Tíminn - 21.07.1988, Side 7
Fimmtudagur 21. júlí 1988
Tíminn 7
Húsnæðisbætur fyrir
tæpar 410 milliónir
Húsnæðisbætur verða greiddar í fyrsta skipti um næstu
mánaðamót og nema þær í heild tæpum 410 milljónum
króna. Jafnframt verður vaxtafrádráttur afgreiddur um
mánaðamótin en hann nemur um 680 milljónum króna í ár.
Rétt til húsnæðisbóta hafa allir
þeir sem hafa verið að kaupa eða
byggja sína fyrstu íbúð á tímabilinu
1984-’87. Hafi einstaklingur átt
íbúð fyrir ’84 má eignarhald í þeirri
íbúð ekki hafa verið meira en tvö
ár. „Dagurinn fram yfir tvö ár
skerðir rétt fólks til þessara bóta,“
sagði Trausti Hermannsson hjá
Skattstofu Reykjavíkur.
Óskertar bætur nema 46.200
krónum. Fjárhæðin verður greidd
út árlega næstu sex árin og er hún
vísitölutryggð.
„Bæturnar eru miðaðar við ein-
staklinga. Varðandi óréttlætið sem
einstæðir foreldrar voru að tala unt
má segja að auðvitað geta tíu
aðilar keypt íbúð og allir fengið
bætur en þá eru þeir líka að skerða
rétt sinn til að fá bætur aftur því
miðað er við að hver cinstaklingur
fái bætur aðeins einu sinni á æv-
inni," sagði Trausti.
Á sjöunda þúsund manns sóttu
um húsnæðisbætur, að sögn
Trausta. Af þeint fjölda fengu
20-25% synjun.
Spurður að því hverjir fengju
vaxtafrádrátt sagði Trausti það
vera þá einstaklinga sem ekki
hefðu sótt um húsnæðisbæturnar
en ættu rctt á þeim samt sem áður
auk þeirra sem ekki ættu rétt á
húsnæðisbótum en hcfðu vaxta-
gjöld umfram sjö prósent af tekju-
skattsstofni. IDS
Selfossbær og Samtök
sunnlenskra sveitarfélaga:
Kaupa kaup-
félagshúsið
á Selfossi
í gamla kaupfélagshúsinu verður
Héraðsbókasafn Árnessýslu og hér-
aðsskjalasafnið. Einnig verður þar
aðalskrifstofa Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga, Fasteignamat ríkisins
og Fræðsluskrifstofa Suðurlands.
Selfossbær fær sinn hluta hússins
afhentan eftir eitt ár, en SASS
einhvern tíma á öðru árinu. Kaup-
verð hússins er um 57 milljónir og
greiðist Vs út en afgangurinn á fimm-
tán árum. Húsið er um 1830 fermetr-
ar.
Selfossbær hefur einnig keypt
svokallaða Sigtúnalóð af kaupfélag-
inu, en hún er í næsta nágrenni
gamla kaupfélagshússins. Lóðin er
um 1,2 hektarar að stærð og er
kaupverð hennar 7,8 milljónir. SH
Nýr gosdrykkur er nú kominn í hóp
þeirra niörgu sem fyrir eru. Um er
að ræða nýtt Fanta-appelsín, og eins
og sjá má á mynd er það drukkið af
mikilli áfergju. (Timamynd: Gunnar)
NÝRGOS-
DRYKKUR
Verksmiðjan Vífilfell hf. hefur
hafið framleiðslu á nýju Fanta-app-
elsíni, þ.e. drykkurinn erframleidd-
ur eftir annarri uppskrift en áður.
Nokkur breyting hefur orðið á
bragði, en ákvörðun um bragðteg-
und var tckin í kjölfar markaðs-
könnunnar nú nývcrið. -gs
LAND-
GRÆDSLU
DAGURí
GUNNARS-
HOLTI
Landgræðslan hefur „opið
hús“ í Gunnarsholti helgina 23.-
24. júlí nk. kl. 10-19 til kynningar
á starfsemi sinni og höfuðstöðv-
um.
Kynnt verður saga Gunnars-
holts og hvernig umhverfi þess
hefur á 60 árum breyst úr svartri
sandeyðimörk í þann gróðurreit,
sem hann nú er. Upplýsingar
verða veittar um „Átak í land-
græðslu”.
Áburðarflugvélarnar verða á
flugvellinum í Gunnarsholti og
landgræðsluflugið kynnt þar.
Fólki gefst kostur á að sjá
Galloway holdanaut og grasfræ-
og lúpínuakra. Landgræðslupok-
inn verður til sölu.
Mikil skjólbeltaræktun er í
Gunnarsholti og margt fleira
forvitnilegt að sjá.
Veitingar verða á boðstólum,
en kjörið að taka með sér nesti
og snæða í trjágarðinum í Gunn-
arsholti.
Sérstakt kynningarátak fyrir-
tækja og stofnana á Hellu verður
einnig á laugardaginn.
Þetta er tilvalið tækifæri fyrir
alla fjölskylduna að skreppa aust-
ur í Gunnarsholt eða koma við
þar í helgarferðinni.
Gísli Guðmundsson forstjóri Bifreiða & Landbúnaðarvéla, Hlynur Árnason sölustjóri og Jón V. Guðjónsson framkvæmdastjóri við nýja húsnæðið í
Ármúlanum. , ,. , Timamynd: Gunnai
Lada umboöiö i nýju husnæði:
Bílarnir skráðir og
tilbúnir á götumar
Bifreiðar og Landbúnað-
arvélar hf., Lada umboðið,
hefur tekið í notkun nýtt
húsnæði að Ármúla 13.
Söludeild nýrra bifreiða er
nú í 950 m2 húsnæði, en var
áður í 100 m2 sýningarsal að
Suðurlandsbraut 14. Nýja
húsnæðið býður upp á marga
möguleika tengda bílasölu,
þar á meðal fjölda bifreiða
sem þegar er búið að skrá og
tilbúnar eru til afhendingar.
Hafist var handa við byggingu
nýja húsnæðisins haustið 1986. Hús-
ið er kjallari og fjórar hæðir og
heildarstærð þess er 3.200 m2 eða
18.000 m3. í kjallara er bílageymsla
og standsetning nýrra bifreiða. Á
götuhæð er sýningarsalur, bíla-
geymsla fyrir tilbúna bíla og einnig
söluskrifstofur. Þar fer fram afhend-
ing nýrra bifreiða.
Árið 1986 voru seldar 2.500 Lada
bifreiðar og á síðasta ári voru seldar
um 2.800 bifreiðar. Það sem af er
þessu ári hafa verið seldir 1.200
bílar.
í kjölfar opnunar þessa nýja hús-
næðis verða gerðar nokkrar skipu-
lagsbreytingar hvað varðar nýtingu
á öðru húsnæði fyrirtækisins. Verk-
stæði verður flutt í nýtt húsnæði og
stækkað og þannig aukin þjónusta
við Lada eigendur.
Um helgina verður, í tilefni opn-
unarinnar, bílasýning að Ármúla 13.
Boðið verður upp á veitingar.
Forstjóri Bifreiða og Landbúnað-
arvéla hf. er Gísli Guðmundsson og
stjórnarformaður Guðmundur
Gíslason. IDS
Lán til að greiða lán
í gær var undirritaður í Reykja-
vík lánssamningur milli Lands-
virkjunar annars vegar og jap-
önsku lánastofnananna Nippon
Life Insurance Company, The
Mitsui Trust and Banking Com-
pany Limited og The Norinchukin
Bank Limited hins vegar, en þær
eru allar staðsettar í Tokyo. Lánið
er að fjárhæð 5 milljarðar jap-
anskra yena, eða jafnvirði 1.733
milljóna íslenskra króna á núver-
andi gengi.
Halldór Jónatansson, forstjóri,
undirritaði lánssamninginn af hálfu
Landsvirkjunar, en lánstími hans
er 4'á ár. Þá eru vextir 5,5% p.a.
Landsvirkjun er heimilt að greiða
lánið upp fyrirfram hvenær sem er
án álags eftir 1 'A ár frá undirritun.
Lánið verður notað til að greiða
upp fyrirfram lán Landsvirkjunar
að sömu fjárhæð í japönskum yen-
um, sem tekið var fyrir milligöngu
Yamaichi Securities Company
Limited árið 1983 og ber mun
hærri vexti en nýja lánið, eða 8,6%
p.a.
Skuldabreyting þessi lækkar
vaxtagjöld Landsvirkjunar uni sem
næst 54 milljónir króna á ári miðað
við núverandi gengi. -SÓL