Fréttablaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 84
52 21. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Útvarpsleikhúsið frumflytur útvarpsleik-
gerð höfundarins Sigtryggs Magnasonar
á leikritinu Yfirvofandi á sunnudag kl. 14.
Leikritið hlaut mikla athygli þegar það
var frumsýnt á Listahátíð 2007 og sýnt á
heimili skáldsins. Sigtryggur var tilnefndur
sem leikskáld ársins á Grímunni 2008
fyrir Yfirvofandi. Í útvarpsgerðinni er flutt
ný tónlist eftir Úlf Eldjárn. Með hlutverk
hjónanna fara Ingvar E. Sigurðsson og
Edda Arnljótsdóttir og soninn, sem dó,
leikur Jörundur Ragnarsson. Hljóðvinnslu
annaðist Einar Sigurðsson og leikstjóri er
Bergur Þór Ingólfsson.
Hjón eru ofurseld harmi, glæp úr fortíð-
inni. „Ég er yfirvofandi,“ segir drengurinn
sem kafnaði undir kodda daginn sem 36
ár eru liðin frá því að kjarnorkusprengjan
féll á Nagasaki. „Ég er yfirvofandi. Ég er
barnið sem dó. Sprengjan sem féll.“
Yfirvofandi í Útvarpsleikhúsinu
Á sunnudag efna aðdáendur sænska tónsnillings-
ins og söngvaskáldsins Carls Michael Bellman
til tónleika í sal Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar á Engjateigi 1, kl. 15.
Meginefni dagskrárinnar er flutningur á
Bellmanslögum úr Pistlum og Söng-
vum Fredmans. Inn í dagskrána
verður skotið fróðleik um það
svið sem söngljóðin eru sprottin
úr en öll eru þau samin og svið-
sett í Stokkhólmi seint á 18. öld.
Kynnt verður útbreiðsla þeirra
utan Svíþjóðar en megináhersla
þó á kynni Íslendinga af Bellmans-
söngvum. Með söngvunum verður
brugðið upp myndum af listaverkum
sem orðið hafa til undir áhrifum af
ljóðum Bellmans.
Við undirbúning dagskrárinnar hefur
Tónskólinn notið aðstoðar þeirra Árna
Björnssonar og Gunnars Guttormssonar,
og eru þeir meðal flytjenda ásamt þeim
Ævari Kjartanssyni, Maríu Cederborg,
Guðna Franzsyni, Þorvaldi Þorvaldssyni,
Sigrúnu Valgerði Gestsdóttur, Ásgeiri
Böðvarssyni, Sigursveini Magnússyni,
Mörtu Guðrúnu Halldórsdóttur og nem-
endum hennar. Kynnir er Erlingur Gísla-
son.
Sigursveinn og John Speight hafa gert
nýjar útsetningar við sönglögin. Í upp-
hafi dagskrár verður fluttur forleikur
sem John Speight hefur samið gagn-
gert af þessu tilefni. – Stjórn tón-
listarflutnings er í höndum Guðna
Franzsonar.
Forsala aðgöngumiða er í síma 568
5828. pbb@frettabladid.is
Bellmania á Engjateigi
Í dag er opnuð almenningi
sýning ljósmynda frá síð-
ustu öld á Þjóðminjasafn-
inu. Hún ber heitið Þrælk-
un, þroski, þrá? og fjallar
um börn við vinnu á sjó og
landi.
Myndirnar á sýningunni eru frá
þeim tíma þegar börn tóku virk-
an þátt í vinnu, bæði af háum og
lágum standi. Ljósmyndunum er
ætlað að opna umræðu og hvetja
fólk til að skoða fortíðina í nýju
samhengi. Þær vekja spurning-
ar um barnavinnu, aðbúnað og
vinnuskilyrði barna og samskipti
sjómanna og barna. Hvenær breyt-
ast ævintýri og heilbrigð vinnu-
menning í þrælkun? Hvenær verða
aðstæðurnar óyfirstíganlegar fyrir
lítil börn, líkamlega og tilfinninga-
lega? Hvar liggja mörkin? Sýningin
kallar á endurskoðun á viðhorfum
til vinnu barna á fyrri tíð. Sýn-
ingin Þrælkun, þroski, þrá? bygg-
ist á stærri rannsókn sem Sigrún
Sigurðardóttir menningarfræð-
ingur vann í rannsóknarstöðu dr.
Kristjáns Eldjárns við Þjóðminja-
safn Íslands. Í tengslum við sýn-
inguna gefur Þjóðminjasafnið út
bókina Afturgöngur og afskipti af
sannleikanum en í henni er fjallað
um ljósmyndir sem menningarlegt
greiningartæki og skoðað hvern-
ig ljósmyndir móta sjálfsmynd,
gildismat og viðhorf einstaklinga
og þjóða. Ljósmyndir eftir íslenska
samtímaljósmyndara eru settar í
alþjóðlegt samhengi og fjallað
um óljós mörk milli heimildaljós-
myndunar og skapandi ljósmynd-
unar. Sigrún Sigurðardóttir er með
BA-próf í sagnfræði frá Háskóla
Íslands og cand.mag.-próf í menn-
ingarfræði frá Kaupmannahafnar-
háskóla með ljósmyndafræði sem
sérsvið.
Sýningin er opin á venjubundn-
um opnunartíma safnsins.
pbb@frettabladid.is
BÖRN Í VINNU
Á SJÓ OG LANDI
SAGA Einar Sigurjónsson um borð í Garðari GK 25 árið 1936. Einar heldur um trollvír.
MYND LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR/GUÐBJARTUR ÁSGEIRSSON
kl. 20
Óperuperlur í Íslensku óperunni við
Ingólfsstræti. Sviðsetning Stefáns
Baldurssonar á öðrum tug atriða úr
ýmsum óperum: Söngvarar í sýning-
unni eru Ágúst Ólafsson, Bjarni Thor
Kristinsson, Sigríður Aðalsteinsdótt-
ir og Sigrún Hjálmtýsdóttir. Undir-
leik annast Antonía Hevesi.
> Ekki missa af …
Stórsveit Reykjavíkur endur-
tekur vegna fjölda áskorana
magnaða klúbbstemningu
frá tónleikum í nóvember sl.
Tónleikarnir fara fram á Café
Rosenberg, Klapparstíg 25, á
sunnudag og mánudag kl. 21.
Flutt verður breytileg dagskrá
úr nótnabók Thads Jones
(1923-86), eins helsta meist-
ara bigband-tónlistar síðustu
áratuga. Tvennir sambæri-
legir tónleikar fóru fram um
síðustu helgi fyrir fullu húsi og
glimrandi viðtökum. Stjórn-
andi Stórsveitar Reykjavíkur á
þessum tónleikum er Sigurður
Flosason.
Gradualekór Langholtskirkju held-
ur tónleika í kirkjunni á sunnudag
kl. 20. Þar verður flutt verk Johns
Høybye, Von. Einsöngvarar í verk-
inu eru kórfélagar sem komnir eru
áleiðis í söngnámi, Guðrún Matt-
hildur Sigurbergsdóttir, Krist-
ín Einarsdóttir Mäntylä, Krist-
ín Sveinsdóttir og Sigrún Ósk
Jóhannesdóttir.
Verkið er samið fyrir kór, ein-
söngvara, orgel, píanó, altsaxóf-
ón, bassa og slagverk. Það er í 8
köflum sem fjalla um síðustu daga
Krists frá ýmsum sjónarhornum.
Komið er við í Getsemanegarðin-
um, á Golgatahæðinni, konunum
fylgt að gröfinni sem reynist tóm
og upprisunni fagnað.
Einvala lið hljóðfæraleikara
munu sjá um tónlistina en það eru
Einar Valur Scheving, Kjartan
Valdemarsson, Lára Bryndís Egg-
ertsdóttir, Sigurður Flosason og
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson.
Auk Håb flytur kórinn verk eftir
baskneska tónskáldið Javier Busto
og þrjú lög eftir Björn Ulveaus og
Benny Anderson úr söngbók Abba.
Stjórnandi kórsins hefur frá upp-
hafi verið Jón Stefánsson.
- pbb
Gradualekór með tónleika
JOHN HÖYBY
LEIKLIST
Sigtryggur
Magnason
Saga Auðar A. Ólafsdóttur, Afleggjarinn, er komin út í danskri þýð-
ingu Erik Skyum Nielsen og fær mikið hrós hjá gagnrýnanda Pol-
itiken í liðinni viku. Tine Maria Winther gerir í blaðinu grein fyrir
sögunni sem er tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
og segir hana hafa skrifað sérstaka og fagra skáldsögu sem kallist á
við Da Vinci-lykilinn. Sagan sé þess utan uppfull af trúarlegum vís-
unum, listsögulegri þekkingu og vangaveltum af
tilvistarlegum toga. Mest sé þó vert að lesa sögu
sem hafi ekki nokkra sögupersónu sem er ill.
Gagnrýnandinn segir sjaldgæft að fá í hend-
urnar skáldsögu sem byggi á kristilegum
gildum. Sagan kemur út hjá forlaginu Athene
(Egmont) og hefur fengið titilinn Stiklingen
á tungu frænda vorra. Gagnrýnandinn lýkur
dómi sínum á orðunum: „En smuk, sær og
måske værdig kandidat til Nordisk Råds Litt-
eraturpris 2009 er hermed anbefalet. Amen.“
- pbb
Afleggjarinn í
danskri útgáfu
BÓKMENNTIR Auður A. Ólafsdóttir rithöf-
undur og listfræðingur fær hrós í Politiken.
KOMNAR
í kilju
Fjögurra stjörnu
KRAKKAKILJUR
FÍASÓL ER FLOTTUST
„Tryggir lesendur Fíusólar
verða ekki fyrir vonbrigðum
með nýju bókina.“
HILDUR HEIMISDÓTTIR / FRÉTTABLAÐIÐ
GARÐURINN
„Það er hraði og spenna
í þessari sögu.“
SOFFÍA AUÐUR BIRGISDÓTTIR / MORGUNBLAÐIÐ