Tíminn - 24.02.1987, Blaðsíða 6
FRÉTTAYFIRLIT
PARIS — Líbanski skærulið-
inn Georaes Ibrahim Abdallah
neitaði ao svara spurningum í
upphafi réttarhaldanna yfir
honum í Parísarborg. Abdallah
er sakaður um pólitískt ofbeldi
en hann sagði frammi fyrir
sérstökum hryðjuverkadóm-
. stóli í gær að hann væri „arab-
ískur bardagamaður". Abda-
llah er grunaður um að vera
tenpdur árásum á bandaríska
og ísraelska stjórnmálamenn.
MOSKVA — Sovéska rit-
höfundasambandið hefur veitt
Boris Pasternak heitnum,
rússneska rithöfundinum og
skáldinu sem þekktastur er
fyrir sögu sína „Dóktor Zhi-
vagó“, uppreisn æru þrjátíu
árum eftir að honum var vísað
úr sambandinu.
MOSKVA — Gyðingurinn
Jósef Begun, andófsmaourinn
frægi sem sovésk stjórnvöld
leystu úr haldi, kom til Moskvu
í gær og var innilega fagnað af
ættingjum og vinum. Hann
sagðist ætla að halda áfram að
berjast tyrir mannréttindum í
Sovétríkjunum.
. N'DJAMENA — Stjórnvöld
í Chad sögðu heri sína hafa
barist við lýbískar hersveitir í
annað sinn á tveimur vikum á
Aouzousvæðinu, hinu um-
deilda landsvæði nyrst f land-
inu.
BAHREIN — Iransstjóm
sagði heri sína hafa þokast
nær annarri stærstu borg
íraks, Basra, eftir óvænta árás
þeirra í fyrrinótt. Stjórnvöld
sögðu einnig að ný árás væri
hafin inn í Kúrdistanhéruð
Norður-lraks.
JERÚSALEM — Einn
þeirra sem lifðu af vistina í
útrýmingarbúðum nasista bar
vitni frammi fyrir ísraelskum
dómstól og sagði hann hinn
ákærða John Demjanjuk vera
(„ívan grimma", fangavörðinn í
'Treblinka búðunum sem barði
og drap fanga og skipaði ein-
um að eiga kynmök við ung-
lingsstúlku sem slapp lifandi úr
gasklefanum.
NYJA DELHI - Rajiv
Gandhi forsætisráðherra Ind-
lands og stjórn hans lofuðu að
taka hart á ofbeldisverknuðum
síkha í Punjabhéraði. Loforð
stjórnar Gandhis kom eftir að
þúsundir reiðra hindúa höfðu
krafist þess að Gandhi „stjórn-
aði eða segði af sér“.
BUENOS AIRES - Lög
hafa verið sett í Argentínu sem
varna því að hægt sé að lög-
sækja mörg hundruð herfor-
ingja fyrir brot á mannréttind-
um sem framin voru á tímum,
herforingjastjórnarinnar á ár-
unum 1976 til 1983.
6 Tíminn
"ÚTLÖND
Þriöjudagur 24. febrúar 1987
Belgía:
“Mörgæsir“
Geta ísraelar og arabar friðmælst?: Frá heræfingum ísraelsmanna
Heilsuæðið
kemur til
Sovétmanna
Moskva-Reuter
Offitan er vandamál austur í Sov-
étríkjunum eins og víða annars stað-
ar og á næstu dögum verður fyrsta
megrunarstöðin opnuð í Moskvu.
Par verður boðið upp á fræðslu í
sambandi við fæði, æfingar og dá-
leiðslu til að losa Moskvubúa við
aukakílóin.
„Samkvæmt tölfræðilegum heim-
ildum eru 40% Moskvubúa of
þungir,“ sagði stjórnandi megrunar-
stöðvarinnar í samtali við dagblað
ríkisstjórnarinnar Izvestiu í gær.
Stjórnandi miðstöðvarinnar, sem
verður til húsa í miðborg Moskvu,
sagði að fylgst yrði nákvæmlega með
þyngd hvers viðskiptavinar og hon-
um gefnar ráðleggingar í samræmi
við hvernig honum gengi að létta sig.
Stöðin mun geta tekið við einum
fimmtíu viðskiptavinum á degi
hverjum og er daggjaldið 5 rúblur
eða tæplega 300 krónur íslenskar.
Zia forseti Pakistan (innfellda myndin) horfði á krikket í Indlandi um helgina
og ræddi við Gandhi forsætisráðherra um samskipti ríkjanna tveggja.
Indland/Pakistan:
Bætt samskipti
í gegnum krikket
Nýja Dclhi-Kcuter
Mohammad Zia-Ul-Haq forseti
Pakistan kom til síns heima í gær
eftir ferð til Indlands um helgina.
Forsetinn nefndi þessa ferð sína
„friður í gegnum krikket“ og sagði
hana hafa náð því markmiði sínu að
minnka spennuna í samskiptum
landanna tveggja.
Zia var upphaflega boðið tii Jaipur
í Indlandi til að horfa á krikketleik
milli Indlands og Pakistan. Hann
notaði þetta tækifæri til að ræða við
Rajiv Gandhi forsætisráðherra Ind-
lands um spennuna á landamærum
ríkjanna tveggja en ekki er langt
síðan hvor aðilinn dró til baka um
150 þúsund manna herlið frá bar-
dagastöðvum við landamærin.
„Ég er bjartsýnn á horfurnar um
að friður komist á milli ríkjanna
tveggja," hafði indverska fréttastof-
an PTI eftir pakistanska forsetanum.
Löndin tvö hafa þrívegis háð stríð
sín á milli, það síðasta árið 1971.
f nóvember á síðasta ári hófu
Indverjar vetraræfingar við landa-
mærin sem orsökuðu spennu og í
kjölfarið var fjölgað mjög í hersveit-
um beggja aðila á svæðinu. í byrjun
þessa mánaðar komust ríkin tvö
hinsvegar að samkomulagi um að
fækka verulega í herafla sínum við
landamærin.
Krikketleikir þjóðanna hafa líka
verið hlaðnir spennu, rétt eins og
önnur samskipti. Hvorugur aðilinn
hefur hætt á neitt í krikketnum og
síðustu níu viðureignirnar hafa end-
að með jafntefli.
Þetta mun vera í fyrsta sinn síðan
löndin tvö fengu sjálfstæði árið 1947
sem ráðamenn þeirra hafa notað
íþróttasamskipti til að reyna bæta
sambúðina.
ÚTLÖND
UMSJÓN:
Heimir
Bergsson
BLAÐAMAÐUR„
Evrópubandalagiö um deilur Israela og araba:
Ræða ber um frið
handteknar
fyrir
ísmokstur
Brassel-Reuter
Fjórtán Grænfriðungar voru
handteknir fyrir utan belgíska
utanríkisráðuneytið í Brussel eft-
ir að hafa komið fyrir „ísjaka“ á
tröppum þess. Pað var formaður
Belgíudeildar umhverfisverndar-
samtakanna frægu sem skýrði frá
þessu í gær.
Grænfriðungarnir voru í gervi
mörgæsa, keyrðu á flutningabíl
að utanríkisráðuneytinu og mok-
uðu fimm tonnum af ís út úr
honum.
Með þessu vildu umhverf-
isverndarsinnarnir mótmæla því
sem þeir kölluðu getuleysi belgí-
skra stjórnvalda þegar berjast
ætti fyrir aukinni umhverfisvernd
á Suðurheimskautssvæðinu.
Grænfriðungar telja að mikil
mengun muni fylgja aukinni olíu
og námuleit á svæðinu auk þess
sem sjávarlíf þess sé í hættu.
Flestar „mörgæsanna" voru
handteknar og lögreglan mokaði
ísnum aftur upp í bílinn.
Reuter-
Evrópubandalagið(EB) lýsti í gær
yfir stuðningi sínum við alþjóðlega
ráðstefnu þar sem reynt yrði að
finna lausn á deilu ísraelsmanna og
araba. Gert er ráð fyrir að slík
ráðstefna yrði haldin á vegum Sam-
einuðu þjóðanna.
Stuðningur EB kom fram í yfirlýs-
ingu sem gefin var út af utanríkisráð-
herrum bandalagsins sem funduðu í
Brussel í gær og í fyrradag. í yfirlýs-
ingunni var sagt að bandalagið væri
samþykkt ráðstefnu með þátttöku
allra aðila sem hagsmuna eiga að
gæta og annarra sem gætu lagt sitt af
mörkunum til að koma á friði og
öryggi í Mið-Austurlöndum.
Pað var Hussein Jórdaníukonung-
ur sem fyrstur kom fram með hug-
myndina um alþjóðlega friðarráð-
stefnu fyrir botni Miðjarðarhafs með
þátttöku arabaríkja, Frelsishreyf-
ingar Palestínumanna (PLO), ísra-
elsmanna og allra fastra meðlima
öryggisráðs SÞ, þar með talin Sovét-
ríkin.
Yfirlýsing EB styður greinilega
þessa hugmynd um alþjóðlega frið-
arráðstefnu og athyglisvert þykir að
hún er gefin út nú þegar stjórnvöld
í Washington virðast vera að færast
nær því að samþykkja að taka þátt í
slíkri ráðstefnu.
ísraelsstjórn hefur hingað til verið
sundruð í afstöðu sinni til slíkrar
ráðstefnu og er PLO henni þyrnir í
augum í því sambandi. Símon Peres
utanríkisráðherra hefur lýst yfir
stuðningi við hana en forsætisráð-
herrann Yitzhak Shamir kvað vera
andvígur henni.
Kína:
Frakkar yfir „haf dauðans“
Pekíng-Reuter
Sex ævintýramenn frá Frakk-
landi hafa í hyggju að ganga yfir
Taklamakan, hina miklu eyðimörk
í vesturhluta Kína sem oft er
kölluð „haf dauðans“.
Það var fréttastofan Nýja Kína
sem skýrði frá þessu í gær og sagði
hún að Frakkarnir, fimm karlmenn
og ein kona, ætluðu sér að ganga
hina 430 kílómetra löngu leið á 25
dögum. Þcir ntunu ætla sér að fara
í þessa ferð í september.
Fréttastofan hafði einnig eftir
Frökkunum að þá hlakkaði til að
sjá spegiimyndir, fallega sólarupp-
rás og sólarlag og heyra sandinn
hreyfast undir fótum þeirra. /
Fjallaklúbbur x í Vestur-Kína
mun sjá göngumönnunum fyrir
nauðsynjum og þyrla mun hafa
eftirlit með því að þeir hverfi ekki
í „haf dauðans“.