Tíminn - 04.06.1983, Qupperneq 1
Sumargetraunin - fyrsti getraunaseðiilinn birtur - sjá bls. 2
Blað Tvö
1 blöð
1 í dag
Helgin 4.-5 júní 1983
127 tölublað 67. árgangur
Kartöflubændur í Þykkvabæ óhressir
SITJA ENN UPPI MED 48%
AF UPPSKERU SfÐASTA ARS
■ „Um þessi mánaðamót var
enn nær helmingurinn af kart-
öflunum hér í Þykkvabænum
ófarinn á markað, eða 48%.
Fram undir þetta hefur salan
verið alveg óskaplega treg hjá
okkur - fyrst núna að það er að
lifna yfir þessu. Við reyndum að
ná samstöðu um að láta mæla
hjá öllum og Grænmetisverslun-
in átti að taka jafnt af mönnum
samkvæmt þeirri mælingu. Samt
kemur þetta enn einu sinni þann-
ig út að okkar kartöflur verða
einhvernveginn alltaf síðastar á
markað". Þetta sagði Yngvi
Markússon í Oddspart i í Þykkva-
bæ í gær.
Yngvi kvað landssamtök kart-
öflubænda nú búin að ákveða að
láta fara fram tvær og jafnvel
þrjár mælingar yfir næsta kart-
öfluúthald til að reyna að fyrir-
byggja þetta framvegis.
Yngvi kvað þetta valda
mönnum margskonar erfið-
leikum. Þegar komi fram á vor
aukist rýrnun og vinnan verði
meiri við flokkun og pökkun
kartaflanna, einmitt á sama tíma
og allir eru 'önnum kafnir við
niðursetninguna.
„Við erum líka heldur óhressir
yfir því að ekki skyldi vera
verðlagt hjá okkur núna um
mánaðamótin, en kartöflur voru
þá hafðar útundan. Þarna er
verið að brjóta á okkur lög, því
auðvitað eigum við að fá okkar
8% verðbætur núna eins og aðrir
launþegar í landinu, en það er
ekkert tillit tekið til þess, vegna
einhverrar togstreitu hjá fulltrú-
um í sexmannanefndinni,1' sagði
Yngvi. Tekið skal fram að sú 9%
hækkun sem varð á kartöfluverði
1. júní fór ekki til bænda heldur
upp í hækkaðan umbúðakostn-
að.
En búast menn ekkí við að
sitja uppi með eitthvað af þess-
um kartöflum úr því að helming-
urinn er enn óseldur í júní?
„Þegar framleiðendum sem
keypt er af fækkar svona mikið
verður það svo mikið sem fer á
hverjum mánuði.
Það hefur skeð í mörg ár að
við höfum einir verið eftir með
miklar birgðir um þetta leyti. En
kartöflurnar hafa þó venjulega
verið búnar undir lok júlí. Það
hefur aðeins einu sinni skeð á
undanförnum árum að þetta hef-
ur náð saman, þ.e. að gömlu
kartöflurnar voru ekki búnar
þegar þær nýj u komu á markað. “
- HEI
HALUNN Á, B.Ú.R.
112 MILUONIR KR.
gengistapið
segir Björgvin
■ „Bæjarútgerðin er með tals-
verðar skuldir erlendis og þessar
skuldir eru gengistryggðar þann-
ig að 100% verðhækkun dollar-
ans á síðasta ári ásamt
vegur þyngst í
Guðmundsson
fjármagnskostnaði á langstærst-
an hlut í þessari útkomu. Þar er
annars athyglisvert að þegar
fjármagnskostnaður og afskriftir
hafa ekki komið inn í dæmið er
Lokaæfing „vikingasveitar”
lögreglunnar:
TVEIMUR MÖNNUM VAR
RIARGAÐ ÚR GÍSUNGU
■ Tveir menn voru tcknir í
gíslingu af hópi manna vopn-
uðum haglabyssum við Korp-
úlfsstaði á fimmtudagskvöldið.
Ræningjamir kröfðust lausn-
argjalds fyrir gíslana og einnig
að fá flugvél til umráða til að
komast úr landi. „Víkinga-
sveit“ lögreglunnar í Reykja-
vík var kvödd til og henni tókst
að yfirbúga ræningjana þegar
þeir voru að stíga upp í flugvél-
ina en áður hafði verið gengið
að kröfum þeirra.
Sem betur fer er þessi frétt
ekki sannleikanum samkvæm
að öðru leyti en því að þarna
var um að ræða lokaæfingu hjá
12 manna hópi lcgreglumanna
sem þjálfaður hcfur vcrið sér-
staklega til að bregðast við
atvikum af þessu tagi.
Að sögn Bjarka Elfassonar
yfirlögregluþjóns er með þessu
verið að búa lögregluna undir
atvik, s.s. gíslatöku, bankarán
■eða önnur ofbeldis- og hermd-_
arverk, sem aðrar þjóðir hafa
þurft að glíma, við í auknum
mæli.
Bjarki sagði að atvikið á
æfingunni hefði verið valið sem
hugsanlegur möguleiki en
tengdist ekki neinu sérstöku
tilefni að öðru leyti. Hann
sagði líka að æfingin hefði
tekist vel og gengið cftir áætl-
un. -GSH
þessu dæmi
framkv.stjóri
hagnaður af rekstrinum og betri
útkoma en í fyrra þegar þessum
liðum hefur verið sleppt,“ sagði
Björgvin Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri B.Ú.R. í samtali
við Tímann í gær, en 112 milljón
króna halli varð á rekstri Bæjar-
útgerðar Reykjavíkur á síðasta
ári. Halli af rekstri togara fyrir-
tækisins nam þar af 94.3 milljón-
um. Á hinn bóginn var hagnaður
af rekstri fiskiðjuvers, saltfisk-
og skreiðarverkunar og nam
hann 38.6 milljónum króna.
Afskriftir voru reiknaðar 41.1
milljón.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði er hann gerði grein fyrir
reikningum borgarsjóðs að tölur
um afkomu Bæjarútgerðarinnar
bæru með sér að brýnt væri að
leysa fjárhagsvanda fyrirtækisins
með því að lækka fjármagns-
kostnaö og væri nú unnið að
því. Að sögn Björgvins Guð-
mundssonar hefur stærstur hluti
fjármagnskostnaðarins myndast
hjá Fiskveiðasjóði og er nú
unnið að því að koma vanskUa-
skuldum fyrirtækisins þar í skil, -
en jafnframt binda menn vonir
við að ríkisvaldið geri einhverjar
þær aðgerðir sem létti á fjár-
magnskostnaði útgerðarinnar.
-JGK
. ' .'UTTTSli
I Tt'
| ^
ér ' . *
Sjómannadagur
inn á sunnudag
— fyrsta skóflustungan tekin í dag að
vernduðum þjónustuíbúdum aldraðra
■ „Gamall draumur á að ræt-
ast í tengslum við þcnnan sjó-
mannadag“, sagði Pétur Sig-
urðsson formaður Sjómanna-
dagsráðs er blaðamaður Tímans
ræddi við hann í gær um sjó-
mannadaginn sem er næstkom-
andi sunnudag.
„Á laugardagsmorgun verður
tekin fyrsta skóflustungan að
vernduðum þjónustuíbúðum
fyrir aldraða sem verða í teng-
ingu við Hrafnistu í Hafnarfirði
hvað þjónustu og öryggi varðar.
1. áfanginn er 30 íbúðir. Þær
eiga að vera í eigu fólksins sjálfs
eða félagasamtaka. Stefnan er
að fyrstu íbúarnir geti flutt inn á
sjómannadaginn að ári liðnu. Þá
rætist draumurinn."
Aðspurður sagði Pétur að
sjómannadagurinn væri með
klassísku sniði í ár. „E.t.v. dreg-
ur það eitthvað úr aðsókninni
hér í Reykjavík að sama dag er
landsleikur í knattspyrnu, en
vonandi verður það ekki rnikið.
Það hefur sýnt sig að born og
unglingar kunria vel að meta
■ sjómannadaginn. Nú svo'kemur
Sjómannadagsblaðið út að
venju.“
Það kom fram í samtalinu að
frá síðasta sjómannadegi hafa
aðeins látist 3 sjómenn en það er
langlægsta talan sem hefur verið.
Það hefur komið fyrir að minnst
hefur verið 40 sjómanna á sjó-
mannadaginn. „Þessa fækkun
dauðsfalla á sjó vil ég þakka
áróðri vegna björgunarstarfa,
stórkostlegri vinnu Slysavarnar-
félagsins og auknum öryggisút-
búnaði á skipum“, sagði Pétur.
-Jól