Tíminn - 24.02.1987, Síða 15
Þriðjudagur 24. febrúar 1987 Tíminn 15
llllllllilllllllllllll minning :i-. .................... ::vv .........................-.................. ............... ^'I; ..... ...... .......... ................. ................. ... ^ '-il' ;lli.
Jón Ágúst Ketilsson
„Tilvera okkar
er undarlegt ferðalag.
Við eruni gestir
og hótel okkar er jörðin.
(Tómas Guðmundsson)
Frændi og vinur ýtti úr vör, af stað
yfir móðuna miklu. hljóðlega, rétt
fyrir miðnætti þann 16. þ.m. Dvalar-
tíminn á Hótel Jörð liðinn, og þráin
djúpa eftir hvíldinni var uppfyllt.
Jón Agúst Ketilsson var fæddur
að Einholti í Biskupstungum 8. ágúst
1908, yngstur 5 barna hjónanna
Stefaníu Stefánsdóttur og Ketils
Jónssonar, bónda, er bjuggu lengst
af að Minni-Ólafsvöllunt, Skeiðum.
Nú eru þau öll látin.
Er Jón fæddist höfðu foreldrar
hans orðið að bregða búi og koma
hinum börnunum í fóstur um nokk-
urra ára skeið, vegna alvarlegra
veikinda Ketils, en eftir að hann
fékk bata, hófu þau búskap á ný, að
Auðsholti í Biskupstungum, og þar
sameinaðist fjölskyldan aftur. Þegar
Jón var 12 ára flutti Ketill með
heimilið að Minni-Ólafsvöllum, og
bjó þar, uns hann hætti vegna aldurs,
og flutti ásamt Stefaníu til Reykja-
víkur.
Hugur Jóns stefndi ekki til bú-
skapar í sveit, en snemma kom í
ljós, að hann var fæddur trésmiður.
„Biddu hann Jón að laga þetta, hann
getur allt,“ sögðu nágrannarnir í
Ólafsvallahverfinu, þegar einhver
áhöld, sem þá voru flest úr tré,
biluðu, og ekki stóð á hjálpfýsi
Jóns.
Árið 1935 flutti Jón til Reykjavík-
ur, og stundaði ýmsa vinnu í landi
eða á togurum, eftir því, sem hún
fékkst á þeim atvinnuleysisárum.
Honum var mikið í mun að sjá fyrir
sér og sínum.
Með hernáminu 1940 hefst nýr og
betri þáttur í lífi Jóns. Þá tekur hann
til við húsasmíðar, og þar með er
ævistarfið, sem hugur hans stóð til,
hafið að fullu. Hann var traustur
smiður, smekkvís, ósérhlífinn og
duglegur, tryggur starfsmaður hverj-
um húsbónda. Honum nægði þó
ekki til lengdar að stunda smíðarnar
einar, liann vildi og skyldi afla sér
fullra iðnréttinda, og bætti því við
sig námi í Iðnskólanum á kvöldin.
Hann lauk því með ntjög góðum
árangri á aðeins 2 árum, og svo
skemmtilega atvikaðist það, að
sveinsbréf sitt í húsasmíði fékk hann
þann dag, sem hann varð 40 ára.
Það lýsir enn betur dugnaði og
áræði Jóns, að á sama tíma og hann
var í náminu, hóf hann að byggja
reisulegt, rúmgott og vandað hús sitt
að Sörlaskjóli 7, og vann við það
öllum stundum, sem gáfust frá námi
og brauðstriti. Þá voru það oft lúnar
hendur og fætur, sem lögðust seint
til hvíldar til að geta risið til brauð-
stritsins næsta morgun.
Jón kvæntist æskuvinkonu sinni,
Unu Ingimundardóttur, frá Andrés-
fjósum, Skeiðum, og lifir hún mann
sinn. Ekki varð þeim hjónunt barna
auðið saman, en Una átti fyrir son,
Guðmund Má Brynjólfsson, oggekk
Jón honum í föðurstaðog ættleiddi.
Jón var mikill barnavinur og
barnagæla. Atvikin höguðu því svo
að þau Una tóku í fóstur nokkurra
mánaða telpu, er þau ættleiddu
síðar. Telpan var skírð Sesselja.
Þetta reyndist þeim öllum hið mesta
gæfuspor. Sesselja varð strax auga-
steinn og yndi Jóns, og svo samrýmd
urðu þau feðgin, að af bar.
Ský dró fyrir sólu. Á miðjum
vinnudegi 9. apríl 1975 hnígur Jón
niður, meðvitundarlaus. Blóðtappi.
hann missir máttinn hægra megin,
og mál og minni um skeið. Fyrst á
eftir virðist ætla að rætast úr, en
síðan koma ný áföll, ýmissa tegunda.
Þannig hófst og gekk tæplega 12 ára
tímabil þjáninga, vona og von-
brigða, baráttu og ósigra, sem lauk
við kallið eina, sem ekkcrt okkar
kemst hjá að hlýða. Á þessu langa,
langa tímabili fékk Jón að njóta
ríkulega endurgjalds í kærleika og
umhyggju konu og barna sinna, er
gáfu honum ómældan styrk, og báru
byrðarnar með honum til hins síð-
asta. Við sjáum oft skamrnt fram á
veginn. Góður drengur og ástvinur
er syrgður, en um leið má samfagna
honum, að þrautunum skuli vera
lokið.
„Því það er svo misjafnt,
sem mennimir leita að,
og misjafn tilgangurinn,
sem fyrir þeim vakir. “
(Tómas Guðmundsson)
í góðri bók er okkur kennt, að
veröldin er ekki nema brú; við
eigum að fara um brúna, en ekki
reisa bústaði okkar á henni.
Ekkert í lífinu er tilviljun. Allt
hefur sinn tilgang. Við sjáum þennan
tilgang oft ekki, á stundum kemur
hann í Ijós löngu síðar, og þá skýrist,
að eitt og annað, sem okkur reynist
erfitt að mæta og umbera, felur í sér
jákvæðan tilgang. Lífið er skóli, það
eru ekki allir í sama bekk, en allir
?ru að læra og þroskast. Glíman við
erfiðleikana kennir okkur meira en
velgengnin, hvort sem okkur tekst
að sjá það nú eða síðar. Erfið-
leikarnir sjálfir skipta ekki höfuð-
niáli, þegar upp er staðið, heldur
hvernig okkur tekst að mæta og
vinna úr þeim, hverju um sig. Ýmsir
fá úthlutað stærri skammti, sem ekki
sér fyrir endann á, en æðruleysi,
átök og sáttfýsi við örlögin vinna
kraftaverk.
Kvaddur er góður og hjálpfús
vinur, með þökk fyrir samfylgdina.
Minningarnar geymast, ntargar og
góðar. Fullvissa um, að við tekur
ódáinsakur, að loknu úthlutuðu
dagsverki hér á Jörð.
Sigurður Gunnarsson
Hans Ingiberg
Meyvantsson
Borgarnesi
Fæddur 23. janúar 1913
Dáinn 16. febrúar 1987
Það er oft skammt á milli lífs og
dauða, og á það erurn við oft minnt,
ef til vill svo við gætum betur göngu
okkar hér á jörðu.
Þegar við Hansi kvöddumst að
loknum vinnudegi, föstudagskvöldið
13. febr. sl., var hann að vanda hress
í bragði og frískur í tali. Ég átti von
á því að hitta hann á sama stað
klukkan eitt á komandi mánudegi.
En skömmu fyrir hádegi þann dag
hringdi Halldór sonur hans til mín,
og sagði mér, að faðir sinn væri
mættur - á öðrum stað.
Á laugardag stjórnaði Hansi fé-
lagsvist hjá Framsóknarfélagi Mýr-
armanna, eins og hann var vanur, en
snemma á sunnudagsmorguninn var
hann fluttur út á Sjúkrahús Akra-
ness, - og þar lést hann mánudags-
morguninn 16. febrúar s.l.
Hans gekk ekki heill til skógar.
Hann hafði tvívegis fengið alvarleg
hjartaköst, en náði sér furðuvel í
bæði skiptin, þótt mikið vantaði upp
á að hann fengi aftur fullan
starfsþrótt.
Það kom samt flestum á óvart,
hversu skjótt hann lagði upp í sína
hinstu för.
Við Hansi kynntumst fyrir réttum
30 árum, - sumarið 1957. Ég var þá
nýkominn til Borgarness og hann
þar í vinnu, en búsettur á Borg.
Síðan höfum við alltaf verið góðir
kunningjar, - og nú sl. tvö ár nánir
samstarfsmenn hjá Rafveitu Borg-
arness.
Þar var Hansi þá búinn að vinna
um tíu ára skeið, og áður hafði hann
lengi unnið hjá Borgarneshreppi.
Hansi var skemmtilega hress í tali
og öllu viðmóti, - og sá gjarna
broslegu hliðarnar á tilverunni.
Aldrei heyrði ég hann tala um það
sem miður fór í fari manna.
Hann var samviskusamur og
kappsamur, og ekki í rónni fyrr en
hann hafði lokið því, sem fyrir lá
hverju sinni.
Það er ekki ætlan mín, að rekja
hér æviferil Hansa. Til þess hefði ég
ekki næga kunnleika.
En ég vil þakka þér, Hansi minn,
störf þín fyrir Rafveitu Borgarness,
- og kynni okkar öll. Þú varst trúr
og starfssamur.
Ég sakna þín, - en það er gott að
minnast þín.
Hafðu þökk fyrir samstarfið.
Ég votta eftirlifandi konu, Láru
Sigurðardóttur, börnum þeirra,
tengdabörnum og ekki síst
barnabörnum innilega samúð.
Bjarni K. Skarphéðinsson,
rafveitustjóri.
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis-
og eða minningargreinum í blaðinu,
er bent á, að þær þurfa að berast
a.m.k. tveim dögum fyrir birtingar-
dag.
Þær þurfa að vera vélritaðar.
LANDNÁM
INGÓLFS
Nýtt safn til sögu þess
3
£ I V fl- * V
Landnám
Ingólfs -
Nýtt safn til
sögu þess
Félagið Ingólfur, sem starfaði á
árunum 1935-1942 og nýlega vóu:
endurreist, hefur gefið út bók í
ritröðinni Landnám Ingólfs -
Nýtt safn til sögu þess með
fróðlegum greinum um söguleg
efni.
Þessi bók er þriðja bindið í
fyrrgreindri ritröð og er að mestu
helguð 200 ára afmæh
Reykjavíkurkaupstaðar. Þar er
m.a. að finna grein Guðjóns
Friðrikssonar um Fjalaköttinn,
frásögn Ottós N. Þorlákssonar af
kjörum sjómanna í Reykjavík, sem
er birting frumheimildar og
greinir jafnframt frá stofnun
fyrsta Bárufélagsins. Auk þess er
greinasafn um Skuggahverfi þar
sem má finna greinar eftir Agnesi
Siggerði Arnórsdóttur, Salvöru
Jónsdóttur, Theodóru
Kristinsdóttur og Magnús
Hauksson. Hrafn Ingvar
Gunnarsson ritar um brunamál í
bænum frá 1752 til 1895. Baldur
Hafstað ritar um örnefni í Engey
og Jón Guðmann Jónsson, sem
starfaði hjá Reykjavíkurbæ frá
1918, lýsir vélakosti og aðbúnaði
fram að síðari heimsstyrjöld. Loks
eru myndir af gömlum og
viðfrægum einkennum
borgarinnar Hitaveitutönkunum
og Melavellinum sem nú eru
horfin. Einnig er hér að finna
erindi af ráðstefnu vorið 1985 um
varðveislu skjala, ljósmynda og
fornleifa, frásögn af bókagjöf frá
Noregi og stutta grein Ólafs E.
Stefánssonar. Fjöldi mynda
prýðir bókina, auk korta og
línurita. Dreifingu annast
Sögufélag, Garðastræti 13b.
íslenskar
barnabækur á
færeysku
Föroya Lærarafelag hefur gefið
út tvær bækur eftir Guðrúnu
Helgadóttur. Eru það Jón Oddur
og Jón Bjarni og í afahúsi, sem á
færeysku nefnist í abbasahúsi.
Báðar bækurnar eru fallega út
gefnar. Martin Næs þýddi.
Kolbrún S. Kjarval myndskreytti
bókina um tvíburana en Mikael V.
Karlsson gerði teikningar sem
prýða í abbasahúsi.
Ný söngbók
komin út
Á markað er komin ný
vasasöngbók. Hún heitir
Söngbókin. Kvæðin í hana valdi
Jens Guð. Þau eru valin með
hliðsjón af því að þau henti vel til
fjöldasöngs. Enda er nú sá ársfimi
þar sem árshátíðir og ættarmót
standa sem hæst.
í Söngbókinni er hálfur áttundi
tugur kunnra kvæða. Þau eru að
því leyti ólík kvæðum í áður
útgefnum vísnasöngbókum að
nýjustu og vinsælustu
dægurlagatextarnir, eins og
„Augun mín" og „Serbinn" eftir
Bubba Morthens og „Hesturinn"
með Skriðjöklum, eru hafðir í
bland við gömlu sígildu
vísnasöngkvæðin, s.s. „Fyrr var
oft í koti kátt", „Blátt lítið blóm
eitt er“ o.m.fl.
Annað sem er nýstárlegt við
Söngbókina er að húnm er
myndnskreytt, litprentuð og sett
mjög fjörlega upp. Útgefandi er
vísnafélagið Söngfuglarnir. Bókin
fæst á almennum bóka- og
blaðsölustöðum.
Sönaþiglimiir
Ný ljóðabók
Komin er út ljóðabókin
Endlausir dagar. Höfundur er
Eiríkur Byrnjólfsson.
í bókinni eru fjörutíu ljóð, sem
skiptast í tvo kafla, Loftkennd ljóð
og Jarðbundin ljóð. Bókin er 62
síður.
Þetta er önnur bók höfundar. Sú
fyrri hét í smásögur færandi, 1985.
Bókin veðrur seld í stærstu
bókabúðum, heima hjá vinum og
kunningjum höfundar og hjá
útgefanda, Orðhaga sf. Ægissíðu
129, sími 21465.