Tíminn - 16.01.1988, Qupperneq 3
Laugardagur 16. janúar 1988
Tíminn 3
Framfærsluvísitalan mælir 55% veröbólgu frá desemberbyrjun:
MATARREIKNINGURINN
HÆKKAD UM 2.730KR.
Framfærsluvísitalan hækkaði um
rúm 3,7% milli desember og janúar,
sem svarar til 55% verðbólgu um-
reiknað til heils árs. Lækkun, og
hana örlitla, er aðeins að finna á 3
af 45 liðum vísitölunnar. En meiri-
hluti vísitöluhækkunarinnar, eða
2,5%, er þó afleiðing þeirrar gífur-
legu hækkana sem orðið hafa á
matvörum. Metið eiga kartöflumar,
22% hækkun, fiskurinn 18%, græn-
meti og ávextir 16% og mjöl og
brauðvörur ásamt kjötvömm sem
hækkað hafa um 13-14% að meðal-
tali.
Sá sem gerði 5.000 kr. helgarinn-
kaup í byrjun desember má reikna
með að þurfa borga, nær 11% hærri
upphæð, eða 5.540 kr. fyrir sam-
bærileg innkaup þessa helgi, - þ.e.
ef hann hagar innkaupum sínum
svipað og „vísitölufjölskyldan",
samkvæmt útreikningum Hagstof-
unnar á framfærsluvísitölunni.
Borði hann meira af fiski, kartöflum
og ferskum ávöxtum (eins og holl-
ustufræðingarnir mæla með), en
minna af smjöri, eggjum, súkkulaði
og „ruslfæði" má hann búast við
mun meiri hækkun á helgarinnkaup-
unum.
Matarreikningur „vísitölufjöl-
skyldunnar" er nú um 28.130 kr.
(7.685 kr. á mann) á mánuði og
hefur hækkað um 2.730 kr. á einum
mánuði og nær 3.600 krónur aðeins
síðan í nóvemberbyrjun.
„Matarskattur" stjómvalda er þó
ekki það eina sem hefur hækkað
vísitölunna. Um 0,5% hennar stafa
af gjaldskrárhækkun ýmissa annarra
opinberra liða; rafmagns-og húshit-
unar, lyfja og læknishjálpar og sjón-
varpsgjalda.
t>á er athyglisvert, að verðhækkun
á happdrættismiðum hefur hækkað
vísitöluna mun meira (0,2%) en
15% hækkun rafmagnsreikningsins.
Þá má nefna að rafmagnsbúsáhöld
hafa að meðaltali hækkað umtals-
vert í verði, 3,4%, þrátt fyrir allar
auglýsingar um stórfenglegar verð-
lækkanir á fjölda tækja í þeim
vöruflokki. Ferðakostnaður þeirra
sem fara neð strætó hefur hækkað
um 5,5% eða tifalt meira en íerða-
kostnaður í einkabílnum. „
Aukning í
veiði fór
til bræðslu
Leikstjóri er Ingunn Jensdóttir
Saumakona sem sagt var upp meöal
leikenda í „Saumastofunni" á fyrri vinnustað:
„Saumastofan“ sýnd í
saumastofunni
Fimmtíu og fimm skip fóru til
síldveiða síðastliðið haust og nam
heildarafli þeirra samtals 71.622
lestum og er það 9.000 lesta aukn-
ing frá árinu áður, eða 14,3%.
49.739 lestir fóru til vinnslu, og er
það 69,4% heildaraflans, en 21.883
lestir fóru til bræðslu, eða 30,6%.
Haustið 1986 fóru hins vegar
11.347 lestir, eða 18%, til bræðslu,
og sést á því að aukningin í heildar-
veiðinni fer til bræðslu, en ekki til
vinnslu.
Þessar upplýsingar koma meðal
annars fram í skýrslu Arnars
Traustasonar, veiðieftirlitsmanns,
um síldveiðar frá 1.10.1987 til 1.1.
1988.
Bræðsluaukningin kemur betur
fram í yfirliti síðastliðinna þriggja
ára. Þar sést að á árinu 1985 fóru
98,3% heildaraflans til vinnslu, en
1,7% til bræðslu. 1986 fóru 81,9%
til vinnslu, en 18,1 til bræðslu, en
á síðasta ári fóru 69,4% til vinnslu
og 30,6% til bræðslu.
Allur afli síðasta árs veiddist í
nót og voru aðalveiðisvæðin sem
fyrr innfjarðar og í fjarðarmynnum
frá Seyðisfirði til Fáskrúðsfjarðar.
Töluvert bar á dauðri síld á
botni fjarðanna, sérstaklega í
Stjórnarandstaðan í borgarstjórn
sem samanstendur af Alþýðubanda-
lagi, Alþýðuflokki, Framsóknar-
flokki og Kvennalista, mun halda
opna fundi með íbúum Reykjavíkur
næstu daga. Tilefni þess er að nú
hefur meirihlutinn í borgarstjórn
lagt fram tillögur að fjárhagsáætlun
fyrir árið 1988 og mun fjárhagsáætl-
unin verða endanlega afgreidd í
borgarstjórn 4. febrúar.
Stjórnarandstaðan mun fjalla um
fjárhagsáætlunina og kynna sínar
hugmyndir um breytingar, en þó
fyrst og fremst er ætlun stjórnarand-
stöðunnar að fá fram skoðanir og
Berufirði og töldu skipstjórar
veiðibátanna að hér væri um að
ræða dauða síld frá fyrri vertíð sem
sleppt hefði verið niður úr nótum
bátanna. Skipstjórarnir sögðu
einnig að þeir teldu að minna hefði
verið um að síld væri sleppt niður
í ár en áður og töldu einkum tvær
ástæður fyrir því. Annars vegar
væru menn orðnir meðvitaðri um
vandamálið og hins vegar var það
svo á þessari vertíð að tvö skip
fylgdu flotanum veiðarfæralaus og
þáðu þá síld sem framyfir var. Slíkt
mæltist vel fyrir og voru þessi skip
nefnd snaparar.
Síldin sem veiddist á þessu
þriggja mánaða tímabili var góð,
bæði stór og feit og bar lítið á átu
í henni. Þá var tíðafar hagstætt og
hamlaði hvorki veiði né flutningi.
Breytt högun var á eftirliti og var
skipstjórum nú gert að senda inn
vikuskýrslur að viðlagðri leyfis-
sviptingu, gengi það ekki eftir.
Átta skip voru svipt veiðileyfum,
fyrir að skila ekki skýrslum og
gekk innheimta skýrslna mun betur
fyrir sig eftir það.
Mest var landað á Eskifirði, eða
12.285 lestum og Neskaupstaður
var í öðru sæti með 11.018 lestir.
óskir Reykvíkinga um þau verkefni
sem borgarbúar telja brýnt að kom-
ist í framkvæmd.
Fundir stjórnarandstöðunnar í
borgarstjórn verða haldnir á sex
stöðum í borginni.
Þriðjudaginn 19. janúar verður
fundur haldinn með íbúum Grafar-
vogs í Veitingahúsinu Ártúni, Vagn-
höfða 11, og hefst hann klukkan
20.30.
Breiðholtsbúar funda með
stjórnarandstöðunni í Gerðubergi
miðvikudaginn 20.janúar og hefst sá
fundur einnig klukkan 20.30.
Fimmtudaginn 21. janúar klukkan
Saumastofan Sunna á Hvolsvelli,
sem lokað var vegna fjárhagserfið-
leika s.l. haust, hefur nú fengið nýtt
hlutverk sem leikhús fyrir uppsetn-
ingu á „Saumastofunni," sem frum-
sýnd verður þar af Leikfélagi Rang-
20.30 verður fundur með íbúum
Austurbæjar innan Snorrabrautar,
Laugavegar/ Suðurlandsbrautar,
Reykjanesbrautar, Fossvogsdals og
Suðurhlíðar/Skógarhlíðar.
Laugardaginn 23. janúar verður
fundur í Árseli fyrir íbúa Seláss,
Árbæjar og Ártúnsholts og hefst
fundurinn klukkan 13.00.
Laugardaginn 23. janúar verður
einnig fundur með íbúum Austur-
bæjar innan Sætúns, Elliðavogar og
Suðurlandsbrautar/Laugavegar.
Fundurinn verður haldinn í kaffi-
teríunni Glæsibæ og hefst hann
klukkan 16.00.
æinga n.k. fimmtudag. Ein af leik-
konunum í Saumastofunni var með-
al þeirra sem sagt var upp störfum á
saumastofunni Sunnu á sínum tíma.
Mun ekki laust við að sumum Rang-
æingum finnist þarna um svolítið
Síðasti fundurinn verður haldinn
að Hótel Borg mánudaginn 25.
janúar klukkan 20.30 fyrir íbúa Þing-
holta, Miðbæjar og Vesturbæjar.
Borgarfulltrúar stjórnarandstöðu-
nnar eru þau Sigurjón Pétursson,
Kristín Á. Ólafsdóttir og Guðrún
Ágústsdóttir frá Alþýðubandalagi,
Bjarni P. Magnússon frá Alþýðu-
flokki, Sigrún Magnúsdóttir Fram-
sóknarflokki og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir Kvennalista. Þau hvetja
borgarbúa til að koma á fundina og
leggja þannig sitt að mörkum við
gerð fjárhagsáætlunar borgarinnar.
Sunnu
grátbroslegan atburð að ræða.
Þorsteinn Ragnarsson, form.
Leikfélagsins sagði þetta þannig til
komið, að félagið hafi verið í hálf-
gerðu húsnæðishraki þegar því
bauðst húsnæði saumastofunnar
Sunnu hjá kaupfélagsstjóranum á
Hvolsvelli. „Og þá kom auðvitað
ekkert annað leikrit til greina en
Saumastofan“, sagði Þorsteinn.
{ Sunnu má segja að leikmynd
fyrir Saumastofu Kjartans Ragnars-
sonar hafi fylgt fullsköpuð með
húsnæðinu. Enda sagði Þorsteinn að
sýningin væri sett þannig upp, að
leikhúsgestir hefðu á tilfinningunni
að þeir væru að mæta á vinnustað.
Þorsteinn sagði undirbúning hafa
byrjað í októbers.l., en frá4. janúar
hafi síðan verið æft á hverju kvöldi.
Leikstjóri er Ingunn Jensdóttir, sem
Þorsteinn sagði eiga góðan þátt í að
endurvekja starfsemi Leikfélags
Rangæinga sem legið hafi niðri síð-
ustu 3-4 árin. Hann sagði 6 sýningar
ákveðnar en þær gætu orðið fleiri ef
aðsókn leyfir. Vegna þess að sauma-
stofan Sunna myndar sjálfa umgjörð
og leiksvið “Saumastofunnar“ verð-
ur ekki hægt að fara með sýninguna
á aðra staði í sýslunni eða utan
hennar, eins og áhugaleikfélög úti á
landi gera gjarnan með sýningar
sínar. - HEI
-SÓL
Borgarfulltrúar stjórnarandstööunnar:
Funda með borgarbúum