Fréttablaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 65
Drukpa Kinley var drykkfelldur
munkur og djarfur kvennabósi.
Hvernig fer það saman og hvernig
getur eina búddíska ríkið í heimi
haft þvílíka fígúru sem sinn merk-
asta postula? Svarið liggur í skop-
skyni, látleysi og víðsýni Bútana.
Skyldi það auka víðsýni að búa
svona hátt yfir öllum öðrum þjóð-
um?
Drukpa Kinley er nefndur Hinn
himneski vitfirringur. Með kyn-
ærslum, klámvísum og drykkju-
skap reið hann um dali og fjöll í
viðleitni sinni til að fullnægja fýsn-
um sínum og frelsa fólk undan bók-
stafstrú og kreddum. Hans trúboð
var endurskoðun, sjálfstæð og per-
sónuleg nálgun við guð. Með gríni,
hneykslanlegum uppátækjum og
kjánaskap fangaði hann athygli
fólks og ungra meyja. Eftir honum
var haft:
Guðirnir, þeir eru tómleiki hugans.
Með fögrum orðum eða klúrum eru
bænir mínar þær sömu.
Hugleiðsla mín er ungar stúlkur og
vín,
Hefur verg þjóðarhamingja
Íslendinga verið mæld? Nei, líkleg-
ast ekki og þrátt fyrir að Íslend-
ingar hafi mælst ein hamingju-
samasta þjóð í heimi er hætta á að
sá sess sé í hættu núna. Bútanar
leggja áherslu á verga þjóðarham-
ingju íbúanna. Eins konar mót-
vægi við verga þjóðarframleiðslu.
Að sjálfsögðu er þetta ekki mæl-
anlegt, í það minnsta ekki á sama
hátt og þjóðarframleiðsla, en í
þessu felst ákveðin áminning til
þjóðarinnar og er um leið hálfgert
slagorð Bútans.
Ég tel það vera einn af höfuð-
kostum Bútans sem áfangastað
ferðafólks að þeirra bíður ekki
listi yfir staði sem þeir verða að
sjá. Þarna er engin gullslegin kon-
ungshöll, sneisafullt þjóðminjasafn
eða Gullfoss og Geysir. Bútan er
einfaldlega mögnuð upplifun frá
fyrstu stundu til þeirra síðustu
fyrir þá sem hafa áhuga á fólki og
náttúru. Bútan er land sem þarf að
anda djúpt að sér.
Það er ekki í eðli fólks í Hima-
lajafjöllunum að klífa sín tignar-
legu fjöll. Þess í stað tilbiður það
fjöll sem helga vætti og ber um leið
óttablandna virðingu fyrir þeim.
Það eru fyrst og fremst kokhraust-
ir Vesturlandabúar sem standast
ekki mátið að klífa fjöllin. Í Bútan
stendur hæsta ókleifa fjall heims
og ef Bútanar fá sínu framgengt
verður það aldrei klifið því lagt
hefur verið bann við öllum frekari
tilraunum til að klífa það eftir að
síðasti leiðangur varð fyrir mann-
falli.
Dagatalið hafði skriðið yfir á
septembermánuð þegar ég yfirgaf
Bútan. Bútanar voru að hefja loka-
undirbúning fyrir krýningu nýs
konungs, hins unga og glæsilega
Jigme Khesar Nagyel Wangchuck,
sem 28 ára tók við af föður sínum
Jigme Dorji Wangchuck sem er þó
einungis 52 ára. Hinn 6. nóvember
krýndi faðir son sinn hinum forna
hrafnshatti sem hefur fylgt ætt-
inni frá 1907 þegar forfaðir þeirra
var kosinn til konungsdóms.
Ævintýrið er magnað í Bútan.
Landið er ekki allra og Bútanar
ætla sér ekki að landið verði ein-
hver miðstöð – hvað þá stoppistöð.
Bútanar segjast vilja nútíma-
væðast en það þýðir ekki að þeir
viljið vesturvæðast. Þeir vilja
alveg hamborgara en þurfa samt
ekki McDonalds.
Ég er viss um að guð muni blessa
þessa þjóð og hef því engar áhygg-
ur af henni. Bútanar geta litið til
systurþjóðar sinnar í norðri og
lært af okkur. Það er örugglega
góð lexía fyrir smáþjóð á breyt-
ingatímum.
Viktor Sveinsson rekur The Ori-
ental Travel og býr í Hua Hin í Taí-
landi.
Fagurt skraut
Minnismerki
um fallna her-
menn í Bútan.
Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.
Takmarkað sætaframboð og valdar dagsetningar
á hvern áfangastað. Athugið að flugvallarskattur
getur verið mismunandi á milli áfangastaða.
Flugsæti, verð frá:
12.450 kr.
50%
Börn:
Börn, 11 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum, fá helmingsafslátt af
verði fyrir skatta og aðrar greiðslur
á völdum áfangastöðum.
Kynntu þér 18 spennandi áfangastaði okkar og frábærar
pakkaferðir Express ferða. Allar nánari upplýsingar og bókanir
á www.icelandexpress.is og www.expressferdir.is
18 áfangastaðir
Alicante
Bologna
Álaborg
Gautaborg
Billund
Stokkhólmur
Kaupmannahöfn
Genf
London
París
Berlín
Reykjavík
Akureyri
Eindhoven Frankfurt Hahn
FriedrichshafenBasel
Kraká
Varsjá
Barcelona
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
8
5
0
5
Ferðaleikur í
KRINGLUNNI
alla helgina!