Tíminn - 02.10.1983, Page 17
SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1983
17
pílagríma, og hefur verið þar allar
þessar aldir síðan og er enn sjúkrahús..
Við fórum í gegn um St. Páls hlið, en þar
er verið að grafa upp fornminjar frá
keisaratímabilinu. Þar rétt hjá er píram-
ídi um 2000 ára gamall en eins og
nýhlaðinn. Við fórum í St. Pálskirkju.
Hún er reist á gröf Páls postula, sem var
hálshöggvinn vegna trúar sinnar. Hún er
næststærsta kirkjan í Róm. Þarna eru
mikil listaverk og miklar skreytingar.
Þarna eru myndir af þeim 266 páfum,
sem verið hafa.
í katakombúnum
Næsta fórum við í katakomburnar.
Kristnir menn voru greftraðir þar á 1.
öld e.K. og þær voru í notkun þar til á
5. öid. Katakomburnar eru alls um 70
kílómetrar á lengd, og eru sums staðar 4
hæðir eða gólf. Grafirnar eru eins og
hólf í veggina sem líkin voru sett í og
múrað fyrir. Nú hefur múrinn molnað úr
og líkin löngu orðin áð dufti. Við
gengum um dimma rangala þarna niðri
og var vægast sagt hálf óhugnanlegt
þarna, sérstaklega þegar við stoppuðum
í einu herberginu og okkur var sagt að-
katakomburnar hefðu týnst í jarðskjál-
fta, en fundist aftur. Gat ekki komið
jarðskjálfti aftur? Það var í mér hál-
fgerður beygur, einhver í hópnum varað
tala um, hvort ekki væri best að snúa við.
Þangað niður flúðu kristnir menn,
þegar ofsóknirnar voru sem mestar, en
þessi staður var friðhelgur, og þar voru
þeir óhultir. Það var sannarlega magn-
þrúngið andrúmsloft þarna niðri. Þegar
við komum upp, keyrðum við eftir Via
Appia, gamla veginn sem lá í suður.
Margt hefur skeð við þennan veg t.d.
allar þær krossfestingar, sem þar fóru
fram.
Pétur postuli flúði út á Via Appia,
þegar hann var ofsóttur og þar vitraðist
Kristur honum. Þar snéri hann við til að
deyja píslarvættis dauða. Hann var
krossfestur, en höfuðið snéri öfugt, að
ósk hans.
Við sáum gamalt baðhús sem nú er
notað sem útileikhús á sumrin, núna var
sýnt Svanavatnið, Toska og fl. sýningar.
Við sáum rústir gömlu keisarahallarinn-
ar. Ágústus bjó þar fyrstu og síðan aðrir
keisarar.
Næst komum við að Kolosseum. Er
mikilfenglegt að koma inn í þetta stóra
hringleikahús, sem byggt var á 1. öld e.
K. Enn í dag eru íþróttaleikvangar
byggðir upp á sama máta, því ekki hefur
fundist annað betra fyrirkomulag. Þarna
voru leikir og sýningar, t.d. var kristnu
fólki kastað fyrir villidýr, sem voru svelt
áður og gladiatorar voru láínir berjast
við hvern annan og við hungruð villidýr.
Þegar Kolosseum var vígt voru hátíðar-
höld í 100 daga, nokkur þúsund dýr og
fjöldi gladiatora voru drepin,- svona var
grimmdin mikil, en fólkið heimtaði
brauð og leiki.
Forum Romanum
Við komum að ForumRomanum,torg-
inu sem er uppgrafið og eru sumar
byggingar síðan f.K. Á þessu torgi er
hægt -að segja að sé upphafið af okkar
eigin menningu, því þarna voru lögin
kveðin upp og alls konar mikilvægar
ákvarðanir teknar. Það er ótrúlegt að
sjá hvað hægt var að byggja mikil
mannvirki á þessum dögum, hve mikla
þekkingu, tækni og áræði menn höfðu.
Á þessu torgi eru rústir af hofi Cesars,
hofi Vestumeyjanna, höll Caligula, hofi
Satúrnusar, hofi Vespasianusar og þing-
hússins svo eitthvað sé nefnt, en mörg
önnur mannvirki voru þarna, sem of
langt er upp að telja.
Við fórum um kvöldið til að sjá Róm
að kvöldi. Fyrst komum við að Piassa
Navona, sem einu sinni var leikvangur,
sem Ágústus lét byggja. Nú er þarna
fagurt torg, með stórum gosbrunni, sem
á að vera dýrðaróður til vatnsins, sem
upphaf lífsins. Gosbrunnurinn er eftir
Bernini.
Við keyrðum áfram og sáum risavaxið
minnismerki um sameiningu Ítalíu, fors-
etahöllina, Fountain de Trevi, þennan
stærsta gosbrunn og áhrifamesta. Við
sáum spönsku tröppurnar, sem eru fræg-
ar fyrir stærð sína og glæsibrag. Þá var
ógleymanlegur dagur að kvöldi kominn.
Péturskirkjan
Næsta morgun fórum við í Péturs
kirkju, stærstu kirkju í Róm. Fyrst
fórum við í Safn Vatikansins og síðan í
Sixtinsku kapelluna, þar sem páfakjör
fer fram. Að koma í Péturskirkju er
ólýsanlegt með fáum orðum. Við
gengum þarna um og horfðum á þessi
miklu listaverk, og dáðumst að hverju
mannshöndin og mannsandinn hafa
áorkað. í Sixtinsku kapellunni eru verk
eftir Michelangelo, sem hann málaði,
þó hann teldi sig myndhöggvara. Það
tók hann 4 ár að mála loftmyndirnar. Á
veggnum bak við altarið, er málverk af
dómsdegi, stórkostlegt verk. Þarna inni
voru nokkur hundruð manns að skoða,
og án þess að vita af var fólkið með
hálfopinn munninn, af undrun og hrifn-
ingu. Péturskirkjan sjálf er byggð á gröf
Péturs postula. Hún er skreytt miklum
listaverkum og höggmyndum. Ein högg-
myndin er sérstaklega minnisstæð, af
Jésú látnum og Maríu móður hans,
myndin er eftir Michelangelo og heitir
Pieta. Hann var aðeins 25 ára þegar
hann gerði hana. Þarna er og stytta af
Pétri postula. Allir sem koma í kirkjuna
klappa eða kyssa á fót styttunnar og er
fóturinn farinn að eyðast og orðinn
þunnur eftir allt klappið. Þarna er högg-
mynd eftir Bertel Thorvaldsen. Hann er
eini lúterski maðurinn sem á listaverk í
sjálfri Peturskirkjunni. Naut hann það
mikillar virðingar, þegar hann dvaldi í
Róm. Við fórum nokkur í lyftu upp á
þakið á kirkjunni, en aðeins 4 úr hópnum
fóru upp í sjálfan turninn. Þarna er
mikilfenglegt útsýni yfir torgið og nág-
renni kirkjunnar. Það hefði verið gaman
að vera nokkra daga í Róm til að
kynnast öllu betur, en það verður að
bíða betri tíma.
Síðan var haldið til baka og farið á
leiðinni yfir háan fjallveg yfir Appenia- •
fjöllin. Þar minnti vegurinn stundum á
Vestfirði, vegna hæðarinnar, en ekki
gróðurins. Þegar komið var yfir fjöllin
tóku við lágvaxnar hæðir, með trjám og
ökrum og landið mjög gróðursælt og
friðsælt.
Við komum þá til Gubbio sem er
sérkennilegur gamall bær. Skammt frá
honum komum við aftur innn á gamla
Via Flaminina veginn og vorum þá búin
að fara mikinn og merkilegan hring.
San Marino
Næsta dag hvíldum við okkur vel og
lágum í sólbaði. Daginn þar á eftir
fórum við til San Marino. Hlín var
fararstjóri. San Marino, er minnsta sjálf-
stæða ríki í heimi, stofnað af steinhög-
gvaranum San Marino, um árið 300.
e.K. og við það ár miða þeir tímatal sitt.
í stimplinum í passanum stendur 1682.
San Marino flúði þangað vegna ofsókna
á kristna menn og stofnaði þetta ríki.
Yfir landamærunum stendur „Velkomin
til hinnar fornu j arðar frelsisins". Bærinn
stendur á Títanófjalli og er dæmigerður
fyrir hvernig menn vörðust áður fyrr.
Þarna er hægt að hafa útsýni yfir allt
nágrennið, og hægt að verjast ef árás var
gerð. Lögin hafa lítið breyst siðan á 14.
öld, og voru þá mjög lýðræðisleg. Ein-
kunnarorð lýðveldisins er réttlæti og
friður. Ríkið hefur svo að segja ekkert
stækkað síðan á 15. öld. við saum
þinghúsið og Maríukirkjuna, gengum
um þröngar götur og skoðuðum í búðir.
Þarna er margt á góðu verði, því það er
mjög lítill söluskattur. Það er gaman að
koma í þetta sjálfstæða litla ríki.
Þá daga sem eftir voru, skiptumst við
á að vera í sólbaði eða fara til gömlu
Rimini borgarinnar. Þar eru fornar
minjar, t.d. sigurbogi Ágústusar keisara
frá árinu 27 f. K. og Tíberíusarbrúin,
byggð árið 14. e.K. Hún er notuð enn og
er mikil bílaumferð yfir hana. Þarna eru
borgarmúrar frá þessum tíma, sem enn
sjást rústir af, torg, hof og kirkjur sem
fróðlegt er að sjá. Það eru sannarlega
tveir heimar að fara í Riminiborgina og
Ríministröndina, þar sem allt er stílað
upp á sólböð og útiveru, en hvort hefur
sína töfra. Aðalgatan á ströndinni skipt-
ist niður í hótel, veitingahús, verzlanir
og ýmislegt að skemmta sér við.
Það er „luxus“ að liggja í sólbaði og
reyna að gleyma öllum áhyggjum og
amstri dagsins. Hlusta og horfa á hið
fjölbreytta mannlíf í kring. Allt er
iðandi af lífi, fólk gangandi, í boltaleik,
börn að byggja úr sandi, fólk á fótstign-
um bátum og seglbrettum. Lengra út á
sjónum eru vélbátar og stór skip, alltaf
eitthvað að ske. Sá sem einu sinni fer á
sólarströnd og kann að meta það, þráir
alltaf að komast aftur, til að geta hvílst
og slappað af. Starfsfólk Samvinnuferða-
Landsýn sinnti sínum störfum mjög vel.
Við þökkum aftur kærlega fyrir ó -
gleymanlega ferð.
Gleymdu þér í nokkm daga
í Glasgow. Frabær helgarfetö
fyrir aðeins 8.202.- krónur
Borg í næsta nágrenni
Þú átt kost á ódýrri og ánægjulegri skemmtiferð
til Glasgow. Ef til vill þeirri bestu, sem þú hefur
farið hingað til.
Eftir tæplega 2ja klukkustunda flug lendir Flug-
leiðaþotan á flugvellinum rétt fyrir utan Glasgow
og þú ert kominn inn í eina af skemmtilegustu
borgum Evrópu áður en þú veist af.
Sjötíu skemmtigarðar
í borginni við ána
Það hefur átt sér stað gjörbylting í Glasgow.
Borgin er hrein, lífleg og nýtískuleg. Um leið
heldur hún hinu gamla og rótgróna yfirbragði
með byggingarstíl Viktoríutímabilsins, stórkost-
legum safnbyggingum, listasöfnum, bókasöfnum,
fallegri dómkirkju í gotneskum stíl, köstulum og
sveitasetrum í næsta nágrenni. Hvorki meira né
minna en 70 lystigarðar setja lit á umhverfið, og
ekki má gleyma göngubrautinni meðfram ánni
Clyde, sem teygir sig 5 km frá miðborginni út í
sveitina. Ef þú vilt tilbreytingu, þá er önnur
stórkostleg borg í aðeins klukkustundar fjarlægð,
ef ekið er eftir næstu hraðbraut, - Edinborg. Þar
geturðu skoðað heimsfrægan kastala um leið og
þú lítur við í verslunum Princes Street, verslun-
argötu sem á sér fáa líka.
Verslanaparadís
Eins og þú getur ímyndað þér, vilja Skotarnir gera
góð kaup - og þú auðvitað líka. Þess vegna eru
verslanir Glasgowborgcu- sérstaklega vel úr garði
gerðar. í Glasgow eru fjölmargar verslunargötur,
margar hverjar þeirra eru göngugötur með fal-
legum blómaskreytingum og nægum tækifærum
til að tylla sér niður og njóta umhverfisins.
Fáar borgir bjóða fjöíbreyttara
skemmtanalíf
Skoska óperan, ríkishljómsveitin og ballettinn eru
auðvitað í Glasgow. Skoski fótboltinn á líka sína
aðdáendur. Skotar eiga Evrópumeistaraliðið 1983
og landsvöllur Skotlands er í Glasgow við Hamp-
den Park. Fimm hörku fótboltalið með Celtic og
Rangers í broddi fylkingar hafa aðstöðu í borginni.
í Glasgow eru nýtísku kvikmyndahús, leikhús og
söngleikjahús. Þar eru fjölleikahús og látbragðs-
leikir, kabarettar, næturklúbbar, dansstaðir og
diskótek. í Glasgow er úrval prýðilegra veitinga-
staða með skoskum nautakjötsréttum, ítölskum,
frönskum, indverskum og austurlenskum matseðl-
um.
Flugleiðir
Það tekur tæplega tvær klukkustundir að fljúga
frá Reykjavík til Glasgow með Flugleiðum, sem
fljúga alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
(þriðjudaga og laugardaga frá og með 1. nóvem-
ber) til Glasgow.
FLUGLEIÐIR Stt
Gott fólk hjá traustu félagi M.
Ókeypis bæklingur á íslensku
Hafðu samband við söluskrifstofu Flugleiða, um-
boðsmann eða ferðaskrifstofu og fáðu ókeypis
eintak af bæklingi breska ferðamálaráðsins um
Glasgow og nágrenni borgarinnar. Hann er stút-
fullur af nytsamlegum upplýsingum og litríkum
ljósmyndum.