Tíminn - 10.10.1987, Page 16
16 Tíminn .
Laugardagur 10. október 1987
Traktorar til sölu:
IH 454 árgerö 1974,
IH 444 árgerö 1973,
IH 414 árgerö 1972,
IH 844 árgerö 1977,
Zetor 7245 árgerð 1987,
Zetor 7045 árgerð 1984,
Zetor 6045 árgerö 1984.
MF.m/ámoksturst. árg. 1972.
3 st. MF. 185 frá árg. 1972.
Upplýsingar í síma 97-41315.
Jörð til sölu
Til sölu er jöröin Víðimýri í Skagafirði. Ájörðinni,
sem er um það bil 50 ha., eru 160 kinda fjárhús og
hlaða auk íbúðarhúss. Skriflegum tilboðum skal
skilað til undirritaðs, sem jafnframt veitir frekari
upplýsingar. Seljendur áskilja sér rétt til að taka
hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.
Tilboðsfrestur er til 20. október nk.
Ágúst Guðmundsson,
Fellstúni 5,
550 Sauðárkróki, sími 95-5889.
Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri
Fóstru eða starfsmann með uppeldisfræði-
menntun vantar í fullt starf. Starfsreynsla á
barnaheimili æskileg. Umsækjandi þarf að geta
hafið starf sem fyrst.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 96-
22100-299.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
t
Útför bróöur okkar
Ólafs Bjarnasonar
frá Þorkelsgerði
verður gerö frá Strandarkirkju þriöjudaginn 13. þ.m. kl. 2 e.h.
Systkinin.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug viö andlát og útför
Ögmundar Guðmundssonar
Þórarinsstööum, Hrunamannahreppi
Jóhanna Guðmundsdóttir
Steinunn Þorsteinsdóttir Hreinn Gunnarsson
FRlMERKI
Dagur frímerkisins 1987
Auk þess sem frímerkjaverðskrá-
in Islensk frímerki 1988 kemur nú út
í sambandi við dag frímerkisins
koma út þrjár frímerkjaútgáfur á
þessum degi í ár, svo frá opinberri
hendi er mikið um að vera.
Dagur frímerkisins
Póst- og símamálastofnunin gefur
út smáörk eða „blokk“ með einu
frímerki á Degi frímerkisins, 9.
október 1987, sem jafnframt er
stofndagur Alþjóðapóstsambands-
ins, 1874.
Söluverð smáarkarinnar verður 45
krónur og frímerkið er að verðgildi
30 krónur. Myndefnið er eftir Aug-
uste Mayer úr ferðabók Paul Gaim-
ards og sýnir verslunarstaðinn Djúpa-
vog 1836. Nokkur seglskip og bátar
eru úti fyrir.
Andvirði yfirverðsins, 15 krónur,
rennur í Frímerkja- og póstsögu-
sjóð, sem er í vörslu stofnunarinnar,
en tilgangur sjóðsins er að efla og
síyrkja störf og rannsóknir á sviði
frímerkjafræða og póstsögu, og
hvers konar kynningar- og fræðslu-
starfsemi til örvunar á frímerkja-
söfnun, svo sem bóka- og blaðaút-
gáfu, sýningar og minjasöfn. Útgáf-
an er nr. 258.
Myndefni arkarinnar er teikning
August Mayer frá 1836, frá Djúpa-
vogi við Berufjörð. Mynd síðustu
smáarkar var einnig eftir hann. Að
öðru ieyti er örkin hönnuð af Þresti
Magnússyni og prentuð hjá Joh.
Enschedé en Zonen í Hollandi.
Gzeslaw Slania hefir grafið örkina,
sem kostar 45,00 krónur og renna 15
krónur af því til sjóðsins eins og að
ofan getur.
Tannvernd
Rannsóknir sem gerðar hafa verið
benda til þess að hjá okkur Islend-
ingum skemmist fleiri tennur en hjá
flestum öðrum þjóðum, þótt tann-
skemmdum virðist hafi fækkað lítil-
lega á s.l. þremur árum.
Við erum þó 5. best setta þjóðin í
heiminum hvað varðar fjölda íbúa á
hvern tannlækni, en neysla sykurs,
sælgætis og sætra drykkja er aftur á
móti mjög mikil hérlendis.
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið og tannverndarráð hafa
undanfarið í samvinnu við marga
aðila, beitt sér fyrir fræðslu um
tannvernd.
Hefur aðai áherslan verið lögð á
rétt fæðuval, réttar matarvenjur og
tannhirðu, auk þess sem hvatt hefur
verið til aukinnar notkunar fluors.
Myndinni á frímerkinu, sem Póst og
símamálastofnunin gefur út, er ætlað
að minna á, að mest er undir
lllllllllllllllllllllllllll BÆKUR lllllllllllllllllll
einstaklingunum sjálfum komið,
hvort tekst að koma í veg fyrir
tannskemmdir. Útgáfa nr. 259.
Það er Birna Steingrímsdóttir, hjá
Auglýsingaskrifstofu Kristínar h/f í
Kópavogi, sem hefir teiknað þetta
merki. Merkið er prentað í heliogra-
vure hjá Courvoisier S.A. í Sviss.
En hver notar nú 12 króna frí-
merki á bréf?
Frímerkjahefti
Póst- og símamálastofnunin gefur
að þessu sinni út hefti með 12
frímerkjum. Söluverð heftisins verð-
ur 156 krónur en hvert frímerki er
að verðgiidi 13 krónur. - Myndefni
þeirra eru landvættirnar fjórar í
skjaldarmerki íslands: dreki, fugl,
griðungur og bergrisi.
I Heimskringlu segir frá því, að
Haraldur Gormsson Danakonungur
ætlaði að sigia liði til Islands og
hefna níðs er ort hafði verið um
hann þar. - Konungur bauð þá
manni nokkrum fjölkunnugum að
fara tii íslands í könnunarskyni. Tók
sá hamförum og fór í hvalslíki. Hann
sá, að fjöil öll og hólar voru fullir af
landvættum, smáum og stórum.
Hann fór fyrst inn á Vopnafjörð.
Kom þá dreki einn mikill æðandi og
fylgdu honum eiturspúandi nöðrur
og eðlur. Lagði hann á braut vestur
fyrir land og hélt inn Eyjafjörð. Þar
fór móti honum fugl svo mikill, að
vænghafið náði fjalla í miili beggja
vegna fjarðarins. Sneri hann þá frá
og kom næst inn á Breiðafjörð. Þar
fór móti honum griðungur mikill og
óð á sæinn út með ógurlegum
hljóðum. - Loks hélt maðurinn
suður um Reykjanes og hugðist
ganga á land á Suðurlandi. Þar kom
móti honum bergrisi og hafði járn-
staf í hendi og bar höfuðið hærra en
fjöllin.
Eftir þetta fór maðurinn austur
með landinu í hvalslíkinu g sneri
síðan utan til konungs og bar landinu
ekki vel söguna. Útgáfa nr. 260.
Merkin teiknaði Þröstur Magnús-
son en þau eru grafin af Martin
Mörck og prentuð hjá Frímerkjapr-
entsmiðju sænska póstsins. Tólf frí-
merki verða í hverju hefti, eða þrjár
fjórblokkir.
Sigurður H. Þorsteinsson
Frá Aventura
Töffe Gutter, stille jenter eftir
Kjellaug Pettersen er ef til vill með
eftirtektarverðari bókum sem koma
út nú í haust hjá Aventura.
Það er langt til lands ef talað er
um jafnrétti í skólum og á heimilinu.
Þetta eru niðurstöður bókarinnar og
sú skrifar um sem veit af langri eigin
reynslu. Hún hóf kennslu í Osló
1956. Þá voru nokkur dæmi í reikni-
bókunum stjörnumerkt og tekið
fram að stúlkurnar þyrftu ekki að
reikna þau, samt voru próf beggja
eins. Bekkir með fleiri stúlkum en
drengjum eru léttari í kennslu. Samt
eiga stúlkur auðveldara með að
skilja námsefnið en drengirnir. Það
er tilgangslítið að reyna að breyta
þessum kynmunstrum. Þau virðast
standast allar tilraunir til aðhæfing-
ar. Drengirnir yfirgnæfa.
Roser er röde... tekin saman af Áse
Enerstvedt. Þetta er bók um minn-
ingabækur frá 1790 til dagsins í dag.
Minningabækur frá æsku, úr skóla
og frá ýmsum tilefnum eru ekki neitt
nýtt fyrirbæri. Þeim svipar líka um
margt í þessi 200 ár. Efnið er það
sama, en tónninn hefiraðeins breyst.
Skreytingarnar, rósir og gleym
mér eyjar, hjörtu og kærleikstákn,
eru enn í svipuðum dúr. Vingjarnleg
vísa og hlýleg orð og svo hið eilífa:
Rósin er rauð, fjólan er blá og svo
framvegis. Bókin er unnin af ein-
stakri natni og skemmtilega uppsett.
Eilen Gleditsch, rannsakandi -
kona - manneskja, eftir Torleiv
Kronen og Alexis C. Pappas, er verk
um eina af þeim merku konum sem
Noregur hefir alið á þessari og
síðustu öld, en hún er fædd í des.
1879. Æfi hennar er rakin með
æskufélögunum í Tromsö, Söru Fa-
bricius og Coru Sandell, síðar Ma-
dame Curie. Síðar verður svo Ellen
ein af þekktustu vísindamönnum
síns heimalands á alþjóðlegum vett-
vangi.
Ennfremur er aftantil í bókinni
hluti af bréfaskiptum hennar við
Madame Curie og fleiri vísinda-
menn.
Tanke og mistanke, safn ritgerða
tekið saman af Asbjörn Aarnes og
Helge Salomonsen. Tortryggni er
hugmynd sem umsnýst - með
reynslu, að sá sem hún beinist að, sé
annað en hann gefur sig út fyrir að
vera. Heimspekin getur ekki verið
án tortryggni, gruns. Eitt er að vera
tortrygginn, annað að hugmyndin
verður tortryggin gagnvart sjáifri
sér.
Hugmynd og tortryggni í vest-
rænni heimspeki er einmitt það sem
bókin fjallar um. Skynsemi og and-
skynsemi, frá Aristoteles tii Freud
og Martin Heidegger. Ritgerðirnar
eftir 13 Norðmenn um þetta efni,
eru hver annarri skemmtilegri.
Georg Parmann sendir frá sér
bókina Mat for ölvenner. Hún er full
af skemmtilegum og mjög bragðgóð-
um uppskriftum, þar sem ekki er
aðeins notað öl með matnum, heldur
ekki síður í hann. Að vísu höfum við
ekki það úrval öls sem til þyrfti, en
með því að reyna að hagnýta það
sem hér er til má ná góðum árangri.
Það er nefnilega ekki áfengisinni-
hald ölsins sem máli skiptir, heldur
bragðið sem það gefur matnum.
Sigurður H. Þorsteinsson