Fréttablaðið - 21.02.2009, Page 44

Fréttablaðið - 21.02.2009, Page 44
● heimili&hönnun „Norræna húsið er listaverk í sjálfu sér og skemmtilegt að nú er verið að virkja það meira fyrir mannamót og viðburði. Áður var alltaf lokað á kvöldin en nú er hægt að njóta þar veitinga í kvöldrökk- rinu og ótrúlega mögnuð stemning að horfa yfir mýrina innan úr nota- legri lampalýsingu Alvars Aalto,“ segir Jóhanna Kristín Ólafsdótt- ir, arkitekt hjá AVH-arkitektum, en hún á heiðurinn að einstaklega fagurri hönnun veitingastaðar- ins Dills, sem opnaði á dögunum í gömlu kaffistofu Norræna húss- ins. Það var finnski arkitektinn Alvar Aalto sem teiknaði hvert smáatriði Norræna hússins innan- húss sem utan. Húsið er menning- arstofnun, rekin af Norrænu ráð- herranefndinni og var opnað fyrir almenningi í ágúst 1968. „Húsið er friðað og þurfti sam- þykki Alvars Aalto-nefndarinn- ar í Helsinki fyrir breytingunum. Því mátti ekki hrófla við neinu af hönnun Alvars, en upprunalegu út- liti kaffiteríu hans hafði áður verið breytt. Eftir stóð umgjörð hans í gluggum, lofti, gólfi og veggjum, og endurtók ég form hans í rimlum sem eru áberandi í húsinu í mis- munandi breiddum. Þannig held- ur sér afgreiðslulúga milli eldhúss og veitingasalar, en í hana setti ég gler svo horfa megi á kokkinn matbúa og skapar lifandi stemn- ingu meðal gesta, ásamt hvítum rimlavegg með hliðsjón af riml- um Alvars í loftinu,“ segir Jóhanna Kristín sem útbjó aukið geymslu- rými fyrir leirtau og vínkæla í hvítum skúffum neðan við eldhús- lúguna, þar sem borðið ofan á er úr hvítum steini. „Hvíti liturinn varð ofan á, því tréverk í húsinu er orðið fjörutíu ára gamalt og erfitt að ná sömu áhrifum með nýjum viði. Allir munir Alvars Aalto, eins og borð- búnaður, lampar, brauðbretti og karöflur sem hann hannaði fyrir Ittala, sem og stólar hans og borð, njóta sín enda mjög vel með hvíta litnum. Útkoman er því töfrandi og norræn, þar sem skapara hússins er gert hátt undir höfði.“ - þlg Jóhanna Kristín Ólafsdóttir arkitekt á heiður að breytingum veitingahúss í Norræna húsinu. Hér undir mynd af kollega sínum Alvari Aalto og frægum standlampa hans. Séð inn í eldhúsið úr veitingasal Dills. Takið eftir hitalömpum eldhússins sem eru eins og þeir sem hanga yfir borðum í sal, eftir Alvar Aalto. Mögnuð stemning í rökkurbirtu mýrar ● Það hvílir hátíðleiki og dulúð yfir Norræna húsinu í Vatnsmýrinni. Húsið er eitt af perlum höfuðstaðarins og friðað í fegurð sinni, en svipmót nútíðar ljær húsinu svip sinn líka. 40 -8 0 af sl át tu r % Auglýsingasími – Mest lesið 21. FEBRÚAR 2009 LAUGARDAGUR4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.