Tíminn - 28.03.1987, Qupperneq 14

Tíminn - 28.03.1987, Qupperneq 14
14 Tíminn FRÉTTAYFIRLIT MOSKVA — Sovéska frétta- stofan Tass gagniýndi Mar- gréti Thatcher harolega, aö- eins einum degi fyrir heimsókn breska forsætisráðherrans til Sovétríkjanna. Thatcher mun eiga viðræður við Mikhail Gor- batsjov Sovétleiðtoga og aðra háttsetta ráðamenn þá fimm daga sem hún verður í landinu. MOSKVA — Sovóskir gyð- ingar mótmæltu á friðsaman hátt í miðborg Moskvu og sögðust vonast til að Margrét Thatcher forsætisráðherra Bretlands tæki upp mál þeirra er hún kæmi í heimsókn sína til Sovétríkjanna í dag. LUNDÚNIR - Hið mikla peningamagn sem nú streymir í gegnum hlutabréfamarkaði hefur valdið því að verð á hlutabréfum er orðið gífurlega hátt. Sumir efnahagssér- fræðingar sögðu hið háa hluta- bréfaverð ekki vera réttlætan- legt í Ijósi þess að efnahags- ástandið í heiminum væri óst- öðugt mjög. MOSKVA — Háttsettir so- véskir embættismenn sögðu að mörg erlend fyrirtæki hefðu • sýnt áhuga á samvinnu við Sovétmenn um að setja upp sameiginlegan fyrirtækjarekst- ur í landinu. Þeir bættu við að um þrjátíu drög að samkomu- lagi um sameiginlegan við- skiptarekstur hefðu verið undirrituð við vestræn fyrirtæki til þessa. WASHINGTON - Efna- hagsráð Reagans Bandaríkj- aforseta hefur lagt til að teknar verði upp refsiaðgerðir gegn Japansstjórn fyrir að brjóta samkomulag frá síðasta ári er gert var til að koma í veg fyrir undiitioð Japana á örflögum. BARCELÓNA — Kraftmikil sprengja sprakk í bifreið í Bar- celónuborg á Spáni og varð einum þjóovarðliða að bana. MADRÍD — Flugsamgöngur og ferðir járnbrauta á Spáni stöðvuðust nánast í gær þegar járnbrautarstarfsmenn og starfslið á flugvöllum lagði nið- ur vinnu og gekk í lið með stúdentum og starfsmönnum heilbrigðisþjónustunnar í mót- mælum gegn sósíalistastjórn Felipe Gonzalez forsætisráð- herra. Laugardagur 28. mars 1987 Deilur Grikkja og Tyrkja tóku á sig hættulega mynd í gær: Átðk á Eyjahafi? Reuter Andreas Papandreou forsætisráð- herra Grikklands varaði stjóm Tyrk- lands við því í gær að grískir herir væru viðbúnir til að ráðast gegn hvers konar árásarher. Viðvörun Papandreou kom í kjölfar frétta um að tyrkneskt rannsóknarskip væri á leið til umdeilds hafsvæðis í Eyjahaf- inu og fylgdu því ónefndur fjöldi herskipa. Papandreou sagði á neyðarfundi sem gríska ríkisstjórnin hélt að gríski herinn væri fullfær um að sýna Tyrkjum í tvo heimana ef þeir sýndu árásargirni. í Ankara, höfuðborg Tyrklands, gaf tyrkneski herinn út tilkynningu þar sem rannsóknarskipið Sismik 1 var sagt vera á leið út á umdeilt hafsvæði og myndi skipið sigla inn á þetta svæði í dag. f tilkynningunni var tekið fram að herskip væru í fylgd með Sismik 1. Deilur stjórna þessara tveggja ríkja um hafsvæði á Eyjahafinu, þar sem báðir aðilar vilja leita að olíu, hafa verið að magnast verulega undanfarna daga. Papandreou hefur sakað Tyrki um að vilja skipta Eyjahafinu í tvennt með því að stunda rannsóknir á hafsvæði sem gríski forsætisráðherrann segir vera á grísku landgrunni. Papandreou manaði tyrknesk stjórnvöld í fyrra- dag í að fara með deilumál þetta fyrir Alþjóðadómstólinn í Haag og í gær, er fréttist af ferðum Sismik 1, sagði hann að Grikkir muni stöðva skipið „... að sjálfsögðu ekki með orðum því það er ekki hægt að stöðva það með orðum“. Ríkin tvö eiga bæði aðild að NATO en hafa átt í langvarandi deilum, bæði vegna veru tyrknesks hers á Kýpur og nú vegna hafsvæðis- ins þar sem rannsóknir fara fram. Papandreou telur að 95% þess séu á L grísku landgrunni. f gær var deila þessi svo heiftúðug að bæði NATO og Bandaríkjastjórn virtust ekki geta haft áhrif á gang mála þar suður frá. Sendiherrar NATO ríkjanna héldu þó neyðar- fund í Brússel þar sem deilan og yfirlýsingar gærdagsins voru ræddar. Að honum loknum bauðst Carring- ton lávarður, framkvæmdastjóri bandalagsins, til að reyna að miðla málum og í yfirlýsingu NATO voru ríkin tvö beðin um að grípa ekki til vopna því slíkt myndi ekki aðeins skaða þau heldur myndi einnig hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir Atlantshafsbandalagið í heild. Kína: Sumirsveitamenn kunna ekkert með peninga að fara Pekíng-Reuter Skot er mistókst: Enn eitt áfallið hefur hent geimferðastofnuiiina NASA. Geimflaugaskot misheppnaöist: Bjartsýnin fokin út í veður og vind Kanaveralhöföi-Reuter Sumir kínverskir sveitamenn vilja ekki geyma peninga sína í banka heldur fela þá heima hjá sér þar sem þeir oft grotna ellegar eru étnir af rottum. Það var dagblað í Kína sem skýrði frá þessu í gær. Blaðið Efnahagsupplýsingar birti bréf frá lesanda í Shanxihéraði í miðhluta landsins og sagðist hann hafa heimsótt bónda er hann þekkti. Sá hafði heldur leiðinlega sögu að segja bréfritaranum; hann hafði sparað í fimm ár og átti 2000 yuan sem hann geymdi í holu í jörðinni, en ekki fór betur en svo að peningarnir grotnuðu í geymsl- unni og urðu óbrúklegir. Bréfritarinn sagði aðra bændur fela peninga sína í veggjum eða upp á loftum í húsum sínum þar sem rottur kæmust auðveldlega að og virtust þær hafa bestu lyst á kínverska gjaldmiðlinum. Dagblaðið sagði suma bændur ekki hafa nokkurt vit á hvernig þeim bæri að nota peninga, í stað þess að setja þá í banka geymdu þeir þá á heimilum sínum svo að vandamennirnir gætu notað þá er dauðinn kæmi í heimsókn. Aðrir vissu, jú, af bönkum en þyrðu ekki að setja peningana inn þar sem þeir óttuðust að nágrannarnir kæmust að hversu vel þeir væru settir fjárhagslega. Forystumenn bandarísku geim- ferðastofnunarinnar NASA urðu fyrir enn einu áfallinu í fyrradag þegar þeim mistókst að senda Atlas- Centaur geimflaug á loft. Þetta var að vísu ómönnuð geimflaug en áfall- ið var engu að síður verulegt í ljósi þess að mikil endurskipulagning hafði staðið yfir hjá stofnuninni síðan geimflaugin Challenger sprakk í loft upp þann 28. janúar á síðasta ári og fórust þar allir áhafnar- meðlimir, sjö talsins. „Rétt í þann mund er haldið var að óhætt væri að fara út í geiminn fær NASA ný vandamál að fást við,“ ' sagði John Pike hjá stofnun banda- rískra vísindamanna í Washington sem hefur gcimáætlanir á dagskrá sinni. Geimflaugin, sem kostaði 78 millj- ónir dollara, átti að fara með fjar- skiptahnött út í geiminn sem nota átti í hernaðarlegum tilgangi, nefni- lega til að halda sambandi milli forseta Bandaríkjanna og yfirmanna í skipum og flugvélum Bandaríkja- hers sem og hershöfðinga á vígvellin- um sjálfum. Ljóst var að geimflaugin lét ekki að stjórn skömmu eftir að henni hafði verið skotið á braut og sprengdu starfsmenn NASA hana í tætlur innan við mínútu seinna. Fjarskiptahnötturinn eyðilagðist einnig en hann var stykki upp á 83 milljónir dollara. Líklegt er talið að eldingu hafi lostið í eldflaugina og valdið því að hún lét ekki að stjórn á jörðu niðri en sambandsleysið varð eftir að flaugin hafði farið í gegnum þykkt regnský. Starfsmenn NASA fá nú það verkefni að reyna að safna saman og hirða leifarnar af eldflaug- inni, verk sem gæti tekið um tvo mánuði. NASA hcfur mátt þola hvert áfall- ið á fætur öðru við að framkvæma geimáætlanir Bandaríkjastjórnar. Versta hörmungin varð þegar Chall- enger sprakk í loft upp á síðasta ári og öll áhöfnin fórst. Einnig töpuðust tvær ómannaðar flaugar í apríl og maí á síðasta ári. Þá hófst mikil endurskipulagning hjá stofnuninni og bjartsýni var ríkjandi í vikunni eftir að sjö geimflaugar höfðu verið sendar á loft upp án óhappa. Slysið í fyrradag gæti þó átt eftir að ganga að bjartsýninni dauðri um tíma og örugglega ganga endanlega frá Atlas-Centaur geimflaugaáætl- uninni. NASA á aðeins eina slíka flaug eftir og hefur ekki pantað fleiri frá General Dynamics samsteypunni sem framleiðir þær. I gær var verið að rannsaka hvort NASA hefði brotið reglur í sam- bandi við leyfilegt veðurfar þegar geimflaugum er skotið á braut. Dumbungur var á Kanaveralhöfða er óhappið átti sér stað. Bandaríkin: Grátlega dýrtað hlæja Santa Cruz-Rcuter Kostnaður við að hlæja hefur hækkað um það bil fjórum sinnum meira en almennur framfærslukostn- aður í Bandaríkjunum. Það var þarlendur kímniráðgjafi sem hélt þessu fram í gær. Ráðgjafinn benti á hækkanir á gúmmíkjúklingum, hinum þekktu MAD blöðum og öðru máli sínu til sönnunar. Malcolm Kushner heitir maðurinn sem gefið hefur út skýrslu um kostn- að við hlátur. Kushner stundaði áður lögfræðistörf en er nú ráðgjafi á sviði kímni. Apalegt að reykja? Þessari górillu hafði ekki borist fréttir af reyklausa deginum þegar Guðmundur E. Sigvaldason jarðfræðingur, sem tók þessa mynd, rakst á hana í Kamerún í vikunni. Að sögn Guðmundar hafði górillan yfirgefið náttúrulegt umhverfi sitt og tekið upp samneyti við manninn. Eins og sjá má hefur hún lært af manninum siði, sem við íslendingar gerðum margir hverjir tilraun til að losna við í gær. Mynd: Guðm. Sigvaldason

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.