Fréttablaðið - 21.02.2009, Side 66
6 FERÐALÖG
EIN EFTIRMINNILEGASTA FERÐ
SEM ÉG HEF FARIÐ Í VAR TIL …
Norður Indlands
– upp til Ladakh
og Zanskar í
Himalajafjöll-
unum. Þessi
héruð eru oft
kölluð Litla-Tíbet
sökum þess að
þarna búa margir tíbetskir búdd-
istar sem flúið hafa Tíbet eftir að
Kínverjar hertóku landið og sest
að í fjöllum N-Indlands (sbr. Dalai
Lahma sjálfur sem býr á þessu
slóðum (Daramsahla).
FERÐIN VAR SKIPULÖGÐ AF
Khandro Thrinlay Chodon sem
er stofnandi samtaka sem
heita Khacholding http://www.
khachodling.org. Hún helgar
líf sitt búddísku flóttafólki og
hefur ferðast víða um heim til að
safna fé til að byggja nunnu-
klaustur í Zanskar og einnig
til að fræða, styðja og styrkja
fólk sitt. Við íslensku konurnar
ferðuðumst með Iceland Air til
London og þaðan flugum við
með Virgin Airlines til Delí. Í fyrri
hluti ferðarinnar var ferðast á
jeppum frá Delí til nyrsstu héraða
Indlands sem liggja að landa-
mærum Tíbets. Það tók um viku
að komast upp til Ladakh eftir
ævitýralegum vegum, yfir ár,
gljúfur og fjallaskörð í gegnum
þorp og bæi sem ýmist voru á
svæðum hindúa, múslima eða
búddista. Í Leh, sem er stærsta
borg Ladakh, var tveggja daga
stopp og síðan farið með rútu og
gist í tjöldum upp til fjallahéraða
Zanskar. Í Zanskar eru margir
helgir staðir búddista, klaustur,
bæir og hellar, þar sem búddistar
hafa dvalið við ótrúlega bág kjör
um áraraðir.
ÞAÐ MINNISTÆÐASTA SEM ÉG
UPPLIFÐI Í FERÐINNI VAR …
að kynnast þessu yndislega
friðsæla fólki sem býr þarna í
fjöllunum við ótrúlega kröpp kjör
og aðstæður sem minna helst á
aðstæður Íslendinga á land-
námsöld. Hús eru nánast óein-
angruð, víða moldargólf og upp-
hitunin eru ofnar þar sem brennt
er jakuxataði. Rennandi vatn
og rafmagn er nánast hvergi að
finna, nema í bæjum og borgum
og þá skammtað, þannig að fólk
fær rafmagn kannski 2-4 tíma á
dag. Á þessu svæði er vetur 8-9
mánuði á ári með frosti allt að 50
gráðum og miklu fannfergi sem
lokar fólk inni í afskekktum fjalla-
héruðum svo mánuðum skiptir.
Læknisþjónusta er nánast engin
og ferðast þarf í nokkra daga til
að leita sér aðstoðar ef um slys
eða veikindi er að ræða. Þeir
rækta bygg og hafra þessa 3-4
mánuði sem snjólaust er og nýta
mjólk og kjöt af jakuxum, geitum
og kindum. Þrátt fyrir erfiðar
aðstæður tók þetta fallega fólk
okkur opnum örmum og vildi allt
fyrir okkur gera. Hlýjan og gæðin
lýstu af veðurbörðum andlitum
þeirra.Með okkur í för voru þrír
læknar sem tóku að sér að sinna
veiku fólki sem varð á vegi okkar
og gefa lyf, ef þörf var á.
ÉG MÆLI SÉRSTAKLEGA MEÐ
AÐ HEIMSÆKJA … Manali og
Leh sem eru mjög fallegir bæir í
Himalajafjöllunum. Manali er í um
2.500 m hæð. Þar minnir margt á
Sviss eða Austurríki, skógivaxnar
hlíðar, ár og fossar. Það tekur um
2-3 daga að keyra frá Delí norður
til Manali. Leh liggur hins vegar
í um 4.000 m hæð og er gróður
þar meira í líkingu við hálendi
Íslands, en þó mikið þurrara.Í
Leh er flugvöllur og það er hægt
að fljúga þangað beint frá Delí.
Þar sem Leh liggur í 4.000 m
hæð yfir sjávarmáli, þarf fólk sem
vill fljúga þangað beint að reikna
með nokkrum dögum í að jafna
sig vegna háloftaóþæginda sem
geta gert vart við sig.
FERÐALAGIÐ MITT
Ladakh og Zanskar í Litlu-Tíbet
ELÍN KJARTANSDÓTTIR ARKITEKT
Mannlíf Ys og þys á götum Ladakh.
Elín Kjartansdóttir.
1. Fetaðu í fótspor rithöfundanna
Í kirkjugarðinum Cimetière du
Montparnasse getur þú heimsótt
grafir heimspekinganna Jean-Paul
Sartre og Simone de Beauvoir,
Baudelaire, Beckett og Guy de
Montparnasse. Í hverfinu St.Ger-
main-des-Pres á vinstri bakkan-
um eru öll frægu kaffihúsin þar
sem hugsuðirnir og rithöfundarnir
héngu yfir kaffi og absint. Þar má
meðal annars finna Café de
Flore, Les Deux Magots og Les
Editeurs. Ef þú hefur áhuga á
að fjárfesta í fallegum bókum
skaltu endilega kíkja í búðirnar
La Hune eða Galignani eða hina
svölu Librarie 7L sem býður upp
á frábært úrval af lista- og ljós-
myndabókum.
2. Fáðu þér ís við Notre Dame
Gotneska meistarastykki París-
arborgar er Notre Dame-dóm-
kirkjan sem var byggð á milli 1163
og 1334. Kíktu inn fyrir til að dást
að stórfenglegum arkitektúr og
list, og það er sérstaklega gaman
að skoða ufsagrýlurnar sem áttu
að halda illum öflum í burtu. Ská-
hallt á móti kirkjunni er besti ís
Parísarborgar, Berthillon, sem
hefur boðið upp á dásamlegan lúx-
usís allt frá árinu 1954.
3. Maxaðu kreditkortið í Marais
Þetta skemmtilega hverfi á hægri
bakkanum var fyrst þekkt sem
aðsetur gyðinga og samkyn-
hneigðra en telst í dag vera besta
verslunarhverfi borgarinnar. Hér
er meðal annars að finna búð
nýstirnisins Gaspard Yurklevich,
hönnun Luellu Bartley og hinar
víðfrægu gallabuxur Earl Jeans.
Kíktu líka á Les Belles Images
sem selur svöl „sixtís“ föt og Antik
Batik sem er frægt fyrir hippa-
legar og fagrar flíkur. - amb
ÞRÍR HLUTIR TIL AÐ
GERA Í PARÍS
Tískuvikan er að bresta á og upplagt að skella sér til fegurstu borgar heims.
Pompidou safnið Skemmtilegur veitinga-
staður á efstu hæð.
Háfjallaloft Búddamunkar leiðbeina ferðalöngum í Ladakh.
Costa del Sol
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!