Tíminn - 10.10.1987, Page 8

Tíminn - 10.10.1987, Page 8
8 Tíminn Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aðstoðarrifstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson BirgirGuðmundsson Eggert Skúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 (tæknideild) og 686306 (ritstjórn). Verð í lausasölu 55.- kr. og 65.- kr. um helgar. Áskrift 550.- Vandi ríkisstjórnar og Alþingis Alþingi verður sett í dag. Þetta er 110. löggjafar- þingið sem nú kemur saman að afloknum almenn- um kosningum, en tala þinga er miðuð við árið 1874, þegar konungleg stjórnarskrá gekk í gildi hér á landi með því ákvæði m.a. að Alþingi skyldi hafa löggjafarvald eftir að hafa verið ráðgjafarþing frá endurreisn þingsins 1845. Þess er þó vert að minnast að Alþingi var stofnað árið 930 og eru því 1057 ár frá þeim atburði. Alþingi er elsta stofnun íslensku þjóðarinnar og hin sögufrægasta. Margt er breytt á Alþingi, þegar það nú kemur saman, miðað við síðasta þing. í fyrsta lagi hefur þingmönnum fjölgað. Þeir eru nú 63 í stað 60 áður. Þingflokkaskipan hefur breyst verulega og styrk- leikahlutföll þingflokkanna sömuleiðis. Einn þingflokkur, sem fulltrúa átti á síðasta þingi, er horfinn, þ.e. Bandalag jafnaðarmanna, en nýr þingflokkur er kominn til sögunnar, Borgaraflokk- urinn. Einn þingmaður er utanflokka, Stefán Valgeirsson, en hann var í framboði fyrir nafn- greind kosningasamtök í Norðurlandskjördæmi eystra og eru hvorki þingflokkur né landsflokkur. Það er einnig sögulegt við þetta nýja þing að á þingi sitja fleiri konur en nokkru sinni fyrr. Mestu skiptir þó þegar ræddar eru breytingar frá síðasta kjörtímabili, að fráfarandi ríkisstjórn missti meirihluta sinn í kosningunum vegna mikils fylgistaps Sjálfstæðisflokksins. Það kom því ekki til að endurreisa fyrra stjórnarsamstarf, þótt það hefði fyrir margra hluta sakir gefið mjög góða raun undir stjórn Steingríms Hermannssonar, formanns Framsóknarflokksins. Ný ríkisstjórn var því mynd- uð á nýjum grundvelli. Alþýðuflokkurinn, sem að mestu hefur verið utan ríkisstjórna síðan 1971, er nú í ríkisstjórn með Framsóknarflokki og Sjálf- stæðisflokki. Ríkisstjórnin hefur öruggan þing- meirihluta og ætti af þeim sökum ekki að vera neitt að vanbúnaði að tryggja framgang stefnumála sinna. Hitt er annað að horfur í efnahagsmálum hafa breyst til hins lakara á síðustu mánuðum. Ríkis- stjórnar og þingmeirihluta hennar bíða því ýmis vandamál og erfið úrlausnarefni. Á þeim verður að taka af festu. Einkum ber ríkisstjórn og Alþingi að hafa gætur á þeirri háskalegu verðlagsþróun sem nú gerir vart við sig og gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru og aðstæður krefjast til þess að stöðva verðbólguvöxtinn og stefna áfram að verð- bólguhjöðnun eins og var markmið fráfarandi ríkisstjórnar. Framtíð og orðstír núverandi ríkis- stjórnar veltur á því að hún nái tökum á verðbólgu- þróuninni. Laugardagur 10. október 1987' íslenskur skógur og okkar skógur, og þess vegna þarf mikið stærra átak í skógrækt jafnhliða uppgræðslu landsins er hingað til hefur náðst samstaða um. Og svo er það tungan. Fjórar aldir Enginn einn þáttur í lífi okkar heldur eins fast um þjóðerni okkar og tungan. Hún sameinar okkur og arfagóss hennar, sem tiltækt er hverjum lesandi ís- lendingi hefur veitt okkur stærð- artilfinningu, sem gefur okkur kjark til að lifa jafnfætis mikið stærri heildum í hafi þjóðanna Hinni miklu ritöld lauk með ritun íslendingasagna, og það var ekki fyrr en á nítjándu öld, sem ljósin tóku að skína að nýju. Allur sá tími, sem leið á milli tilvistar sagnaþula söguald- ar og fram að tilkomu manna á borð við Jónas Hallgrímsson er eitt heljarmyrkur. Að vísu lýstu tveir menn á því tímabili langt út yfir ævisvið sín, báðir kirkjunnar menn eins og eðlilegt gat talist, þeir Guðbrandur Þor- láksson, biskup og séra Hall- grímur Pétursson. Á tímum engrar fjölmiðlunar, þegar hvergi heyrðist í Stevie Wonder og kvensköss á borð við Tinu Turner voru fjarlægur grunur í svörtustu myrkviðum Afríku, reis upp biskup á íslandi, sem hafði þann metnað til að bera að hann lét þýða biblíuna á ís- lensku. Þá réðu Danir yfir Nor- egi og íslandi. í Noregi fyrir- fannst enginn Guðbrandur og' norsk alþýða var látin nema guðsorð úr danskri biblíu eftir komu lútersks siðar. Fyrir þann tíma Jöluðu íslendingar og Norðmenn sömu tungu, eða mjög líka tungu, því aðeins tvö hundruð árum áður höfðu ís- lensk skáld gerst ljóðmæringar norskra kónga og skrifað ævi- sögur þeirra samkvæmt pöntun á íslensku. Norðmenn heyjuðu sér dönskublending upp úr bibl- íu sinni. Við héldum áfram að geta lesið íslendingasögur og biblíuna án þess að víxlast á tungunni. Einlæg trúarljóð Hall- gríms Péturssonar eru hvað mál- ið snertir afrakstur hins óbrjál- aða máls. Þegar Fjölnismenn komu síðan um miðja nítjándu öld til að hrifsa tunguna undan kölkuðum málstoðum rímn- anna, stóð hún jafn skír ogfögur eftir þrátt fyrir langan myrkur- tíma. Nýtt myrkur Kyrrstöðutími miðalda kom þungt niður á íslendingum af ýmsum ástæðum, sem ekki koma þessum texta við. En hann kom ekki þungt niður á tung- unni. Hún hélt áfram að lifa m.a. vegna þess að dönsk áhrif náðu aldrei að neinu marki til sveitanna. Það skipti því ekki máli þótt Reykjavík væri orðinn dönskumælandi bær á tímabili. Snemma á þessari öld komu ung skáld fram á sjónarsviðið og höfðu hin bestu orð um bænda- menninguna svokölluðu. Pað var annað orð yfir alþýðu landsins, sem hafði haldið vopn- um sínum fyrir erlendum áhrif- um og danskri tungu, þótt hún sykki um tíma í ófrjóa umræðu um merkingar rímnakenninga, eins og þær voru tíndar úr Edd- um okkar. Þegar þessi fyrri tími er skoðaður í ljósi þess sem nú er að gerast á vettvangi tungunn- ar, og þá sjálfstæðisbaráttu okk- ar um leið, kemur í ljós að nýtt myrkur er að skella yfir. Hið fyrra tímabil myrkra tíma varð aldrei hættulegt tungunni. Nú verður íslenskan hins vegar í brennipunkti. Nú er stefnt að því að glata henni og þar ráða mestu þau nýju fjölmiðlagoð, sem flutt eru syngjandi, púst- andi, æjandi og óandi inn á hvert heimili í landinu fyrir til- stilli kveinandi fjölmiðla; útvarps og sjónvarps. Framundir full- orðinsár miðaldra fólks í dag linnti ekki leiðréttingum á dönskuslettum, svokölluðum, og á þeim var ekki tekið neinum vettlingatökum. Nú heyrist aldr- ei æmt í nokkurri persónu þótt annað hvert orð sé sagt á ensku eða enskuskotið. Það er orðið E Mi INHVERJIRkunnaað halda að sjálfstæðisbaráttu ís- lendinga hafi lokið fyrir rúmum fjörutíu og þremur árum, þegar við lýstum yfir lýðveldi á Þing- völlum. Tíminn sem liðinn er hefur sýnt okkur að margs þarf að gæta þótt sjálfstæði sé fengið. Má í því efni minna á fiskveiði- lögsöguna og baráttuna fyrir stækkun hennar. Árangur þeirr- ar baráttu hefur haft úrslitaáhrif fyrir líf fólks í landinu, enda eru framundan góðir tímar á fisk- mörkuðum, sem við eigum eftir að njóta af ómældra hagsbóta. Fiskveiðilögsagan hefði engin orðið ef 17. júní 1944 hefði liðið tíðindalaust. Svona einfalt er þetta. Nú bindast þjóðir sterk- um bandalögum og sækjast eftir samstöðu, sem bæði felur í sér hag og óhag. Við virðumst enn vera að sækjast eftir hafsbotns- réttindum langt suður í Atlants- haf. Slík þrætubókarlist getur verið mikilsverð fyrir einstaka aðila. Mikilsverðust er þó sú staðreynd að fiskveiðilögsagan er tvö hundruð mílur. Á næstu áratugum má búast við auknum sóknarþunga annarra þjóða inn á fiskirík svæði við strendur landsins. Hafréttur er byggður á mannasetningum, og bandalög, þar sem sóst er eftir auðlindum, eru mjög í uppgangi. Eflaust þykir mörgum þjóðum í norðan- verðri Evrópu, að hlutur tvö hundruð og fimmtíu þúsund manna þjóðar í Norður-Átlants- hafinu sé alltof mikill. Við þurf- um því að fara með gætni í hafsbotnskröfum okkar. Slík gætni er á stundum hluti af sj álfstæðisbaráttunni. Prjár undirstöður Þrjár mikilvægar undirstöður sjálfstæðis okkar eru tungan, fiskveiðilögsagan og jarðar- gróðurinn. Segja má að fisk- veiðilögsagan sé í sæmilegu horfi, þó þar þurfi stöðugt að standa á verði, bæði gegn ofveiði okkar sjálfra og ásælni annarra þjóða, sem geta birst í sakleysis- legum myndum, eins og boðum urn fóstbræðralög. Jarðar- gróðurinn á í vök að verjast, og þar hefur enn ekki verið gert það stóra allsherjar átak sem auðnirnar þarfnast. Á þjóðhá- tíðarárinu 1974 var veittur millj- arður til uppgræðslu landsins, en sá milljarður virðist hafa náð skammt. Hann sýndi þó mikinn skilning Alþingis og góðan vilja á sínum tíma. Til þess að árang- ur náist í þessari grein sjálfstæð- isbaráttunnar þarf stöðugt á að halda þessum sama skilningi og þessum sama vilja Alþingis. Þingið þarf að hlaða fallstykki peninganna ár eftir ár og skjóta úr þeim á auðnirnar þangað til landið fer að gróa svo um munar. Auðvitað verður fleira að koma til. Beitarþol er tak- markað og leita verður skilnings á því sem landið þolir af búfén- aði. Þar mun haldast í hendur beitarþolið og þörf á innanlands- markaði. Þótt uppgræðsla lands sé höfuðatriði má ekki gleyma, að hér vex skógur og getur vaxið. Kannski ekki eins tigin- borinn og í heitari löndum, og ekki af þeirri gerð, að hann geti kallast „skipaviður“, en það er

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.