Tíminn - 04.06.1983, Page 5
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1983
fréttir
ÞAÐ ER MIKILL VANDI
AÐ RATA RETTA LEIÐ
Rabbað við Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra
77
■ „Mér er það ljóst að það verður erfitt
að tryggja Gskveiðíflotanum góða aflcomu
á næstu árum. Allar upplýsingar sem fyrir
liggja benda til þess að ástand fiskistofiia
sé ekki nxgjanlega gott. Ég leyfi mér þó
að vona að hér sé fremur um að ræða
svartsýnar spár en bjartsýnar. Það hefiir
alltaf veríð þannig í gegnum árin að afli
hefur brugðists um einhvem tíma og síðan
aukist aftur. Og þótt rannsóknir hafi
aukist mikið, er vitneskjan ekki og verður
senniiega aldrei, nægjanleg í þessum
efnurn."
Þetta sagði Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, þegar hann var spurður
hvemig hægt yrði að tryggja hinum dýra
og afkastamikla fískiskipaflota lands-
manna arðbær verkefni miðað við ástand
fiskistofna við' landið og þar með sjó-
mönnum viðunandi kjör.
Halldór hélt áfram: „Það er líka mikið
atriði fyrir flotann í framtíðinni að fiski-
mið verði ekki ofnýtt. Ef það verður gert
versnar afkoman þegar til lengri tíma er
litið. Þess vegna verður í þessu sambandi
að hugsa um alllanga framtíð. Það getur
verið nauðsynlegt og réttlætanlegt að taka
á sig nokkra aflaminnkun, sem þýðir þá
það, að þjóðfélagfið verður að vera
tilbúið til að rýra kjörin um stundarsakir
til að geta bætt þau aftur síðar. Það liggur
í því mikill vandi að rata þessa braut og
ég held að ef það tekst ráðist fram úr
þessu.“
- Ef ekki tekst að auka aflann er þá yfir
höfuð mögulegt að halda viðundandi
fiskverði til sjómanna?
Betri nýting
„í mínum huga er það enginn vafi að
helsta leiðin til að greiða hærra fiskverð
og þar með bæta kjör sjómanna er að nýta
aflann betur. Gera úr honum meira
verðjnæti á erlendum mörkuðum. Við fáum
annað slagið slæmar fréttir af smáfiska-
drápi, fiski sem fer í gúanó, skemmdri
vöru á erlendum mörkuðum og svo
framvegis. Það verður náttúrulega alltaf
svo að ýmislegt gerist neikvætt í þessari
rás frá veiðum til markaðar. Fiskurinn
kemur ekki jafnt og þétt inn á færiband.
Við búum við það að hann gefur sig á
misjöfnum árstímum og veiðin er þar af
leiðandi mjög mismunandi. Það skapar að
sjálfsögðu vandamál í framleiðsíunni. Og
mér er það fullkomlega Ijóst að í sjávarút-
vegi er ekki hægt að vinna eins kerfísbund-
ið og í iðnaði. Stundum finnst manni að
fólk haldi að þetta sé eitthvað svipað því
að framleiða bíla á færibandi - þar sem
tiltölulega auðvelt er að binda alla vinnsl-
una í einhvers konar kerfi. í sjávarútvegi
er við náttúruna og alla hennar duttlunga
að fást og vinnsluna þarf að aðlaga að
þeim skilyrðum sem ekki verður breytt.
Þó er enginn vafi á því að margt má gera.
En það verður ekki gert fýrst og fremst úr
stjómarráði íslands heldur af því fólki
sem vinnur við þetta; bæði til sjós og lands
og á erlendum mörkuðum. Ráðuneytið
getur svo greitt fyrir samstarfi milli þessara
aðila.“
Eftirlit ekki endilega
rétta aðferðin
- Hvað er hægt að gera til að koma í
veg fyrir rányrkju á fiskstofnum. - Ert þú
til dæmis hlynntur því að eftirlit með
smáfiskadrápi verði hert?
„Það er að sjálfsögðu hægt að auka
eftirlit en að mínum dómi er það ekki
endilega rétta aðferðin. Meðan ég var við
nám í Bergen i' Noregi, heyrði ég einu
sinni þá sögu, að ungir menn voru sendir
til eins af ráðstjómarrfkjunum til að
kynna sér smásöluverslun. Þeir komust að
þeirri niðurstöðu að þar var iýmun miklu
minni en t.d. í Noregi. Eftirlitið var líka
mörgum sinnum meira. Eftirlit kostar
heilmikla peninga og það er spuming
hvort það var ekki dýrara en rýmunin sem
tókst að koma í veg fyrir.
Eftirlit má ekki koma eftirlitsins vegna
- það sem þarf að koma er virðing bæði
þeirra sem við sjávarútveg starfa og
„Eftiriit er að mínum dómi ekki endilega rétta aðferðin...“
annarra í þjóðfélaginu. Menn verða að
gera sér grein fyrir, sem ég held að a.m.k.
flestir sjómenn geri, að með smáfiskadrápi
er verið að ganga á eigin auðlindir, sem
em undirstaða okkar lífs í þessu landi.“
Sjómenn gera sér grein
fyrir vandanum
- Nú vitum við að smáfiskadráp hefur
verið stundað í stómm stfl...
„Það er alltaf hægt að réttlæta einstaka
slys og í veg fyrir þau verður aldrei
komist. Ég hef umgengist marga sjómenn
og veit að þeir gera sér þennan vanda
ljósan betur en flestir aðrir. Þeir eru í
mestri snertingu við miðin og kynnast
þeim af eigin raun - og hverju það munar
að afla arrnars vegar vel og hins vega illa.
Þeirra tekjur ráðast af þvf og þess vegna
hef ég þá trú að þeir fari með gát í þessu
sambandi.“
- Snúum okkur að endumýjunfiotans.
Er tímabært að byggja fleiri skip og þá
hvers konar? - Eiga íslenskar skipasmíða-
stöðvar einar að sjá um endumýjunar- og
viðhaldsþörfina?
„Ég tel ekki tímabært að stækka flotann
eins og nú standa sakir og hef í reynd fáa
hitt sem em mér ósammála hvað það
varðar. Hitt er svo annað mál að það
verður að halda flotanum við. Það verður
að fara út í nýjungar því öll vitum við að
það sem gengur vel núna þarf ekki að
ganga vel eftir nokkur ár. Oft og tíðum
hafa orðið mjög miklar og skyndilega
byltingar í sjávarútvegi. Við munum eftir
sfldveiðunum, togaraflotanum og loðnu-
veiðunum, sem duttu niður jafitvel snögg-
ar en komu til. '
Raðsmíðaverkefni -
litlir togarar
Um framtíðina halda menn því gjaman
fram, að endumýjunarþörfin sé mest hjá
bátaflotanum. Nú er í gangi raðsmíða-
verkefni sem er undir þeim merkjum að
hann verði endurnýjaður. Tilfellið er
samt að þar er verið að byggja litla
togara, að vísu útbúna fyrir línu- og
netaveiðar. En því er haldið fram að þeir
muni aldrei stunda annað en togveiðar.
í mínum huga brennur sú spurning hvort
ekki er rétt að byggja ódýrari skip sem
eyða lítilli olíu og gera þau út á línu.
Norðmenn eru nú að auka mikið línu-
veiðar.
Ef að vel tekst til í sambandi við þróun
beitingavéla getur það skipt sköpum
varðandi línuveiðar. Og að sjálfsögðu
þurfum við að hafa vakandi augu fyrir
öllum nýjungum í því sambandi. Jafn-
framt þarf að leggja áherslu á að halda
þeim flota sem fyrir er gangandi og búa
vel að honum.
Varðandi íslenskar skipasmíðastöðvar
er að sjálfsögðu æskilegt að þær fái sem
mest af þeim verkefnum sem til falla.
Viðhaldsþörf flotans er nú vaxandi og
henni á að sinna eins og hægt er hérna
heima. Einnig er ljóst að endurnýjunat^
verður alltaf þörf og auðvitað á að smíða'
ný skip á íslandi eins og kostur er. Hitt
má ekki gleymast að ef byggð eru
óhagkvæm skip og of mörg er verið að
varpa vanda iðnaðarins yfir á sjávarút-
veginn og það kemur ekki vel út fyrir
heildina. Það er sárt til þess að vita að
ný íslensk skip, a.m.k. mörg hver, eiga
sér lítinn eða engan rekstrargrundvöll.'1
Samningar við E.B.E?
- Sókn í nýjar tegundir?
„Ef við byrjum á kolmunnanum þá
var það mjög merkileg tilraun sem þeir
á Eldborginni frá Hafnarfirði gerðu. Við
vitum að Færeyingar hafa stundað kol-
munnaveiðar með góðum árangri. En í
vor mistókst þetta hjá Eldborgar-
mönnum vegna þess að fiskurinn kom
aldrei yfir miðlínu Efnahagsbandalags-
ins og Færeyja, hélt sig allan tímann
Efnahagsbandalagsmegin. Og meðan
við höfum ekki gagnkvæma samninga
um veiðar á þessum stofni verður erfitt
að gera út á hann. Skipin verða að geta
elt stofninn sem aldrei er að vita hvert
fer. Þetta sýnir að það er mikilvægt fyrir
okkur að hafa gagnkvæm réttindi varð-
andi veiðar á kolmunna.
- Nú er okkur heimilt að veiða kol-
munna í færeyskri landhelgi - eru í
gangi viðræður við EBE um veiðiheimild-'
ir innan landhelgi bandalagsins?
„Það hafa verið í gangi viðræður um
þetta vandamál en engin lausn fengist.
Það er nú einu sinni þannig að íslending-
ar hafa löngum verið þeirrar skoðunar
að fiskurinn við landið væri svö mikill að
það þyrfti ekkert annað að sækja og
þegar loks væri búið að koma útlending-
um af miðum okkar þyrfti ekki að hafa
áhyggjur í landinu.
Allir vilja halda sínu
Varðandi fiskveiðar vilja allir halda
sínu alveg eins og við viljum halda
okkar. En samt mun ég leggja á það
áherslu að við höfum augun opin og
■ „Það er nú einu sinni svo að við íslendingar höfiim verið þeirrar skoðunar að
fiskurinn við landið væri svo mikill að við þyrftum ekki annað að sækja...“
gerum allt til að tinna okkar skipum
verkefni, sem skila útgerð þeirra arði.“
- Djúprækjuveiðar?
„Rækjuveiðar hafa aukist mjög á
undanförnum árum og það er skoðun
margra áð enn sé hægt að auka hana.
Rækjuleitin hefur tekið mörg ár og það
er mikilvægt að halda henni áfram. Það
er til dæmis vitað um rækju í Húnaflóa
utanverðum og fyrir Austurlandi sem á
hvorugum staðnum er veidd. Það er að
vísu ekki vitað hvað hún er í miklu
magni eða hvernig hægt er að nýta hana.
En það hefur aldrei verið mikilvægara
en einmitt nú að komast að því jafnframt
nýtingarmöguleikum á öðrum fiskstofn-
um sem ekki eru nýttir eins og skynsam-
legt er.
Markaður setur hömlur
- Geturðu nefnt fleiri tegundir?
„Það eru náttúrulega rhargar tegundir
sem hugsanlegt er að nýta. Við getum til
dæmis nefnt kúfiskinn. Hann er í miklu
magni hér í kring um landið. Hins vegar
er ekki enn búið að finna möguleika á
að selja hann. En ef markaður finnst er
um leið kominn góður grundvöllur fyrir
kúfiskvinnslu.
Það er víðar sem markaður setur
okkur hömlur. Við vitum það að hægt er
að veiða meira af síld en nú er gert - en
við sjáum þá fram á að sitja uppi með
hana óselda.“
- Stjórnun síldveiða hefur gefist vel
hér við land - en í Noregi vitum við að
veitt er af norsk-íslenska síldarstofninum
inni á fjörðum - meðan síldin er enn
smá. Hefur þú hugsað þér að reyna að
fá Norðmenn til að hætta þessum veiðum
eða minnka þær a.m.k.?
„Stjórnun síldveiða hefur gengið
sæmilega hér á landi undanfarin ár, en
þar hafa átt sér stað mistök eins .og
annars staðar. Það er öll stjórnun veiða
erfið. Mönnum er það ekki tamt, eðli-
lega, að búa við takmarkanir í sjósókn.
íslenskir sjómenn eru vanastir þeim,
hugsunarhætti að sækja á sjó án tak-.
markana. Nú standa þeir allt í einu
frammi fyrir nýjum viðhorfum, sem
skapa margs konar vandkvæði. Ég mun
reyna eins og ég get að hafa sem best
samstarf við hagsmunasamtök í samb-
andi við þessa stjórnun.
Norsk-íslenski stofninn
í sambandi við Norðmenn þá höfum
við íslendingar alltaf lagt áherslu á það
við Norðmenn að þeir minnkuðu sókn-
ina í norsk-íslenska síldarstofninn. Við
munum að sjálfsögðu gera það áfram,
því það er mjög sorglegt hvað mikið
hefur verið veitt úr stofninum við Nor-
egsstrendur. Hins vegar mun þessi stofn
í nokkrum vexti og vonandi verður það
til þess að hann fer út á hafið á nýjan
leik. Þótt ég geri mér ljósa grein fyrir því
að það kunni að verða erfiðleikum
bundið að koma síldinni í verð, ef hún
fer að fást í verulega auknum mæli
Ef við stöndum frammi fyrir því að
hægt verði að veiða meiri síld en hægt er
að nýta til manneldis er ekki útilokað að
hægt verði að nýta hann til bræðslu.
Aðaláherslan verður lögð á að nýta það
sem hægt er að nýta með skynsamlegu
móti.“
- Nú er sjómannadagurinn á morgun
- hver telur þú brýnustu hagsmunamál
sjómanna núna?
„Fyrir utan náttúrulega að þeirra kjör
verði tryggð í nánustu framtíð eru öryggis-
mál um borð í skipum stórt mál. Það sést
best á því að þeir hafa tileinkað sjómanna-
daginn öryggismálum, aðbúnaðar- og
velferðarmálum - eiginlega fremur en
kjaramálum. Enda er hvergi í atvinnulíf-
inu jafn mikið um slys og hjá sjómönnum.
Og það eiga margir um sárt að binda
vegna slysanna. Þess vegna tel ég að það
megi einskis láta ófreistað til að bæta
öryggi sjómanna,“ sagði Halldór Ás-
grímsson.
- Sjó.
Kveikt f
Norðurtanga
á ísafirði
■ Eldurkom upp í Hraðfrystihúsinu
Norðurtanga á ísafirði um tvöleytið
aðfaranótt sl. fimmtudags. Víst er
talið að um íkveikju hafi verið að ræða.
Vel gekk að slökkva eldinn með
froðuslökkvitæki og litlar skemmdir
urðu á húsinu að sögn slökkviliðsins á
ísafirði. Skemmdir urðu þó umtals-
verðar á frystikössum og einnig komst
eldur inn í iítinn vélasai. Þá varð
eitthvað tjón á raflögnum vegna hita.
- GSH
Listatrimm
á sunnudags-
kvöld:
Tónar, Ijóð-
og leiklist
■ Næsta listatrimm í Félagsstofnun
stúdenta verður á sunnudaginn kl.
20.30. Það verður boðið upp á ljúffeng-
an listakokteil, Blásarakvintett
> Reykjavíkur leikur verk eftir Mozart,
Malcolm Arnold og Jacques Ibert, svo
og aukalög eftir pöntun. Ljóðskáldin
Einar Ólafsson, Elísabet Þorgeirsdótt-
ir og Ingibjörg Haraldsdóttir lesa úr
verkum sínum og þeir Sjón og Einar
Melax, einu nafni Sjólax, fremja
„gjörningorðs og æðið tóna og hljóða.“
Blásarakvintettinn leikur aftur
þriðjudaginn 7. júní og þá verður
endurtekið Steinaspil og Músíkleik-
verkið en þessi verk voru flutt í
Félagsstofnun um síðustu helgi.
- JGK
Carl-Erik
Ström:
Ljósmynda-
sýning f
Norræna
húsinu
■ Cari-Erik Ström frá Finnlandi hef-
ur opnað Ijósmyndasýningu í Norræna
húsinu og sýnir þar 30 svarthvítar
myndir. Myndefnið sækir hann aðal-
lega út í náttúruna og er sagt að hann leit-
ist við að mynda hið óvenjulega og gera
það venjuiegt. Hann hefur verið kall-
aður „ljósmyndarinn sem er fljótari að
hugsa en myndavélin;1
Hann er fæddur 1938 og hcfur
fcngist við ýmsar listgreinar svo sem
höggmyndalist, tónlist og skrifað tvær
bækur.
Carl-Erik hefur áður sýnt á íslandi,
það var snemma árs 1977 og þá í hópi
finnskra listamanna sem kalla sig
„Sláttumennina." JGK
Happdrætti
SVFÍ:
Lokaátak
■ Lokaátak er nú að hefjast í sölu
happdrættismiða Slysavarnafclags
Islands, en þeir voru sendir út í maí.
„Dregið verður um glæsilega vinn-
inga, samtals að verðmæti 2,5 milljónir
króna, þ.e. 5 Mazda bifreiðir og 120
Electrolux örbylgjuofnar," segir í
frétt frá Slysavarnafélaginu
Agóða af happdrættinu verður varið
til margs konar verkefna sem félagið
vinnurað. M.a. verður hluti hans notað-
ur til kaupa á sérstökum þrýstiklefa
fyrir kafara, til að koma í veg fyrir
svokallaða kafaraveiki. Búnaðinn er
unnt að flytja hvert sem er, t.d. með
flugvélum.
í frétt SVFÍ segir, að mörg önnur
fjárfrek verkefni bíði úrlausnar hjá
félaginu. Má nefna kaup á fjarskipt-
abúnaði björgunarmanna, viðhald á
neyðarskýlum, sem eru um 80 talsins
og byggingu fleiri skýla. - Sjó