Gúlag hersveitirnar komnar til Moskvu, á- kveðnar í áð hefna sín á rússnesku kúgurunum. Það ríkti stríðsástand í Moskvuborg, eð foringjar hans höfðu mikla andúð á KGB og litu svo á að þeirra hlutverk væri að verja landið utanaðkomandi innrásum, ekki gegna lögreglustörfum. Þegar hér var komið sögu var straum- ur hinna fyrrverandi hermanna orðinn svo mikill gegnum Moskvu að yfirvöld kröfðust þess að hægt yrði á og stöðvar isettar upp fyrir utan borgina svo skjóta mætti þeim smátt og smátt í gegn. Þetta' var gert og á 'örfáum dögum hafði 80 þúsund föngum verið safnað saman í Noginsk og 60 þúsundum í Pavlowsky. Þeir létu sér þetta lynda um sinn en síðan bárust þeim æsandi fréttir. Stór hópur fanga hafði hertekið flutn- ingalest og stefndi til Moskvu. Hersveit sem aðallega var skipuð Úsbekum var send í veg fyrir hana, en hersveit þessi laut KGB foringja samkvæmt hinni nýju skipan. Lestin var stöðvuð en meðal fanganna voru einmitt margir Úsbekar. Rétt í þann mund að hermenn og fangar voru farnir að kallast á gerði flugherinn loftárás á lestina. Þetta stafaði af van- trausti Kúba og manna hans sem ekki vildu reiða sig á hersveit Úsbekanna og með réttu. Er flugvélamar tóku að varpa sprengjum á lestina snerust her- mennirnir til varnar, nokkrar vélar voru skotnar niður og KGB foringinn hafði sig í snarhasti á brott. Síðan héldu hermennirnir og fangarnir sína leið í sameiningu. Þetta hafði þær afleiðingar að KGB mennirnir þorðu nú vart að hætta á að tefla hersveitum skipuðum þjóðarbrot- unum gegn föngunum fyrrverandi og ástand. mála versnaði enn. í Noginsk og Pavlovsky færðist ólgan í aukana við slæma meðferð og skyndilega tóku að myndast þar vísar að herdeildum sem skipuðust niður eftir þjóðemum. Þessar hersveitir-sem að vísu voru lítt eða ekki vopnaðar - kenndu sig við Gúlag. Þeir sendu sendimenn á fund stjórnenda búðanna til að krefjast áframhaldandi ferðalaga heim til sín en stjórnendurnir brugðust harkalega við. Sendimennimir voru líflátnir. Fangarnir gerðu enn upp- reisn. Þetta gerðist 20. desember. Gúlag sveitirnar þrömmuðu til Moskvu og mættu lítilli mótspyrnu á leiðinni. Sumar þeirra höfðu aðeins í huga að komast gegnum borgina og heim til sín en aðrar voru Ioks ákveðnar í að hefna sín á rússnesku kúgurunum. Lettar, Litháar, 1 Eistlendingar og Tatarar gengu harðast fram. Næstu daga ríkti stríðsástand í Moskvu. Kúba hafði undanfarnar vikur reynt að ná stjórn á ástandinu cn lítið gengið. Herinn var honum andsnúinn og hann ákvað að hefja þegar í stað gífurlegar hreinsanir í hernum, líkt og Stalín hafði gert á fjórða áratugnum. Einnig hafði hann einsett sér að ganga loks milli bols og höfuðs á Rógínóvu og sendi KGB sveitir til að taka hana af lífi. Hersveit- irnar sem gættu hennar snerust gegn KGB mönnunum þann 20. desember og Rógínóva var laus úr haldi. Daginn eftir lýsti Armenía yfir sjálfstæði. Þetta var dropinn sem fyllti mælinn. Áður en þrjár klukkustundir voru liðnar höfðu fimm önnur Mið-Asíu lýðveldi Sovétríkjanna fylgt í fótsporið. í Moskvu ríkti sem fyrr sagði stríðsástand, verkamenn höfðu lagt niður vinnu að kröfu Jósef Denskíjs sem hafði verið frelsaður úr fangabúðum, ráðist var gegn Lúbjanka-fangelsinu og pólitískir fangar þar frelsaðir. Semjon Kúba var handtekinn ásamt helstu fylgismönnum sínum. Náttúrlega vita allir hvert framhaldið varð. Öll fyrrum sambandsríki Sovét- ríkjanna lýstu yfir sjálfstæði sínu. Nat- alja Rógínóva varð, eins og öllum er kunnugt, fyrsti forseti hins nýja Rúss- lands og kom öllum á óvart með meiri háttar diplómatískum sigri, nefni|ega bandalaginu við Japan. Rússland hafn- aði öllum áhrifum sínum í Austur-Evr- ópu og öll hin nýju ríki tóku að sleikja sár sín. Það fór nú eins og það fór. ■ Daginn eftir lýsti Armenía yfír sjálfstæði sínu. Áður en þrjár klukkustundir voru liðnar höfðu fímm önnur Mið- Asíu lýðveldi Sovétríkj- anna fylgt í fótsporið.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.