Tíminn - 05.03.1983, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 5. MARS 1983
Koo og
fortídin
■ Nú loks, sex árum eftir að
Christina Onassis skildi við
mann sinn, gríska skipamiðl-
araerfingjann Alexandros
Andreadis, hefur Christina lát-
ið uppskátt, hver skilnaðar-
ástæðan var. Hún heitir Kath-
leen Stark, betur þekkt sem
Koo Stark, núverandi vinkona
Andrews Bretaprins.
Christina og Alexandros
voru gift í tvö ár, og þegar
skilnaðinum var komið í kring
á sínum tíma, vildi Christina
ekki láta annaö uppi en að þau
hefðu einfaldlega fjarlægst
hvort annað. Alexandros sjálf-
ur þagði þunnu hljóði.
Það var veturinn 1977-78,
sem Alexandros sýndi sig fyrst
með skilnaðarorsökinni opin-
berlega meðal leikfélaga sinna
í þotugenginu í Gstaad. Þá
ráku félagar hans upp stór
augu yfir því, hversu mikið
Alexandros hafði grennst.
Hann, sem hafði verið í sama
þyngdarflokki og kona hans,
hafði lést um 20 kíló á meöan
hann var að eltast við Kath-
leen, sem þá var með öllu
óþekkt. En því er líkast sem
vinir hans frá þessum tíma
kunni ekki að meta Koo Stark.
Fyrir skemmstu fór Koo
nefnilega í skíðafrí til Sviss,
eins og hitt fína fólkið, og gerði
sér vonir um að rekast á
félagana frá því á árum áður.
En nú brá svo við, að minnið
sveik þá alla saman. Þeir gátu
ómögulega komið henni fyrir
sig. Þegar hún lét þeim þá
vitneskju i té, að nú væri hún
ástmey breska prinsins, yppti
fína fólkiö bara öxlum og sneri
við henni bakinu.
Christina Onassis hleypti
kettinum úr sekknum, og þeg-
ar Gunter Sachs var spurður
eftir áliti á Koo, horfði hann
bara þegjandi á farandbikar,
sem hann hafði nýlega unnið
til! Nú er velt vöngum yfir,
hvort það var einber tilviljun.
■ Alexandros Andreadis léttist um 20 kíló meðan samband hans
og Kathleen Stark stóð.
■ Fína fólkið í St. Moritz og
Gstaad gaf Kathleen viður-
nefnið „Ástmærin.“ Nú vill
það ekkert með Koo hafa að
gera.
MARLON BRANDO ORDINN
ALVARLEGA ASITANGINN
— þess vegna fitnar hann og f itnar
■ Marlon Brando hefur
löngum haft smekk fyrir fínleg-
ar, smávaxnar, suðrænar, fagr-
ar og hljóðlátar konur. Nýjasta
vinkona hans uppfyllir öll þessi
skilyrði, eins og best vcrður á
■ Sumir liorast niður, þcgar
ástarlífið lendir í erfiðleikum.
Hjá Marlon er því öfugt farið,
hann bara fitnar og fitnar á
meöan hann sér ekki fram úr,
hvernig hann má eignast Yac-
hio sína!
kosið. Umfram allt er hún
hljóðlát, og þegar Marlon
kynnir hana sem ungfrú Wang,
einkaritara sinn, brosir hún
bara lcyndardómsfullu brosi!
Reyndar hefur Marlon
Brando ungfrú Wang í þjón-
ustu sinni, en stúlkan, sem
hann kynnir svo oft með þess-
um hætti, heitir reyndar Yac-
hio Tsubaki, og er japönsk að
þjóðerni.
Vinir Marlons og nágrannar
í Laurel Canyon í Kalíforníu
segja einum rómi: - Marlon er
ástfanginn upp fyrir haus. Þeir
fylgjast vel með þróun mála,
og það hefur ekki farið
framhjá þeim, að þessi 27 ára
gamla fcgurðardís gistir oft hús
Marlons, sem er 32 árum eldri.
Nú hefur Marlon heiðrað
þessa ástmey sína sérstaklega.
Hann hcfur boðið henni með
sér til dvalar á Suðurhafseyj-
unni Tetiaroa, sem Marlon
festi kaup á, eftir að hann lék í
Uppreisninni á Bounty og tók
upp ástarsamband sitt við inn-
fæddu stúlkuna Tarita. Þau
bjuggu saman á eynni og þcgar
Marlon yfirgaf hana og tvö
börn þeirra, Tehotu og Che-
yenne, eftirlét hannTarituTet-
iaroa.
Nú vildi Marlon kynna hina
nýju ástmey sína fyrir fjöl-
skyldu sinni og þykir það
óbrigðull vottur þess, að hon-
um sé alvara i þetta sinn, enda
segja þeir, sem best vita, að
hann hafi þegar borið fram
bónorð við Yachio. Yachio er
ekki sögð ráðahagnum
fráhverf, en þar sem hún er
alin upp við mjög strangan
japanskan aga, tekur hún tillit
til skoðana foreldra sinna, sem
viðtal dagsinsj
■ „í Bandalagi kvenna í
Reykjavík samcinast 30 félög
kvenna í Rcykjavík, 13 kirkju-
kvenfélög, líknarfélög, til dæmis
Thorvaldsenfélagið, Hringurinn
og Hvíta bandið og nokkur stétt-
arfélög kvenna, t.d. Sókn,“
sagði Unnur Scliram Ágústsdótt-
ir, formaður Bandalags kvenna í
Reykjavík, í viðtali við Tímann.
„Bandálagið var stofnað árið
1917 af átta kvenfélögum. Síðan
hefur félögunum fjölgað jafnt og
þétt og nú eru 13.000 konur og
nokkrir karlar í þeim.
Tilgangurinn er að sameina
þessi félög og virkja þau í alla
vega líknar-og menningarmála-
starfsemi. Oft höfum við gcngist
fyrir söfnunum, sem hafa skilað
miklum árangri. Nægir í því
sambandi að nefna, að á ári
fatlaðra söfnuðum við 110 mill-
jónum gömlum og keyptum fyrir
þær taugagreiningartæki sem
gefið var á Borgarsjúkrahúsið. í
fyrra á ári aldraðra héldum við
kvöldvökur á öldrunarheimilum
borgarinnar, gáfum Droplaugar-
stöðum vandað píanó, sem mér
„SERSTOK
KVENNAMÁL
VERÐA
ALLTAF TIL”
— segir Unnur Schram
Ágústsdóttir, formadur
Bandalags kvenna
í Reykjavík
skilst að komi í góðar þarfir. að fara á öldrunarheimilið í
enda erum við í þann mund að Furugerði."
kaupa sams konar píanó sem á -Þið hélduð aðalfund fyrir