Tíminn - 24.02.1987, Síða 11
10 Tíminn
Þriðjudagur 24. febrúar 1987
ÍÞRÓTTIR
illllll!
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Stórsigur KR-inga
í stórgóðum leik
- lögðu Keflvíkinga að velli með 25 stiga mun, 86-61
Skömmu eftir að leikur KR-inga
og Keflvíkinga í úrvalsdeildinni
hófst á sunnudaginn virtist fátt
benda í átt til stórsigurs þeirra
fyrrnefndu, bæði lið léku mjög vel
en Keflvíkingar voru yfir. Síðast var
jafnt 19-19 stuttu fyrir miðjan hálf-
leik en þá breytti heldur betur um og
þar til tæpar tvær mínútur voru til
leikhlés skoruðu KR-ingar 20 stig
gegn 8. Sunnanmönnum tókst aðeins
að laga stöðuna og í leikhléi leiddu
KR-ingar 42-31. Eftir hálfleik var
sem lok hefði verið sett á aðra
körfuna, fyrstu tíu mínúturnar skor-
uðu Keflvíkingar 8 stig en KR-ingar
• 28. Þá tók Guðjón Skúlason til sinna
á þessari skemmtilegu mynd sem
Pjetur tók í Hagaskólanum á
sunnudaginn. Ólafur Guðmunds-
son KR er allavega búinn að
missa af boltanum.
ráða og var sá eini sem skoraði fyrir
ÍBK lengi vel, 14 stig í röð. KR-ingar
svöruðu reyndar jafn harðan svo
staðan breyttist lítið. Lokatölur urðu
86-61, 25 stiga munur. Mestur varð
munurinn 31 stig, 77-46.
Leikurinn var stórvel leikinn og
bráðskemmtilegur. Keflvíkingar
voru einnig góðir, svo undarlega
sem það lítur út ef miðað er við
úrslitin. Þeir spiluðu góða sókn, létu
boltann ganga hratt og vel og leituðu
að opnu færi. Oftast fannst það en
þá brást hittnin og KR-ingar áttu
frákastið. Þetta gerðist hvað eftir
annað í leiknum og var sérstaklega
áberandi á kaflanum í upphafi síðari
hálfleiks. Eftir miðjan hálfleikinn
misstu Keflvíkingar þolinmæðina og
fóru að skjóta í tíma og ótíma með
litlum árangri.
Sókn KR-inga var mjög góð og
batnaði eftir því sem leið á leikinn ef
frá eru skildar síðustu mínúturnar
sem voru lakasti kafli leiksins af
beggja liða hálfu. Það sama var uppi
á teningnum og hjá ÍBK, boltinn
gekk vel og síðan lauk sókninni með
skoti úr opnu færi. Munurinn var
bara sá að skot KR-inga fóru ofaní. !
Bæði lið léku góða vörn, sérstak-
lega var svæðisvörn KR-inga góð og
vel hreyfanleg. Besti maður KR var
Guðni Guðnason sem átti stórleik
bæði í vörn og sókn. Það eina sem
skyggði á var slök vítahittni hans.
Ástþór Ingason barðist eins og ljón
og þeir Garðar Jóhannsson, Guð-
mundur Jóhannsson og Ólpfur
Guðmundsson léku allir vel. Liðið
náði mjög vel saman og heiðurinn er
liðsheildarinnar. Hjá Keflvíkingum
var enginn einn sem stóð uppúr.
Liðið lék ágætlega eins og fyrr var
getið en hittnin brást þeim algerlega
á kafla, kafla sem KR-ingar nýttu
sér til fullnustu. Leikurinn skipti
kannski ekki mjög miklu máli fyrir
Keflvíkinga sem þegar eru öruggir í
úrslitakeppnina en KR-ingar urðu
að vinna og það gerðu þeir svo
sannarlega með stæl.
Stigin, KR: Guðni Guðnason 30,
Garðar Jóhannsson 19, Ólafur
Guðmundsson 12, Ástþór Ingason
og Guðmundur Jóhannsson 9 hvor,
Matthías Einarsson 5, Þorsteinn
Gunnarsson 2. ÍBK: Guðjón Skúla-
son 16, Hreinn Þorkelsson og Sig-
urður Ingimundarson 11 hvor, Gylfi
Þorkelsson 8, Ingólfur Haraldsson
5, Jón Kr. Gíslason og Matti Ó.
Stefánsson 3 hvor, Ólafur Gott-
skálksson 2.
Dómarar voru Bergur Steingríms-
son og Kristinn Albertsson og höfðu
þeir ekki góð tök á leiknum.
AtlitilFram
Atli Hilmarsson landsliðsmaður vera. Mörg félög voru á eftir Atla
í handknattlcik hefur ákveðið að en hann valdi semsagt sfna gömlu
snúa til baka úr atvinnumennsku' félaga í Fram. Ekki er vafi að Atli
en hann leikur nú sem kunnugt er verður Framliðinu mikill styrkur,
í V-Þýskalandi. Hann hefur þegar hann er þekktur fyrir sín þrumu-
valið sitt nýja félag, Fram skal það skot.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Framarar stóðu upp í
hárinu á Valsmönnum
Ekki náðu Framarar að næla sér í
sín fyrstu stig í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í íþróttahúsi Selja-
skóla á sunnudagskvöldið. Vantaði
þó aðeins herslumuninn. Mótherj-
arnir voru Valsmenn sem sigruðu
76-69 í jöfnum og skemmtilegum
leik.
Leikurinn var jafn framan af fyrri
hálfleik, Jóhann Bjarnason og
Símon Ólafsson sáu um stigin fyrir
Fram en Valsmenn skiptu stigunum
bróðurlega á milli sfn. Staðan 26-26
þegar Valsmenn taka kipp, leika
pressuvörn út um allan völl og
Tómas Holton gerir sjö stig í röð.
Valur leiddi í hléi 38-30.
Framarar náðu ekki að vinna upp
muninn í síðari hálfleik, voru þó
ekki langt frá því á köflum. Þegar
tæplega fjórar mínútur voru eftir var
t.d. aðeins þriggja stiga munur 66-63
en þá settu mistækir Valsmenn í gír
og náðu að tryggja sér sigur.
Símon Ólafsson, Þorvaldur Geirs-
son og Jóhann Bjarnason báru uppi
lið Framara og léku allir vel. Símon
greinilega æfingalítill en leikur af
stakri snilld.
Hjá Val átti Tómas Holton ágætan
leik svo og Leifur Gústafsson og
Björn Zoega sýndi takta þann stutta
tíma sem hann lék. Mikil breidd er
í liði Valsmanna og fengu allir
leikmennirnir að spreyta sig á sunnu-
dagskvöldið. Flestir þeirra hafa þó
leikið betur.
Stigin: Valur: Tómas Holton 25,
Leifur Gústafsson 14, Einar Ólafs-
son 12, Sturla Örlygsson 8, Torfi
Magnússon 7, Páll Arnar 6 og Bjöm
Zoega 4. Fram: Símon Ólafsson 27,
Telja verður nær víst að Fram-
stúlkur séu orðnar íslandsmeistarar
í handknattleik eftir 27-16 sigur á
ÍBV um helgina. Þegar 4 umferðir
eru eftir hafa þær 7 stiga forystu á
FH. Þær eiga eftir að leika gegn FH,
Ármanni, Stjörnunni og Víkingi.
FH á eftir Fram, Stjörnuna, KR og
ÍBV. Fram dugir einn sigur til að
ÍR-ingar tryggðu sér í gærkvöld
rétt til að keppa í undanúrslitum
bikarkeppninnar í körfuknattleik er
þeir sigruðu Hauka 97-83 í Selja-.
skóla. Haukar sigruðu í fyrri leikn-
Þorvaldur Geirsson 18, Jóhann
Bjamason 15, Auðunn Elíasson 5
og Jón Júlíusson 4.
Ágætir dómarar voru Jóhann
Dagur og Sigurður Valur.
gulltryggja titilinn en hingað til hafa
þær aðeins tapað tveimur stigum.
Önnur úrslit um helgina urðu þau
að FH og Valur gerðu jafntefli
16-16, Stjaman vann KR 25-19 og
Víkingur burstaði Ármann 30-10.
Fram hefur 32 stig, FH 25, Stjarn-
an 22, Víkingur 17, KR 16, Valur
14, ÍBV 3 og Ármann 1.
um með 5 stiga mun og ÍR því
samanlagt með 9 stigum. Tveir leikir
verða í bikarnum í kvöld, Valur-KR
og Keflavík-Njarðvík.
Handknattleikur - 1. deild kvenna:
Fram nær öruggt
IR í undanúrslit
Kristján Arason Ieggur sig allan í þrumuskotin og hér er eitt slíkt á ferðinni. Boltinn lá líka í markinu augnarbliki síðar án þess að júgóslavneski
markvörðurinn gæti rönd við reist. Tímamynd Pjetur.
Hársbreidd frá jafntefli á móti
heimsmeisturum Júgóslava
- úrslitin 20-19 eftir gífurlega spennu í stórgóöum leik
„Árangurinn í heildina í þessum leik er
mjög góður þrátt fyrir að við höfum tapað
með einu marki því leikurinn gat farið á
hvorn veginn sem var,“ sagði Bjarni
Guðmundsson leikreyndasti leikmaður ís-
lenska landsliðsins í handknattleik í gær-
kvöld eftir að landsliðið tapaði naumlega
fyrir Ólympíu- og heimsmeisturum Júg-
óslava, 20-19 í stórgóðum og æsispenn-
andi leik í Laugardalshöll í gærkvöld.
Og þetta eru orð að sönnu, leikur
íslenska liðsins var stórgóður og tapið því
kannski ekki alveg eins sárt. En litlu
munaði að úrslitin yrðu hagstæðari, sigur-
mark Júgóslava kom aðeins 26 sekúndum
fyrir leikslok, mínútu eftir að Kristján
Árason var rekinn af leikvelli, vafasamur
dómur. Gífurleg spenna ríkti síðustu
sekúndurnar og eftir að einn Júgóslavinn
var rekinn af leikvelli fengu íslendingar
tvö aukaköst. Það síðara tók Sigurður
Sveinsson, stillt var upp fyrir hann og
þrumuskot hans fór í gegnum vörnina en
var varið og þar með rann leiktíminn út.
Tap staðreynd en ótrúlega tæpt.
íslendingar skoruðu fyrsta markið og
voru yfir framanaf uns Júgóslavar náðu að
jafna 5-5. Jafnt var á flestum tölum út
hálfleikinn og staðan í leikhléi 11-11.
Snemma í fyrri hálfleik kom slæmur kafli
þar sem Júgóslavar gerðu 5 mörk í röð,
staðan orðin 12-16. Var þar um að kenna
slæmri nýtingu íslenska liðsins á færunum
og það dugir ekki á móti heimsmeisturun-
um. Ekki entist munurinn þó lengi því
íslensku strákarnir jöfnuðu aftur með
mikilli stórskotahríð, fyrst 17-17 en síðan
19-19 eftir að vera undir 17-19. Þá kom að
lokakaflanum sem fyrr var sagt frá og
úrslit sem fyrr sagði 20-19.
„Júgóslavar leika mjög skemmtilegan
og góðan handknattleik" sagði Bogdan
Kowalczyk landsliðsþjálfari eftir leikinn.
„Þeir eru líkamlega mjög sterkir og spil-
uðu fast en það gerðum við líka og við
hefðum alveg eins átt að vinna þennan
leik. Við misstum Kristján útaf ósann-
gjarnt þegar ein og hálf mínúta var eftir
en það hefði samt ekki átt að skipta öllu
ef á heildina er litið. Júgóslavarnir spiluðu
sérstaklega góða vörn, komu vel út á
móti, trufluðu Kristján og lokuðu á sam-
vinnu hans við Þorgils Óttar,“ sagði
Bogdan Kowalczyk og bætti því við að
það að fá ekki á sig nema 20 mörk á móti
Júgóslövum yrði að teljast býsna gott.
„Ég er vongóður með leikinn á morgun,"
sagði Bogdan. Það er líka ástæða til, liðin
voru mjög svipuð að getu í þessum leik,
sjálfir heimsmeistararnir geta alls ekkil
bókað sigur gegn íslendingum á heima-
velli.
Kristján Arason var að öðrum ólöstuð-
um besti maður íslenska liðsins í þessum
leik. Hann lék mjög vel bæði í vörn og
sókn og skoraði 7 mörk. Aðrir leikmenn
áttu allir góðan leik, unnu gífurlega vel í
vörninni og sóknin gekk eins vel og hægt
er að búast við gegn mjög sterkri júgó-
slavneskri vörn. Ekki er ástæða til að
skýra nánar frá frammistöðu einstakra
leikmanna, hún var mjög góð ef frá eru
talin nokkur misnotuð færi sem e.t.v. hafa
skipt sköpum fyrir úrslit leiksins. Mark-
varslan hefur verið enn betri en ekki er
alltaf hægt að ætlast til að Einar Þorvarð-
arson skelli alveg í lás og hann varði mjög
vel á mikilvægum augnablikum í seinni
hálfleik.
Sigurður Sveinsson fékk enn eina ferð-
ina það erfiða hlutverk að koma af
bekknum rétt í lokin bara til að skjóta í
vonlítilli aðstöðu, mjög erfitt hlutskipti en
hann gerði sitt besta og var mjög nálægt
því að skora.
Varla þarf að nefna frekar að júgóslavn-
„Það var mjög gaman að spila þennan
tvöhundruðasta landsleik, það er alltaf
gaman að spila á móti Júgóslövum, þeir
spila skemmtilegan handbolta. Ég vona
samt að leikur nr. 201 verði árangursrík-
ari,“ sagði Bjarni Guðmundsson eftir leik
íslendinga og Júgóslava í gærkvöld.
“Leikurinn hefði getað farið á hvorn
veginn sem var, við stóðum okkur illa í
upphafi seinni hálfleiks og misstum leik-
inn niður í fjögur mörk en vorum búnir
að vinna það upp aftur og það gat allt gerst.
síðustu tvær mínúturnar. Dómararnir
gerðu að vísu slæm mistök í lokin þegar
þeir ráku Kristján útaf, það var svo
augljóst að Júgóslavinn hélt hendinni á
Kristjáni þannig að þeir duttu báðir enda
hristi innri dómarinn höfuðið, greinilega
ekki sáttur við frammistöðu félaga síns.
Þetta var skemmtilegur leikur milli
tveggja góðra liða, Júgóslavarnir eru mjög
tekniskir, spila alltaf mjögnálægt vörninni
og geta haldið boltanum bó mikið gangi
eska liðið er sterkt, mjög sterkt. Bestu
menn þess voru þeir Portner og Saracevic
en liðið er ein sterk heild.
Mörk íslenska liðsins gerðu: Kristján
Arason 7(2), Alfreð Gíslason 4, Bjarni
Guðmundsson, Páll Ólafsson og Þorgils
Óttar Mathiesen 2 hver, Atli Hilmarsson
og Guðmundur Guðmundsson 1 hvor.
Mörk Júgóslava: Portner 5, Jarak og
Saracevic 4 hvor, Uzeirevic 3, Perkovac
og Smailagic 2 hvor.
Liðin leika aftur í Laugardalshöll í
kvöld kl. 20.30 og auðvitað verður aftur
uppselt, áhorfendur í gærkvöld voru stór-
kostlegir og eiga heiður skilinn fyrir
frammistöðuna. Meðal áhorfenda í kvöld
verður stuðningsmannahópur íslenska
liðsins frá HM í Sviss og munu þeir ætla
að gera allt vitlaust.
á. Nú er bara að bæta sig aðeins fyrir
morgundaginn og þá vinnum við þá.
Bjami Guðmundsson var leystur út með
gjöfum fyrir 200. landsleik sinn i gær-
kvöldi og einnig veitti Sveinn Björnsson
forseti ÍSÍ honum gullmerki sambandsins.
Tímamynd Pjetur.
Nafn Varin skot bolta náð bolta tapað mín. inná
Einar 6 - - 60
Brvniar - . . 0
Nafn mörk mish. skot. góðar send. bolta náð bolta tapað fiskuð víti mín. inná
ÞorailsÓttar 2 - - 1 1 2 58
Biarni 2 2 - . . . 38
Karl - 1 - . - - 22
Alfreð 4 3 . 1 1 - 44*
Páll 2 - 1 - 1 - 60*
Guðmundur 1 2 - 1 - - 60
Kristián 7/2 5 _ _ _ . 60
Geir . . _ 1 . . 60*
Siqurður - 1 . . . - 0:05
„Atli 1 _ _ _ 1 _ 38*
* Páll spilaði aðeins sókn og Geir aðeins vörn allan leikinn. Það sama má segja um Atla
og Alfreð hluta af leiknum.
Bjami Guömundsson:
„Vona að leikur nr. 201
verði árangursríkari“
Þriðjudagur 24. febrúar 1987
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
lllllllllll:
II1II11I1I1
Blak: w
Þróttur og IS urðu
deildarmeistarar
ÍS tryggði sér um helgina deild-
armeistaratitilinn í 1. deild kvenna í
blaki, þær töpuðu að vísu 1-3 (14-16,
9-15, 15-5, 2-15) fyrir Víkingi en
þessi eina hrina dugði þeim til að
sigra. Svo jöfn var keppnin að ef
Víkingur hefði unnið 3-0 hefði Vík-
ingur orðið í 1. sæti en hinsvegar í
því 3. ef þær hefðu tapað leiknum og
þá Breiðablik í 2. sæti. f hinum
kvennaleiknum um helgina vann
Breiðablik KA 3-1.
Lokastaðan í deildakeppninni í 1.
deild kvenna varð þannig:
fS................. 10 8 2 25-9 16
Víkingur.......... 10 8 2 24- 9 16
Breiðablik .... 10 7 3 25-11 14
Þróttur ........... 10 5 5 19-17 10
KA................ 10 1 9 6-27 2
HK................ 10 1 9 3-29 2
Efstu liðin fjögur leika svo um
íslandsmeistaratitilinn í úrslita-
keppninni, fS gegn Þrótti og Víking-
ur gegn Breiðablik. Það lið sem fyrr
sigrar í tveimur leikjum fer áfram í
úrslitaleikinn en hin leika um 3.
sætið.
HK sat eftir
Þróttur varð deildarmeistari í kar-
laflokki, hlaut 26 stig af 28 möguleg-
um. Þeir unnu auðveldan sigur á
Þrótti Neskaupstað í síðasta leik,
3-0 (15-4, 15-4, 15-12). HK tapaði
3-1 (14-16, 15-4, 16-14, 15-8) fyrir
Víkingi og missti þar með af sæti í
úrslitakeppninni. Önnur úrslit:
Fram-KA 2-3 (14-16, 7-15, 15-11,
15-10, 5-15), ÍS-Þróttur N. 3-1 (15-
10, 10-15, 15-6, 15-5) og loks HSK-
KA 1-3 (2-15, 10-15, 15-10, 6-15)
Lokastaðan í deildinni:
Þróttur .......14 13 1 41-12 26
Víkingur .... 14 9 5 31-19 18
Fram ............ 14 8 6 31-25 16
ÍS............... 14 8 6 31-28 16
HK............. 14 8 6 28-26 16
KA............. 14 6 8 27-30 12
Þróttur Nes. . . 14 3 11 19-39 6
Glíma:
Ólafur og
Lárusunnu
Ólafur Haukur Ólafsson KR
sigraði í flokki fullorðinna í Bik-
arglímu íslands um helgina.
Hann sigraði alla andstæðinga
sína nema hvað jafnglími varð í
úrslitaglímunni. Annar varð Jón
Unndórsson Leikni og þriðji
Helgi Bjarnason KR.
í unglingaflokki varð sigurveg-
ari Lárus Björnsson HSÞ en fé-
lagi hans úr Þingeyjarsýslunni
Arngeir Friðriksson varð annar.
(slandsmótiö í handknattleik, 1. deild:
Stjarnan hafði það
Staðan:
Víkingur . . . .. 13 11 1 1 312-266 23
Breiðablik . . . . 13 8 2 3 300-290 18
FH .. 13 8 1 4 325-294 17
Valur .. 13 7 2 4 326-293 16
Stjarnan .... .. 13 6 2 5 328-301 14
KA .. 13 5 2 6 300-310 12
KR .. 13 5 1 7 263-285 11
Það var öðru fremur tvennt sem
varð til þess að Stjörnumenn sigruðu
Hauka í leik liðanna í Hafnarfirði á
laugardaginn. Annað var góð
markvarsla Sigmars Þrastar Óskars-
sonar en hitt var bráðlæti Hauka í
sóknarleiknum. Þeir virtust lengst af
ætla að skora tvö mörk í hverri sókn
en slíkt gengur sjaldnast upp. Svo
var heldur ekki í þetta skiptið,
Haukar keyrðu hraðar en þeir réðu
við, Stjörnumenn gengu á lagið og
sigruðu.
Varnarleikur beggja liða var góð-
ur en sóknin síðri þó hún batnaði til
muna hjá Stjörnunni er á leið.
Haukar virtust í upphafi hafa alla
burði til að sigra og voru yfir 5-2.
Ekkert varð úr og Stjarnan hafði yfir
9-7 í hálfleik. Sá tveggja marka
munur hélst lengi vel en þegar
staðan var 15-17 gerðu Stjörnumenn
5 mörk gegn 1 og unnu 22-16.
Besti maður Stjörnumanna var
Sigmar Þröstur í markinu en Hannes
Leifsson, Gylfi Birgisson og Skúli
Gunnsteinsson stóðu allir vel fyrir
sínu. Hjá Haukum var Gunnar
markvörður góður en enginn úti-
leikmanna áberandi betri en aðrir.
Mörkin, Stjarnan: Hannes 7(4),
Skúli 6, Gylfi 5, Einar, Hafsteinn,
Páll og Sigurjón 1 hver. Haukar: Jón
Örn 4, Pétur og Ólafur 3 hvor,
Sigurjón 2(1), Helgi, Ingimar og
Ágúst Sindri 1 hver.
Dómarar: Guðjón L. Sigúrðsson
og Hákon Sigurjónsson, slakir.
HM á skíðum:
Einar í 26. sæti
Einar Ólafsson varð f 26. sæti í
50 km göngu á Heimsmeistaramót-
inu í norrænum greinum skíðaí-
þrótta sem lauk í Oberstdorf á
sunnudag. Einar gekk á 2 klst.
22:16,6 mín. og var 11 mín. á eftir
Maurilio de Zolt frá Ítalíu sem
sigraði í göngunni. Alls luku 55
keppendur göngunni en 10 voru
dæmdir úr leik.
De Zolt frá Ítalíu sigraði sem
fyrr sagði, Thomas Wassberg frá
Svíþjóð varð í 2. sæti og Torgny
Mogren landi hans varð þriðji.
Svíar urðu sigursælastir á mót-
inu, fengu 3 gull, tvö silfur og 3
brons, Norðmenn komu næstir (2-
4-4) og Finnar þriðju (2-3-0).
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild:
Kláraði KR deildina?
- þeir unnu FH og gerðu þar með því nær út um
alla baráttu á toppi eða botni
Ekki er fjarri sanni að KR-ingar
hafi gert út um alla botn- eða
toppbaráttu í 1. deildinni í hand-
knattleik þegar þeir unnu FH á
sunnudagskvöldið. FH varð að vinna
leikinn til að eiga möguleika á að ná
Víkingum og KR hefði í verið í
fallhættu hefðu þeir tapað, svo ekki
sé nú talað um ef Haukar hefðu
unnið líka en svo fór nú ekki. Að
vísu eru 5 umferðir eftir í deildinni
og ýmislegt getur gerst en miklar
breytingar verða að teljast afar ólík-
legar.
Sigur KR á FH kom eftir mikinn
hasar í lokin, jafnt var 24-24 en
Héðinn Gilsson skoraði 25-24 fyrir
FH þegar 1:45 mín. var eftir. Guð-
mundur Pálmason jafnaði af línunni
fyrir KR sléttri mfnútu fyrir lok og
aftur allt í járnum. Hálfri mínútu
Þau óvæntu úrslit urðu í B-Heims-
meistarakeppninni í handknattleik á
sunnudagskvöldið að Tékkar náðu
aðeins jafntefli gegn Búlgörum 21-
21. Önnur úrslit í 2. riðli: Danmörk-
síðar voru dæmd skref á FH, KR-
ingar brunuðu upp og Sverri Sverr-
issyni tókst að skora 26-25. Þá voru
einar níu sekúndur eftir og FH-ingar
drifu sig upp en Gísli Felix Bjarna-
son varði glæsilega frá Gunnari
Beinteinssyni á síðustu sekúndunni.
Leikurinn var mjög jafn allan
tímann, FH-ingar lengst af 1-2 mörk
yfir en KR jafnaði alltaf öðru hvoru.
Staðan í hálfleik var 12-11 FH í hag.
Ekki var leikurinn mjög vel leikinn,
mikið um mistök, sérstaklega í sókn-
arleiknum, en spennandi var hann.
Rauði liturinn setti svip sinn á leik-
inn, þrír KR-ingar, liðsstjórinn og
tveir leikmenn fengu kortið, liðs-
stjórinn fyrir að vera ekki sammála
dómurunum en þeir Páll Ólafsson
og Þorsteinn Guðjónsson fyrir að
vera sendir útaf þrisvar í tvær mínút-
Bandaríkin 23-15, V-Þýskaland-
Sviss 22-17. f 1. riðli: Rúmenía-
Frakkland 27-19, Pólland-Noregur
34-24, Sovétríkin-Ítalía 27-12.
ur. Dómararnir, þeir Rögnvald Erl-
ingsson og Gunnar Kjartansson voru
slakir og ekki nægilegt samræmi í
því hvernig þeir dæmdu.
Bestu menn KR voru þeir Sverrir
Sverrisson sem þó hefði mátt nýta
skotfærin betur og Þorsteinn Guð-
jónsson sem er hreint ótrúlega fljót-
ur í hraðaupphlaupin. Þá lék Gísli
Felix ágætlega í markinu. Hjá FH
voru þeir Gunnar Beinteinsson,
Héðinn Gilsson, Þorgils Óttar Mat-
hiesen og Magnús Árnason í mark-
inu allir ágætir. Mörk KR gerðu:
Sverrir Sverrisson og Þorsteinn
Guðjónsson 6 hvor, Jóhannes
Stefánsson 5(3), Konráð Olavsson
og Ólafur Lárusson 4 hvor, Guð-
mundur Pálmason 1. Mörk FH:
Gunnar Beinteinsson 6, Héðinn
Gilsson 5, Óskar Helgason og Þor-
gils Óttar Mathiesen 4 hvor, Óskar
Ármannsson 3, Ólafur Kristjánsson
og Pétur Petersen 1 hvor.
íþróttir eru líka
ábls. 12
Tékkar töpuðu stigi