Tíminn - 04.06.1983, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.06.1983, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1983 3 Tréttir Eitt hundrað sjálfboðaliðar frá Flugleidum, Flugmálastjórn og Hótel Loftleiðum GRODURSETTU TRE OG FEGRIHNI UMHVERFW ■ í dásamlegu veðri, sól og blíðu var föngulegur hópur a.m.k. hundrað manns samankominn fyrir utan Hótel Loftleiðir > gser, ui.fjögur, og voru menn ýmist með rekur í hönd eða önnur garðáhöld. Tímamenn skruppu þangað suðureftir í blíðunni og hittu þá fyrst að máli flug- málastjóra, Pétur Einarsson, sem skip- aði fyrir á báða bóga og hljóp á milli vinnuhópanna, þrætti þó alfarið fyrir að hann væri verkstjóri þessara fram- kvæmda og sagðist bara þurfa að flnna hann Hafliða garðyrkjustjóra. Við spurðum Pétur hvað stæði eigin- lega til: „Flugmálastjórn, Flugleiðir og Hótel Loftleiðir, með aðstoð Reykjavík- urborgar hafa tekið sig saman um að fegra hér umhverfið og gróðursetja tré. Hér eru í kringum 100 manns í sjálfboða- vinnu nú að loknum vinnudegi, að byrja að hreinsa og fegra. Flugmálastjórn, Flugleiðir og Hótel Loftleiðir borga trén sem hérna verða gróðursett, en starfs- mennirnir hafa gefið vinnu sína. Við höfum rætt það við Reykjavíkurborg, að þegar við förum að rækta upp í kringum völlinn, að hún leggi til tækin og við borgum mannalaunin." - Hvað reiknið þið með að gróður- setja mörg tré? „Þau eru eitthvað á annað hundraðið. Við setjum þau niður hér fyrir framan hótelið, fyrir aftan það og meðfram veginum. Það er fyrsti áfangi hjá okkur. - Annan mann rekumst við á, sem er á þönum miklum. Maðurinn er Emil Guðmundsson, hótelstjóri. Hann gengst fúslega við verkstjóranafnbótinni, enda er hans hópur eins og höfuðlaus her, ef hann ekki skipar fyrir verkum. Hvaða trjátegundir eru það sem þið gróðursetj- ið hér Emil? „Þetta er birki, viðja og grenitré. Þetta eru nokkurra ára tré, svona tveir til þrír metrar. Það verður allt miklu huggulegra hér hjá okkur þegar við erum búin að þessu, en það sem er samt skemmtilegast í þessu er að hafa fengið starfsfólkið til að sameinast um að hreinsa hér í kring og planta trjám. Allt þetta fólk hefur sameinast ■ Tekið til hendinni: „Sýnir hvern hug fólkið ber til fyrirtækisins.“ (Tímamyndir Arni Sæberg) ■ Pétur Einarsson flugmálastjóri var ■ Emil Guðmundsson hótelstjóri: hinn sportlegasti við fegrunaraðgerðirn- „Hugmyndin varð til yfir kafflboIla.“ ar á Reykjavíkurflugvelli í gær. um að koma hér og eyða eftirmiðdegi í að fegra umhverfi sitt og á það þakkir skildar fyrir framtakið." - Emil, hvemig varð þessi hugmynd til? „Hugmyndina um fegrun vallar- svæðisins á Pétur Einarsson, flugmála- stjóri áreiðanlega, en þessi hugmynd um að planta hér trjám er þannig tilkomin að við Pétur hittumst í kaffiteríunni yfir kaffibolla einn morguninn og fómm að ræða þessi mál, og þá kom þessi hug- mynd um tré ogblóm upp á yfirborðið. “ Ung stúlka, Guðbjörg Sigurðardóttir flugfreyja hjá Flugleiðum er að setja niður eina trjáplöntu þegar okkur ber að garði, og Árni ljósmyndari verður svo hugfanginn að hann neitar að fara lengra. Blaðamaður spyr því Guðbjörgu hvað henni finnist um þetta sameiginlega framtak fyrirtækjanna á flugvellinum: „Ég er mjög ánægð með þetta framtak, og ég held að allir þeir sem á annað borð áttu frí hafi komið hingað til þess að taka til héndinni fyrir félagið. Auk þess er það mjög skemmtilegt að gera svona lagað saman, - það eykur samkenndina og svo er líka skemmtilegt að sjá umhverfi sitt taka svona jákvæðum breytingum." Jörundur Markússon starfsmaður í bókhaldi Flugleiða hvílir fram á skóflu sína er Tímamenn ber að garði. Við spyrjum hann hvað honum finnist um þessar fegrunaraðgerðir: „Mér þykja þær góðar. Petta gerir hópinn samstillt- ari og sýnir jafnframt hvern hug fólkið ber til fyrirtækisins.“ -AB ■ Guðbjörg Sigurðardóttir flugfreyja: „Mjög ánægð með þetta framtak.“ Ferðir milli Akureyrar og Hafnar adeins þrjár ■ Enn hefur fækkað þeim ferðum sem upphaflega var áætlað að fljúga milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Ákveðið er að aðeins verði ein ferð farin í mánuði í sumar og verða því ferðirnar ekki nema 3 alls. {frétt frá Flugleiðum segir að stað- festar farpantanir frá Akureyri nægi engan veginn til að halda úti því flugi sem áætlað hafði verið. Að auki kemur til að kalt er í veðri í Danmörku og Danir hafa greinilega meiri áhuga á suðlægum slóðum en norðlægum um þessar mundir. Þeim farþegum sem áttu pantað far með þeim ferðum sem nú hcfur verið ákveðið að fella niður geta fært sig á ferðir 16. júní, 7. júlí og 4. ágúst. Þeir sem vilja halda óbreyttum brottferðar- dögum er hins vegar boðið upp á flugfar til Reykjavíkur kvöldið fyrir brottför og gistingu þar um nóttina. Við heimkomu fá þeir ferð norður samdægurs. - IGK Ökumaður grunadur um ölvun vid akstur - Olli árekstri á Kópavogs- braut ■ Allharður árekstur varð á Kópa- vogsbraut í gær. Bílarnir skemmdust mikið en engin slys urðu á fólki. Áreksturinn varð þegar ökumaður annars bílsins reyndi framúrakstur. í sama bili kom bíli á móti og þeir skullu saman. Að sögn iögreglunnar í Kópa- vogi er sá ökumaður, sem framúrakst- urinn reyndi grunaður um að hafa verið ölvaður undir stýri. _ GSH 9. sinfónían aftur í dag: Ágóði rennur til tónlistar- hallar ■ Níunda sinfónía Beethovens verð- ur endurflutt í dag kl. 14.00 í Háskóla- bíói af Sinfóníuhljómsveit íslands, söngsveitinni Fílharmóníu, karlakórn- um Fóstbræðrum og Þjóðleikhúskórn- um, en verkið var flutt s.l. fimmtudags- kvöld fyrir fullu húsi. Að loknum tónleikuum verður hald- inn fundur í húsinu, þar sem rætt verður um byggingu tónlistarhallar í Reykjavík. Allur ágóði af tónleikunum rennur til þeirra samtaka um þetta verkefni sem væntanlega verða stofnuð. Jafnframt munu hljóðfæra- leikarar hljómsveitarinnar leika ókeypis til stuðnings þessari hugmynd. - JGK Hrólfur Halldórsson, fráfarandi formaður fulltrúaráðsins: „Engin gagnrýni kom fram á migM — ,,eda störf mín frá neinum fundarmanna" — Fimm nýir koma inn í miðstjórn Framsóknarflokksins ■ „Ég kann enga sérstaka skýringu á því hvers vegna ég féll í þessari kosningu, enda kom engin gagnrýni fram á mig eða störf mín frá neinum fundarmanna. Þetta var auðvitað lýðræðisleg kosning og ekkert annað að gera en að taka úrslitunum,“ sagði Hrólfur Halldórsson, fráfarandi formaður Fulltrúaráðs fram- sóknarfélaganna í Reykjavík, spurður hvort hann teldi kannski slök úrslit flokksins í borginni í síðustu kosningum hafa bitnað á honum. Fulltrúaráðið kaus sem kunnugt er Bjarna Einarsson sem formann á fundi sínum í fyrrakvöld. - Það var Þorsteinn Ólafsson í Sam- bandinu sem mælti með framboði Bjarna og Valdimar Kr. Jónsson með framboði mínu. Ég flutti mína skýrslu í upphafi fundar. Helgi Bergs tók svo til máls áður en gengið var til kosninga og sagði að rétt væri að'fá nýandlitog breyta til í forystu flokksins. Ég var auðvitað áður, en Bjarni var nýr. Kannski að fólk hafi farið eftir orðum Helga. Hins vegar var ekki skipt um neina aðra stjórnarmenn en mig. Varaformaður, stjórn og vara- stjórn voru endurkjörin án mótfram- boða, sagði Hrólfur. Bjarni Einarsson hefur verið erlendis og tókst Tímanum ekki að ná sambandi við hann í gær. í blaðinu í gær var sagt frá kosningu stjórnar sem var endurkjörin, nema hvað Halldór Árnason kom inn í stað Gunnars Einarssonar sem ekki gaf kost á sér aftur. Af átta mönnum í miðstjórn voru hins vegar 5 kosnir nýir: Árni Benediktsson, Elísabet Hauksdóttir, Kristín Eggerts- dóttir, Sigrún Sturludóttir og Viggó Jörgensson. Vekur athygli að konurnar eru nú 3 af átta en hefur aðeins verið ein til þessa. Endurkjörnir voru: Björn Líndal, Sævar Kristinsson og Valdimar Kr. Jónsson. Af þeim 5 sem fyrir voru höfðu Haraldur Ólafsson og Sigrún Magnúsdóttir verið kosin í miðstjórn til 4 ára á síðasta flokksþingi. Jónas Guð- mundsson var ekki í framboði, en Ár- mann Höskuldsson og Kristinn Finn- bogason féllu auk Leifs Karlssonar sem einnig var í framboði til miðstjórnar. Varamenn í miðstjórn voru kosnir: Áslaug Brynjólfsdóttir, Bjarni Guð- bjartsson, Einar Harðarson, Elín Björk Jóhannesdóttir, Geir Magnússon, Jón Aðalsteinn Jónasson, Sigfús Bjarnason og Þóra Þorleifsdóttir. Ur stjórn Húsbyggingasjóðs Fram- sóknarflokksins áttu að ganga að þessu sinni Guðný Laxdal og Kristinn Finn- bogason, sem báðum var stillt upp til endurkjörs auk Tómasar Óla Jónssonar, sem hlaut kosningu í stað Kristins, en Guðný var endurkjörin. -HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.