Fréttablaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 8
8 21. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
1. Hvað heitir þingflokksfor-
maður Samfylkingarinnar sem
ákveðið hefur að hætta á þingi?
2. Hvaða evrópska stjórn-
málamanni býðst nú að verða
framkvæmdastjóri NATO?
3. Með hve miklum mun
töpuðu bikarmeistarar Stjörn-
unnar í körfubolta fyrir KR á
fimmtudag?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 70
ALÞINGI „Það mætti færa rök fyrir
því að sá Seðlabanki sem við stæð-
um uppi með eftir þessar breyt-
ingar væri Seðlabanki Jóhönnu
Sigurðardóttur,“ sagði Árni
Mathiesen, fyrrverandi fjármála-
ráðherra, í umræðum um Seðla-
bankafrumvarp forsætisráðherra
á Alþingi í gær. Sjálfstæðismenn
telja að breytingarnar sem kveð-
ið er á um í frumvarpinu færi
forsætisráðherra of mikil völd yfir
Seðlabankanum.
Frumvarpið um breytingar á
yfirstjórn Seðlabankans var til
umræðu á þingi
í allan gærdag,
eftir að meiri-
hluti viðskipta-
nefndar hafði
afgreit t það
með breyting-
um til annarrar
umræðu
Í nefndaráliti
minnihlutans,
sem í eru fjórir
fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks, segir að breyting-
arnar séu afar víðtækar og sanni
að kastað hafi verið til höndum við
samningu fyrstu draga þess. Hins
vegar er það gagnrýnt að ekki hafi
verið gengið mun lengra við breyt-
ingarnar. Þannig séu hæfniskröf-
ur til bankastjóra til dæmis enn of
þröngt skilgreindar.
Sjálfstæðismenn gagnrýna að
samkvæmt frumvarpinu hafi for-
sætisráðherra skipunarvald yfir
seðlabankastjóra, staðgengli hans
og tveimur fulltrúum í fyrirhug-
aða peningastefnunefnd. Ráðherra
eigi þar með að skipa fjóra af fimm
fulltrúum í peningastefnunefnd,
og það alla samtímis þegar og ef
lögin taka gildi í núverandi mynd.
Þetta veki spurningar um sjálf-
stæði bankans.
Þeir undrast jafnframt að ekki
skuli hafa verið ráðist í endur-
skoðun á peningastefnu bankans,
samhliða breytingum á yfirstjórn
hans.
Þrátt fyrir gagnrýni sína sögðu
sjálfstæðismenn þó að breyting-
arnar sem hafa verið gerðar á
frumvarpinu væru til bóta frá því
sem áður var.
Meðal þess sem fram kom í
máli stjórnarliða var að til greina
kemur að fengnir verði sérfræð-
ingar erlendis frá til að sitja í pen-
ingastefnunefndinni.
Málið mun að öllum líkindum
vera tekið aftur upp í viðskipta-
nefnd á milli annarrar og þriðju
umræðu á þingi. Stjórnarliðar von-
ast til að geta afgreitt málið sem
lög frá þingi í næstu viku.
stigur@frettabladid.is
Óttast vald Jóhönnu
yfir Seðlabankanum
Forsætisráðherra eru færð of mikil völd yfir Seðlabankanum í endurskoðuðu
frumvarpi um bankann, að mati sjálfstæðismanna. Þeir tala um „Seðlabanka
Jóhönnu Sigurðardóttur“. Þó sáttir við breytingar sem frumvarpið hefur tekið.
■ Í stað þess að forsætisráðherra
ráði aðeins einn seðlabankastjóra
ræður hann einnig aðstoðar-
seðlabankastjóra, sem er stað-
gengill bankastjórans.
■ Hæfniskröfur til bankastjóra
og aðstoðarbankastjóra voru
rýmkaðar. Áður var kveðið á um
að þeir skyldu hafa meistaragráðu
í hagfræði, en nú háskólagráðu „í
hagfræði eða tengdum greinum
og búa yfir víðtækri reynslu og
þekkingu á fjármálastarfsemi og
efnahags- og peningamálum“.
■ Seðlabankstjóri setji starfsreglur
um varðveislu gjaldeyrisvara-
sjóðsins í stað bankaráðs, eins og
sagði í fyrstu drögum.
■ Skipunartími bankastjóra og
aðstoðarbankastjóra styttur úr
sjö árum í fimm, til samræmis
við það sem gengur og gerist í
íslenskri stjórnsýslu.
■ Þriggja manna nefnd meti hæfi
umsækjenda um störf banka-
stjóra og aðstoðarbankastjóra.
■ Í fyrirhugaðri peningastefnunefnd
sitji bankastjóri, aðstoðarbanka-
stjóri, einn yfirmaður úr Seðla-
bankanum og tveir utanaðkom-
andi sérfræðingar skipaðir af
forsætisráðherra.
■ Skipunartími aðstoðarbankastjóra
og sérfræðinga í peningastefnu-
nefnd er annar við fyrstu skipan
til að koma í veg fyrir að skipun-
artími allra renni út á sama tíma.
HELSTU BREYTINGAR Á FRUMVARPINU
SEÐLABANKI ÍSLANDS Ríkisstjórnin hefur haft það sem eitt af sínum markmiðum
að losna við núverandi seðlabankastjóra úr bankanum. FRÉTTABLAÐIÐ / HEIÐA
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
LETTLAND, AP Ríkisstjórn Lettlands
baðst lausnar í gær. Valdis Zatl-
ers forseti féllst á afsagnarbeiðni
Ivars Godmanis forsætisráðherra
og samsteypustjórnar hans, sem
skipuð var miðju-hægriflokkum.
Stjórn Godmanis hafði átt mjög
undir högg að sækja síðustu mán-
uði vegna reiði almennings yfir
meintri vanhæfni hennar til að
bregðast við efnahagskreppunni;
undanfarnar vikur voru mótmæli
gegn stjórninni daglegt brauð í
höfuðborginni Riga. Undir það
síðasta naut stjórnin aðeins um
fimmtungs stuðnings í viðhorfs-
könnunum.
Godmanis t i lkynnti um
afsagnarbeiðni sína eftir að tveir
af ríkisstjórnarflokkunum skor-
uðu á hann í gærmorgun að víkja.
Zatlers forseti sagði að hann
myndi á mánudaginn hefja við-
ræður við stjórnmálaleiðtoga um
myndun nýrrar stjórnar.
Líkt og á Íslandi hefur alþjóð-
lega fjármálakreppan leitt til
alvarlegrar efnahagskreppu í
Lettlandi. Á síðasta ársfjórð-
ungi nýliðins árs dróst þjóðar-
framleiðslan saman um tíu pró-
sent frá sama tímabili árið áður.
Norðurlöndin, Evrópusamband-
ið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
hafa heitið lettneska ríkinu sam-
tals 7,5 milljörðum evra í neyðar-
lán. - aa
Forsætisráðherra Lettlands biðst lausnar í kjölfar efnahagshruns:
Brugðist við reiði almennings
VÍKUR Ivars Godmanis, fráfarandi for-
sætisráðherra Lettlands. NORDICPHOTOS/AFP
FÉLAGSMÁL Kynbundinn launamun-
ur var sautján prósent samkvæmt
rannsókn ParX úr launabókhaldi
37 fyrirtækja í september. Í sam-
bærilegri könnun frá því í fyrra var
launamunurinn átján prósent.
Þegar búið var að taka tillit til
annarra skýribreyta, svo sem ald-
urs, menntunar, starfshlutfalls og
vinnutíma stóð eftir sjö prósent
launamunur, en var tólf prósent
fyrir ári síðan. Helsta skýringin á
því að minna hlutfall er nú óútskýrt
er að tekið var tillit til fleiri breytna
nú en í fyrra, svo sem vinnutíma.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
og Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri SA, sögðu launa-
könnunina lið í að kortleggja betur
launamun kynjanna, til að hægt sé
að bregðast við honum.
Verið er að þróa jafnlaunastað-
al, í samstarfi ASÍ, SA og félags-
málaráðuneytisins þar sem tekið
verður tillit til atriða eins og launa
og starfsþróunar. Hannes segir að
faggiltar skoðunarstofur muni veita
vottun um slíkan staðal.
Nefnd félagsmálaráðuneytisins
á að ljúka störfum fyrir áramót,
en ekki er ljóst hvenær staðallinn
verður tekinn til notkunar. - ss
Rannsókn á kynbundnum launamun úr launabókhaldi 37 fyrirtækja:
Kynbundinn munur 17 prósent
ÁHRIFAÞÆTTIR LAUNAMYNDUNAR
Breytur Ótútskýrður launamunur kynja
Kyn -17,1%
Kyn og aldur -14,0%
Kyn, aldur og menntun -11,0%
Kyn, aldur, menntun og starfshlutfall -8,3%
Kyn, aldur, menntun, starfshlutfall og starfsheiti -7,4%
Kyn, aldur, menntun, starfshlutfall, starfsheiti og fyrirtæki -7,9
Kyn, aldur, menntun, starfshlutfall, starfsheiti, fyrirtæki og vinnustundir -7,3%
Heimild: ParX
KIRGISISTAN, AP Utanríkisráðu-
neytið í Kirgisistan sendi form-
lega tilkynningu til sendiráðs
Bandaríkjanna í landinu um lokun
herstöðvar Bandaríkjanna, sem
hefur gegnt lykilhlutverki í flutn-
ingi hergagna til og frá Afganist-
an. Bandaríkjaher fær hálfs árs
frest til að rýma flugstöðina.
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna sagði málinu ekki lokið.
Bandaríkin hafa áður sagt að til
greina komi að greiða Kirgísum
meira fyrir aðstöðuna, eins og
þeir hafa krafist. Að öðrum kosti
þarf að finna aðstöðu fyrir her-
gagnaflutninga annars staðar í
nágrenni við Afganistan. - gb
Kirgisistan lokar flugvelli:
Bandaríkin fá
hálfs árs frest
VEISTU SVARIÐ?