Tíminn - 24.02.1987, Side 7
Tíminn 7
Þriðjudagur 24. febrúar 1987
Búast má við að í kjölfar „friðar-
ins“ í Vestur-Beirút muni athygli
umheimsins aftur beinast að erlendu
gíslunum sem haldið er í borginni og
að afkomu flóttamanna í búðum
Palestínumanna.
Fjölmennt herlið Sýrlendinga setti svip sinn á Vestur-Beirút í gær.
Beirút-Reuter
Verslanir og bankar opnuðu að
nýju í Vestur-Beirút í gær eftir að
um sjö þúsund sýrlenskir hermenn
höfðu komið sér fyrir í borgarhlutan-
um til að sjá um að friður væri
haldinn.
Koma sýrlensku hersveitanna um
helgina varð til þess að bardagahóp-
ar hinna ýmsu fylkinga múslima
drógu sig í hlé en þeir höfðu barist
hatrammlega á götum úti í borgar-
hlutanum alla síðustu viku.
Samkvæmt heimildum í Beirút
komu sýrlensku hersveitirnar að
minnsta kosti með sextíu sovéska
skriðdreka með sér og eru margir
þeirra notaði til að verja flugvöllinn
í borginni. Þá höfðu hermennirnir
komið upp búðum á helsta íþrótta-
velli vesturhlutans í gær og voru á
verði víða til að halda friðinn.
Öll blöð og útvarps- og sjónvarps-
stöðvar í Beirút greindu ítarlega frá
komu sýrlensku hersveitanna en
ekki voru fjölmiðlarnir á eiit sáttir
um komuna. Blöð í Vestur-Beirút
lögðu flest áherslu á að koma her-
sveitanna nyti stuðnings stjórnmála-
manna múslima. Hinsvegar tóku
fjölmiðlar í Austur-Beirút, handan
við grænu línuna svokölluðu, flestir
undir sjónarmið hægrisinnaðra leið-
toga kristinna manna um að vera
sýrlenskra hersveita í vesturhluta
borgarinnar væri ólögleg. Ein út-
varpsstöðin í þessum kristna hluta
borgarinnar lýsti raunar sýrlensku
hersveitunum sem „hersetuliði“.
Líbanon:
Kyrrt í V-Beirút
Fjölmennt herliö Sýrlendinga komið til borgarhlutans - Versl-
anir og bankar opna
Vinningstölurnar 21. febrúar 1987
Heildarvinningsupphæð: 5.040.147,-
1. vinningur var kr. 2.526.605,-
og kom í hlut eins vinningshafa.
2. vinningur var kr. 755.929,-
og skiptist hann á 229 vinningshafa, kr. 3.301
á mann.
3. vinningur var kr. 1.757.613,- og skiptist á
7293 vinningshafa, sem fá 241 krónur hver.
Uppl. sími:
685111
Námskeið um rafstýringar
í vökvakerfum
Ætlað mönnum sem ekki hafa raftæknilega mennt-
un en starfa við rekstur vökvakerfa, verður haldið
2. t.o.m. 4. mars á Iðntækistofnun íslands.
Þátttökugjald er kr. 6.000.-.
Innifalin eru námsgögn og fæði.
Upplýsingar og innritun í símum 687440 og
687000.
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS
Ástkær sonur okkar, stjúpsonur, bróðir, mágur og frændi,
Sigurgeir Þórðarson
Brautarási 10,
Reykjavík
lést að heimili sínu aðfaranótt 16. febrúar sl. Jarðarförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Þórður Kristjánsson,
Aðalsteinn Sigurgeirsson,
Sigríður Sigurgeirsdóttir,
Hansína Sigurgeirsdóttir,
Þorkatla Sigurgeirsdóttir,
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir,
Sigmar Hróbjartsson,
Lea H. Björnsdóttir,
Ragnar Jónasson,
Sveinbjörn Herbertsson,
Ragnar T rygg vason,
Sigursteinn Gunnarsson
og systkinabörn.
Tíminn
S.686300
S. 681866
S.681333
Blaðburður
BESTA TRIMMID
ogborgar sig!
Kvisthagi
Fornhagi
Hjarðarhagi 45-út
'og 54-út
Hofsvallagata frá 49
Ægisiða 78-98
Fálkagata
Lambastaðir
Túnsberg
Hafðu
samband «.
við okkur
Lynghagi
Starhagi
Grímshagl
Ægisíða 50-58
Garðar v/Ægisíðu
Neshagi
Melhagi
Einimelur
Hagi v/Hofsvailag.
Hofsvallag. frá 49
Bollagata
Flókagata 15-18
Guðrúnargata
Hrefnugata
Kjartansgata
Miklabraut 1-5
Snorrabr. oddat.
frá 61-út
Gunnarsbraut 26-út
Eskihlíð
Mjóahlið
Kringlan
Listabraut
Neðstaleiti
Ofanleiti
Miðleiti
Efstaleiti
Hús verslunarinnar
Tómasarhagi
Ægisíða 60-76
Þrastargata
Smyrilsvegur
Skerjafjörður
TÍMINN Síðumúla 15 ® 68 6300
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Þuríður Helgadóttir,
Melabraut 3, Seltjarnarnesi
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 25.
febrúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
kirkjubyggingarsjóð Kvenfélagsins Seltjarnar. Minningarkortin fást á
skrifstofu Seltjarnarnesbæjar, Mýrarhúsaskóla eldri.
Margrét Sigurðardóttir, Ágúst Jónsson,
Svala Sigurðardóttir, Þorbjörn Karlsson,
Dóra Sigurðardóttir, Guðmundur Einarsson,
Guðbjörg Hannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir og kveðjur til allra þeirra sem vottuðu samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar
Þóru Sveinbjarnardóttur,
frá Ystaskála, Vestur Eyjafjöllum,
Granaskjóli 16.
Systkini hinnar látnu.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Hans Meyvantsson,
Kjartansgötu 15,
Borgarnesi,
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 24. febrúar kl. 15.
Lára Sigurðardóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabarn.