Tíminn - 24.02.1987, Qupperneq 3
Þriðjudagur 24. febrúar 1987
Tíminn 3
Samtök um jafnrétti milli landshluta:
n
Frjálslyndur umbótaf lokkur
verður stofnaður um helgina
-býðurtrúlegaframviðnæstukosningar. Frjálslyndiflokkurinn, Lýðræðisflokkurinn, og Frjálslyndi
lýðræðisflokkurinn eru nöfn sem koma til greina.
u
Frjálslyndur umbótaflokkur, sem
hefur það fremst á stefnuskrá sinni
að breyta stjórnarskrá íslenska lýð-
veldisins þannig að fylkjaskipan
verði tekin upp og er í utanríkismál-
um hlynntur vestrænni samvinnu,
verður stofnaður í Borganesi um
næstu helgi.
Þetta var ákveðið á 50 manna
undirbúningsfundi á Selfossi um
helgina, en sá fundur varð viðaminni
en efni stóðu til vegna ófærðar á
Norður og Vesturlandi og áttu menn
ekki heimangegnt. Þó ekki hafi verið
ákveðið nafn á flokkinn ennþá er
líklegt að hann muni verða kallaður
Lýðræðisflokkurinn. Önnur nöfn
sem talin eru koma til greina eru
Frjálslyndiflokkurinn og Frjálslyndi
lýðræðisflokkurinn. Að stofnun
flokksins standa einstaklingar innan
Samtaka um jafnrétti milli lands-
hluta, og verður á stofnfundinum í
Borganesi tekin endanleg ákvörðun
um það hvort þessi nýi flokkur bjóði
fram í komandi alþingiskosningum.
Að sögn Péturs Valdimarssonar for-
manns Samtaka um jafnrétti milli
landshluta, og eins hvatamannsins
að flokksstofnun þessari, telur hann
persónulega miklar líkur á því að
farið verði út í framboð í einhverjum
kjördæmun að minnsta kosti og
hugsamlega öllum.
Á undirbúningsfundinum á Sel-
fossi var kosið í nefnd til þess að
ganga frá drögum að stefnuskrá fyrir
hinn nýja flokk en í innanlandsmál-
um mun helsta stefnumálið verða
stjórnarskrárbreyting þar sem land-
inu er skipt upp í fylki á grundvelli-
gömlu landsfjórðunganna, en það er
hugmynd sem Samtök um jafnrétti
Árni Gunnarsson hugar að framboðsmálum:
Ingólfur Margeirsson nýr
ritstjóri Alþýðublaðsins?
- ákvörðun
„Ingólfur Margeirsson hefur ver-
ið nefndur ásamt fleirum,“ sagði
Ámi Gunnarsson, ritstjóri Al-
þýðublaðsins þegar Tíminn innti
hann eftir væntanlegum ritstjóra-
skiptum á blaðinu.
Árni sagði að tími væri kominn
til að hann færi að stunda það
kjördæmi sem hann væri í fram-
boði í, og því reiknaði hann með
að ákvörðun um arftaka sinn yrði
tekin sem allra fyrst, eða jafnvel í
dag, þriðjudag á fundi Blaðs hf.
Ekki vildi Árni tjá sig um hversu
margir umsækjendur væru um
starfið og sagði að ekki væri heldur
tekin í dag
frágengið hvort hér yrði um tíma-
bundin skipti að ræða, eða um
frambúðarlausn að ræða.
Aðspurður sagði Árni að enginn
vafi léki á að hann teldi Ingólf
| Margeirsson mjög hæfan blaða-
( mann. Hann gæti hins vegar ekki
i gefið svar um hver yrði ráðinn
ritstjóri, „því það eru aðrir sem
ráða þessu með mér. Auk þess þá
er það flokksstjórn Alþýðuflokks-
ins sem ræður ritstjóra, samkvæmt
i lögum flokksins, þannig áð endan-
| leg ákvörðun er í þeirra höndum,"
| sagði Árni Gunnarsson. -phh
Sveitarstjómarmenn:
Af samtals 248 íbúðum sem Bygg-
ingarsjóður verkamanna samþykkti
ný lán út á árið 1986 voru 95 keyptar
á almennum fasteignamarkaði. Árið
áður keyptu sveitarfélögin 14 íbúðir
á almennum markaði.
Athyglisvert er að svo virðist sem
sveitarstjórnarmenn hugi fremur að
slíkum kaupum til sparnaðar á eigin
útgjöldum heldur en þeir sem sitja í
stjórnum verkamannabústaða til að
spara fyrir umbjóðendur sína. Allar
14 íbúðirnar frá 1985 voru keyptar
sem leiguíbúðir sveitarfélaga og
sömuleiðis 41 af 95 íbúðum á síðasta
ári, en þá voru aðeins 6 íbúðir
byggðar sem leiguíbúðir. Af þeim
207 íbúðum sem ætlaðar voru til sölu
- væntanlega til láglaunafólks - voru
hins vegar 60 keyptar á almennum
markaði en 147 í nýbyggingum, að
því er fram kemur í fréttabréfi
Húsnæðisstofnunar.
Frá 1980 hefur Byggingarsjóður
■samþykkt lán vegna 1.330 íbúða.
Þar af er um 800 lokið og því um 530
enn í smíðum.
f reglum um kaup á íbúðum á
almennum fasteignamarkaði út á
lánsfé frá Byggingarsjóði verka-
manna kemur m.a. fram að íbúðirn-
ar eiga að vera í hefðbundnum
íbúðarhverfum í fjölbýli eða sérbýli
og mega að jafnaði ekki vera eldri
en 15ára. Einnigskuluþærfullnægja
kröfum um verkamannabústaði að
því leyti að þær mega ekki vera í risi,
kjöllurum eða í sömu byggingum og
atvinnuhúsnæði. Þá skulu stjórnir
verkamannabústaða koma íbúðun-
um í sem best ástand áður en þær eru
afhentar nýjum eigendum.
Lánveitingar Byggingarsjóðs
verkamanna námu samstals 1.094
milljónum króna á síðasta ári, sem
var um 28% af heildarútlánum
Húsnæðisstofnunar, og áætlað er að
þær verði um 1.175 milljónir króna
á þessu ári.
-HEI
milli landshluta hafa haldið á lofti.
Að sögn Péturs Valdimarssonar er
hugmyndin með slíkri breytingu sú
að færa aukin völd og ábyrgð út til
fjórðunganna sjálfra. Sagði hann
hinn nýja flokk alfarið á móti mið-
stýringu, en hafnaði hins vegar
nokkrum skyldleika milli fylkjahug-
mynda Bandalags j afnaðarmanna og
þeirra. Stefnuskrárnefndin mun
vinna upp alhliða stefnu í þjóðmál-
um og utanríkismálum og sagði
Pétur að þó flokkurinn væri almennt
séð á móti hernaðarbandalögum,
væri það ekkert launungarmál að
hann styddi vestræna samvinnu. Að-
spurður vildi Pétur þó ekki flokka
flokkinn á stefnuás hægri og vinstri,
en sagði að flokkurinn yrði fylgjandi
félagshyggju að vissu marki en frjáls-
hyggju teldi hann ekki vera
stjórnmál. Þeir sem í stefnuskrár-
nefndinni eiga sæti eru þessir: Pétur
Valdimarsson, Árni Steinar Jó-
hannsson, garðyrkjustjóri á Akur-
eyri, Guðmundur Ingi Leifsson,
fræðslustjóri á Blönduósi, Stefán
Ágústsson, heildsali á Seltjarnar-
nesi, Ragnar Eðvaldsson bakari í
Keflavík, Eyvindur Erlendsson leik-
ari og leikstjóri á Selfossi. -BG
Spara fremur fyrir
sveitarsjóði
en láglaunafólk
Byggingarsjóður verkamanna lánaði vegna 95
íbúða keyptra á almenna markaðinum
Sérfræðingur Fokkerverksmiðjanna kannar skemmdir á vélinni í gær í
fiugskýli 4 á Reykjavíkurflugvelli (innfellda myndin). Stél vélarinnar komst
ekki inn í flugskýlið og stendur afturendinn því aftur úr skýlinu. Tímamyndir Pjetur
Þotu hlekktist á á Reykjavíkurflugvelli:
Verulegar skemmdir
hafa orðið á vélinni
Belgar höfðu keypt hana og munu sjálfir sjá um rannsókn slyssins.
1 Þotu, sem skrásett er í Belgíu, og
var á leið frá Ameríku með viðkomu
á íslandi, hlekktist á í aðflugi á
Reykjavíkurflugvöll síðla laugar-
dagskvölds. Níu manns voru um
borð. Þotan skall mjög harkalega
niður á braut 1.4. úr um það bil 6
metra hæð. Vallarslökkvilið og
björgunarþættir flugvallarins voru
með eðlilegu móti. Engin slys urðu
á fólki en verulegar skemmdir á
flugvélinni. Fulltrúar frá Fokker
framleiðendum í Hollandi rannsök-
uðu í gær þotuna og mátu tjónið.
Þotan er af Fokker gerð F28 og
hefur einkennisstafina OO-DJA.
Delta Air Transport í Belgíu festi
kaup á þotunni, sem áður var í eigu
bandaríska flugfélagsins Pilgrim
Airlines.
Flugstjórinn sem flaug vélinni í
lendingu er bandarískur og var feng-
inn að láni hjá seljanda. Aðrir í
vélinni voru fulltrúar kaupanda, að
sögn Skúla Jóns Sigurðarsonar,
deildarstjóra hjá Flugumferðar-
stjóm. „Málið er ekki fullrannsakað.
Ég veit ekki hvað olli slysinu," sagði
Skúli, þegar borið var undir hann
hvort fótur væri fyrir þeim sögusögn-
um úti á flugvelli að þotan hefði
ofrisið.
' “Það er hinsvegar ekkert sem bendir
til neinnar bilunar í vélinni,“ sagði
Skúli. „Hvað okkur snertir hér á
íslandi er þetta lítið mál. Þetta
snertir fyrst og fremst erlendu aðil-
ana.
í þessari vél em „svörtu kassarnir"
svokölluðu sem hljóðrita allt sem
gerist í stjómklefa og svo er flugriti.
Meðal farþega í þotunni vom tækni-
fræðingar Delta Air Transport og
starfsmaður belgíska loftferðaeftir-
litsins. Niðurstaða okkar var því sú,
að við fólum þeim rannsókn þessa
máls.“
Það eru því farþegar vélarinnar
sem munu lesa af hljóðrita og flug-
rita og reyna að komast til botns í
hvað olli slysinu. þj
Enn skýtur njósnamál upp kollinum í Keflavík:
Njósnari á snærum
Keflavíkurbæjar?
Reykjanes segir njósnað um Jón Olsen
Enn er komið upp njósnantál í
Keflavík. Að þessu sinni er það
bæjarstjórnin sem á að hafa gert út
njósnara til að fylgjast með bæjar-
verkstjóranum Jóni Olsen. Blaðið
Reykjanes skýrir frá þessu og segist
hafa traustar hcimildir fyrir því að
formaður bæjarráðs hafi farið fram
á þessar njósnir og að þær hafi ver-
ið gerðar með vitund baljarstjór-
ans, Vilhjálms Ketilssonar. „Ég viT
ekkert tjá mig um málið strax,“
sagði Vilhjálmur í samtali viðTím-
ann í gær. Hann sagði að þetta mál
yrði rætt á fundi bæjarráðs í næstu
viku en líklega þyrfti að halda fleiri
fundi vegna þessa.
Frétt Reykjaness segir að starfs-
maður Keflavíkurbæjar hafi fengið
það hlutverk að fylgjast með Jóni
Olsen í vinnutímanum og gefa
skýrslu um hvert fótmál hans.
Ekki náðist í Jón Olsen í gær
vegna þessa máls. -ES