Tíminn - 24.02.1987, Síða 1
ISTUTTU MALI
FERÐIR Akraborgar munu liggja
niöri um ófyrirsjáanlegan tíma. Skipið
sigldi á flotbryggju þá sem hún leggur
að með afturendann þegar hún kemur
til Reykjavíkur. Bryggjan skemmdist
við það og urðu þeir bílar sem með
henni voru þegar óhappið varð á
sunnudag, að bíoa þartil skipið lagðist
að bryggju í Hafnarfirði. Kafarar unnu
í gær við að kanna skemmdir og mun
viðgerð hefjast fljótlega.
ANDY WARHOL iést & \
sunnudaginn úr hjartaslagi, 59 ára
gamall. Andy Warhol sem var einhver
þekktasti popplistarmaður sem uppi
hefur verið, hafði gengist undir gall-
blöðruaðgerð á sjúkrahúsi á laugar-
dag.
Einna þekktastur varð listamaðurinn
fyrir mynd sína af „Campell“ súpudós-
um en hann sagðist hafa borðað slíkar i
súpur í 20 ár og því málað þær. Þá eru
andlitsmyndir hans af frægu fólki víð-
frægar og þótti það stöðutákn hjá
leikurum ef Warhol gerði af þeim
mynd. Á sunnudag, daginn sem War-
hol dó lauk einmitt í Norræna húsinu í
Reykjavik sýningu á andlitsmyndum
af Ingrid Bergman, en það eru þrjár
myndir, Nunnan, Með hatt, og Hún
sjálf.
BLAÐAMANNAFÉLAG
Islands samþykkti í gær kjarasamn-
inga við blaðaútgefendur. Samningur-
inn byggir á sama grunni og jólaföstu-
samningarnir á hinum almenna vinnu-
markaði, þ.e. að lægstu launin hækka
mest og fara launahækkanir stig
minnkandi upp launastigann. Lægstu
laun samkvæmt samningnum verða
tæpar^36 þúsund krónur.
BROTIST VAR INN , íbúð
við Sigtún og höfðu ránsmenn á brott
með sér um 20 þúsund krónur í
reiðufé. Málið er til meðferðar hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
SLÖKKVILIÐINU barst tii-
kynning um töluverðan eld og mikinn
reyk Idukkan 8.20 sl. sunnudags-
morgun í íbúð á 2. hæð á Víðimel
I 57.
Þeaar slökkviliðið kom á staðinn fékk
þao þær upplýsingar, að tvennt, sem
hafði verið í íbúðinni, væri komið út en
talið var að einn væri enn þá eftir inni p
í logandi húsinu. Voru tveir reykkafarar
sendir inn til að aðgæta og fundu þar
engan. Hann hefur líklegast haft sig á
brott einhvern tímann um nóttina þótt
húsráðendur hafi ekki orðið þess varir.
Reykkafararnir slökktu mjög fljótlega
eldinn, sem var að mestu leyti í stofu
íbúðarinnar og einnig í svefnherbergi.
Talsvert tjón hlaust af eldinum. Elds-
upptök eru enn ekki Ijós.
NÁMSMANNAhreyfing-
ARNAR Iðnnemasamband (slands,
Stúdentaráð Háskóla (slands, Banda-
lag sérskólanema og Samband ís-
lenskra námsmanna erlendis hafa á- j
kveðið að halda stórfund um lánamálin
í Háskólabíói miðvikudaginn 25. fe-
brúar n.k. kl. 14.00.
Til fundarins eru boðaðir forystumenn
þeirra stjórnmálaflokka sem eiga full- 1
trúa á Alþingi.
Með þessum fundi vilja námsmenn
krefja forystumenn stjórnmálaflokk-
anna svara um hver stefna flokkanna |
sé í málefnum Lánasjóðs ísl. náms-
manna, þar sem kosningar fara nú í
hönd.
Fulltrúar flokkanna verða:
Friðrik Sophusson, Sjálfstæðisflokki
Svavar Gestsson, Alþýðubandalagi
Jón Sigurðsson, Alþýðuflokki
Finnur Ingólfsson, Framsóknarflokki
Kristín Halldórsdóttir, Kvennalista
KRUMMI
„Var ekki nóg að
I spila. einn hálfleik?
Þjóðhagsstofnun:
Um 18% kaupmáttar-
aukning á 2 árum
Kaupmáttur heimilistekna er af nokkuð sé útlit fyrir að útsvarsá- f og vergs rektrarafgangs fyrirtækja andi afkomu. Tekjur heimilanna
Þjóðhagsstofnun talinn hafa hækk- lagning miðað við tekjur verði sýnir að hlutfall launa var á bilinu hafi þá væntanlega aukist og þá
að um 11% milli áranna 1985 og þyngri. 68-70% á árunum 1977-1982, en væntanlega eftirspurn eftir vörum
1986 og þá orðinn hærri en nokkru Milli 1985 og 1986 hækkaðifram- hrapaði niður í 60% árið 1984. og þjónustu. Lækki hlutfallið snú-
sinni fyrr. í ár er talið að hann geti færslukostnaður um 21% og spáð i Launahlutfallið komst aftur upp ist dæmið við. Þjóðhagsstofnun
enn aukist um nær 7% frá í fyrra, ' er 14,5% hækkun milli 1986 og fyrir 64% á síðasta ári og áætlað að . bendir á að hér þurfi þó einnig að
miðað við að launa- og verðlags- 1987. Á sama tíma er ætlað að það fari upp fyrir 66% nú í ár. gæta að hlut vaxta í skiptingu
hækkanir haldist í hendur það sem atvinnutekjur launþega hafi hækk- Þjóðhagsstofnun segir launahlut- þjóðartekna. Hluti rekstrarafgangs
eftir er ársins. Heldur minni hækk- að um 35% að meðaltali (þar af fallið gefa mikilvæga vísbendingu fyrirtækja fari til greiðslu vaxta og
un eða um 10% varð þó á kaup- 37% til opinberra starfsmanna og um tekjuskip'tinguna milli laun- þeir vextir fari til heimilanna, sem
mætti ráðstöfunartekna vegna fiskimanna en 33-34% til annarra Þega °g fyrirtækja. Hækkað eigi mest af sparifénu. Hækkun
þyngri skattbyrði 1986 og búist við launþega) og gert ráð fyrir að þær launahlutfall gefi að öllu jöfnu til raunvaxta geti því að nokkru hafa
að svo verði einnig í ár. Þrátt fyrir hækki um 22-23% í ár. kynna að launakostnaður fyrir- vegið á móti lækkun launahlutfalls-
að beinir skattar til ríkisins lækki Skipting þjóðartekna milli launa tækja hafi aukist sem þýði versn- ins á árunum 1982-1984. -HEl
Hlutafélag um Utvegsbankann:
Sjálfstæðismenn ekki
sammála um frumvarpið
Matthías Bjarnason viðskipta-
ráðherra mælti í gær fyrir frum-
varpi til laga um stofnun hlutafél-
agsbanka um Útvegsbanka
íslands. Þar bar helst til tíðinda að
samstaða þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins um þá lausn, sem við-
skiptaráðherra leggur til, rofnaði
þegar Bjöm Dagbjartsson lýsti yfir
andstöðu við fumvarpið.
Björn sagði að ekki væru öll kurl1
komin til grafar varðandi Útvegs-
bankann og tæki hann undir öll
gagnrýnisatriði stjórnarandstöð-
unnar varðandi þetta mál, þó ríkis-
stjórninni mundi sjálfsagt takast
að hnoða þessu máli í gegnum
þingið.
Matthías Bjarnason óskaði
stjórnarandstöðunni til hamingju
: með liðsaukann og þótti afstaða
Björns einkennileg í ljósi þess að
■ þingflokkur sjálfstæðismanna
hefði áður samþykkt málið.
Talsverð gagnrýni kom frá
. stjórnarandstöðunni bæði á efnis-
atriði frumvarpsins og enn frekar á
þá leið sem valin hefur verið af
ríkisstjórninni. Talsmaður Al-
1 þýðubandalagsins, Ragnar Am-
; alds tók þar undir skoð.un Seðla-
banka fslands um að endurreisn
| Útvegsbanka í formi hlutafélags-
I banka væri sú leið sem síst skyldi
farin í málinu. Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir Kvennalista tók
í sama streng og sagði þetta vera
hallærislausn.
Viðskiptaráðherra sagði að í 30
ár hefði verið umræða um samein-
ingu bankanna en ávallt strandað á
vilja starfsmanna. Ef hann hefði
, ráðið þessu einn þá væri þetta
; ekkert mál, en þingmenn og starfs-
mannafélag Búnaðarbankans
hefðu komið í veg fyrir hagkvæm-
ustu lausnina, sem væri sameining.
i Jón Kristjánsson sagði að fram-
1 sóknarmenn teldu þessa leið viðun-
andi í stöðunni, nauðsynlegt væri
! að eyða óvissu út af Hafskipsmál-
! inu til að takast á við endurskipu-
lagningu bankakerfisins.
Viðskiptaráðherra upplýsti að
hann vissi ekki um neinn erlendan
banka, sem áhuga hefði á þátttöku
í nýja bankanum, en nauðsynlegt
væri að halda þeim möguleika
opnum. Þá kom fram að ráðherra
sagðist vita um samtök í atvinnulíf-
inu og nokkra lífeyrissjóði, sem
: hefðu áhuga á þátttöku í hlutafél-
i agsbanka. ÞÆÓ
Land rís
enn við
Leirhnjúk
Jarðfræðingar frá Norrænu
eldfjallastöðinni fóru norður að
Kröflu í gær til þess sem Guð-
mundur E. Sigvaldason for-
stöðumaður stofnunarinnar kall-
aði „reglubundinna mælinga“.
Guðmundur sagði að þessi mæl-
ingaleiðangur sem er árviss at-
burður, væri þó um mánuði fyrr
á ferðinni en venjulega þar sem
land við Leirhnjúk hefði risið
talsvert þar síðustu mánuði, en
lítil hreyfing hafí verið þar um
tveggja ára skeið. , (
Eins og Tíminn greindi frá
fyrir skömmu er landrisið nú
orðið meira en það var 1984
þegar sfðast gaus við Kröflu og
eru menn í viðbragðsstöðu. Sfð-
ar í vikunni verða almannavarnir
með fund í sveitinni þar sem
farið verður yfir stöðuna.
Landsleikur í
Júgóslavar sigruðu fslend-
inga í fyrri leik liðanna í hand-
knattleik í gærkvöldi. Lokatöl-
ur urðu 19 mörk gegn 20. Eftir
ágætan fyrrihálfleik var sem
neistann vantaði í strákana og
staðan var orðin mjög slæm um
miðjan hálfleik 16:12 fyrir Júg-
óslava. Heldurtókst íslending-
um þó að rétta úr kútnum
undir lok leiksins og jöfnuðu
þegar skammt var til leiksloka
19:19. Lokaorð áttu Júgóslav-
ar.
Við verðum að vona að við
náum betri úrslitum í kvöld
þegar aftur verður leikið í
Laugardalshöll. Sjá bls. 10-12.
-ES
Alfreð Gíslason stekkur upp
fyrir utan vörn Júgóslava og
skömmu seinna lá knötturinn í
netinu. Tímamynd Pjetur
handknattleik:
Naumur sigur
Júgóslava
- jafnt var í hálfleik