Tíminn - 02.10.1983, Qupperneq 26

Tíminn - 02.10.1983, Qupperneq 26
frómro SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1983 ■ Fjöldamorð í Adana 1915: Tyrkir standa yfir líkum Armena sem myrtir hafa verið. ■ Grímuklæddir armenskir hryðjuverkamenn í Líbanon. Róttækir Palestínumenn halda hlifiskildi yfir þeim. _____Hermdarverkasveitir Armena:_ Þær reka harma 1 ' —-T-—---—------- Armema vegna þj óðarmorðstilraiinar Tyrkja árið 1915 ■ Gamla konan liggur í rúmfletinu, lúin og lasburða. Röddin er lág og með tilbreytingarlausum sönglandahljómi. Eigi að síður verður vart vaxandi ákafa, því lengur sem hún segir frá. „Ég bjó í Adana, þar til ég var orðin tíu ára. Einn daginn, vorið 1915, fengu allir Armenar bréf, þar sem þeim var skipað að verða á burtu úr öllum tyrkneskum borgum innan 24 stunda. Pabbi pakkaði saman öllum þeim eigum okkar sem verðmæti var i. Daginn eftir rak lögreglan okkur á járnbrautarstöðina. ■ Þar var okkur troðið í gripaflutningavagna ásamt hestum og nautgripum. Við stóðum í þéttri þvögu og þama var grátur og gnístran tanna.“ Ossana Markarian, sem nú er 78 ára, hefur risið upp í rúminu. Hún þrýstir að sér svæflinum, eins og hún vilji alls ekki tapa takinu á honum. „Eftir lestarferð- ina til Osmaniye," segir hún, „kölluðu hermennimir til okkar: „Takið ekkert með ykkur annað en það sem þið getið borið. Þið verðið að ganga langa vega- lengd héðan." Það varð ekki þverfótað fyrir Armenum, því við vorum margar þúsundir. Þá ráku þeir okkur áfram með hestum vikum saman og við höfðum ekkert fyrir augunum nema óbyggðirnar og himinninn." Yfir rúminu hennar hangir mynd sem sýnir kirkju fyrir framan snæviþakið Ararat-fjallið, hið heilaga fjall Armena. Ofan úr horninu við dyrnar lítur Maríu- mynd niður yfir herbergið umlukin grænum, rauðum og bláum lömpum. Uti má heyra múhameðska presta kalla til guðsþjónustu. Beirut, höfuðborgLíban- on, hefur nú í tugi ára verið heimkynni Armenanna og samt finnst Ossana Markarian að hún eigi hér ekki heima. Hún á hvergi heima. Þeir heimahagar sem hún unni voru lagðir í rúst. Átu engisprettur „Tyrkirnir gáfu okkur ekkert að borða. Sá sem örmagnaðist var blátt áfram látinn liggja. Við lögðum okkur dauða asna til munns, til þess að hafa eitthvað til að sefa sultinn. Við veiddum engisprettur, sem komu í stórum flokk- um og átum í örvæntingu okkar hrossa- skít, drukkum hland úr kameldýrunum og kúnum. Ég sá eina móður stökkva fyrir björg með börnin sín, því hún vildi ekki horfa upp á að þau syltu til dauða. Ég heyrði litla stúlku, sem var með taugaveiki, segja við móður sína: „Þegar ég dey, passaðu þá að það éti mig enginn. Bara þú mátt borða af mér.“ Við drógumst æ lengra yfir óbyggðina til austurs. Þegar við komum í búðirnar „Der-es-Zor,“ varekki nema helmingur- inn af fólkinu á lífi. Við urðum að grafa stórar grafir og margir voru látnir stilla sér upp á bakkanum. Þá sóttu Tyrkirnir Araba, sem komu með stórar kylfur og slógu Armenana í höfuðið aftan frá. Fólkið datt dautt niður í skurðina. ■ Ossana Markarian, sem nú er 78 ára, man eftir fjöldamorðunum 1915: „Við drukkum hlandið úr kameldýrunum og kunum." Flestar konurnar og stúlkurnar voru teknar heim til ríkra Tyrkja. Sjálf var ég flutt til 75 ára gamals hershöfðinga í Aleppo. Hann átti tyrkneska konu og fjórar armenskar stúlkur að hjákonum. Loks í Iok fyrri heimsstyrjaldar þegar Englendingarnir komu, gátum við flúið.“ Á hverjum degi hittum við í Beirút fólk sem kann að segja frá þessari harmsögu Armena. Við féttum af manni sem hélt út í sýrlensku eyðimörkina í því skyni að afla upplýsinga um afdrif ætt- menna sinna. Hann hitti að máli gamlan Bedúína, sem vissi um fjölda staða, þar sem fjöldamorð höfðu átt sér stað. Hann leigði sér vélskóflu hjá ítölsku olíubor- unarfyrirtæki og lét grafa upp þúsundir af líkum. Hatrið heldur Armenum saman í grennd við armensku kirkjuna heimsækjum við minningarkapellu, þar sem hauskúpur og bein minna á þessi fjöldamorð. í Burdsch-Hamud, armena- hverfi Beirút, hittum við engan einasta mann, sem ekki á föður eða móður, ömmu eða afa, sem létu lífið í þessum harmleik. Hatrið heldur Armenunum saman og stjórnar tilfinningum þeirra og hefur mótað daglegt tal þeiria. Þeir vita að þjóð þeirra er dreifð og býr í 40 löndum. En þjáningasaga þeirra er samt eins og ósýnilegur tengiliður á milli þeirra. í Beirút ber meira á vanmættinum og reiðinni en nokkurs staðar annars staðar. Héðan koma flestir armensku hryðju- verkamennirnir, sem á undanförnum árum hafa skelft allan heim með sprengjutilræðum sínum og árásum. Síð- ast létu þeir til sín taka fyrir fáeinum vikum í Berlín. Þar sprakk sprengja í „Maison de France" við Kúrfúrsten- damm. Einn lést en 23 særðust. Verið var að hefna sín á Frökkum, sem hneppt höfðu armenska ofbeldismenn í fangelsi. Einnig þeir ínbúar í Burdsch-Hamud sem telja sig kristna ræða innfjálgir um hefnd. Þeir ræða um valdbeitingu, og þykir hún sjálfsögð leið til þess að ná fram réttlætinu. Þeir hafa yfir armenskan málshátt, sem á að afsaka hryðjuverkin: „Enginn kemur með mjólkina, ef ekkert grætur barnið." Þögn í 50 ár Sannleikurinn er sá að þeir hafa rétt fyrir sér. Ef ekki væru sprengjuárásirnar og dauðsföllin mundi enginn leiða hug- ann að vandamálum Armena. í 50 ár hefur heimurinn steinþagað um það sem gert var á hluta Armena, um það leyti sem Osmana-ríkið tyrkneska var að taka andvörpin. Þegar fyrir 2500 árum var svo að sjá sem þau örlög væru búin Armenum að verða fómarlömb fjandsamlegra herr- aþjóða. Þeir bjuggu í austurhluta Tyrk- lands við Ararat, Taums og Kákasus, þar sem innrásarþjóðir höfðu lagt leið sina um frá örófi alda. Því var ríki þeirra aldrei viður- kennt í raun og þeir voru fótum troðnir og kúgaðir aftur og aftur, af Assýríngum, AÍexander mikla, Rómverjum, býs- anska ríkinu, Aröbum og loks Tyrkjum. Þegar ríki Súltananna gekk til viðar, voru Armenar haldnir þeirri fráleitu blekkingu að nú mundu erlend ríki koma þeim til hjálpar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.