Tíminn - 20.02.1983, Side 19
SUNNUDAGUR 20. FEBRUAR 1983
ftitóm
19
Auglýsing
um styrki Evrópuráðsins á sviði læknisfræði og heilbrigðisþjónustu
fyrir árið 1984.
Evrópuráðið mun á árinu 1984 veita starfsfólki f heilbrigðisþjónustu
styrki til námsferða í þeim tilgangi að styrkþegar kynni sér nýjungar
í starfsgreinum sínum í löndum Evrópuráðsins og Finnlandi.
Styrktímabilið hefst 1. janúar 1984 og lýkur 31. desember 1984. Um
er að ræða greiðslu ferðakostnaðar samkvæmt nánari reglum og
dagpeninga, sem nema 161 frönskum frönkum á dag.
Ráðuneytið vekur athygli á, að ákveðið hefur verið forgangsverkefni
fyrir árið 1984 „áhrif langvinns atvinnuleysis á heilsu manna". Þeir
sem óska eftir styrk til þessa verkefnis njóta að öðru jöfnu forgangs
að styrkjum geti þeir sinnt því á fyrri helmingi ársins, þannig að
sérfræðinganefnd, er að þessu vinnur geti hagnýtt sér niðurstöður við
gerð tillagna sem sendast eiga Evrópuráðinu fyrir árslok 1984.
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu landlæknis og í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu og eru þar veittar nánari upplýsingar um
styrkina.
Umsóknir skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 18. mars n.k.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
18. febrúar 1983
Lausar stöður
heilsugæsiulækna
Lausar eru til umsóknar stöður heilsugæslulækna sem hér segir:
1. Höfn Hornafirði H2, önnur læknisstaða fra 1. maí 1983
2. Siglufjörður H2, önnur læknisstaða frá 1. júní 1983.
3. Blönduós H2, ein læknisstaða frá 1. ágúst 1983.
4. Patreksfjörður H2, önnur læknisstaða frá 1. ágúst 1983.
5. Fáskrúðsfjörður H1, staða læknis frá 1. ágúst 1983.
6. Hólmavík H1, staða læknis frá 1. ágúst 1983.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um læknismenntun og
læknisstörf sendist ráðuneytinu fyrir 20. mars n.k. á þar til gerðum
eyðublöðum, sem fást hjá ráðuneytinu og landlæknisembættinu.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið,
18.f ebruar 1983.
HRI
\V AUGLÝSING
Að gefnu tilefni vill Barnaverndarnefnd Reykjavíkur vekja athygli
foreldra og fólks í Reykjavík sem hyggst taka börn í dagvistun á
einkaheimili á,að slík dagvistun er háð leyfi Barnaverndarnefndar.
Engum er heimilt að taka börn í dagvistun nema hafa slíkt leyfi undir
höndum, foreldrum er því bent á að kanna hvort tilskilinna leyfa hafi
verið aflað áður en þeir setja börn sín í dagvistun á einkaheimilum.
Um leyfin er sótt á Njálsgötu 9, s. 22360, en þar starfa fóstrur að
lögbundnu eftirliti.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
W
Félag
járniðnaðarmanna
Aðalfundur
verður haldinn sunnudaginn 27. febrúar 1983 kl.
13.30 e.h. í Dómus Medica, við Egilsgötu.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Tillaga um innheimtu á fræðslugjaldi.
3. Önnur mál
ATH. Ársreikningar liggja frammi á skrifstofu
félagsins fimmtudag 24. febrúar og föstudag 25.
febrúar kl. 16.00-19.00 og laugardag 26. febrúar
kl. 10.00-12.00.
M ætið vel og stundvíslega.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
BiH á góðu verði og greiðslukjörum
Hafið samband við sö/umenn okkar
INGVAR HELGASON Simi33560
SÝNING ARS ALURINN /RAUÐAGERÐI
Þarfasti þjónninn
til lands og sjávar
DATSUN PICKUP
Burðargeta 1200 kg.
Bensin eða diesei
Vél: Diesei 2200 c.c.
Bensin 1600 c.c.
2815 (110.8)
4735 (186.4)
Wolke
19 x 19x8 cm.
og 24x24x8 cm.
Sýningarbás hjá Byggingaþjónustunni
Hallveigarstíg 1, Reykjavík.
GLERVERKSMIDJAN
Samvei*k hf.
Sími 99-5888 - 850 HellU
Hleðslugler
utanhúss sem innan
Jupiter
24x24x8 cm.
Oríon