Tíminn - 02.10.1983, Qupperneq 5

Tíminn - 02.10.1983, Qupperneq 5
SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1983 5 ■ Það þótli tíðindum sæta í Danmörku er islensk stúlka varð fyrst kvenna til að Ijúka sveinsprófi í málaraiðn. Þessar úrklippur eru úr Dagens Nyheder, Aft- enposten og Ekstrabladet. Dea iarste kflndelige Malemend. tn» u*«r h* «11« (ukt*I Ojiflaj M x » 411»t i r. im í»r -,t tmúmwtt > WcUífJfftt. 6M3rdfcjl*«f esrrí»p;r^(í.Tn»ítr«m« VíttnK iöiattttiwíwtlk. f Hg l:í» tsu t ífcw»ta*feö‘.fem Nra li U:»r.sríX .Rjt b;r.S( r-UR* U( rffr uWKÍtr* uw«i Ml í.íjowioi'j* Xu íw ■■HHCjtórí JH nt*!is«tt tt*» *».«rt fu e?«. M rott* ben* Asrrojtó <;bi*rao3. ttetjntrítei Vabtal iðriuíuul !u BK ,^É| k wn N {<4^ brw Dea farete kvind;lige Maiersvend £n MaleravstuJ. tV*t* Cvfc t« *mar 0*l*nUaaU mv »*l«(«l<&»ti tt*fW*A tn Wtiltfi CpamtfíawUti. trn* n att utn l«fW |*í«»b«. Um Vtfennw t*r í»1«IUfirt % «*t> iWíJnwbWiíiftM*. w*. efttt t»e> ítwte-tow nðtoUt. tsv *ms* f« itótt C«t*rftuö< I WWfV' tn mtt 0»tawbtti*t« « ete&fcwsbtti**- 1« Ut fittíttl : itM» i **»ll**it. *» > M fðf!* Vttloe «*» bat Ut » #•**• U»n U4 í»f<<rí*(#HBS*»tti»<»» 9*nUtt 9:*«•»«*.*(**,u?x t-mfiMt« C*f\#««r>4 »«U*«i«k Vifts »« < ■ wUmttit btt » V«!» Usf« 8w *«* we ö*taAf«Þ Í*B «fWttwtt*"> b»t «*a fW « «t taö« W»b* f a*t. smiío. «*>(«» « na* 2* •« kw u*; i *«W*V»«R f« Sbntwrs* «1 ubWaw í«» * ** k.-ttfif* fcw* fcSnm lit QíítttA Auita Atnadvittt. <H«r ter tot* Lamrt «c *mk»S* (^MoWiai < Mtel«r*Tor.fl. !>»öí* aa*p* Piífo tir «yii* xoM H»0*r *í; Ugt Sr«trff#jr»v* #«r á«t v«-»iíi< líufl «c «i L*MwrdWí«r frs Krjfejwvíi. i* 3«rt tsott »y*T3»*f>t 4Mm*W, ?Í;«W 4 Jístwwa, <r«tt«S »od«r K«i*ua*!*i Qiurrgaantt yrrli*r*> X*d*>'tm «$ U* rfiwT Kjná tf*v* 6ú)?«kI* <rvxt**f Wtta ‘Öygtíghwá i *jt >’»*, N»«*r fenr; «» U>H «d:*»rt, tíí báím ti; Ím#w tU lílttnd, d«r •tnU'&m kta WÍM tmbi «e dttköttttm «ft*t ttta Eomémm Ao«W. ?w wjjí íifi* N MnAste.l 'Xftí ifeíd! fiafe*) #rml»»tti», f«* f*r c&»3f 6ae»brpf*w JSttWrfttjfi U í 4ku» ú tomtræuttmtílfo** mu 9Wi**á*í&. ti U&.ÉmSbtolHn,'Ím fctt *m tttfiáW* í U*r 15 fetltts* u*m CttittntrtcdW. Ta tetenu^unra fetnttf *)- t<te! U %itm Vtr*«íi«bf fcrs* ^wnatit. StsfcM wfe e*r«w>'« T.*fe*«í Sr.'eflttttt i« fer « &*fee >*» r<*ale wtílfir, «»«im**Bbf Ctte. tn «4f itUnutuU atx tetórlífi*!* íeraixitó fet fertl'S Cpte*ili»aliffe. Ca» « *» *ra ?«rftr#fufc»,|os: fer*fcjt*nM fcttt W8r!t-ttrf Í8 jfó&rerttWWni, m'W Wfc «1*r*Kft<«M KtótBtr. fcttr trsí« tvUfe* f*r fifKt ■ „Þessi skóli er ekki fyrir konur“, var svarið sem Ásta fékk þegar hún sótti um inngöngu í eina málaraskólann í Kaup- mannahöfn - Tcknisk Selskabsskole. Hún tók nú saml sveinsprófið árið 1907 og sveinsbréfinu hér að ofan veilti hún viðtöku, úr hendi borgarstjórans, við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Kaupmanna- hafnar. ■ Þessi inynd var tekin í Hamborg árið 1911, en þá fóru Ásta og Karen Hansen á mót málarameistara sem þar var haldið. Ásta er yst til vinstri. ...........................:*»•*««■ »»»«»»»**.I J«* *»****»***»**«»»*»*»* ****■»*»•«»»*** •<■»»••«•••»«, »•«•»•••••• u. *% 1t u ya u n & t n !! > :: ? ? 4v jj ^is'ía ArnaíltáHir *• ~ «• jj JRaícrnuBÍrií, 13rí»rr ^'ítrnmBgnör 19 •• :: jj nubeffller nll lil Iþ'ngft heuitnrettðe, snn- gcimnjjs- snitt jHnhrlnrbejhr, Hi wnhernle ^lriser. »rl if»I«foa „Mgm 833 e" a: •»«»*•«»»**»»•*•*»***»»«**»«*»*••»«•«»»*••»**»»«•»**•»»»»*»«**♦«■»•**»»»•«»»;•**r •••»»•••«•••«»•••»••*•■•»*•••»•••••*••«•■•««»•••••••••«••••«»•••••*•»•»«»•••■*»*•* ■ Auelvsineamiði um samstarf Ástu oe Karenar. ■ Magnús Á. Árnason ILstnfelari dvaldi eitl ár hjá systur sinni í PaintRoberts og byggði sér þar vinnustofu. Myndin cr lekin þegar Haildór Laxness kom í heimsókn. F.v. Magnús, Brynhildur, Laxness, Sigríður Elísabet, Jóhann, seinni maöur Ástu, Ásta og Hejgi. heim og byrjuð að læra að mála átti hún ekki alltaf sjö dagana sæla. Hún varð oft fyrir aðkasti vegna starfsins sem hún hafði valið sér. Stundum sýndi fólk henni óþolandi dónaskap, en einnig kom fyrir að fólk hrósaði þessari ný- breytni. En ýmsir þurftu að venjast því að kona ynni karlmannsverk og reyndi að rétta úr kútnum. Ásta vann hjá Berthelsen gamla í um það bil þrjú ár. Henni féll vel við "innuna, samstarfið við Berthelsen var gott og þeim systkinunum tókst á þessum árum að sameinast hjá móður sinni. Um helgar fór fjölskyldan í kirkju eða á stúkufund í Góðtemplarareglunni en mesta ánægju hafði Ásta af því að fara í leikhúsið. Hana dreymdi um að eignast sitt eigið hús en fyrst þurfti hún að Ijúka náminu, aura einhverju saman til að hún kæmist til útlanda og gæti tekið próf í faginu. Með Vestra til Köben Ásta hélt til Kaupmannahafnar með gufuskipinu Vestra í byrjun septcmber árið 1906. Hún vann sér fyrir farinu með því að annast á leiðinni barn sem þurfti nauðsynlega að komast til Kaupmanna- hafnar til lækninga við illkynjuðum sjúk- dómi. Kona nokkur um borð gaf henni heimilisfang stofnunar sem tók á móti útlendum stúlkum. Þurfti hún því engu að kvíða, en gerði sér vonir um að sér mundi vegna vel. Samt leitaði hugurinn héim, til móður hennar sem ekki var nema rétt mátulega hrifin af þessu ferðalagi dóttur sinnar og kom ekki niður á bryggju til að kveðja hana. Hún ætlaði að fagna heimkomu dóttur sinnar því betur. Og Ásta ætlaði sér að snúa aftur heim. Annað kom ekki til mála, það var svo ótalmargt sem batt hana við landið. Það var þó hvorki trúlofun né hjónaband, ó nei: „Ég var nú það langt komin í málaraiðninni, að ég mundi vera fær um að sjá fyrir mér sjálf alla ævi.“ Ásta flutti þegar inn á stúlknaheimilið Betaníu í Kaupmannahöfn. Þar var önnur íslensk stúlka fyriren heimilið var hið kristilegasta. Stúlkurnar áttu að vera komnar fullklæddar í setustofuna klukk- an hálfátta á hverjum morgni og var þá lesin morgunbæn og sálmar sungnir. Að því loknu var snæddur morgunverður. Á kvöldin urðu stúlkurnar að vera komnar heim klukkan tíu, nema þær hefðu sérstakt leyfi. En klukkan tíu voru ljósin slökkt og þá átti allt að vera orðið hljótt. Forstöðukona Betaníu, frk. Nielsen, hjálpaði Ástu við að sækja um inngöngu í eina málaraskólann sem starfræktur var í Kaupmannahöfn - Teknisk Sel- skabsskole. Svar skólastjórans var stutt og laggott: „Þessi skóli er ekki fyrir konur.“ Það hnussaði í frökeninni við svarið og hún kom Ástu fyrir hjá konunglegum hirðmálurum sem tóku að sér að búa hana undir sveinsprófið sem átti að fara fram um vorið. Hún vann hjá þeim um veturinn en þegar leið að vori var hún send á vinnustofu prófessors Overgaards sem hafði fallist á að undirbúa hana enn frekar undir sveinsprófið. Overgaard var bæði listmálari og myndhöggvari og kennari við akademíuna. Hann hafði kennt bæði Einari Jónssyni og Ásgrími Jónssyni. Hjá Overgaard málaði Ásta gipsmyndir og sitthvað fleira, en síðar var fenginn húsamálari til að veita henni tilsögn í marmaragerð, trjáeftirlíkingu og öðru sem hún þurfti að kunna fyrir prófið. Ástu þótti sérstaklega gaman í tímun- um hjá prófessor Overgaard og þegar þau kvöddust trúði hún honum fyrir því leyndarmáli sínu að hana hafði alltaf langað til að verða listmálari, en talið hagkvæmara að verða húsamálari. Overgaard gaf henni þá skriflcg með- mæli til íslenskra yfirvaida með hvatn- ingu um að styðja hana á listabrautinni: • „Meðmælin varðveitti ég sem sjáaldur auga míns, en áræddi aldrei að notfæra mér þau.“ „Den förste kvindelige malersvend“ Hinn 5. apríl árið 1907 voru sveinsbréf afhent með pompi og pragt í ráðhúsi Kaupmannahafnar. Borgarstjórinn ávarpaði hina 73 prófsveina og gat sérstaklega þess óvenjulega atburðar að íslensk stúlka væri í hópi þeirra. Hann sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem stúlka lyki sveinsprófi í málaraiðn í Danmörku. Ásta hlaut verðlaunapening úr bronsi ásamt heiðursskjali fyrir góða frammi- stöðu og Kaupmannahafnarblöðin birtu myndir og frásagnir af sveinsprófi hennar. í tveimur blöðum voru fyrir- sagnirnar eins: „DEN FÖRSTE KVINDELIGE MALERSVEND.“ Ásta hafði sannarlega ástæðu til að vera ánægð með árangurinn. Frk. Niel- sen gerði það ekki endasleppt við Ástu, hún hélt henni veislu í íbúð sinni, ræður voru fluttar, Ásta fékk blóm og henni var flutt Ijóð. En frk. Nielsen fannst ekki viðeigandi að Ásta færi í samkvæmi nýsveinanna og henni fannst hún gæti ekki annað en hlýtt frökeninni eftir alla góðvildina og greiðasemina. „En mikið þótti mér súrt í broti að missa af þessu samkvæmi! Ég sá eftir því alla ævi.“ Að þessu loknu fór Ásta aftur heim til íslands. Hún vann fyrir farinu með því að mála ýmislegt um borð í Kong Helge á leiðinni heim. Mamma hennar stóð á bryggjunni og fagnaði heimkomu dóttur sinnar. Berthelsen gamli fagnaði einnig heimkomu Ástu, nú stóð mikið til, nóg aö gera í málaraiðninni því að „kongen kommer, Ásta.“ Sumarið ieið fljótt, kóngurinn kom og Ásta komst á þjóðhátíðina, og hafði nóg að starfa til hausts. „Þetta sumar er bjart í minningunni, enda var hamingjan mér hliðholl. Ég fékk meira að segja ofurlítinn styrk tii framhaldsnáms." Og um haustið hélt Ásta til Kaup- mannahafnar á ný. Að þessu sinni komst hún inn í Teknisk Selskabsskole og stundaði hún þar nám á meðan pen- ingarnir entust. Hún sótti hins vegar ekki um vinnu í Kaupmannahöfn því þar ætlaði hún ekki að ílendast. „Ég hugði á enn meiri frama. Ég hafði frétt, að í Hamborg væri málaraiðnin í miklum hávegum höfð, og ákvað að reyna að komast þangað um vorið.“ Fröken Nielsen útvegaði Ástu dvöl á heimili sem kaþólskar líknarsystur ráku í Hamborg og hét Martha Haus. Hún fékk þegar vinnu hjá málarameisturum tveimur, dönskum og þýskum, sem höfðu þrjátíu málara í vinnu. Það gerðist margt óvenjulegt í Ham- borg. Þar kynntist Ásta Guðnýju Jörg- ensdóttur sem hafði verið búsett í Hamborg í tuttugu ár. Guðný þessi, sem var saumakona, hafði upphaflega ætlað til Kaupmannahafnar, til pilts sem hún taldi sig eiga, en hann hafði farið á skóla í Kaupmannahöfn. Hún fann aldrei piltinn sinn og aldrei neinn pilt annan. En „hæst hossaði hamingjan henni eitt sinn er hún gisti á sveitabæ í námunda við Höfn. Þar dvöldu þá tvö börn þessa manns í sumarleyfi!" Frúin í Hamborg Ásta kynntist fleiri íslendingum í Hamborg og einn þeirra kynnti hana fyrir Fritz Liszmann listamanni sem hafði lesið um hana í blöðunum og vildi endilega kynnast henni. Þeim varð vel til vina og Liszmann bað hennar en Ásta gat ekki tekið ástum hans, bað hann að vera áfram vinur sinn sem hann og gerði. Ásta dvaldi lengst af í Hamborg á meðan hún var í Þýskalandi, en fór eitt sinn t!l Berlínar, því að Ársæll bróðir hennar var kominn þangað, og hún hafði séð auglýst eftir hvítlökkurum í blaði. Hún sýndi sveinsbréfið sitt og meðmæli frá Hamborg, en atvinnurekendurnir hristu bara höfuðin. „Mér tókst víst aldrei að koma þeim í skilning um að ég var að sækja um vinnu fyrir sjálfa mig - en ekki manninn minn!“ Þá fór Ásta til Dresden, sótti um vinnu og fékk hana. Þar var hún heilt sumar á ókunnum stað og kynntist engum, nema þöglu myndunum í Dres- dener Galleri. Þegar Ásta var í lestinni á leiðinni frá Kaupmannahöfn til Hamborgar dreymdi hana að hún væri lítil telpa heima hjá sér og léki „frúin í Hamborg“ með systkin- um sínum og fleiri krökkum. En skyndi- lega birtist frúin sjálf og var ásýndum líkt og herfilegasta norn. Ogbörnin tóku til fótanna í dauðans ofboði. Og Ásta fór ekki alislaus aftur frá Hamborg, en þar fór hún enn á móti straumnum - eignaðist nefnilega son hinn 10. ágúst 1908. Barnið fæddist fyrir tímann og Ásta átti ekki eina einustu spjör til að færa það í. Systurnar í Martha Haus gáfu því föt og önnuðust það af mikiili umhyggju fyrsta kastið. Þær spurðu Ástu um föðurinn, hún sagði hann væri við nám í Kaupmannahafnar- háskóla og einskis væri af honum að vænta. Þá vildu þær að hún gæfi barnið en hún þvertók fyrir það. Hún vildi eiga barnið sitt ein. Skömmu síðar flutti Ásta af heimilinu, í óvistlegt herbergi hjá aldraðri konu, en barninu kom hún fyrir á barnaheimili fyrir utan borgina. Hún hóf aftur vinnu hjá meisturum sínum en vinnufélagarnir höfðu komist á snoðir um það sem gerst hafði í lífi hennar og hún þekkti þá ekki fyrir sömu menn og áður. Einn daginn keyrði svo úr hófi fram að hún gekk úr vistinni. Henni var þá útvcguð vinna á fínni vinnustofu en undi sér illa, enda hafði hún heyrt að barninu liði ekki rétt * vel. „Læknir hafði verið sóttur til hans. Hann sagði, að barnið yrði að fá móðurmjólk. Og þarna sat ég kófsveitt í sumarhitanum og heit mjólkin streymdi niður eftir mér allri. Það var ekkert spaug að vera móðir - í fjötrum." „Þá hló mér hugur í brjósti“ Þetta voru erfiðir tímar fyrir Ástu og oft var þröngt í búi. Átakanlegast þótti henni þegar tvísýnt var hvort hún ætti fyrir barnaheimiiisgjaldinu. Einhverju sinni átti hún rétt fyrir mánaðargreiðsl- unni en ekki fyrir strætisvagnafargjald- inu. Þá lagði hún af stað fótgangandi en nam staðar á brú nokkurri, aðframkom- in af þreytu og sulti. Hún horfði á vatnið streyma í sífellu undir brúna og andartak flaug að henni að gefast upp, gefa sig á vald vatninu, og láta það bera sig til hafs. En sólin skein og minnti hana á litla barnið sem beið hennar. Öryggisleysið og óvissan ógnaði Ástu og hún ákvað því að skrifa Steinunni systur sinni og trúa henni fyrir leyndar- málinu. Hún fékk svar um hæl: barnið var velkomíð til íslands. Ásta ákvað nú að halda framhalds- náminu áfram í Hamborg-hún strengdi þess heit að fara ekki heim til íslands, fyrr en hún hefði lokið meistaraprófinu. Hún stundaði fyrst nám í kvöldskóla en síðan tók sérhæfingarskóli við. Námið var henni erfitt, þar sem það fór fram á framandi tungu og ekki batnaði fjárhag- urinn. En alltaf lagðist henni eitthvað til, hún lifði aðallega á síld og þurru brauði,

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.