Fréttablaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 76
44 21. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
Hvenær varstu hamingjusamast-
ur? Þegar ég átti 11 ára afmæli.
Það var frábær dagur sem ég ætla
ekki að þreyta lesendur með að
segja frá.
Ef þú værir ekki tónlistarmaður
hvað myndirðu þá vera? Dáinn úr
eyðni … eða myndlistarmaður.
Hvað er það dýrasta sem þú
hefur nokkurn tímann keypt þér?
Úff … Tölva?
Hvað er það versta sem nokkur
hefur sagt við þig? Vilt þú leitast
við af fremsta megni að hafa Jesú
Krist að leiðtoga lífsins?
Ef þú byggir ekki í Reykjavík,
hvar myndirðu vilja búa? Oakland
hugsanlega. Einhverjum heitum,
sveittum stað.
Uppáhaldslistamaður allra tíma
og af hverju? Harry Houdini. Hann
var andlegt og líkamlegt ofur-
menni.
Draumahelgin þín í einni setn-
ingu? LAN-partí með John Carm-
ack, John Romero og „crewinu“.
Hvert er versta starf sem þú
hefur nokkurn tímann gegnt?
Starfsmaður í efnalauginni Fönn.
Það sökkaði. Það var talað um hvort
yfirmaðurinn hefði farið á hestbak
um helgina í kaffitímunum …
Uppáhaldsstaðurinn þinn á jörð-
inni? Auschwitz, USA.
Hvers konar tónlist hefur mest
áhrif á þig og hvaða lag hlustarðu
mest á í dag? Öll tónlist hefur áhrif
á mig, en ég er ekki mikið fyrir tón-
list sem byggist mikið á textanum.
Í dag er ég búinn að vera að hlusta
mikið á „Jean Michel Jarre Laser
Show“ eftir DJ-Musician. Hann
sendi mér það áðan mér til mikill-
ar ánægju. Takk, Pétur.
Er eitthvað sem heldur fyrir þér
vöku á nóttunni? Nei, en stundum
fæ ég samt samviskubit ef ég sofna
of snemma.
Ef þú gætir breytt einhverju í
fortíð þinni, hvað myndi það vera?
Ég get ekki svarað þessari spurn-
ingu, allavega ekki á neinn vitræn-
an máta.
Hvenær fékkstu síðast hlátur-
skast? Þegar ég var að horfa á jap-
anskt klósettglens rétt áðan.
Áttu þér einhverja leynda nautn?
Nei. Það er eiginlega allt uppi á
borði.
Uppáhaldsbókin þessa stundina?
Dýrin, sem Arnaldur bróðir minn
gaf mér í jólagjöf.
Uppáhaldsorðið þitt? „Ristru-
flanir“, „safa-rífari“ kemur þar
beint á eftir.
Hvaða eitt atriði myndi full-
komna lífsgæði þín? Að svifbretti
eins og í Aftur til Framtíðar 2 væru
til í alvöru.
Hvaða einu lagi verður þú að
taka „cover“ af áður en þú deyrð?
Langar mikið til að taka „Killed by
Death“ rétt áður en ég dey …
Hvað er næst á dagskrá? Tvær
stórar myndlistarsýningar sem ég
verð með í sumar og haust. Er akk-
úrat núna loksins að mixa fyrstu
Retron-breiðskífuna sem kemur
út í sumar með Vidda úr Trabant.
Hún verður klelluð. Og svo má
ekki gleyma því að 7” platan „Goth
báðum megin“ með Skátum kemur
í búðir á föstudaginn eftir erfiða
fæðingu. Kaupið hana, því það er
goth að elska.
Samviskubit
ef ég sofna
of snemma
Hljómsveitin Skátar gefur út 7“ plötuna Goth báð-
um megin um helgina. Anna Margrét Björnsson
tók gítarleikarann Kolbein Huga Höskuldsson í
þriðju gráðu yfirheyrslu og fékk nokkur mikilvæg
atriði á hreint.
■ Á uppleið
Blómamynstur
Litaglaðir gleðjist:
Flíkur með blóma-
mynstri eru inni
núna og um að
gera að hressa upp
á fataskápinn með
vorlegri blómaflík
þó að vorið sé
kannski ekki á leið-
inni alveg strax.
Át það er útgefin
stefna næstu viku
að borða á sig
gat, bolludagur á
mánudag, sprengi-
dagur á þriðjudag.
Um að gera að hefja
leikinn á morgun með
sunnudagskaffi og bollum
að hætti fjölskyldunnar. Leggjast
í ævintýramennsku á mánu-
daginn og prófa öðruvísi bollur en
venjan er á heimilinu. Taka svo á því í
saltkjötsáti á sprengidag.
Geirmundur
Valtýsson
Sveiflukóngur-
inn hefur í nógu
að snúast, spilar
á þorrablóti
á Prikinu á
föstudagskvöldi,
kominn norður í
land á laug-
ardegi. Engin
lognmolla þar
á ferð og gott að einhver heldur uppi
sönnu Íslandslagastuði.
■ Á niðurleið
Spila-
mennska Það
er að minnsta
kosti eins gott
að hringja ekki
í vinina og
ræða síðasta
spilakvöld.
Orðið ás gæti
bara misskilist
ef einhver
heyrði á tal
manns.
Öskupokar Eftir að
reykvísk börn tóku upp sið
þeirra norðlensku og hófu
að syngja fyrir nammi
á öskudag hættu þau
að nenna að hengja
öskupoka á fólk.
Enda virðist hálf til-
gangslaust að sitja
heima og sauma
poka til að næla í náungann
þegar sælgæti er á næsta leiti.
Kreditkort Það er svo 2007 að
flagga gullkortinu í tíma og ótíma.
Nú er málið
að vera með
seðlavöndul
í veski eða
telja aura upp
úr buddu.
Reiðufé skal
það vera í
ár, þá eyðir
maður líka
síður um efni
fram.
MÆLISTIKAN
KOLLI, GÍTARLEIKARI SKÁTA Uppáhaldslistamaðurinn minn er Harry Houdini. Hann var andlegt og líkamlegt ofurmenni.
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Kolbeinn Hugi
Höskuldsson
STARFSFERILL Í HNOTSKURN:
Ýmis launuð störf. Þar á meðal
sjómennska á trillu, leikskóla-
kennari, tæknimaður, skann-
ari, starfsmaður á sambýli,
hamborgaraflipp en hef ásamt
þessu verið myndlistar- og
tónlistarmaður. Langaði samt
alltaf að verða pizzasendill en
þeir draumar hafa ekki ennþá
ræst.
FÆÐINGARÁR OG HVAÐ GERÐ-
IST MARKVERÐAST Á ÞVÍ ÁRI:
1979, árið sem Pac-Man kom
út. Hann er eiginmaður Mrs.
Pac-Man
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N