Tíminn - 24.02.1987, Síða 4
4 Tíminn.
SPEGILL
Heilsa Elizabeth Tayl-
or er lengi búin að
vera vinum hennar
og vandamönnum
áhyggjuefni en nú keyrir um
þverbak og er þar ekki síst
kennt um ástarævintýri
hennar og George Hamil-
ton sem hefur gengið ákaf-
lega nærri þeim kröftum
sem hún átti þó eftir - eftir
meira en 40 ára sjúkdóma-
og áfallasögu.
Nú síðast bárust þær fréttir að
Liz yrði að fara enn einn umgang-
inn á sjúkrahús og nú væri hún
búin að fá einhverja bakteríu í
blóðið. Það er alvarlegt mál í
hennar tilfelli þar sem ónæmiskerf-
ið er orðið lélegt. Og lifrin er sögð
farin að gefa sig.
Elizabeth Taylor er farin að
þekkja sjúkrahús innan veggja
álíka vel og kvikmyndaverin í
Hollywood. Yfir 40 sinnum hefur
hún orðið að leggja niður vinnu
vegna sjúkdóma og slysa. Einu
sinni var hún svo hætt komin að
læknar álitu hana varla eiga meira
Er
Elizabeth
Tay lor
búin að vera?
í fyrrasumar um borð í lystisnekkju
milljarðamæringsins og vopnasal-
ans Adnans Kashoggi á höfninni í
Marbella á Spáni. En varla var
búið að halda opinberunina hátíð-
lega þegar Elizabeth féll saman og
þurfti að fara eina ferðina enn á
sjúkrahús. Þangað heimsótti ný-
bakaði unnustinn hana einu sinni
og brá í brún að sjá glæsikonuna
Elizabeth Taylor sjúka og að niður-
lotum komna. Hann lét sig hverfa
hljóðalaust og hefur ekki einu
sinni haft fyrir því að skrifa henni
bréf, hvað þá meira.
Það er þess vegna skiljanlegt að
vinir Elizabeth hafi áhyggjur af
heilsufari hennar og spyrji hvenær
mælirinn sé fullur. Hún er orðin 54
ára og hefur staðið af sér meiri
áföll nú þegar en flestir þurfa að
horfast í augu við á lífsleiðinni.
Hvenær gefst hún upp, spyrja þeir.
HÖFUÐSKAÐI.
1944 datt Elizabeth af
en klukkustund ólifaða! Þá var það
lungnabólga sem herjaði á hana. I
annað sinn munaði mjóu að hún
missti annan fótinn vegna blóðeitr-
unar. Hún hafði því sem næst misst
sjónina eftir slys sem hún varð fyrir
í Afríku.
Enn þann dag í dag þjáist hún af
bakverkjum, sem eru afleiðingar
þess er hún datt af hestbaki fyrir 40
árum. Hún vandi sig á að halda
verkjunum niðri með deyfandi lyfj-
um og áfengi með þeim afleiðing-
um að hún ánetjaðist þessum vímu-
gjöfum og varð að fara í afeitrun.
„Þá gekk ég í gegnum vítiskvalir,"
segir hún.
Alla sína ævi hefur Elizabeth átt
í baráttu við hin alræmdu „auka-
kíló“. A tímabili var hún orðin svo
þung að hún átti erfitt með gang.
En hún hefur alltaf snúist til bar-
áttu gegn þessum óvini og illgjarn-
ar tungur segja að hún hafi allt
allt létt sig um 800 kg - allt að tonn
á lífsleiðinni!
Hjónaböndin 7 og trúlofanirnar
óteljandi hafa tekið sinn toll.
Taugaáföllin hafa staðið í réttu
hlutfalli við ástarævintýrin. Og það
síðasta, með leikaranum George
Hamilton er sagt hafa rænt hana
meiri kröftum en hún átti í fórum
sínum.
Þau voru farin að tala um brúð-
kaup og opinberuðu trúlofun sína
STIRÐNUN I HALSI
Elizabeth Taylor þarf aö
bera hálsspelkur vegna
alvarlegrar stiröunnar á
hálsi.
ÖKKLASKAÐAR.
Elizabeth fótbrotnaöi
þegar hún lék í fyrstu
Lassie myndinni 1943.
1963 varö aö skera hana
LUNGNABÓLGA
Fimm sinnum hefur
Elizabeth veikst alvar-
lega í lungum.
LIFRARSKÖDDUN.
Lifrin illa farin eftir lang-
varandi misnotkun á
deyfilyfjum og áfengi.
MOÐURLIFSÆXLI.
Fjarlægt var æxli á
eggjastokk 1973, en
skömmu síðar fékk
Elizabeth ákafar kvalir.
Læknunum hafði sést
yfir annað æxli.
upp vegna sýkingar í liö-
poka og aftur 1977.
1982 tognaði hún svo illa
aö hún varð aö fara í
hjólastól.
hestbaki viö kvikmynda-
tökur og hlaut svo slæmt
höfuöhögg aö hún lá vik-
um saman á sjúkrahúsi
meö heilahristing. Hún
kvelst enn af höfuöverkj-
um.
AUGNSJUKDÓMAR.
Ryöguö járnflís sem
stakkst í auga hennar í
Afríku 1953 olli sýkingu
sem læknar unnu þó bug
á. 1971 varö aö nema
burt vökvafyllta blöðru á
bak við hægra auga.
TANNHOLDSUPPSKURÐIR.
Alla sína ævi hefur
Elizabeth átt viö tann-
sjúkdóma að stríða og
tvisvar hefur orðið aö
gera á henni tannholds-
uppskurði.
BARKASKURÐIR.
1961 varð að opna
barka Elizabeth til aö
hún gæti andað. 10
árum síðar urðu lækn-
arnir aö gera á henni
uppskurð til að fjarlægja
plasthlut sem hafði verið
skilinn eftir í ógáti við
fyrri aðgerðina.
HJARTAAFALL.
1983 féll Elizabeth sam-
an rétt áður en hún átti
að stíga á leiksvið í New
York. Orsökin var hjarta-
áfall.
MAGASJUKDÓMAR.
1962, þegar Elizabeth
lék í Kleópötru, varð að
dæla upp úr maganum á
henni í hasti vegna mat-
areitrunar. 1975 drakk
hún skemmt vín í
Moskvu. Maginn hefur
valdið henni óþægind-
um síðan.
BRJÓSKLOS.
1956 fékk hún brjósklos
og varð að liggja í strekk
íviku. Þaðdugðiekki og
hún var skorin upp. En
aðgerðin gaf ekki þann
árangur sem að var
stefnt.
FÓTBROT.
1959 íhuguðu læknar
hennar að nema af
henni vinstri fót eftir
hættulega ígerð. Ári síð-
ar braut hún sama fótinn
á götu úti og varð að
liggja vikum saman í
gifsi.
Þriðjudagur 24. febrúar 1987
SVEITARSTJÓRNARMÁL
ísafjörður
Fjárhagsáætlun 1987
og rammaáætlun 1988-1990
Fjárhagsáætlun fyrir ísafjarðar-
kaupstað 1987 var samþykkt á f undi
bæjarstjórnar ísafjarðar 17. janúar
sl. Jafnframt var samþykkt ramma-
áætlun til þriggja ára, samkvæmt
hinum nýju sveitarstjórnarlögum.
ísafjarðarkaupstaður er því fyrsti
kaupstaðurinn sem gengur frá þess-
háttar áætlun með fjárhagsáætlun.
Ekki var gengið frá fjárhagsáætl-
uninni fyrr en að niðurstöður fjárlaga
ríkissjóðs lágu fyrir enda eru fjöl-
mörg atriðið í fjárlögum sem hafa
áhrif á fjárhagsáætlun sveitarfélaga.
Markmið fjárhagsáætlunarinnar
er að treysta fjárhagsstöðu bæjar-
sjóðs ísafjarðarkaupstaðarog stofn-
ana hans þannig að nýta megi á
komandi árum þá fjármuni sem ann-
ars hefðu farið til greiðslu vaxta, til
framkvæmda.
Eignfærð fjárfesting ísafjarðar-
bæjar næstu fjögur ár er áætluð alls
198.100 þúsund krónur, en þar af
koma 80.420 þúsund krónur frá
ríkissjóði. Því er nettó heildar-
kostnaður 117.680 fyrir þessi fjögur
ár. Nettó eignfærð fjárfesting ársins
1987 er áætluð 30.421 þúsund
krónur, fyrir árið 1988 31.091 þús-
und krónur, 27.530 þúsund krónur
árið 1989 og 28.639 þúsund krónur
árið 1990.
Til öldrunarmála er gert ráð fyrir 5
milljóna króna eignfærðri fjárfest-
ingu og er gert ráð fyrir að hún skipt-
ist á árin 1989 og 1990. í sjúkrahús
og heilsugæslustöð eru áætlaðar 8
milljónir á næstu þremur árum.
Stærsti liðurinn eru framkvæmdir
við íþróttahús alls 81,5 milljónir
næstu fjögur árin, þar af er framlag
ríkissjóðs tæpar 49 miljónir.
I grunnskóla og verkmenntahús
iðnskólans fara rúmar 60 milljónir.
Bolungarvík
Fjárhagsáætlun 1987
í Bolungarvík var fjárhagsáætlun
samþykkt á fundi bæjarstjórnar
þannð.febrúarsl. Þarmuneignfærð
fjárfesting verða 13,8 milljónir króna
lá árinu og skiptist þannig að í
Sjúkrahús Bolungarvíkur mun heild-
arkostnaður verða 2,7 milljónir, þar
afgreiðirbæjarsjóður450þúsund. í
sjúkrahús (safjarðar mun bæjarsjóð-
ur greiða 700 þúsund og stækkun
skólahúss mun kosta 10 milljónir,
þar af eru 7 milljónir framlag Bolung-
arvíkur.
Helstu framkvæmdir bæjarsjóðs
við hafnargerð á árinu 1987 verða:
a) kantur og lagnir á Grundargarði 5
milljónir
b) Flotbryggja og dýpkun 1,2 millj.
c) Varnir gegn landbroti 1,1 milljón.
Alls eru þetta 7,3 milljónir.
Áætlað er að endurgreiða
skammtímaskuldirumkr.3,1 milljón
króna og langtímaskuldir þ.e. af-
borgun kr. 4,8 miljónir. Fjárvöntun í
áætlun fjármagnshreyfingar verður
4,9 milljónir króna.
Stefna bæjarstjórnar er að lækka
áfram hlutfall langtímaskulda. Árið
1983 var hlutfall langtímaskulda
miðað við sameiginlegar tekjur
65%, 1984 63%. árið 1985 var hlut-
fallið 60,6% og samkvæmt bráða-
birgða niðurstöðu fyrir árið 1986
verður hlutfallið kringum 58%.
Það má geta þess að sl. sumar var
á Bolungarvík hafist handa um ný-
byggingu grunnskóla sem áætlað er
að taka í notkun árið 1990.
-HM