Tíminn - 21.05.1988, Qupperneq 20
20 Tíminn
Laugardagur 21. maí 1988
Vorsýning Myndlista-
skólans á Akureyri
Vorsýning Myndlistaskólans á Akur-
eyri verður opnuð í dag, laugardaginn 21.
maí í salarkynnum skólans, Glerárgötu
34,4. hæð ogGallerí Glugganum á 1. hæð
í sama húsi.
Á sýningunni verða verk sem nemend-
ur hinna ýmsu deilda skólans hafa unnið
í vetur. Starfsemi skólans er einkum
tvíþætt. Annars vegar er það síðdegis- og
kvöldnámskeið fyrir börn og fullorðna í
hinum ýmsu greinum myndlista, og hins
vegar dagskóli, fornámsdeild, þar sem
fram fer listrænn og tæknilegur undirbún-
ingur undir nám í sérnámsdeildum, mál-
unardeild, sem er þriggja ára sérnám.
Einnig annast skólinn hinn faglega þátt
myndlistarbrautar Menntaskólans á Ak-
ureyri.
Á sýningunni um helgina gefur að líta
allgott yfirlit yfir hið margþætta starf sem
unnið er í skólanum á námskeiðum og
dagdeildum.
„Það er von nemenda og kennara, að
sem flestir bæjarbúar auki á lit hvíta-
sunnuhelgarinnar með því að koma á
sýninguna að skoða og kynnast starfsemi
skólans," segir í fréttatilkynningu frá
skólanum.
Nemendur Myndlistaskólans á Akur-
eyri voru 200 á hvorri önn í vetur, og
kennarar 12.
Sýningin verður opin kl. 14:00-22:00
yfir helgina, og henni lýkur á mánudags-
kvöldið.
Kristinn Morthens listmálari að störfum.
Kristinn Morthens sýnir íHveragerði
Kristinn Morthens listmálari hefuropn-
að myndlistarsýningu í Félagsheimili Ólf-
usinga í Hveragerði. Kristinn hefurverið
í fremstu röð íslenskra alþýðumálara og
málað íslcnska náttúru í hálfa öld. Hann
málar einkum myndir frá æskustöðvum
sínum við Heklu og fleiri stöðum á Suður-
og Vesturlandi.
Á þessari sýningu mun Kristinn sýna 30
myndir, málaðar með olíu- og vatnslitum
og eru þær allar til sölu.
Sýningin verður opin kl. 14:00-22:00,
en síðasti sýningardagur er mánud. 23.
maf.
Á meðan á sýningu stendur mun Kven-
félag Hveragerðis vera með kaffi- og
kökuveitingar.
ICsther Helga Guðmundsdóttir og David
Knowles.
Söngtónleikar að Kjarvals-
stóðum á annan í hvítasunnu
Esther Helga Guðmundsdóttir hcldur
sína fyrstu einsöngstónleika hér á landi
að Kjarvalsstöðum á annan í hvítasunnu,
23. maí kl. 20:00. Hún lýkur prófi í söng
og tónlistarfræðum frá Háskólanum í
Indiana, Bandaríkjunum, í lok þessa árs.
Esther hefur sungið tvö hlutverk við
Óperuna í Indiana, auk þess hefur hún
ferðast sem einsöngvari með kórum til
Ítalíu og komið fram við ýmis tækifæri
hér heima og erlendis.
Undirleikari er David Knowles.
David Knowles útskrifaðist sem pían-
óundirleikari frá Royal Northern College
of Music í Manchester árið 1980. Hann
hefur verið búsettur hér á landi um árabil
og starfar sem undirleikari við Söngdeild
Garðabæjar og Söngskólans í Rcykjavík.
David hefur komið fram sem undirleikari
víða um land.
Efnisskráin verður fjölbreytileg.
Dramatískar aríur úr óperum eftir G.H.
Gluck ogG. C. Menotti, Sigaunalög eftir
A. Dvorák, þrjú Ijóð eftir R. Strauss,
Ljóðaljóð Páls lsólfssonar og Ijóðaflokk-
urinn „1 Hate Music“ eftir Leonard
Bernstein.
Tónleikar í íslensku óperunni
Þorstcinn Gauti Sigurðsson píanóleik-
ari heldur tónleika í íslensku óperunni
þriðjudaginn 24. maí kl. 20:30.
Þetta eru þriðju tónleikarnir á vegum
Styrktarfélags Islensku óperunnar.
Þorsteinn Gauti hóf ungur píanónám
og lauk einleikaraprófi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík 1979. Hann stund-
aði framhaldsnám í Juilliard School of
Music í New York og í Róm á Ítalíu og
hefur komið fram víða um lönd sem
einleikari með hljómsveitum og á tónleik-
um.
Á efnisskránni eru verk eftir Gunnar
Reyni Sveinsson, S. Rachmaninoff, M.
Ravel og F. Liszt.
Miðar við innganginn (400 kr.) og er
15% afsláttur til Styrktarfélags íslensku
óperunnar, ellilífeyrisþega og námsm-
anna.
Islenska óperan
Aukasýning á Don Giovanni
Islenska óperan hefur ákveðið eina
aukasýningu á óperunni Don Giovanni
eftir Mozart föstudaginn 27. maí kl.
20:00.
Húsfyllir var á síðustu sýningar og
eftirspurn mikil eftir miðum. Hljómsveit-
arstjórinn, Anthony Hose, getur komið
til landsins þessa helgi, svo þá þótti
tilvalið að hafa aukasýningu fyrir þá sem
urðu áður að hverfa frá. Þetta er því
síðasta tækifærið til að sjá og heyra þessa
frábæru sýningu á Don Giovanni.
Hafnarfjarðarkirkja
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 á hvíta-
sunnudag. Organisti Helgi Bragason.
Sr. Gunnþór Ingason
Keflavíkurkirkja
Hvítasunnudagur - guösþjónusta kl.
11:00. Kór Keflavíkurkirkju syngur og
organisti er Siguróli Geirsson.
Sóknarprestur
Húnvetningafélagið
- aðalfundur
Aðalfundur Húnvetningafélagsins í
Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn
24. maí kl. 20:00 í félagsheimilinu Skeif-
unni 17. Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffi-
veitingar. Stjómin
Neskirkja
Hvítasunnudagur: Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 11:00. Á annan í hvítasunnu:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 11:00. Orgel og
kórstjórn: Reynir Jónasson.
Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson
N0RRÆN
MENNINGARRÁÐSTEFNA
„Lífgandi menning" (Kultur sem gcr
lif) er yfirskrift ráðstcfnu sem Antrópó-
sófíska félagið í Svíþjóð býður til í sumar.
Ráðstefnuhaldið fer einkum fram á Ru-
dolf Steiner-seminaríinu í Járna ogstend-
ur yfir í 3 vikur, frá 17. júlí til 5. ágúst.
Til umræðu verða framtíðarleiðir í
samfélaginu, á hvern hátt verði snúist til
baráttu með lífinu. Meðal ræðumanna
verður fólk frá Norðurlöndunum sem
starfar að menningar- og náttúruverndar-
málum. Má þar nefna forstöðumenn
Rauða krossins í Svíþjóð og umhverfis-
málaráðherra Dana. Kostur gefst á að
kynnast starfi antrópósófa og þeirri lífs-
sýn sem þar býr að baki.
Heimsóknir verða í stofnanir og fyrir-
tæki, sýningar, tónleikar og fleira á döf-
inni.
Ráðstefnan er öllum opin, dagskrá og
nánari upplýsingar er hægt að fá í gegnum
Rudolf Steinerseminariet, 15300 Járna.
Neskirkja - Starf aldraðra
Opiö hús fyrir aldraða þriðjudag og
fimmtudag kl. 13:00-17:00.
Á miðvikudag er „Fvrirhænamessa"
kl. 18:20.
TENNISMÓT
Nick Dunlop tcnnismót unglinga, 16
ára og yngri, verður haldið dagana 27.-
29. maí við Kópavogsskóla. Skrásetn-
ingalistar liggja frammi við tennisvelli í
Kópavogi og við Víkingsvelli í Fossvogi.
Þátttöku er einnig hægt að tilkynna til
Páls Stefánssonar í síma 75262 fyrir kl.
20:00 fimmtudaginn 26. maí.
Keppni hjá „Hár & fegurð“
Nýstárleg keppni stendur nú yfir hjá
tímaritinu Hár & fegurö. Keppt er um
hártískulínur fyrír veturínn ’88-’89.
Keppnin er flokkuö í tvo flokka og er
lögö áhersla á permanent í öörum flokkn-
um og litanir í hinum. Þarna fær hár-
greiðslufólk tækifæri til aö spreyta sig og
láta hæfileikana njóta sín.
Mynd af vinningsmódelinu verður birt
á Noröurlöndunum og víðar í heiminum,
einnig verður vinningsmyndin sett á plak-
at sem dreift veröur víöa.
Hallgrímskirkja - Starf aldraðra
Næstkomandi fimmtudag, 26. maí, er
fyrirhuguð ferð til Selfoss. Þar verða söfn
og kirkjan skoðuð. Ekið verður að
Hraungerði og þar mun frú Stefanía
Gissurardóttir, síðasta prestskona staðar-
ins, segja frá.
Nánari upplýsingar gefur Dómhildur
Jónsdóttir í síma 39965.
Félagsvist
Húnvetningafélagsins
Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur
félagsvist í félagsheimilinu Skeifunni 17
laugardaginn 21. maí kl. 14:00. Kaffiveit-
ingar. Allir vclkomnir.
Húnvetningaf élagið ■ aðalf undur
Aðalfundur Húnvetningafélagsins í
Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn
24. maí kl. 20:00 í félagsheimilinu Skeif-
unni 17. Venjuleg aðalfundarstörf kaff-
iveitingar. Stjómin
Þorlákskirkja
opin ferðamönnum
Á sfðasta sumri tók sóknarnefnd Þor-
lákskirkju upp það nýmæli að hafa
kirkjuna opna ferðamönnum um helgar
og hafa þar staðkunnugt fólk, sem veitt
gæti gcstum haldgóðar upplýsingar um
kirkjuna og byggðina t Þorlákshöfn.
Þessi nýbreytni gafst mjög vel. Nú
hefur vcrið ákveðið að hafa sama háttinn
á í sumar og hafa kirkjuna opna á
laugardögum og sunnudögum í júní, júlí
og ágúst.
Kirkjan verður opin og Ieiðsögumenn
þar staddir kl. 15:00-19:00 báða dagana.
Ef þessi tími hentar ekki er hægt að
hringja í símanúmer sem er uppfest við
kirkjudyrnar, og fá annan tíma.
Ef hópar koma í miðri viku þar að láta
vita um það með fyrirvara og hringja í
síma (99)3881 eða 3780 - til 10. júlí, en
eftir þann tíma í síma (99) 3638 eða 3990.
Minningarkort Styrktarsjóðs
bamadeildar Landakotsspítala
Styrktarsjóður barnadeildar Landa-
kotsspítala hefur látið hanna minningar-
kort fyrir sjóðinn. Sigríður Björnsdóttir
myndlistarmaður og kennari teiknaði
fjögur mismunandi kort. Eftirtaldir staðir
selja minningakortin:
Ápótek Seltjarnarness, Vesturbæjar-
apótek, Hafnarfjarðarapótek, Garðsapó-
tek, Holtsapótek, Mosfellsapótek, Ár-
bæjarapótek, Lyfjabúð Breiðholts,
Reykjavíkurapótek, Háaleitisapótek,
Kópavogsapótek, Lyfjabúðin Iðunn.
Blómaverslanirnar Burkni, Borgarblóm,
Melanóra Seltjarnarnesi og Blómaval
Kringlunni. Einnig eru þau seld á skrif-
stofu og barnadeild Landakotsspítala.
Listasafn Einars Jónssonar
Listasafn Einars Jónssonar er opið alla
laugardagaogsunnudagakl. 13:30-16:00.
Höggmyndagarðurinn er opinn alla
dagafrá kl. 11:00-17:00.
ÚTVARP/SJÓNVARP lllllllllllllllllllllllllllllllllllli
Laugardagur
21. maí
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Karl Sigurbjömsson
flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir hlustendur". Pétur Pét-
ursson sér um þáttinn. Fréttir sagðar kl. 8.00,
þá lesin dagskrá og veðurfregnir sagðar kl.
8.15. Að þeim loknum heldur Pétur Pétursson
áfram að kynna morgunlögin.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónlist.
9.30 Saga barna- og unglinga: „Drengirnir á
Gjögri“ eftir Bergþóru Pálsdóttur. Jón Gunnars-
son les (7).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Vikulok. Brot úr þjóðmálaumræðu vikunnar,
fréttaágrip vikunnar, hlustendaþjónusta, viðtal
dagsins og kynning á helgardagskrá Útvarps-
ins. Tilkynningar lesnar kl. 11.00. Umsjón: Einar
Kristjánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.10 Hér og nú. Fréttaþáttur í vikulokin.
14.00 Tilkynningar.
14.05 Sinna. Þáttur um listir og menningarmál.
Umsjón: Porgeir Ólafsson.
15.00 Tónspegill. Páttur um tónlist og tónmenntir
á líðandi stund. Umsjón: Magnús Einarsson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.30 Leikrit: „Bláklædda konan“ eftir Agnar
Þórðarson. Leikstjóri: Benedikt Árnason.
Leikendur: Erlingur Gíslason, Ragnheiður
Steindórsdóttir, ívar örn Sverrisson, ísold
Uggadóttir, Herdís Þorvaldsdóttir, Jón Gunnars-
son, Baldvin Halldórsson, Ellert Ingimundarson
og Klemenz Jónsson. (Einnig útvarpað nk.
þriðjudagskvöld kl. 22.30).
17.05 „öskubuska", balletttónlist eftir Sergei
Prokofiev. Sinfóníuhljómsveit Lundúna leikur;
André Previn stjórnar.
18.00 Gagn og gaman. Umsjón: Sigrún Sigurðar-
dóttir.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
19.35 Kvöldmálstónar. Ella Fitzgerald syngur lög
eftir Jerome Kern. Nelson Riddle útsetti og
stjórnar hljómsveitinni sem leikur. (Af geisla-
diski, hljóðritað í Los Angeles 1963).
20.00 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Högni Jónsson.
(Einnig útvarpað nk. miðvikudag kl. 14.05).
20.30 Maður og náttúra - Útivist. Þáttur í umsjá
Sigmars B. Haukssonar.
21.30 Danslög
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Útvarp Skjaldarvík. Leikin lög og rifjaðir upp
atburðir frá liðnum tíma. Umsjón: Margrét
Blöndal. (Frá Akureyri)
23.20 Stund með Edgar Allan Poe. Viðar Eggerts-
son les söguna „Dularfull fyrirbrigði”. (Áður
útvarpað í júní í fyrra).
24.00 Fréttir.
24.10 Um lágnættið. Sigurður Einarsson kynnir
sígilda tónlist.
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns.
02.00 Vökulógin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi.Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
10.05 Nú er lag. Gunnar Salvarsson tekur á móti
gestum í morgunkaffi, leikur tónlist og kynnir
dagskrá Ríkisútvarpsins.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Léttir kettir. Jón Ólafsson gluggar í heimilis-
fræðin... og fleira.
15.00 Við rásmarkið. Sagt frá íþróttaviðburðum
dagsins.Umsjón: íþróttafréttamenn og Gunnar
Svanbergsson.
17.00 Lög og létt hjal. Svavar Gests kynnir
innlend og erlend lög og tekur gesti tali um lista-
og skemmtanalíf um helgina.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Út á Iffið. Eva Albertsdóttir ber kveðjur milli
hlustenda og leikur óskalög.
02.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og
sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum
kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 8.00, 9.00, 10.00,
12.20, 16.00, 19.00, 22.00 og 24.00.
SJÓNVARPIÐ
Laugardagur
21.. maí
13.30 Fræðsluvarp. 1. Garðar og gróður. Garð-
yrkjuþáttur, gerður í samvinnu við Garðyrkju-
skóla ríkisins. í þættinum er fjallað um jarðveg
og áburð. 2. Skákþáttur. Umsjónarmaður
Áskell örn Kárason. 3. Hvað vil ég? Mynd
unnin á vegum námsráðgjafar Háskóla íslands
og Fræðsluvarps og fjallar um þau atriði sem
liggja til grundvallar náms- og starfsvali. Mynd
sem á erindi til alls námsfólks í grunnskólum og
framhaldsskólum.
14.40 Hlé
17.00 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Litlu Prúðuleikararnir (Muppet Babies)
Teiknimyndaflokkur eftir Jim Henson. Þýðandi
Guðni Kolbeinsson.
19.25 Staupasteinn (Cheers) Bandarískur gam-
anmyndaflokkur. Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
19.50 Dagskrárkynning
20.00 Fréttir og veður
20.35 Lottó
20.40 Landið þitt - ísland Umsjón Sigrún Stefáns-
dóttir.
20.50 Fyrirmyndarfaðir (The Cosby Show) Þýð-
andi Guðni Kolbeinsson.
21.20 Óðal feðranna. Islensk kvikmynd frá 1980.
Höfundur og leikstjóri: Hrafn Gunnlaugsson.
Aðalhlutverk: Jakob Þór Einarsson, Hólmfríður
Þórhallsdóttir, Jóhann Sigurðarson og Guðrún
Þórðardóttir. Eftir andlát föður síns ákveður
Helgi að halda á eftir bróður sínum Stefáni til
Reykjavíkur í framhaldsnám. Hvorugur bræðr-
anna hefur áhuga á búskap og þeir ákveða að
telja móður sína á að bregða búi, selja jörðina
og flytja suður ásamt systur þeirra. Þessi áform
verða að engu. Sænska kvikmyndaakademían
útnefndi Óðal feðranna eina af úrvalsmyndum
ársins 1981. Á undan sýningu myndarinnar
ræðir lllugi Jökulsson við Hrafn Gunnlaugsson.
23.05 Nancy Wake (Nancy Wake) Seinni hluti
áströlsku myndarinnar um blaðakonuna Nancy
Wake sem gegndi mikilvægu hlutverki í frönsku
andspymuhreyfingunni í síðari heimsstyrjöld-
inni. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
00.40 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Laugardagur
21. maí
09.00 Með afa. Þáttur með blönduðu efni fyrir
yngstu börnin. Afi skemmtir og sýnir bömunum
stuttar myndir: Skeljavík, Kátur og hjólakrílin og
fleiri leikbrúðumyndir. Emma litla, Lafði Lokka-
prúð, Yakari, Júlli og töfraljósið, Depill, í bangsa-
landi og fleiri teiknimyndir. Solla Bolla og
Támína, myndskreytt saga eftir Elfu Gísladótt-
ur. Myndir: Steingrímur Eyfjörð. Gagn og
gaman, fræðslumynd. Allar myndir sem bömin
sjá með afa, eru með íslensku tali. Leikraddir:
Elfa Gísladóttir, Guðmundur Ólafsson, Guðný
Ragnarsdóttir, Guðrún Alfreðsdóttir, Guðrún
Þórðardóttir, Júlíus Brjánsson, Kolbrún Sveins-
dóttir, Randver Þorláksson og Saga Jónsdóttir.
10.30 Kattanórusveiflubandið.
11.00 Hinir umbreyttu. Teiknimynd. Þýðandi Ást-
ráður Haraldsson
11.25 Henderson krakkarnir. Leikinn myndaflokk-
ur fyrir börn og unglinga. Systkini og borgarbörn
flytjast til frænda síns upp í sveit þegar þau
missa móðursína. Þýðandi: Gunnar Þorsteins-
son.
12.05 Hlé.
13.50 Fjalakötturinn. Tim. Tim. Áströlsk mynd um
hálffertuga konu er verður ástfangin af sér yngri
manni, sem er þroskaheftur. Kynni þeirra takast
þegar hún ræður Tim til garðyrkjustarfa, en upp
frá því fer vinátta þeirra að þróast. I fyrstu
beinist áhugi hennar að því að kenna Tim að
lesa, mála og skilja það sem hann hafði ekki haft
tækifæri til að læra vegna rangs uppeldis og
utanaðkomandi áhrifa. Samband þeirra verður
að heitu tilfinningasambandi, þar sem Tom á
ekki síður þátt í að fylla líf þeirra hamingju.
Aðalhlutverk: Piper Laurie og Michael Gibson.
Leikstjóri: Michael Pate. Framleiðandi: Michael
Pate. Ástralía 1979. Sýningartími 90 mín.
15.35 Ættarveldið. Dynasty. Framhaldsþáttur um
ættarveldi Carringtonfjölskyldunnar. Þýðandi:
Guðni Kolbeinsson. 20th Century Fox.
16.30 Nærmyndir. Nærmynd af Friðrik Ólafssyni.
Umsjónarmaður: Jón Óttar Ragnarsson. Stöð 2.
17.00 NBA-körfuboltinn. Einhverjir snjöllustu
íþróttamenn heims í hörðum leik. Umsjón
Heimir Karlsson. ___________________
18.30 íslenski listinn. Bylgjan og Stöð 2 kynna 40
vinsælustu popplög landsins. Vinsælirhljómlist-
armenn koma fram hverju sinni. Þátturinn er
gerður í samvinnu við Sól hf. Umsjónarmenn:
Felix Bergsson og Anna Hjördís Þortáksdóttir.
Stjómandi upptöku: Valdimar Leifsson. Stöð
2/Bylgjan.
19.1919.19 Fréttir og fréttatengt efni ásamt veður-
og íþróttafréttum.
20.10 Hunter. Hunter og MacCall komast á slóð
harðsnúinna glæpamanna. Þýðandi: Ingunn
Ingólfsdóttir. Lorimar.________________________
21.00 Silverado. Silverado. Myndin segirfráfjórum
ólíkum mönnum sem mætast fyrir tilviljun á leið
til Silverado hver í sínum erindagjörðum. Leik-
stjórinn, Kasdan, sem hefur m.a. leikstýrt mynd-
unum Body Heat og The Big Chill, hefur
eftirfarandi að segja um Silverado: „Hetjumar í
Silverado hafa hver sína ástæðu til ferðalagsins
og allir eru með ákveðið markmið í huga. Þegar
líður á myndina myndast sterk tengsl milli
ferðalanganna, sem öllum eru sameiginleg,
leitin að einhvers konar fjölskyldulífi“. Aðalhlut-
verk: Kevin Klein, Scott Glenn, Rosanna Arqu-
ette, John Cleese, Kevin Costner, Jeff Goldblum
og Linda Hunt. Leikstjórn: Lawrence Kasdan.
Framleiðandi: Lawrence Kasdan. Columbia
1985. Sýningartími 130 mín.
23.20 Skrifstofulíf. Desk Set. Ungum eldhuga er
falið það verkefni að endurskipuleggja deild
sjónvarpsstöðvar með það fyhr augum að hún
verði nútímalegri. Meðal breytinga hyggur hann
á tölvuvæðingu en deildarstjórinn, sem er
íhaldssöm kona, er lítið gefin fyrir nýjungar og
uppivöðslusama menn. Þessi frábæra gaman-
mynd á eflaust eftir að kynda undir góða skapið.
Aðalhlutverk: Spencer Tracy og Katherine
Hepbum. Þýðandi: Ástráður Haraldsson, 20th
Century Fox.
01.00 Þorparar. Minder. Spennumyndaflokkur um
lífvörð sem á oft erfitt með að halda sér réttu
megin við lögin. Þýðandi: Björgvin Þórisson.
Thames Television.
01.50 Líf og dauði í L.A. To Live and Die in L.A.
Leyniþjónustumaður kemst á snoðir um dval-
arstað peningafalsara nokkurs, en áður en
hann getur borið hönd yfir höfuð sér, er hann
myrtur á hroðalegasta hátt. Félagi hans sver
þess dýran eið að leita hefnda og ná sér niðri á
sökudólgnum. Aðalhlutverk: William L. Peter-
son, Willem Dafoe og John Pankow. Leikstjóri:
William Friedkin. Framleiðandi: Irving H. Levin.
Þýðandi: Bjöm Baldursson. United Artists 1985.
Sýningartími 116 mín. Ekki við hæfi barna.
03.45 Dagskrárlok.