Fréttablaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 78
46 21. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
Textílfélagið er 35 ára og verður árið að vonum viðburðaríkt.
Yfirlitssýningin Þverskurður stendur sem hæst í Gerðar-
safni en auk þess standa opnun textílverkstæðis og vinnu-
stofu á Korpúlfsstöðum og afmælissýning fyrir dyrum.
„Markmið félagsins hefur frá upphafi verið að gæta hags-
muna félagsmanna og kynna verk þeirra á innlendum og er-
lendum vettvangi,“ segir Ásdís Birgisdóttir, formaður fé-
lagsins og framkvæmdastjóri Textílseturs Íslands á Blöndu-
ósi, en með því að stofna formleg samtök opnuðust dyr fyrir
félagsmenn til þátttöku í stórum sýningum á erlendri grund
sem þeir hafa verið duglegir að sækja. Félagsmenn, sem
starfa á fjölbreyttum vettvangi, bæði sjálfstætt, fyrir aðra
eða við kennslu, eru auk þess iðnir við að halda sýningar
heima á Fróni og á fimm ára fresti eru haldnar sérstakar
afmælissýningar. Félagið fagnar 35 ára afmælinu á tímum
sem einkennast af endurmati á gildum og verðmætum þjóð-
arinnar.
„Sjaldan hefur verið jafn mikið prjónað og á þessum síð-
ustu tímum dalandi hagsældar og er ánægjan af því að
skapa, nýta og njóta viðurkennd og almenn. Á árum áður
var textíllinn, eða þráðlistin, okkur Íslendingum lífsnauð-
syn. Um miðja síðustu öld ófu konur veggteppi og gerðu
ýmsa nytjahluti. Í dag eru verkin fjölbreyttari og má jafn-
vel sjá plasti, vír og öðrum tilbúnum efnum bregða fyrir.
Það sem þó einkennir textílverk, hvort sem um er að ræða
myndverk, óhlutbundin eða hlutbundin verk, er tilfinningin
fyrir efninu hvað varðar dýpt, uppbyggingu, áferð og yfir-
borð,“ segir Ásdís.
Yfirlitssýningin í Gerðarsafni, sem er þrískipt, spannar
ríflega 60 ár í textílsögunni. Á henni getur að líta nýleg verk
félagskvenna, verk heiðursfélaga og verk fjögurra kvenna
sem á síðustu öld vörðuðu vegferð íslenskrar þráðlistar inn
í nútímann. Sýningin, sem stendur til 8. mars, hefur að sögn
Ásdísar verið vel sótt og bjóða félagskonur og heiðursfélag-
ar upp á leiðsögn alla sunnudaga.
Textílfélagið er um þessar mundir að ganga til samstarfs
við sjónlistarmiðstöð sem rekur Korpúlfsstaði. Þar stendur
til að opna vinnustofur og stórt verkstæði sem mun sinna
þörfum félagsmanna og annarra og vera vettvangur fyrir
námskeið, endurmenntun, sýningar, málþing, fyrirlestra og
fleira. „Þar ætlum við að halda afmælissýningu í lok árs og
gefst öllum félagsmönnum kostur á að taka þátt.“
vera@frettabladid.is
TEXTÍLFÉLAGIÐ: FAGNAR 35 ÁRUM
Íslensk þráðlist
í brennidepli
ÁSDÍS Í GERÐARSAFNI Yfirlitssýningin Þverskurður stendur sem hæst
í Gerðarsafni en þar gefur að líta verk félagskvenna, heiðursfélaga og
verk fjögurra kvenna frá síðustu öld. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
timamot@frettabladid.is
Okkar bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Ásu Torfadóttur
Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Alúðarþakkir færum við öllu starfsfólki Grundar, en
þó sérstaklega þeim sem starfa á deild A-2, fyrir frá-
bæra umönnun og elskulegt viðmót.
Katrín Árnadóttir Kjell Friberg
Hermann Árnason Guðríður Friðfinnsdóttir
Torfi Árnason Ingibjörg Pálsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Sendum okkar alúðarþakkir þeim sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát
og útför, elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa, sonar og bróður,
Þorvaldar Ólafssonar
Iðalind 1, Kópavogi.
Sendum einnig góðar þakkir til þeirra sem komu að
veikindum hans.
Sigríður Kjartansdóttir
Kristbjörg E. Þorvaldsdóttir Sigurjón Fjeldsted
Andrea Sif Þorvaldsdóttir Bjarni R. Garðarsson
Ásdís Björk Þorvaldsdóttir Björn K. Sigurþórsson
Sara Björk, Þorvaldur Máni, Kjartan Freyr, Baltasar Þór
Erna Gunnarsdóttir, Karl E. Ólafsson og Gunnþóra
Ólafsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir,
mágur og afi,
Albert Leonardsson
Hjallalundi 18, Akureyri,
lést mánudaginn 16. febrúar. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju fimmtudaginn 26. febrúar kl. 13.30.
Ásthildur Albertsdóttir Said Hasan
Ásta Albertsdóttir Ólafur Friðfinnsson
Karoline Leonardsson
Halldór G. Guðjónsson Ulla-Brit Guðjónsson
Björgvin Leonardsson Natsha Yfnova
Guðrún Lóa Leonardsdóttir Birgir Stefánsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Sveinbjörg Ágústa
Jónsdóttir
húsmóðir, Drápuhlíð 44, Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 12. febrúar, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. febrúar kl. 15.00.
Jarðsett verður í Kópavogskirkjugarði.
Jón Jósefsson Kristín Gísladóttir
Anna Guðrún Jósefsdóttir
Sesselja Ingibjörg Jósefsdóttir Guðjón Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ingibjörg Jónsdóttir
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Elskuleg eiginkona mín, móðir og amma,
Lilja Brynjólfsdóttir,
frá Króki Norðurárdal, síðast til heimilis
á Hrafnistu Reykjavík,
lést þriðjudaginn 3. febrúar, útför hefur farið fram í
kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir til
starfsfólks H1-deildar Hrafnistu í Reykjavík fyrir frá-
bæra umönnun og hlýju.
Lárus Sigurgeirsson
Gunnar Lárusson
Lilja Hrönn Gunnarsdóttir, Bryndís Gunnarsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Kristín Magnúsdóttir
Fellsmúla 22,
lést þann 16. febrúar á Hjúkrunarheimilinu Eir.
Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
24. febrúar kl. 15.00.
Björn Sigurður Benediktsson Margrét Kristín
Finnbogadóttir
Haraldur Benediktsson Brynjar Halldórsdóttir
og aðrir ástvinir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ósk Ingibjörg Eiríksdóttir
Hamraborg 18, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudag-
inn 16. febrúar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 2. mars kl.13.00. Blóm og kransar vinsam-
legast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er
bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi í síma 543
1159.
Unnur Hjartardóttir Jón Bjarni Bjarnason
Þorvaldur P. Böðvarsson Jenný Jóna Sveinsdóttir
Böðvar Már Böðvarsson Shirly Moralde
Bergþór Grétar Böðvarsson
ömmubörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Valgerður Sóley Ólafsdóttir
frá Jörfa,
sem lést sunnudaginn 8. febrúar verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju mánudaginn 23. febrúar kl.13.00.
F.h. ættingja og vina,
Sigurður Viggósson Sigrún Ársælsdóttir
Eiríkur Viggósson Jóhanna Hauksdóttir
Alda Viggósdóttir Sigurður P. Sigurjónsson
Björg Viggósdóttir
Ólafur Viggósson Theódóra Þorsteinsdóttir
Soffía G. Sveinsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir,
amma og langamma,
Guðbjörg Pálsdóttir
Dvalarheimilinu Seljahlíð, Reykjavík,
sem lést föstudaginn 13. febrúar, verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 23. febrúar
kl. 15.00.
Páll Þór Jónsson Hallfríður Helgadóttir
Sigríður Ragnheiður Jónsdóttir
Guðrún Pálsdóttir
Vilhelm Gauti Bergsveinsson
Hákon Pálsson
Auður Guðbjörg Pálsdóttir
Hildur Briem
Árni Briem
Sigrún Inga Briem
Gunnar Ingi Briem
og barnabarnabörn.
NINA SIMONE FÆDDIST ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1933.
„Ég held að hinir ríku muni
á endanum þurfa að láta
undan vegna þess að um-
heimurinn mun ekki um-
bera það að Bandaríkin
verði á toppnum að eilífu.“
Bandaríska söngkonan,
píanóleikarinn og mannrétt-
indasinninn Nina Simone gaf
út 40 breiðskífur á ferlin-
um með lögum á borð við My
Baby Just Cares for Me og I
Put a Spell on You.