Tíminn - 04.06.1983, Qupperneq 24
Nýtt glæsilegt íslandsmet í spjótkasti, 89,98:
dropar
Albert á
bráðum
afmæli
■ Mörg hlý orö féllu í garö
Alberts Guðmundssonar í gær
þcgar hann lét af embætti for
seta borgarstjómar og fékk leyfi
frá störfum í borgarstjórn.
Meöal þeirra sem ávörpuöu
Albert var Kristján Benedikts-
son. Þegar hann hafði lýst
söknúöi sínum, þegar góöur
félagi kveddi borgarstjórn,
árnað honum heilla í nýju emb-
ætti og lýst þeirri von sinni að
hann yrði fjármálaráðherra
sem lengst sagði hann eitthvað
á þessa leið. „En það er nú ekki
eins og við séum að kveðja
Albert fyrir fullt og allt. Hann
verður sextugur í haust og ef ég
þekki hann rétt þá býður hann
okkur í afmælisveisluna.“
Þessi orð Kristjáns vöktu
mikla kátínu borgarfulltrúa, en
það stóð ekki á svari. Þegar
Albert kom í pontu til að
þakka hlý orð í sinn garð lauk
,hann ræðu sinni á þessa leið:
,,..og hér með býð ég ykkur
öllum í scxtugsafmælið mitt.“
Hjörleifur tók
allar skýrslurn-
ar
með sér
■ Skýrsluráðherrann var
Hjörleifur Guttormsson gjarn-
an nefndur í iðnaðarráðhcrra-
tíð sinni, enda mjög skýrsiu-
glaður. Nú skyldi maður ætla
að Hjörlcifur hefði nú skilið
citthvað af skýrslunum eftir á
Krummi
...spyr: Hvara ósköpunum var
vikingasveitin þegar samviska
þjóðarinnar var borin á torg og
seld..?
■ „Þar sem saksóknari, annar
aðili að málinu, hefur misnotað
fjölmiðla verð ég að verja mig á
þennan hátt“, sagði Úlfar Þor-
móðsson ritstjóri Spegilsins á
blaðamannafundi í gærdag á
kaffihúsinu Mensunni.
Úlfar gaf út í gær nýtt blað,
Samvisku þjóðarinnar. Er það
blað endurprentun 2. tbl, Speg-
ilsins sem nú fyrir skömmu var
gert upptækt. Einnig eru í blað-
inu 4 síður með nýju efni. Blaðið
kom út í 2000 eintökum.
„Ég vil fá dóm fólksins um það
hvort ég hafi verið ærumeiðandi
eða of klámfenginn. Þetta er
táknræn aðgerð til að gefa al-
menningi sjálfum möguleika til
að dæma. Þeir háu herrar sem
gerðu blaðið upptækt svo og
allar filmur og plötur gleymdu
að taka upplíminguna og þess
vegna gat ég gefiö blað þetta út. “
Síðan sagði Úlfar: „Það er annar
tilgangur með útgáfu þessa blaðs
og hann er sá að knýja saksókn-
ara til að kæra mig. Hann er nú
þegar búinn að dæma mig og
sekta með aðgerðum sínum án
þess að kæra mig fyrst. Þetta er
eins og í Tékkóslóvakíu. Sektin
■ „Samviska þjóðarinnar er gefin út til að láta ykkur dæma góðir
Reykvíkingar", sagði Úlfar Þormóðsson m.a. Tímamynd: ARI
Leit gerd að 64 ára manni
FANNST DRUKKNADUR
SlDDEGIS i GÆR
■ Maður' fannst látinn um
scxlcytið í gær við upptök Lag-
arfljóts. Björgunarsveitir voru
kallaðar út til að grennslast
eftir manninum sem verið
hafði týndur í tvo daga.
„ Það er ekki alveg Ijóst
ennþá hvaö hér hefur átt sér
stað“, sagði Sveinbjörn Svein-
björnsson fulltrúi sýslumanns-
ins á Seyðisfirði þegar Tíminn
hafði samband við hann í gær-
kvöldi. Okkur þykir líklegt að
maðurinn hafi fengið aðsvif og
drukknað á lejð sinni úl i
hólma í einni þcirra áa sem
rennur í Lagarfljót. Maðurinn
var á gæsaskytierii og fannst
dauð gæs úti í hóimanuin þang-
að sem hann hefur að öllum
líkindum verið að fara. Við -
fundum mannínn eftir tiltölu-
lega litla leit í kafi á grunnu
vatni þannig að ætla má að-öll
málsatvik liggi Ijós fyrir“, sagði
Sveinbjörn Sveinbjörnsson að
lokum.
Maður sá er hér um ræðir
mun vcra 64 ára gamall eiiLsetu
maður og bjó hann ofarlcga á
Fljótdalshéraði. - ÞB
kontórnum sínum, arftaka sín-
um Sverri Hermannssyni til
halds og trausts. Dropar hafa
fyrir satt að staðreyndir máls-
ins séu síður en svo þessar, því
Hjörleifur mun hafa tæmt
skrifstofu iðnaðarráðherra svo
gjörsamlega af öllu rituðu
máli, að það sem beið nýja
iönaöarráðherrans á skrifborð-
inu, er hann mætti til leiks var
eitt hlað af þcrripappír!
Segir heimildamaöur Dropa
að Hjörleifur hafi látið flytja
heilu bflfarmana til annarra
húsakynna.
Tímamynd: ARI
FIMMT1 BESH ÁRANGUR
í HEIMINUM
■ Einar Vilhjálmsson, frjáls-
íþróttamaður, setti nýtt glæsilegt
íslandsmet í spjótkasti í undan-
keppni meistaramóts banda-
rískra háskóla í frjálsíþróttum.
Kastaði Einar 89.98 metra, sem
er fimm metrum lengra en gamla
íslandsmetið. Jafnframt þessu er
þetta fimmti besti árangurí heim-
inum í spjótkasti á þessu ári.
Einar Vilhjálmsson.
er rúmar 300 þúsund krónur,
kostnaðurinn sem fylgdi útgáfu
Spegilsins sem upptækur var
gerður.
Úlfar sagðist hafa spurt sak-
sóknara hvað hann ætti að strika
út af plöturtum til að hann gæti
endurbætt blaðið. Kvaðst sak-
sóknari ekki hafa lesið blaðið og
þvf ekki geta sagt Úlfari hvað
hann ætti að strika út. „Og svo
er þessi maður að ráðast gegn
prentfrelsi í landinu.
í opnu Samvisku þjóðarinnar
er fyrirsögnin: Spegillinn játar
allt. Þar segir m.a. „Við játum á
okkur vankunnáttu í ærumeið-
ingum. Við ærumeiðingar ber að
leggja alúð. Þær á að stunda af
alvöru og festu eins og betri
blöðin gera. Annað getur leitt til
þess að fólk haldi að verið sé að
grínast en ekki meiða á mönnum
æruna.“
Að svo búnu vatt Úlfar sér út
á þak Mensunnar og talaði til
vegfarenda í Austurstræti í gegn-
um gjallarhorn. Hvatti hann alla
til að kaupa Samvisku þjóðarinn-
ar og lesa það vel en ekki aðeins
fletta því. „Að því loknu skuluð
þið setja ykkur í stellingar virðu-
legs dómarans, í þessu tilfelli
saksóknarans."
U.þ.b. 15 sölumenn voru við
sölu biaðsins og rann það út eins
og heitar lummur. En um klukk-
an 5 kom lögreglubíll aðvífandi
og tók til yfirheyrslu 2 sölumenn
Samvisku þjóðarinnar að sögn
lögreglunnar gerði hún 3 bíöð
upptæk og sleppti mönnunum
tveirn eftir yfirheyrsluna.
-Jól
■ Sölumaður blaðsins handtekinn af lögreglunni.
Opið virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikið úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bila til niðurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
.©3
T*
abriel ^
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir .SSSS
Hamarshöfða 1
SPEGIUINN GEFINN ÚT A NÝ
0G AFTUR GERDUR UPPTÆKUR!