Tíminn - 21.05.1988, Síða 23

Tíminn - 21.05.1988, Síða 23
Laugardagur 21. maí 1988 Tíminn 23 SPEGILL llillllllll Stand í Sápu- landi Nú er víst farið að ganga illa fyrir stóru framhaldsþáttunum, Dallas, Ættarveldinu og fleiri slíkum. Áhorfendum fækkar óðum og þar með minnka auglýsingatekjurnar líka. Þrátt fyrir þetta hafa bæði Joan Collins og John Forsythe farið fram á umtalsverðar launa- hækkanir og fáist þær fram, hafa þau skötuhjú hvorki meira né minna en rúmar sex milljómr króna fyrir hvern þátt af Ættarveldinu. Linda Evans er hins vegar ekki mcð í spilinu, því ef rétt er sem sagt er, á hún von á barni með haustinu. Á meðfylgjandi mynd er ekki annað að sjá, en þeim komi vel saman, sem þó er sjaldgæft þar á bæ. Hvorki fyrstur ne síðastur Eitthvað er Jean-Paul Belmondo einkennilega klæddur hér á mynd- inni, en það á sína skýringu. Hann hefur nefnilega einkar gaman af að hjóla og dreymir um að taka ein- hverntíma þátt í hjólreiðakeppni umhverfis Frakkland. Hann hefur stundað íþróttina árum saman og þrátt fyrir að hann er ekki unglamb lengur, stendur hann sig með mestu prýði. -Ég sigra aldrei, en ég hef heldur aldrei verið seinastur, segir hann hreyk- inn. -Hjólreiðar eru fyrirtaks þjálf- un og gera tvöfalt gagn í starfi eins og mínu, því við kvikmyndatökur situr maður mikið og stendur uppá endann, en það er lítil hreyfing í því. Hvern ætlar Brigitte að bíta ? Þetta er áreiðanlega ekki besta myndin af henni Brigitte (Stallone fyrrv.) Nielsen, en óneitanlega er myndin þó sérstök á stna vísu. Ef einhver hefði áhuga á að vita hvað Brigitte er að gera á mynd- inni, þá er hún að líkja eftir geimverunni E.T., sem margir muna eftir úr samnefndri mynd. Við nánari athugun er munn- svipur Brigitte ekki ósvipaður og á honum Choo-Choo, sem er York- shire terrier-hundur. Það var mynd af honum á sömu blaðsíðu og Brigitte og bæði hafa þau fallegar hvítar tennur, - en Choo-Choo er slæmur með að bíta fólk, en það hefur ekki heyrst um Brigitte. Choo-Choo sýnir tennurnar ... Það gerir líka hún Gitte, - en bítur þó ekki. Lán í óláni Tony Curtis hefur meira upp úr því að mála myndir en leika þessa dagana og því er kannske ekki furða, þó hann hafi fokreiðst, þeg- ar flugfélag eitt tilkynnti honum, að pakki með tíu málverkum hans væri týndur. Tony hafði sent pakk- an frá Los Angeles til Hawaii, þar sem hann býr raunar. í ljós kom, að málverkin höfðu hafnað hjá ungri stúlku að nafni Toni Curtis. Hún var svo heiðarleg, að hún tók pakkann og ók sjálf með hann heim til Tonys. Fyrir vikið bauð hann henni að mála mynd af henni - meira að segja ókeypis. Alltafversnarþað Nú er sagt að Michael Jackson sé farinn að súpa seyðið af því hvernig hann hefur farið með andlitið á sér á undanförnum árum. Hann kvað þjást mjög öðru hvoru, enda er húðin öll úr lagi gengin og eitthvað hlaut að verða undan að láta. Andlitshúðin er svo strengd á köflum, að hann á erfitt með að hlæja og skurðaðgerðirnar um- hverfis augun gera að verkum, að hann grætur stundum blóði

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.