Tíminn - 24.02.1987, Blaðsíða 14
14 Tíminn
NEYTENDASÍÐAN
- eftir Svanfríði Hagvaag
MATARMIKIL
KJÖTBOLLUSÚPA
250 gr. hakk
2 tsk. saxaður laukur
2 msk. ósoðin hrísgrjón
1/2 tsk. salt
ögn af pipar
1/2 msk. matarolía
1 lítill laukur, saxaður
1 lítill hvítlauksbátur, saxaður
1/2 bolli gulrætur í þunnum sneiðum
1/2 bolli saxað selleri
1 lítil dós tómatar
1 bolli gott kjötsoð
2 bollar vatn
1/4 tsk. oregano
ögn af Tabasco
ögn af Worcestershire sósu
Blandið saman hakkinu, 2 tsk. af söxuðum lauk,
hrísgrjónum, salti og pipar. Mótið í kjötbollur sem eru um
það bil 2-3 sm í þvermál. Hitið matarolíuna á þykkbotna potti
og brúnið kjötbollurnar þar í. Takið bollurnar síðan af
pönnunni.
Steikið laukinnoghvítlaukinn ífeitinni sem eftirerþangað
til iaukurinn er orðinn mjúkur og glær. Bætið afganginum af
innihaldinu út í ásamt kjötbollunum. Látið lok á pottinn og
látið malla í30mínútur. Fleytiö alla feiti ofan af. Smakkiðog
kryddið ef með þarf. Þynnið súpuna með vatni ef með þarf.
LINSUSÚPA
MEÐ BJÚGUM
250 gr. mild bjúgu
1 meðallaukur, saxaður
I hvítlauksbátur, saxaöur
1/2 bolli fínsaxað selleri
1/2 bolli fínsöxuð gulrót
1/2 bolli fínsöxuð græn paprika
1 lítil dós tómatar
4 bollar gott kjötsoð
1 lítið lárviðarlauf, mulið
1/4 tsk. rosemary
1/4 tsk. timian
1 bolli linsur
salt og pipar
nýrifinn ostur (má sleppa)
Skerið bjúgun smátt og brúnið þau létt, hellið feitinni frá.
Bætiðút ílauk , hvítlaukogsaxaðagrænmetinu,steikið í2-3
mínútur og hrærið stöðugt í á meðan.
Bætið út í tómötunum, kjötsoðinu og kryddinu. Látið
suðuna koma upp og hrærið vel í til að merja í sundur
tómatana. Bætið út í linsunum, látið lok á pottinn og látið
malla í um það bil 45 mínútur eða þangað til linsurnar eru vel
soðnar.
Bætið út í meira vatni eða soði ef súpan ætlar að verða of
þykk. Bætið út í salti og pipar eftir smekk. Berið fram með
rifnum osti ef vill.
Húsráð Svanfríðar
Flauelsgluggatjöld
Ef það koma blettir í flauels-
gluggatjöldin og þau eru kannski
nýkomin úr hreinsun er upplagt að‘
prófa eitt ráð áður en þau eru send1
aftur í hreinsun. Leggið glugga-
tjöldin á borð eða gólf. Stráið fínu
salti yfir þau og nuddið það vel inn,
sérstaklega þar sem bletturinn er.
Farið síðan með þau út og hristið
vel. í flestum tilfellum ætti blettur-
inn að fara.
Hækkið eldhúsbekkinn
Það er oft slæmt fyrir bakið ef
eldhúsbekkurinn er ekki mátulega
hár. En það er hægt að bjarga því
við með einföldu ráði. Takið gott
skurðarbretti, borið fyrir skrúfum
í hverju horni. Sagið mátulega háa
fætur úr kústskafti og skrúfið fasta.
Nú er hægt að nota brettið til að
skera og saxa á því án þess að það
sé áraun fyrir bakið. Annar kostur
við brettið er sá að ef notuð eru
grunn ílát undir það sem verið er
að skera niður er þægilegt að ýta
því yfir í ílátið með hnífnum.
Soðin egg
Ef erfitt er að ná skurninu
utan af soðnu eggi er oft auðveld-
ara að nota til þess skaftið af
teskeið. Látið kalda vatnið renna,
setjið eggið oft undir á meðan
verið er að ná skurninu af. Ef
keypt eru alveg nýorpin egg þarf
helst að geyma þau í uppundir viku
áður en gott er að ná skurninu af
þeim þegar þau eru harðsoðin.
Þriöjudagur 24. febrúar 1987
Léttari matarvenjur
auðveldari megrun
Það er oft erfitt að halda nýárs-
heitin og eftir því sem tíminn líður
frá áramótum eru þau oft orðin lítils
virði. En það á aldrei að segja; „Ég
fer í megrun seinna“ - byrjaðu
núna. Endurskipulegðu matarvenj-
ur þínar með því að lesa í gegnum
þessar hugmyndir og ef þú ferð eftir
þeim ætti árangurinn fljótlega að
koma í ljós.
1 Borðaðu aðeins þegar svengdin
kallar að, ekki aðeins vegna þess að
nú er matmálstími.
2 Hættu að borða þegar ekki finnst
lengur fyrir svengd.
3 Aðlagaðu líkamann, borðaðu
aðeins þegar hann segir að hann
þurfi mat.
4 Líttu á matinn eins og eldsneyti.
- ekki sem verðlaun fyrir eitthvað
eða sem hughreystingu. Það er líka
eitur að borða þegar manni leiðist.
5 Borðaðu aðeins við matborðið
en ekki standandi og alls ekki úti á
götu.
6 Þegar þú borðar, gerðu þá ekkert
annað á meðan eins og t.d. aö lesa
eða horfa á sjónvarp.
7 Fáðu þér aldrei sælgæti þegar þú
ert í bíó.
8 Haltu megrunardagbók og skrif-
aðu niður í hana allt sem þú borðar.
9 Reiknaðu út hitaeiningamagnið
á öllu sem þú borðar og notaðu til
þess góðan lista yfir hitaeiningarnar
í mat.
10 Finndu út hvað þú þarft margar
hitaeiningar á dag tií að halda þinni
réttu þyngd.
11 Skrifaðu í dagbókina hvers
vegna þú þarft að borða. Ertu viss
um að það hafi verið vegna
svengdar?
12 Berðu saman hvers vegna þú
þarft að borða á hverjum tíma fyrir
sig. Er einhver sérstakur hættutími?
13 Finndu út aðferðir til að forðast
freistingar á hættutímum.
14 Hugsaðu um eitthvað annað en
mat á milli mála.
15 Hugsaðu þér ekki kaffitíma senr
matmálstíma.
16 Reyndu að finna þér eitthvað
að gera sem dreifir huganum þegar
þú finnur að þú ferð að hugsa um
mat.
17 Taktu eftir hvernig þú borðar.
Með græðgi - í laumi eða í flýti.
Taktu þér góðan tíma og hafðu ekki
samviskubit af því að borða.
1 kg fituvefur jafnglldir
7000 HE
1 kg/vlku jafngiídir
1000 HE/dag
t.d. 20 km hlaup
20 km ganga
1 klst. sund
18 Horfstu í augu við að of mikil
þyngd getur stafað af ofáti. Hér
duga engar afsakanir.
19 Taktu ákvörðun um að grennast
hægt, það er auðveldara og gefur
betri árangur en að fara í stranga
megrun.
20 Þegar þú crt í megrun þarf það
ekki endilega að þýða að þú þurfir
að borða minna, aðeins að þú inn-
byrðir færri hitaeiningar.
21 Finndu nýjar uppskriftir af mat
sem þér þykir góður með því að
prófa einhverja megrunarmat-
reiðslubók.
22 Farðu yfir eldhússkápana og
hentu öllu sem inniheldur mikið salt
eða sykur.
23 Birgðu þig upp af hollum mat
með miklu trefjainnihaldi en lítilli
fitu, salti eða sykri.
24 Borðaðu meira af ávöxtum og
grænmeti.
25 Geymdu niðursneitt grænmeti
til að grípa til þegar hungrið segir til
sín.
26 Hættu við allt kex, kökur og
sælgæti, teldu þér trú um að það sé
aðeins fyrir börn.
27 Borðaðu mat sem tekur langan
tíma að tyggja - þú kemst að raun
um að hann fyllir betur.
28 Berðu matinn fram á minni
diskum.
29 Borðaðu aðeins af þínum disk.
30 Fáðuþéraldreiafturádiskinn.
31 Sparaðu hitaeiningarnar: Bak-
aðu í ofni eða grillaðu í staðinn fyrir
að steikja í feiti.
32 Láttu feitina renna vel af steikt-
um mat svo að sem minnst feiti fylgi
með.
33 Steikið egg án feiti. Ef þú átt
ekki pönnu sem ekki festist á er hægt
að gera það með því að setja dálítið
vatn á pönnuna.
34 Notaðu bursta til að bera þunnt
olíulag á mat sem á að steikja.
35 Búðu til pottrétti þar sem þarf
enga feiti.
36 Skerðuostinn íþunnarsneiðar.
37 Kaupa mat til matreiðslu en
ekki snarl.
38 Notaðu undanrennu í staðinn
fyrir mjólk.
39 Notaðuminnifeitiofanábrauð.
40 Ef þú kaupir niðursoðinn fisk
hafðu hann þá í saltvatni en ekki
olíu.
41 Veldu frekar ávexti í eigin safa
þegar þú notar niðursoðna ávexti.
42 Notaðu appelsínu eða ananas-
safa út á salöt.
43 Leitaðu eftir sykurlitlu marmel-
aði.
44 Kauptu aðeins bakaðar baunir
sem innihalda ekki sykur.
45 Notaðu léttjógúrt og bættu út í
nýjum ávöxtum
46 Notaöu nýja ávexti í ábætisrétti
47 Notaðu ekki mjólk eða rjóma
út í kaffi eða te.
48 Borðaðu aðeins fitulítið kjöt.
49 Ljóst kjöt inniheldur færri hita-
einingar en dökkt kjöt.
50 Notaðu aðeins fitulítinn fisk.